Morgunblaðið - 16.01.1996, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 47
FRÉTTIR
Ur dagbók lögreglunnar
Tveir ölvaðir öku-
menn í óhöppum
Fimmti
kennslu-
vetur Skák-
skólans
SKÁKSKÓLI íslands var stofnað-
ur með lögum frá Alþingi árið
1990. Fyrsta skólasetningin var
10. september 1991 þannig að nú
stendur yfir fimmti kennsluvetur
skólans.
Kennsla í skólanum á Reykja-
víkursvæðinu er tvískipt, kennt er
í almennri deild og framhaldsdeild.
í framhaldsdeildinni kenna stór-
meistarar úrvalsnemendum að
jafnaði einu sinni viku, tvær
klukkustundir í hvert skipti.
Allir styrkleikaflokkar
Kennsla í almennu deildinni á
vorönn hefst vikuna 22.-27. jan-
úar nk. Kennt verður í öllum styrk-
leikaflokkum, byrjendafiokki, al-
mennum flokkum 1-2 og fram-
haldsflokkum 1-2. Jafnframt er
boðið upp á kennslu í fullorðins-
flokki, kvennaflokki og bréfaskóla.
Kennt verður í tveim sex vikna
námskeiðum, tvær klukkustundir
í senn.
Allar upplýsingar eru gefnar kl.
10-13 alla virka daga í síma Skák-
sambands íslands.
UM HELGINA var tilkynnt um
18 innbrot, 5 þjófnaði, 13 eignar-
spjöll og 3 líkamsmeiðingar til
lögreglunnar. Afskipti þurfti að
hafa af 36 manns vegna óhóflegr-
ar áfengisdrykkju og vista þurfti
35 einstaklinga í fangageymslun-
um, bæði vegna þess og einnig
vegna ýmissa annarra mála.
Ástæða þótti til að kæra 26
ökumenn fyrir að aka hraðar en
leyfileg hámarkshraðamörk sögðu
til um. Ijórir ökumenn, sem lög-
reglumenn höfðu afskipti af um
helgina, eru grunaðir um ölvuna-
rakstur. Tveir af þeim höfðu lent
í umferðaróhöppum áður en til
þeirra náðist. Vonandi er að fólk
fari að láta segjast og aki ekki
undir áhrifum áfengis, enda
óþarfa áhætta í ljósi þeirra slysa
og mikla kostnaðar, sem því getur
orðið samfara.
Innbrot
Á föstudagsmorgun var brotist
inn í íbúð við Nýlendugötu, en
óvíst var hveiju var stolið. Farið
var inn í hús við Engjaveg. Þá
var farið inn í verslun við Vestur-
götu. Síðdegis á föstudag var til-
kynnt um að stolið hefði verið
ýmsum hlutum úr íbúð við Möðru-
fell. Á föstudagskvöld var tölvu
og sjónvarpi stolið úr íbúð við
Beykihlíð.
Snemma á laugardagsmorgun
var tilkynnt um að farið hefði
verið inn í íbúð við Skriðustekk.
Þá var einnig tilkynnt um innbrot
í bíl við Miðholt. Á laugardag var
farið inn í ólæsta bifreið við Barr-
holt og úr henni stolið farsíma.
Einnig var farið í íbúð við Ránar-
götu. Rúða var brotin í sumarbú-
stað við Elliðavatn og úr honum
stolið ýmsum eldhúsbúnaði. Á
laugardagskvöld var farið inn í
íbúð við Reykjaveg, en engu stol-
ið. Aðfaranótt sunnudags var far-
ið inn í íbúð við Völvufell.
Á sunnudagsmorgun var brot-
ist inn í verslun við Skipholt. Þá
var brotist inn í bíl við Lyngháls.
Síðdegis á sunnudag var brotist
inn í hús við Hólastekk og í bíl
við Flugumýri. Um kvöldið var
farið inn í nýbyggingu við Skip-
holt. Á mánudagsmorgun var til-
kynnt um innbrot í bíl við Klepps-
veg. Þessi mál eru öll til rannsókn-
ar hjá RLR.
Slagsmál
Aðfaranótt laugardags þurfti
að flytja mann á slysadeild eftir
slagsmál í Pósthússtræti. Annar
var fluttur á lögreglustöðina
vegna þess máls. Aðfaranótt
sunnudags var stúlka flutt á
slysadeild og piltur á lögreglu-
stöðina eftir átök í Lækjargötu.
Umferðaróhöpp
Tilkynnt umferðaróhöpp eru 31
talsins. Þar af voru meiðsli á fólki
í flórum tilvikum. Á föstudagskvöld
þurfti að flytja ökumenn tveggja
bifreiða á slysadeild eftir harðan
árekstur tveggja bifreiða á Suður-
landsvegi við Geitháls. Um bak-
og hálsmeiðsli var um að ræða.
Flytja þurfti báðar bifreiðamar af
vettvangi með kranabifreið. Á laug-
ardag voru tveir farþegar fluttir á
slysadeild með sjúkrabifreið eftir
harðan árekstur tveggja bifreiða á
gatnamótum Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar.
Á laugardagskvöld varð harður
árekstur tveggja bifreiða á
’Kringlumýrarbraut og Miklu-
braut. Ökumaður úr annarri bif-
reiðinni og farþegi úr hinni voru
fluttir á slysadeild með minnihátt-
ar meiðsli. Aðfaranótt sunnudags
varð árekstur þriggja bifreiða á
gatnamótum Hofsvallagötu og
Hringbrautar. Ökumenn tveggja
bifreiða fóru sjálfir á slysadeild
vegna minniháttar eymsla.
Brunar
Lögreglumenn þurftu íjórum
sinnum að fara á vettvang eftir
að eldur hafði kviknað eða verið
kveiktur. Um miðjan dag á föstu-
dag var kveikt í tveimur ruslat-
unnum við Sjómannaskólann.
Ekki hlaust tjón á öðru en tunnun-
um. Snemma á laugardagsmorg-
un var reynt að kveikja eld utan
við verslun við Laugaveg.
Skemmdir urðu einhveijar, aðal-
lega vegna reyks.
Barn í smurgryfju
Tilkynningar um hávaða og
ónæði utan dyra og innan voru
18 talsins. Þá voru lögreglumenn
sjö sinnum kallaðir á vettvang
vegna ágreinings með fólki.
Á laugardagsmorgun höfðu
lögeglumenn afskipti af greiðabíl-
stjóra með farþega í akstri.
Skýrsla verður skrifuð um málið
og fær það sömu meðferð og önn-
ur slík. Við brotum sem þessu
liggja háar sektir.
Um miðjan dag á laugardag
datt 5 ára gamalt barn ofan í
smurgryfju á verkstæði við
Laugaveg. Barnið hafði hlaupið
úr bifreið við verkstæðið með fyrr-
greindum afleiðingum. Það var
flutt á slysadeild.
ÆTTFRÆÐINÁMSKEIÐ
Ættfræðiþjónustan, Austurstræti lOa s.552 7100
Námskeið fyrir þá sem vilja lengra
NútímaFoeeitun
VisualBasic er kjaminn í nútima forritun í gluggaumhverfi.
Enginn sem á annað borð vill nýta tölvuna og forritin
betur getur verið án þekkingar á VisualBasic!
hk 95091
36 klst námskeið, kr. 44.900,- stgr.
Dagskrá:
• Undirbúningur forritunar, greining og hönnun
• Forritun með VisualBasic
• Access og notkun hans við VisualBasic fomtagerð
Námskeið á fimmtudögum og laugardögum
MMÉl Tölvu- og verkfræðiþiónustan
mmms Tölvuráðgjöf • námskeið • útgáfa
jBreHi Grensásvegi 16 • sími 568 8090
______________________________ RaðgreiðslurEuro/VISA
Námskeið sem borgar sig frá fyrsta degi:
IUmsiónTölvuneta
Ef þú vilt minnka rekstrarkostnað við tölvunetið þitt
er þetta námskeið fyrir þig. Námskeið
fyrir þá sem vilja sjá um rekstur tölvuneta!
36 klst námskeið, kr. 44.900 stgr.
Dagskrá:
• Windows kerfistjórnun og val á búnaði
• Novell NetWare netstjómun
• Tengingar við Internetið og önnur tölvukerfi
Námskeið á þriðjudögum og laugardögum
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuraðgjöf • námskeið • útgáfa
Grensásvegi 16 • sími 568 8090
hk 95093
Raðgreiðslur Euro/VISA
4r r
-leikur að Itera/
Vinningstölur 13. jan. 1996
6*7*17*21 • 23 * 24 • 25
Vinningstölur 15. jan. 1996
2* 5* 7* 11* 14* 17 • 30
Eldri úrslit á sfmsvara 568 1511
Teiknisamkeppni Kiwan-
isklúbbsins Setbergs
KIWANISKLUBBURINN Set-
berg, Garðabæ, stóð fyrir teikni-
samkeppni í Flataskóla, Garðabæ.
Nemendur áttu að teikna mynd
og var ákveðið að velja tvær á
jólakort sem gefið var út á vegum
klúbbsins. Á myndinni eru Sigrún
Gísladóttir skólastjóri, Guðríður
VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN . 13.01.1996 |
(24)(26) 4)SÉjf (T)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 af 5 0 2.022.546
2. pÍis5 ? 102.750
3. 4af 5 69 7.700
4. 3af 5 2.268 540
Heildarvinningsupphæö: 4.086.816
m j BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Thorarensen kennari, Jóhann
Ernir Vilmundarson verðlauna-
hafi, Matthías Guðm. Pétursson,
Andrés Kristinsson og Aage Pet-
ersen frá Setbergi.
Á innfelldu myndinni er Erna
Heiðrún Jónsdóttir verðlauna-
hafi.
IVARORTALISII
Dags. 16.01.’96.NR. 200
5414 8300 2954 3104
5414 8300 3045 5108
5414 8300 3225 9102
5413 0312 3386 5018
5414 8300 3236 9109
| Ofangreind kort eru vákort,
sem takaberúrumferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocard.
KREDITKORT HF.,
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 568 5499