Morgunblaðið - 17.01.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
orgunblnöib
1996
MIÐVIKUDAGUR 17.JANUAR
BLAD
KORFUKNATTLEIKUR
Myers úr leik
HERMAN Myers, sem spilað hefur með úrvalsdeild-
arliði Grindvíkinga í körfuknattleik, leikur ekki \
meira með liðinu í vetur vegna meiðsla sem hann
varð fyrir í leik gegn Keflavík fyrir rúmri víku.
Komið hefur í ljós að meiðsli hans voru alvarlegri
en talið var í fyrstu því sin slitnaði í fingri og hann
fór í aðgerð fyrir helgi. Grindvíkingar eru því komn- .
ir af stað að leita að nýjum leikmanni til að ljúka
tímabilinu. „Það verður erfitt að fylla það skarð sem
Myers skilur eftir sig því hann hefur að mínu'mati
staðið sig mjög vel í vetur. Við leitum að svipuðum
leikmanni, en munum ekki flýta okkur um of í þeim
efnum og reiknum með að vera útlendingslausir
næstu tvo leiki. Það er alltaf eitthvað af mönnum
á lausu um þetta leyti þannig að við örvæntum
ekki,“ sagði Olafur Þór Jóhannsson, varaformaður
körfuknattleiksdeildar UMFG, við Morgunblaðið.
HANDKNATTLEIKUR
Viggó Sigurðsson í
vidræðum við Lemgo
Samningur liggur á borðinu
Viggó Sigurðsson, handknatt-
leiksþjálfari Stjörnunnar,
hefur verið í viðræðum við þýska
félagið Lemgo um að gerast þjálf-
ari liðsins næsta keppnistímabil.
Ungverski þjálfarinn Lajos
Mocsai, sem hefur þjálfað liðið
undanfarin sex ár, hyggst hætta
eftir þetta keppnistímabil.
„Þeir hafa rætt við mig og þetta
er í raun allt opið og spurning
hvernig þetta þróast. Þeir eru
reyndar líka með annan þjálfara
í sigtinu. Lemgo hefur rætt um
samning við mig og liggur hann
nokkuð klár á borðinu. En það á
eftir skrifa undir og það er ekkert
á hreinu fyrr en það er komið í
höfn. Peningamálin liggja nokkuð
hreint fyrir og ég er ánægður með
það sem þeir bjóða. Ég er hins
vegar með stóra fjölskyldu og þar
eru ýmsir þættir sem þyrfti að
ganga frá áður en ég skrifa undir.
Þetta mun skýrast á næstu vikum.“
Viggó sagðist auðvitað vera
spenntur fyrir þessu verkefni.
„Lemgo er stórlið á evrópskan
mælikvarða, er þýskur bikarmeist-
ari og er komið í undanúrslit bikar-
keppninnar í ár. Liðið er með tvo
þýska landsliðsmenn, Volker
Zerbe og Daniel Stephan, og svo
svissneska landsliðsmanninn Marc
Baumgartner og síðan er í liðinu
fyrrverandi austur-þýskur lands-
liðsmarkvörður," sagði Viggó, en
tveggja ára samningur hans við
Stjörnuna rennur út í apríl.
Viggó sagðist einnig hafa feng-
ið tilboð frá þýska liðinu Bad
Schwartau fyrr í vetur eftir að lið-
ið rak þjálfara sinn. „Félagið vildi
fá mig strax út og var tilbúið að
borga upp samninginn minn við
Stjörnuna. En ég vildi ekki fara
því ég vildi halda samninginn við
Stjörnuna," sagði Viggó.
Kristján Arason
hættir hjá Dor-
magen í vor
KRISTJÁN Arason, sem hefur
þjálfað þýska handknattleiksl-
iðið Bayer Dormagen síðustu
tvö keppnistímabil, hefur
ákveðið að hætta sem þjálfari
liðsins í vor þrátt fyrir að félag-
ið hafi boðið honum áframhald-
andi samning.
„Ég tók þessa ákvörðun
vegna þess að ég er ekki
ánægður með gengi liðsins og
eins stjórn félagsins. Meðan öll
önnur lið í deildinni eru að
styrkja sig með leikmönnum
fyrir næsta tímabil er Dormag-
en að draga saman seglin og
missa lykilmenn frá sér. Félag-
ið bauð mér að endurnýja samn-
inginn, en tilboðið var ekki eins
hagstætt og ég hef verið með.
Ég veit ekkert hvað tekur við
en það er alltént eitt þýskt lið
sem hefur haft samband við
mig.“
Kristján sagðist alveg eins á
því að hann kæmi heim í vor.
„Það er að segja ef ekkert
spennandi kemur upp á hér í
Þýskalandi. Þetta skýrist allt á
næstu mánuðum. Það liggur
ekkert á að gera.upp hug sinn
því tímabilið hér er ekki búið
fyrr en í apríl og ég verð lyá
Dormagen þangað til, hvað sem
öðru líður,“ sagði Kristján við
Morgunblaðið.
VERÐUR Viggó Slgurðsson næsti þjálfari Lemgo?
Afreks-
manna-
sjóður
úthlutaði
12,5 millj.
/ ■■ V Æ ■
a liðnu ari
AFREKSMANNASJÓÐUR
íþróttasambands Íslands út-
hlutaði samtals 12.620.000 kr.
til sérsambanda vegna ákveð-
inna verkefna og iþróttamanna
á liðnu ári. Handknattleikssam-
bandið fékk 6.560.000 kr.
Ftjálsíþróttasambandið fékk
960.000 kr. vegna Péturs Guð-
mundssonar, 960.000 kr. vegna
Vésteins Hafsteinssonar,
760.000 kr. vegna Jóns Amars
Magnússonar, 480.000 kr.
vegna Sigurðar Einarssonar og
200.000 kr. vegna Mörthu
Ernstdóttur eða samtals
3.360.000 krónur. Skíðasam-
bandið fékk 500.000 kr. vegna
landsliðsins og 280.000 kr.
vegna Kristins Björnssonar eða
alls 780.000 krónur. Júdósam-
bandið fékk 480.000 kr. vegna
Vemharðs Þorleifssonar og
200.000 kr. vegna Halldórs
Hafsteinssonar og Eiriks Krist-
inssonar eða alls 680.000 krón-
ur. Badmintonsambandið fékk
240.000 kr. vegna Brodda
Krisljánssonr, 240.000 kr.
vegna Áraa Þórs Hallgrimsson-
ar og 100.000 kr. vegna
Tryggva Nieisen eða samtals
580.000 krónur. Sundsamband-
ið fékk 400.000 kr. sem skiptist
jafnt á milli Amars Freys
Ólafssonar ogEydisar Konr-
áðsdóttur og Iþróttafélag fatl-
aðra fékk 260.000 krónur.
Sveinn hættur sem formaður STÍ
SVEINN Sæmundsson hætti
sem formaður Skotsambands
íslands sl. laugardag en þá
hafði hann gegnt formennsk-
unni f eitt ár. Sveinn sagði við
Morgunblaðið að hann hefði
gefið sér eitt ár til að koma
lagi á hlutina hjá sambandinu
og það hefði tekist. Hins vegar
hefðu deilur eins skotmanns við
Skotsambandið orðið til þess
að hann hefði óskað eftir upp-
stokkun í stjórninni og það
hefði verið samþykkt.
Sveinn sagði að aðkoman
fyrir ári hefði verið skelfileg,
miklar skuldir heima og erlend-
is, en á nokkrum mánuðum
hefði tekist að rétta stöðuna
og það væri aðalatriðið. Hann
hefði reynt að setja niður deilur
Carls J. Eiríkssonar við STÍ en
þó að hann virti Carl fyrir
hæfni og árangur þætti sér
málarekstur hans ógeðfelldur
og það væri ástæða þess að
hann kysi að láta af starfi for-
manns.
Hann væri samt ekki að
hlaupa frá Skotsambandinu því
hann yrði í varastjóm. Jón S.
Ólason, sem var varaformaður,
tók við formannsstarfinu.
ÓLYMPÍUNEFNDIN STYRKIR EINAR VILHJALMSSON / C4