Morgunblaðið - 13.01.1996, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 13.01.1996, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 23 Trefjarík fæða fyrir meltinguna MEÐALMAÐUR sem borðar um 2.500 hitaeiningar á dag ætti að fá að minnsta kosti 25_g af trefjum úr fæðunni. í manneldismarkmiðum ís- lendinga segir að trefjar séu nauðsynlegar fyrir heilbrigði meltingarvegar. Þær örva meltinguna og hreyfingu þarma og auk þess hægja þær á upptöku næringarefna úr meltingarvegi. Hæfileg neysla er tryggð með því að borða gróf brauð eða annan kornmat daglega, a.m.k., 100 g af grænmeti auk kartaflna og einn til tvo ávexti á dag. Ef ekki hefur verið borðuð trefjarík fæða um skeið borgar sig að fara hægt af stað því annars gera kannski melting- aróþægindi vart við sig. Fæðutegund trefjainnihald í 100 grömmum fíkjur 18,5 g þurrkaðar apríkósur 24 g sveskjur 16 g rúsínur 7 g soðið spínat 7 g baunir 7 g spergilkál 3,5 g bananar 3,4 g Almanak Þjóövinafélagsins er ekki bara almanak. IþvierAibói t&fca1 íl Islands með Iróðleik um órferði, alvinnuvegi, íþtólfn, E', sljórnmál, mannalál |s| og margl leira. Fæsl í bókabúðum 1 umlandalll. "I 1 i Fáanlegir eru .jj eldii árgangar, ____ aliliá 1946. SÖGUFÉIAG Sögufélag, Fischersundi 3, sími 551 4620. 1902 NEYTEIMDUR Sky ndibitafæði getur verið hollt SNÖGG máltíð við pylsuvagninn eða hjá pizzusalanum er ekki eins óholi og margir vilja vera láta og ef maður vandar valið getur mað- ur orðið sér úti um til- tölulega hollap og nær- ingarríkan skyndibita. Þetta kemur fram í nýju tölublaði rits dönsku hollustuverndarinnar, LST-nyt, en starfsfólk hollustuverndarinnar fékk sér göngutúr á Köbmagergade í Kaup- mannahöfn til að skoða úrval og gæði skyndibitafæðis. Það er hins vegar ekki sama hvað maður velur og hamborgara- staðir eru varhugaverðari en flest- ir aðrir staðir. Matur sem þjóðir og þjóðarbrot frá fjarlægum lönd- um, matreiða og bjóða sem skyndi- fæði er aftur á móti hollur, enda inniheldur hann alla jafna gott hráefni svo sem magurt kjöt, grænmeti, brauð eða hrísgrjón. Langlokur geta einnig verið ágæt- is máltíð svo framarlega sem þær eru ekki löðrandi í sósu. Krósöntur með fyllingu ættu einnig að vera í lagi. Öðru máli gegnir um pizzur, en ef maður var- ar sig á áleggi með feit- um ostum og þykkum kjötsósum og man eftir að borða allt brauðið eru þær sæmilega hollar. Sinnep og tómatsósa ekki fitríkt meðlæti Kínamatur er ekki svo slæmur, að minnsta kosti ef maður velur sér rétti með hrísgrjónum og chop suey. Vorrúllurnar eru einnig í fínu lagi þrátt fyrir að þær séu djúp- steiktar. Maður ætti hins vegar að halda sig fjarri grilluðum kjúkl- ingum með frönskum kartöflum og remúlaði, að minnsta kosti ef maður vill hafa einhveija stjórn á því hve mikla fitu maður lætur Skyndibitar þjóða og þjóð- arbrota frá fjarlægum löndum eru alla jafna hollir. ofan í sig. Þá eru steiktar kjötboll- ur með kartöflumús og feitri sósu ekki nógu hollar. Soðnar vínarpylsur hlutu hins vegar náð fyrir augum hollustu- verndarinnar, að því tilskildu að fólk borði gott brauð með. Sinnep og tómatsósa eru ekki fituríkt meðlæti. Hrifning starfsmannanna var hins vegar ekki mikil þegar þeir fengu sér hamborgara. Þeim fannst brauðið lint, kjötið feitt og ekki voru sósurnar betri. Brauðið og kjötið fóru ekki saman og enn verra varð það ef franskar kartöfl- ur voru keyptar með og mjólkur- hristingur á eftir. Nýtt kortatimabil. Dæmi um minni kr. stærri kr. Alparós Stofuaskur Lára iónsdóttir Hafsteinn Hafliðason Sérfræðingar á staðnum alla daga Fáið góð ráð. Primúlur Jukka 45 cm Ráðeiöf - plöntuval

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.