Morgunblaðið - 13.01.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 19
ERLENT
Er 15-20% kastað í sióinn?
Yfirvöld í Alaska hafa vaxandi
áhyggjur af umgengninni um
auðugustu fiskimið í heimi
FISKIMIÐIN í Beringshafi og Al-
askaflóa eru meðal mestu nægta-
búra náttúrunnar. í venjulegu ári
eru dregin þar úr sjó 2,4 milljónir
tonna af laxi, ufsa, krabba, lúðu
og öðrum flatfiski eða meira en
helmingur alls fískafla Bandaríkj-
anna. Þessi mið eru með öðrum
orðum þau gjöfulustu í heimi.
í skýrslu frá sjávarútvegsráðu-
neytinu í Alaska kemur hins vegar
fram, að á hveiju ári er kastað
aftur í sjóinn meira en 330.000
tonnum af fiski, sem er ýmist of
smár, ekki af réttri tegund eða
er veiddur á röngum tíma. Ef allt
er tekið með, er hugsanlegt, að
15% aflans sé fleygt árlega.
50 milljón máltíðir
Talsmenn sjávarútvegsins segj-
ast að vísu harma þetta en halda
því fram, að það komi ekki að
sök. Raunar er hugsanlegt, að
fyrrnefnd 15% séu allt of lág tala
vegna villna í skýrslum um auka-
afia og vegna þess, að veiðieftir-
litsmenn geta ekki fylgst með öllu,
sem fram fer. Því getur jafnvel
verið, að fimmtungur aflans fari
aftur í sjóinn.
Ef allur þessi afli væri nýttur
en ekki látinn rotna í sjónum,
nægði hann í fiskmáltíð fyrir alla
íbúa Kaliforníu og New York, 50
milljónir manna. Verra er þó, að
þessi sóun ásamt mikilli sókn
gæti leitt til sömu hörmulegu nið-
urstöðunnar og orðið hefur við
norðanvert Atlantshaf. Þar hefur
þorsk- og ýsuafli minnkað um 85%
frá því um miðjan sjöunda áratug-
inn, þúsundir manna hafa misst
atvinnuna og sumar tegundir eru
allt að því í útrýmingarhættu.
Gagnrýnendur þessarar sóunar
segja, að miklar sveiflur í ufsaafl-
anum bendi til, að verulegir erfið-
leikar séu framundan og þeir
nefna einnig, að sæljóni og sel
fari fækkandi, líklega vegna þess,
að ætið sé ekki nóg. Ekki fari
heldur hjá því, að milljónir dauðra
fiska valdi einhverri mengun en í
sjónum úti fýrir sumum fisk-
vinnslustöðvum í landi er nú nokk-
urra feta þykkt lag af úrgangi á
botninum.
Reglur, sem eru settar til að
vemda fiskinn, stuðla stundum að
sóuninni. Sem dæmi um það má
nefna fisk, sem kemur í veiðarfær-
in á „óleyfilegum" tíma, og vegna
þess, að ekki má koma með hann
í land, þá er honum kastað í sjó-
inn. Raunar setti N-Kyrrahafs-
fiskveiðiráðið reglur um, að hætta
yrði veiðum ef aukaaafli færi yfir
ákveðin mörk, en það virðist engu
hafa breytt. Sífellt meira hefur
verið kastað frá borði síðustu þrjú,
ijögur árin.
Stundarhagsmunir
Þetta stafar ekki endilega af
vanþekkingu eða ábyrgðarleysi
sjómanna, þeir eru einfaldlega að
gera það, sem kemur þeim best í
svipinn. Þótt settar hafi verið
hömlur á fjölda skipa, þá era þau
allt of mörg. Sóknin er of mikil
og það borgar sig ekki að koma
með ódýra fiskinn að landi. Hann
tekur upp pláss í lestinni og þarf
oft meiri vinnslu í landi. Hagfræð-
ingurinn Keith Criddell, sem skoð-
að hefur þessi mál, segir, að hald-
ið verði áfram að kasta fiski í sjó-
inn þar til skipstjórar og útgerðar-
menn telja sig örugga um að geta
náð þeim afla, sem þeir þurfa.
Aukaaflinn var aðalumræðu-
efnið á fundi fiskveiðiráðsins í
Anchorage í desember sl. Vora
embættismenn að vona, að sjó-
menn féllust á að koma með allan
afla að landi en þeir gerðu ekki
meira en að lofa að hugsa um
það. Raunar er til tækni, sem
auðveldar mönnum að forðast
ákveðnar fisktegundir. Fiskurinn
er mjög viðkvæmur fýrir hitastig-
inu og sl. 20 ár hafa Japanir ver-
ið með rannsóknir á því og straum-
um til að komast að því hvar hin-
ar ólíku tegundir halda sig helst.
Tækni af þessum toga væri
vafalaust til mikilla bóta en
ástandinu, sem nú ríkir, verður
best lýst með þessum orðum kunn-
ugs manns:
„Við erum enn inni í hinum
myrku miðöldum. Köstum bara
út netinu og skoðum síðan hvað
í það kemur.“
Heimild: The Economist
Atlanta
hættuleg-
asta borgin
Washington. Reuter.
ATLANTA er hættulegasta borg
Bandaríkjanna, samkvæmt skýrsl-
um alríkislögreglunnar (FBI) yfir
ofbeldisglæpi á borð við morð,
nauðganir, rán og líkamsárásir.
Niðurstaðan byggist á skýrslum
um glæpi á árinu 1994 í borgum
með meira en 100.000 íbúa. New
York-borg og Washington D.C.
komast ekki á lista yfir 10 hættu-
legustu borgir landsins.
Þegar 195 bandarískum borgum
er raðað eftir því hversu öruggir
menn geta talist þar er New York
í 132. sæti, Washington í 173. en
Atlanta í 195. og neðsta sæti.
Atlanta reynist hættulegasta
borgin annað árið í röð. Næst henni
komu nú Flint í Michigan, St. Lou-
is í Missouri, Tampa í Flórída,
Detroit í Michigan, Kansasborg í
Missouri, Newark í New Jersey,
Little Rock í Arkansas, Baltimore
í Maryland og Birmingham í Alab-
amaríki.
Þegar litið er til stórborgar-
svæða, borgar og úthverfa hennar,
sem einnar heildar, mælist Miami
á Flórída hættulegast slíkra svæða.
Reuter
Minnist Flóastríðsins
SALEM al-Srour, undirhers-
höfðingi í her Kúveit, minnist
þess að siðar í mánuðinum eru
liðin fimm ár liðin frá upphafi
Persaflóastríðsins. Stendur al-
Srour innan um ónýta skrið-
dreka íraska hersins en undir-
hershöfðinginn var í her lands
ins þegar írakar réðust inn í
Kúveit árið 1990.
Andlát Frangois Mitterrands
Lauk við endur-
minningarnar
Reuter.
FRANCOIS Mitterrand, fyrrver-
andi Frakklandsforseti, sem var
lagður til hinstu hvílu í fæðing-
arbæ sínum á fimmtudag, var í
gær sagður hafa skrifað til síðasta
dags og lokið við endurminningar
sínar. Vinir hans og samstarfs-
menn sögðu hann einnig hafa búið
sig undir dauðann af ýtrustu ná-
kvæmni.
Mitterrand var efasemdamaður
S trúmálum en velti þeim mjög fyr-
ir sér og vangaveltur um dauðann
voru honum hugleiknar. Hann var
einnig mjög ritfær og skrifaði end-
urminningar sínar til síðasta dags
og lauk þeim, að sögn útgáfustjóra
Odile Jacob-útgáfunnar.
Hann vildi aldrei nota ritvélar
eða tölvur en skrifaði með sjálf-
blekungi. Hann ætlaði jafnvel að
halda skrifunum áfram morguninn
sem hann andaðist en lagðist til
svefns þar sem honum leið ekki
vel og vaknaði ekki aftur.
„Hef sálarfrið11
„Nokkrum dögum fyrir andlátið
sagði hann við mig: „núna hef ég
sálarfrið“,“ sagði Roland Dumas,
náinn vinur Mitterrands og fyrr-
verandi utanríkisráðherra, í sjón-
varpsviðtali.
Franska dagblaðið Le Monde
fullyrti að Mitterrand, sem var
með krabbamein í blöðrahálskirtli,
hefði spurt lækni sinn sl. laugar-
dag hvað myndi gerast ef hann
hætti að taka öll lyf nema vérkja-
lyf. Læknirinn, Jean-Pierre Tarot,
sagði að hann myndi deyja innan
þriggja daga, að sögn Le Monde.
Mitterrand lést á mánudags-
morgun, 79 ára að aldri. Daginn
áður afhenti hann gömlum sam-
starfsmanni sínum, André Rousse-
let, þriggja síðna handskrifað bréf
þar sem hann lýsti þvl nákvæmlega
hvernig útfórin ætti að fara fram.
Flest dagblöð í Frakklandi birtu
stórar myndir af ástkonu Mitterr-
ands, Anne Pingeot, og dóttur
þeirra Mazarine, sem stóðu við
hlið eiginkonu hans og tveggja
sona þeirra við látlausa útför í
fæðingarbæ hans. „Fjölskyldu-
mynd sem aðeins franska þjóðin
myndi leyfa," sagði í fyrirsögn
Liberation, sem bætti við að slík
sýn væri „óhugsandi í Bandaríkj-
unum og myndi valda hneyksli
handan Ermarsundsins".
SÆLUMJOLK
Fmmkiðmdfoir: Mjj&lkwsamlög KEA> K$„ KÞ qg SAH. Atyðámmmlm og ImmkHéméw..
eSAUGLÝSINGASTOFA