Morgunblaðið - 13.01.1996, Page 30

Morgunblaðið - 13.01.1996, Page 30
30 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 31 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: RITSTJÓRAR: Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. RÆÐA THATCHER MARGARET Thatcher, fyrrum leiðtogi breska íhaldsflokksins og forsætisráðherra, gagnrýndi í ræðu á fimmtudagskvöid harðlega þá stefnu er flokkurinn hefur fylgt eftir að hún lét af embætti og John Major forsætisráðherra tók við. Thatcher sagði eina helstu ástæðu óvinsælda íhaldsmanna vera að horfið hefði verið frá þeirri um margt róttæku stefnu er hún fylgdi sem forsæt- isráðherra. Með því hefði flokkurinn jafnframt snúið baki við mikilvægustu stuðningsmönnum sínum í millistétt landsins. Thatcher sagði að „stöðug barátta“ væri nauðsynleg til að tryggja að flokkar misstu ekki móðinn þó að þeir sætu lengi í ríkisstjórn. Hvatti hún til að á ný yrði hafin barátta fyrir því að draga úr ríkisafskiptum og lækka skatta. Greining Thatcher á vanda íhaldsflokksins er um margt athygl- isverð en hún er að sama skapi umdeilanleg. Það fer ekki á milli mála að flokkurinn hefur átt í alvarlegri kreppu um nokkurt skeið. Samkvæmt skoðanakönnun í þessari viku hefur Verkamannaflokkurinn fjörutíu prósentustiga forskot á íhaldsflokkinn. Þingmeirihluti hans fer stöðugt minnkandi og forsætisráðherrann verður að treysta á atkvæði Evrópuandstæð- inga í eigin flokki og írskra sambandssinna þegar hann hyggst knýja mál í gegn. Það er rétt hjá Thatcher að sjá má augljós þreytumerki á íhaldsmönnum eftir langa setu í ríkisstjórn. Hinn ungi leiðtogi Verkamannaflokksins, Tony Blair, hefur tekið allt frumkvæði í breskri stjórnmálaumræðu og virðist á góðri leið með að end- urnýja hugmyndafræðilegan grunn flokksins. Á sama tíma eiga íhaldsmenn í stöðugum deilum um stefnu sína, ekki síst í Evrópumálum. Eftir fjögurra kjörtímabila stjórnar- setu eiga þeir erfitt með að koma með nýjar og ferskar hugmynd- ir inn í umræðuna. Það myndi varla leysa nokkurn vanda, þótt farið yrði að ráðum Thatcher. Deilur um Evrópumáf og óeining innan flokksins voru einmitt helsta ástæða þess að hún lét af embætti á sínum tíma. Major hefur sem leiðtogi flokksins staðið frammi fyrir því erfiða hlutskipti að reyna að halda flokknum saman þrátt fyrir deilurn- ar. Að mati manna á hægri væng flokksins, hefur hann fært stefnu flokksins of langt inn á miðju. Að mati manna í miðju flokksins hefur hann fært stefnu flokksins of langt til hægri. Hætta væri á klofningi íhaldsflokksins, ef hann færi að ráðum Thatcher og tæki eindregið afstöðu með annarri fylkingunni í þeirri togstreitu sem á sér stað. Þetta er sami vandi og Thatcher sjálf stóð margsinnis frammi fyrir þau ár er hún var forsætisráð- herra. Rétt eins Major nú valdi hún oftar en ekki þann kost að miðla málum fremur en að láta sverfa til stáls. STARFSMANNAMÁL RÍKISINS MEIRA en helmingur starfsfólks ráðuneytanna er titlaður sem yfirmenn. Sömuleiðis vinna margir ráðuneytisstarfsmenn þá yfirvinnu, sem þeir fá greitt fyrir, í dagvinnu og fá oft fastar yfirvinnugreiðslur óháð vinnuframlagi. Þá fá menn greitt fyrir aukastörf, sem þeir vinna í vinnutímanum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þessi dæmi sýna vel í hvers konar ógöngur launa- og starfs- mannamál ríkisins eru komin. Ofangreindar staðreyndir eru ekki til marks um að ráðuneytisstarfsmenn séu almennt yfirborgaðir, í þeim skilningi að þeir vinni ekki fyrir kaupinu sínu. Þvert á móti er taxtakaup þeirra svo lágt að vinnuveitandi þeirra, ríkið, verður að grípa til alls konar furðulegra úrræða til að hækka laun þeirra; gera ritara að deildarstjóra; borga mönnum yfirvinnu og bílastyrk þótt þeir vinni hvorki eftir klukkan fimm né eigi bíl; bæta nefndastörfum á starfsmenn, sem biðja um launahækk- un. Ríkið er í samkeppni við einkaaðila um hæfa starfskrafta. Það hljóta því að vera hagsmunir ríkisins og stofnana þess að breyt- ingar verði í starfsmannamálum, sem gera kleift að bjóða fólki sömu kjör og möguleika og bjóðast á hinum almenna vinnumark- aði. Þannig hlýtur að verða leitazt við að einstakar stofnanir ríkis- ins geti umbunað starfsmönnum sínum í samræmi við frammi- stöðu þeirra og ábyrgð, í stað þess að vera niðurnjörvaðar í starfsaldurs- og stöðuhækkanakerfi, sem stuðlar að því að allir séu gerðir að „yfirmönnum". Um leið og launakerfi ríkisins er gert sveigjanlegra og gagn- særra, er hins vegar auðvitað eðlilegt, eins og Friðrik Sophusson fjármálaráðherra hefur bent á, að breytingar verði gerðar í þá átt að sem minnstur munur sé á réttarstöðu opinberra starfs- manna og þeirra, sem starfa á almennum vinnumarkaði. Æviráðn- ingar eru þannig til dæmis í raun stjórnunarvandamál hjá ríkinu, vegna þess að erfitt er að gera stjórnendur ábyrga fyrir árangri stofnana sinna. í stuttu máli er þörf á að færa starfsmannamál ríkisins nær því, sem gerist á hinum almenna vinnumarkaði, og miklu skiptir að sú vinna, sem fjármálaráðuneytið hefur lagt í undirbúning slíkra breytinga undanfarin ár, skili sér í framkvæmd. Morgunblaðið/Þorkell ÞORSKI landað í Sandgerði í aflahrotunni útaf Reykjanesi. Stórþorskur á flestum miðum Sjómenn virðast einhuga um að vertíð hefjist óvenju vel og mið séu víða full af þorski. Bátar með lítinn kvóta f'lýja þorskinn, en aðr- ir eru kátir. Morgunblaðið ræddi við nokkra sjómenn um aflabrögðin. Jón Bessi Árnason á Guðrúnu Hlín BA Metafli hjá sumum „VESTFJARÐASKIPUNUM hefur gengið mjög vel og hjá sumum sem ég veit um er metafli, eins og hjá Tjaldi frá Rifi, sem veiddi á milli 360 og 370 tonn á linu í desember," sagði Jón Bessi Árnason, skipstjóri á Guð- rúnu Hlín BA frá Patreksfirði, sem var á veiðum á norðanverðum Hala- miðum í gær. „Sjálfir höfum við veitt ríflega 220 tonn á línu síðustu fjórar vikur og í þessum orðum töluðum er ég að draga inn 300 kílóa bala.“ Jón Bessi sagði þorskinn góðan en þó ekki risastóran, kannski um 3-4 kíló, enda sé mjög stór fiskur sjald- gæfur á Vestfjarðamiðum. Fast kíló- verð er 70 krónur en á markaði hefur fengist um 90 krónur fyrir þorskinn. Jón kveðst efins um að auka þurfi kvótann, enda hafi línubátarnir lítið verið á grunnslóð seinustu viku. „Við vitum ekkert um grunninn eins og er og ég vil fá að sjá þorskinn þar, áður en ég trúi því að hann sé kominn til að vera. Ég er þó vongóður." Oddur Sæmundsson á Stafnesi KE Góð aflabrögð Oddur Sæmundsson, skipstjóri á Stafnesi frá Keflavík, sagði að nú væri sá tími, sem mest fengist fyrir þorskinn, og því legðu menn mikið kapp á að ná honum. „Þetta er ágætis byrjun á vertíð," sagði Oddur. „Mér hefur fundist hin síðari ár að það sé einfaldlega meira af fiski á miðunum og maður finnur að það er auðveldara að ná honum og það þarf minna að hafa fyrir þessu. Það er mælikvarði hjá okkur, sem störfum við þetta. Það er ekkert vandamál að ná í þorsk, en karfí grá- lúða og ufsi hafa goldið fyrir veiðistýr- inguna.“ Oddur sagði að það kæmi á óvart hve mikið væri af fiski, einkum vegna þess að verið hefði norðaustanátt og hann myndi ekki eftir því að fískur gysi svona upp í Faxaflóa við slíkar kringumstæður. Stafnesið fékk „aðeins“ sjö tonn í gær og sagði Oddur að það hefði ver- ið lélegasti dagurinn á árinu, en á mánudag hefðu aflast 30 tonn. Örn Holm á Ágústi Guðmundssyni GK Bætt við kvóta? Örn Holm er stýrimaður á Ágústi Guðmundssyni, sem nú gerir út á net frá Keflavík og landaði 26 tonnum í gær. Hann sagði ljóst að nú væri þorskur meiri en áður. „Það er tölu- verður fiskur á stóru svæði hérna norður frá,“ sagði Örn. „Fiskurinn er stór og fallegur og menn hafa verið að komast upp í að fá sjö til níu tonn í trossu." Öm sagði að ekki væri munur á aflabrögðum milli báta: „Það er ekki einn og einn bátur að reka í þetta, heldur er veiðin almenn og á stóru svæði.“ Örn kvaðst þeirrar hyggju að afla- brögðin mætti meðal annars rekja til þess að tíð hefði verið óvenjugóð, auðvelt að sækja sjó og net lægju vel. Hins vegar væri töluvert af fiski og hann væri stór, milli tíu og fjórtán kg. Guðmann Magnús- son á Ófeigi VE Áflótta undan þorski Guðmann Magnússon, skipstjóri á Ófeigi frá Vestmannaeyjum, er í sömu stöðu og starfsbróðir hans á Guðrúnu. „Við erum á flótta undan þorski allt árið,“ sagði Guðmann í gær. „Veiðin hefur verið gloppótt. Við höfum verið að veiða fyrir austan þar sem ekki er mikill þorskur og fengið upp í tíu tonn á dag í trollið." Guðmann sagði að þeim mun minna, sem væri af þorski í túr, þeim mun betra, til að endar næðu saman um áramót og flestir bátar í Vest- mannaeyjum reyndu að forðast þorsk. Hann kvað hafa verið óvenjumikið af þorski út af Reykjanesi, fyrir vest- an og fyrir Norðurlandi. „Allur flotinn er núna að leita að ufsa vegna þess að hann er kvótafrír fískur," sagði Guðmann. „Þorskfrið- unin hefur verið dýr vegna þess að fyrir vikið hefur verið gengið á svo margar aðrar tegundir eins og stein- bít, ufsa, grálúðu og karfa.“ Erlingur Helgason á Friðriki Bergmann SH Þarf að auka kvótann „ÞAÐ er allt fullt af þorski," sagði Erlingur Helgason, skipstjóri á Frið- riki Bergmánn SH, sem var á veiðum um 20 mínútna siglingu frá Ólafsvík í gær. „Skipin hérna í kring eru að fá allt upp í 20 tonn og allir eru með eitthvað. Við vorum sjálfir að taka eitt hal upp á fjögur tonn af mjög stórum þorski, frá sjö ±il tólf kíló.“ Þeir eru á dragnót og sagði Erling- ur talsvert síðan þorskurinn lét á sér kræla. „Við erum með 200 tonna kvóta og búnir með hann að mestu, en erum einnig að leigja kvóta og fiska fyrir aðra. Fyrir okkur er samt ekk- ert annað að gera en að binda bátinn á næstu dögum. Sama máli gegnir um flesta þannig að menn ráfa hér um miðin í von um að finna eitthvað annað en þorsk.“ Verndun virðist að sögn Erlings hafa skilað árangri, en „öfgarnar í fiskveiðistjórnuninni ná engri átt og þegar svona mikið er af þorski þarf kerfið að auka kvótann með litlum fyrirvara, kannski um 20-30 þúsund tonn. Síðan er hægt að minnka hann aftur." Árni Einarsson á Happasæl KE Sama hvar bátar eru Árni Einarsson, vélstjóri á Happa- sæl frá Keflavík, sagði að afli hefði verið góður, veiðst hefðu 12 tonn í gær og þar áður 24 tonn tvo daga í röð. „Aflabrögð hafa verið mjög góð undanfarna daga og það er alveg sama hvar bátarnir eru,“ sagði Árni. „Við höfum verið að fá 180 til 220 tonn í janúar, en nú erum við komnir með 150 tonn frá áramótum." Hann sagði að þessi mikli afli núna væri vísbending um að þorskstofninn væri að taka við sér. „Við fengum strax góða túra í jan- úar og það mun ganga fljótt á kvót- ann. Þeir sem hafa bolmagn til þess kaupa og kaupa kvóta,“ sagði Árni Stefnuskrár framboðanna til stjórnar og trúnaðarráðs Dagsbrúnar Ljósmynd/Magnús Ólafsson MARGT hefur breyst frá því að þessi mynd var tekin af hópi grjótnámsmanna í Reykjavik snemma á öldinni. Dagsbrúnarmennirnir stilla sér upp fyrir ljósmyndara í Öskjuhlíð en efni til hafnargerðar í Reykjavíkurhöfn var numið úr Öskjuhlíð og Skólavörðuholti. Tekist á um skipu- lag og starfshætti Skipulag Dagsbrúnar, starfshættir forystunn- ar og kosningafyrirkomulag eru fyrirferðar- mestu málefnin í stefnuskrám beggja fram- boðanna til stjómar og trúnaðarráðs Dags- brúnar. Ekki verður séð að teljandi munur sé -------------------------------7----- á kjarastefnu framboðsfylkinganna. Omar Friðriksson bar saman stefnumál listanna. Að hans sögn var að veiði í janúar svipuð fyrir sex eða sjö árum, en þá hefði fiskurinn hins vegar verið minni og legið grynnra: „Við lönduðum ein- um fiski, sem var 21 kg þegar búið var að fletja hann.“ Óttar Guðlaugsson á Auðbjörgu SH Stofninn vanmetinn „ÉG er búinn að segja í þijú ár að þorskurinn sé kominn aftur og nú getur enginn mótmælt mér. Að vísu koma dagar sem eru alveg dauðir, enda virðist þorskurinn gefa kost á sér á ákveðnum tíma, eftir straumum og fleiru, en þótt þetta sé lottó er heildin góð,“ sagði Óttar Guðlaugs- son, skipstjóri á Auðbjörgu SH frá Ólafsvík. Hann sagði að vemd þorskstofnsins virtist helsta skýringin á þorskgengd- inni nú, en hins vegar sé svo mikið af stórum físki að margt bendi til að fræðimenn hafí metið stærð hrygning- arstofnsins ranglega. „Þeir horfa á það sem komið er með í land og eftir að flotinn fór að nota togveiðifæri, troll og línu, í eins miklum mæli og nú er, veiðum við smærri físk og þá er hrygningarstofninn afskrifaður," sagði hann. Axel Jónsson á Melavík SF Þorskur á stærð viðkýr „HÉR er allt fullt af risaþorski," sagði Axel Jónsson, skipstjóri á Mela- vík SF, sem var á veiðum í Lóndjúpi í gær. „Þetta eru 10 til 15 kílóa skepn- ur, á stærð við kýr segi ég. Við getum líka beitt okkur með línu og veiðum þorskinn eins og druslan dregur, því við erum ekki svínbundnir af kvótan- um. Enda er gaman að lifa núna.“ Melavík var búin að veiða 35 tonn af þorski í gær eftir þrjár lagnir. Hann þakkaði verndun þorskstofnsins gengdina nú, þó svo að þorskurinn sé kenjóttur. „Það er ekki svo mikið af þorski að hægt sé að ganga á hon- um, en hins vegar er meira af fiski en verið hefur. Þeir sem mega veiða þurfa ekki að væla. Axel kveðst þó ekki fylgjandi því að auka þorskkvótann, betra sé að endurskoða aflaheimildir á næsta ári. Hann kveðst gera sér vonir um að fá 130 krónur fyrir kílóið af þeim stóra og „leggst í þunglyndi ef það gengur ekki eftir“. Ingvar Hólmgeirsson á Sigþóri ÞH Vemdun að skíla árangri Ingvar Hólmgeirsson, skipstjóri á Sigþóri frá Sandgerði, hefur verið á línu og sagði að veiðin hefði verið þokkaleg. Meginuppistaða aflans væri þorskur, en keila, ýsa og langa hefðu veiðst í bland. „Ég get verið sammála um að frið- unaraðgerðir síðustu árin séu að skila okkur góðum árangri,“ sagði Ingvar. „Það hefur viða orðið vart við þorsk- inn og það er góðs viti. Menn eru bjartsýnir á framhaldið og sjá jafnvel fram á að nú verði hægt að komast út úr þeirri úlfakreppu, sem kvótinn hefur valdið. Það er orðin full ástæða til að huga að aukningu kvóta." Á Sigþóri veiddust milli 17 og 18 tonn í gær, en Ingvar sagði að of skammt væri liðið á vertíð til að hægt væri að spá um framtíðina. FRAMBOÐ uppstillinga- nefndar núverandi stjómar og trúnaðarráðs Dagsbrún- ar, A-listinn, segir í nýút- kominni stefnuskrá sinni að gagnrýni á lög félagsins, sem geri almennum félagsmönnum nær ókleift að bjóða fram gegn sitjandi stjóm, eigi við rök að styðjast. Þó verði að taka tillit til þess að kosningakerfið leiði til þess að í stjórn og trúnaðarráð veljist fólk frá sem flestum vinnustöðum. Mótframboð hóps verkamanna í Dagsbrún, B-listinn, hefur gagnrýnt kosningakerfí og lög félagsins harð- lega. „Kosningafyrirkomulag félags- ins hefur tryggt stjórninni setu eins lengi og menn hafa nennt að sitja. Hún hefur nær ávallt verið sjálfkjör- in. Trúnaðarráð hefur verið valið of- anfrá af forustunni. Ef einhveijir hafa rekist illa í flokki hefur forustan auðveldlega getað ýtt þeim til hlið- ar,“ segir í stefnuskrá B-listans. í stefnuskrá A-listans eru boðaðar nokkrar breytingar á lögum félagsins m.a. í þá átt að auðveldara verði að breyta lögunum. „Það má ekki verða þannig lengur að menn hætti við að bera fram hugmyndir um breytingar á stjórnarháttum félagsins vegna þess hve erfitt sé að breyta lögunum,“ segir í stefnuskrá A-Iistans. Settar eru fram hugmyndir um breytt kosningafyrirkomulag. Er lagt til að félagsmenn geti kosið persónu- legri kosningu formann, varafor- mann, ritara og gjaldkera. „Einnig væri æskilegt að kjósa helming stjórnar og trúnaðarráðs í einu, til tveggja ára í senn, til þess að tryggja bæði endurnýjun og samfellu. Við sem erum í uppstillingu stjórnar og trúnaðarráðs til stjórnarkjörs höfum einsett okkur að Ieggja fram, ef við náum kjöri, tillögur um breytingar á lögum Dagsbrúnar á fundi trúnaðar- ráðs í október næsta haust,“ segir í stefnuskrá A-listans. Mótframboðið boðar tafarlausar breytingar á skipulagi Dagsbrúnar. Lagt er til, líkt og A-listinn gerir, að tekið verði upp persónukjör í stað listakosninga. B-listinn vill einnig að deildir verði stofnaðar innan félags- ins þar sem starfsmenn í einstökum greinum geti sjálfír ráðið sínum samningum um sérmál og að allir sem greiða lágmarksgjald til félags- ins verði sjálfkrafa fullgildir félags- menn. Stjórnin verði kosin í almenn- um kosningum og hver frambjóðandi þurfi aðeins meðmæli 15 félags- manna. Félagsmenn geti boðið sig fram í einstök embætti en kjörtíma- bilið verði lengt í tvö ár. B-listinn vill skilja kosningu trúnaðarráðs frá kosningu stjórnar Dagsbrúnar og að sá „ósiður“ verði afnuminn að stjóm félagsins skipi trúnaðarmenn á vinnustöðum. Rífa niður fílabeinsturninn A-listinn leggur áherslu á samein- ingu stéttarfélaga ófaglærðs verka- fólks á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar eru ýmsir varnaglar slegnir varðandi deildaskiptingu félagsins. Dagsbrún er með 20 sérkjarasamn- inga og í stefnuskrá A-lista er bent á að hugmyndir um deildaskiptingu félagsins þurfi að vera áfram á dag- skrá. Deildaskipting geti hentað þar sem fólk greinist í skýrt afmarkaðar starfsgreinar á stóru félagssvæði. Það hafí hins vegar valdið erfíðleik- um í Verkamannasambandinu að margir litlir vinnustaðir og minni starfsgreinar detti á milli stóla í deildaskiptingu VMSÍ. í stefnuskránni segir að ef það sé ríkjandi skoðun að skrifstofa Dags- brúnar sé eins og fílabeinsturn þá verði að breyta því með því að rífa turninn. „Ný stjórn í Dagsbrún stefnir að því að gera úttekt á rekstri félagsins og ráða í framhaldi af því skrifstofustjóra til þess fyrst og fremst að annast rekstur og af- greiðslu á skrifstofunni, þannig að formaður og annar starfsmaður fé- lagsins geti sinnt félagsmálum og samningamálum að fullu. Það verður að játa að vinnustaðaeftirlit er minna en til hefur staðið. Það er hins vegar fullur vilji til þess að taka upp virkt vinnustaðaeftirlit en til þess að það sé hægt þarf að breyta starfsháttum á skrifstofu Dagsbrúnar," segir í stefnuskrá A-listans. Starfshættir Dagsbrúnar eru harð- lega gagnrýndir af fulltrúum B-list- ans. „Forusta Dagsbrúnar hefur ein- angrast frá almennum verkamönn- um, þannig að hún hefur setið á skrifstofunni og beðið eftir að mál bærust inn á þeirra borð,“ segir í stefnuskrá mótframboðsins. „Fáir vita að í Dagsbrúnarhúsinu er aðstaða til félagsstarfs sem nú er stórlega vannýtt. Hve margir vita t.d. að Dagsbrún á gott bókasafn? Höfuðmálið í húsnæðismálum Dags- brúnar er ekki að útvega forustunni glæsilegri skrifstofur, heldur að gera höfuðstöðvar félagsins að virkri mið- stöð í félagslífi verkafólks," segir í stefnuskrá B-listans. Höfuðáhersla á hækkun kauptaxta í kjaramálum leggja bæði fram- boðin áherslu á hækkun kauptaxta. A-listinn setur fram efasemdir um samflot við gerð kjarasamninga. „Dagsbrúnarmenn hljóta að velta því fyrir sér hvort ekki sé komið aftur að upphafinu og að félagið verði að heyja sína baráttu eitt og óstutt. Þetta er umræðuefnið á næstunni og verði niðurstaðan sú reynir á hvort félagsmenn eru reiðubúnir til þess að fýlkja sér að baki eindreginna krafna í kjaramálum. Þá mun reyna mjög á innri styrk Dagsbrúnar,“ seg- ir í stefnuskrá A-listans og áhersla er lögð á eftirfarandi atriði í kjara- málum: Beinar launahækkanir, taxtahækkanir í stað eingreiðslna, grunnkaup sem nálgast raunveruleg- ar launagreiðslur og stóreflingu starfsmenntunar. B-listinn telur að beita verði öllu afli félagsins til að hækka kauptaxt- ana og því verði að skera upp alla samninga og sérkjarasamninga við gerð næstu kjarasamninga. Uppkast að nýjum samningum þurfí að liggja fyrir í haust og þá verði krafist við- ræðna við atvinnurekendur. Ef samn- ingar nást ekki fyrir næstu áramót verði kröfunum fylgt eftir af fullum þunga. B-listinn vill að bundið verði í samninga að lægstu taxtar hækki um sömu krónutölu og meðalkaup hækkar miðað við launavísitölu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.