Morgunblaðið - 18.01.1996, Blaðsíða 1
BflNKAR
Viötal við Sverri
Hermannsson /4
_____________IKEfl
Synirnir ekki i
forstjórastólinn /5
VERSLUN
10-11 ísóknámat-
vörumarkaði /6
JHovgtmfrlafrUk
Lánasýslan
Alls var tekið tilboðum í ríkis-
víxla fyrir fyrir um 2.200 milljón-
ir hjá LánasýsJu rikisins í gær.
Þar af keypti Seðlabankinn víxla
fyrir 545 milljónir á meðalverði
samþykktra tilboða. Meðalávöxt-
un þriggja mánaða ríkisvíxla
hækkaði um 0,06%, í 7,58.
Vottun hf.
Nýlega veitti Vottun hf. Verk-
og kerfisfræðistofunni hf. vottun
samkvæmt hinum alþjóðlega
staðli ISO 9001. VKS er fyrsta
íslenska hugbúnaðarfyrirtækið
og jafnframt fyrsta íslenska ráð-
gjafarfyrirtækið, sem fær slíka
gæðavottun. Sjá nánar bls. 4.
Hitaveitan
Innkaupastofnun hefur lagt til
við borgarráð að viðhaldi dreifi-
kerfis Hitaveitu Reykjavíkur
verði skipt milli Steypustáls hf.
og Sveins Skaftasonar en þessir
aðilar áttu lægstu tilboðin í lok-
uðu útboði á verkinu. Samnings-
upphæðin er alls 101.255,145 kr.
eða 80,67% af áætlun.
SÖLUGENGI DOLLARS
Kr. 67.50 67,00 66.50 66,00 65,50' 65,00 64.50 64,00 63.50 63,00 62.50 2 Síðustu fjórar vikur >
66,28/
v
J/
7.
1 1 1 1 0. des. 27. 3.jan. 10. 1
Heildarvelta ■i'jSS
í verslunargreinum
januar til oktober 1994 og 1995
(í millj.kr., án vsk„ á verðlagi hvers árs) jan .okt jan..okt Veltu-
Heildsöludreifing áfengis uieyuuij
og tóbaks, smásala áfengis 8.148,6 8.200,2 | 0,6%
Heildsölu- og smásöludreifing
á bensíni og olíum 19.035,4 19.087,1 0,3%
Byggingavöruverslun 8.400,0 8.256,9 |-1,7%
Sala á bílum og bílavörum 12.343,7 15.080,1 22,2% |
Önnur heildverslun 55.449,3 67.602,1 21,9% 1
Heildverslun samtals: 103.377,1 118.226,4
Fiskverslun 561,4 677,4 1 20,6% 1
Kjöt- og nýlenduvöruverslun,
mjólkur- og brauðsala 23.725,8 24.691,3 ð 4,1%
Sala tóbaks, sælgætis
og gosdrykkja 6.717,8 7.008,0 14,3%
Blómaverslun 1.161,8 1.190,2 1 2,4%
Sala vefnaðar- og fatavöru 3.986,6 4.290,7 i: 7>6%
Skófatnaður 627,2 591,9 | -5,6%
. Bækur og ritföng 2.404,8 2.430,2 1 i,i%
| Lyf og hjúkrunarvara 3.103,7 3.364,3 ■ 8,4%
1 Búsáhöld, heimilis-
§ tæki, húsgögn 6.750,1 7.597,3 HÍ2,6%
| Úr, skartgripir, Ijós- r ■Ml
” myndavörur, sjóntæki 878,5 867,5 | -1,3
| Snyrti- og hreinlætisvörur 407,4 453,0 H">2%
| Önnur sérverslun, s.s. sportvörur,
| leikföng, minjagripir, frímerki o. fl. 2.855,2 3.129,5 ■ 9,6%
1 Blönduð verslun 25.293,9 25.981,7 I 2,7%
Smásöluverslun samtals: 78.474,4 82.272,9 | 4,8%
SAMTALS: 181,851,5 200.499,3 I110,3%
Búr hefur
samstarf
við Samskip
BM FLUTNINGAR hf„ dótturfélag
Samskipa hf., munu annast allt
birgðahald á vörum fyrir Búr efh,
hið nýstofnaða innkaupafyrirtæki
kaupfélaganna, Nóatúnsverslan-
anna og Olíufélagsins hf. Voru
samningar þar að lútandi undirrit-
aðir í gærmorgun.
Að sögn Péturs Más Halldórsson-
ar, hjá BM flutningum, stóð Búr
frammi fyrir tveimur valkostum.
Annars vegar kom til greina hefja
starfsrækslu eigin birgðastöðvar
með tilheyrandi fjárfestingum og
mannahaldi eða ganga til samninga
við óháðan aðila um að annast
birgðahaldið. Síðarnefndi kosturinn
hefði orðið ofan á, enda fæli hann
í sér margvíslegan ávinning. Allur
kostnaður væri breytilegur, þ.e.
annarsvegar háður því geymslu-
rými sem hýsti birgðir hveiju sinni
og hinsvegar því vörumagni sem
færi í gegnum lagerinn.
BM flutningar hafa á undanförn-
um tveimur árum rekið vörudreifíng-
armiðstöð í Holtagörðum með svip-
uðu sniði og víða þekkist erlendis.
Fyrirtækið annast birgðahald fyrir
fjölmarga innflytjendur og framleið-
endur. Meðal viðskiptavina hefur
verið Innkaupasamband kaupfélag-
anna, Inka, en Búr hefur sem kunn-
ugt er yfirtekið þá starfsemi.
Afgreiðsla hefst í febrúar
Sigurður A. Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Búrs, sagði í samtali
við Morgunblaðið að núna stæðu
yfir samningaviðræður við birgja.
„Það var haldinn kynningarfundur
á föstudag með heildsölum og fram-
leiðendum þar sem gerð var grein
fyrir starfsemi fyrirtækisins. Ég
geri hins vegar ekki ráð fyrir því
að afgreiðsla á vörum, samkvæmt
nýjum samningum við birgja, hefj-
ist fyrr en í febrúar. Til að að byija
með munum við einskorða okkur
við nýlenduvörur en nærri lætur að
það sé 20-30% af heildarveltu aðild-
arfyrirtækjanna í dagvöru.“
Aðspurður um hvaða viðtökur
fyrirtækið hefði fengið á markaðn-
um sagði Sigurður að þær hefðu
verið góðar. „Það er alls ekki víst
að heildsölufyrirtæki og framleið-
endur verði fyrir tekjutapi þrátt
fyrir að veita aukinn afslátt vegna
þess að fyrirtækin geta náð fram
mjög verulegri hagræðingu í sam-
bandi við ýmsa þætti. Þau geta los-
að sig við ýmiskonar kostnað sem
vegur á móti hærri afsláttum."
Samtals eiga 23 fyrirtæki aðild
að Búr en innan þeirra eru 60-70
verslanir, auk bensínstöða á vegum
Olíufélagsins. Árleg velta þessara
fyrirtækja á matvörumarkaði er um
10 milljarðar króna og er því ekki
talið ólíklegt að velta Búrs verði
2-3 milljarðar króna á ári þegar
starfsemin verður komin í fullan
gang.
Stefnt er að því að halda öllum
kostnaði í lágmarki og sagði Sig-
urður að starfsmenn yrðu eingöngu
fjórir talsins. Þá yrði kostnaður við
meðhöndlun vörunnar hlutfalislega
mjög lítill.
| Til fyrirtœkja ojj rekstraraðila: |
Hankvæm lán
til 25 n rn !
• Vextir 6,75% til 8,25%
• Hagkvæm endurfjármögnun styttri og óhagkvæmari lána
• Lægri fjármagnskostnaður '
• Lægri greiðslubyrði áhvílandi lána
• Auðveldari fjármögnun nýrra fjárfestinga
• Betri veltufjárstaða
Lán eru veitt gegn fasteignaveði á höfuðborgarsvæðinu. Veðsetningarhlutfall skal ekki fara yfir 55% af söluverði eignar.
Leitaðu uppiýsinga hjá ráðgjöfum Landsbréfa og umboðsmönnum í ölium útibúum Landsbanka íslands.
§
LANDSBREF HF.
rjflThí~-
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verdbréfaþingí íslands.
SUÐURLANDSBRAUT 24, 1 08 REYKJAVIK SIMI 588 9200
B R E F A S I M l
8 5 9 8