Morgunblaðið - 18.01.1996, Blaðsíða 12
12 D FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MYIMDBÖIMD
Sæbjöm Valdimarsson
GÆFAOG
GJÖRVILEIKI
GAMANMYND
Sex stiga aðskilnaður (Six Degr-
ees of Seperation) •kir'k
LelksU'óri Fred Schepisi. Hand-
ritshöfundur John Guare, byggt
á samnefndu leikriti hans. Kvik-
myndatökustjóri Ian Baker.Tón-
list Jerry Goldsmith. Aðalleik-
endur Stockard Canning, Will
Smith, Donald Sutherland, Mary
Beth Hurt, Ian McKellen, Bruce
Davison. Bandarisk. MGM 1993.
Tími 107 mín. Öllum leyfð.
EINHVERS
STAÐAR stend-
ur skrifað að allir
jarðarbúar teng-
ist í gegnum sex
einstaklinga.
Vandinn sé hins-
vegar að hafa
uppá þeim. Þetta
er inntakSex stig
aðskilnaðar,
bráðsmellinnar,.
vel gerðrar, skrifaðrar og leikinnar
myndar sem vakti athygli vestan
hafs fyrir rösku ári (rataði aldrei í
kvikmyndahús hérlendis).
Kiltridge-hjónin, Ouise (Stockard
Channing) og Flan (Donald Suther-
land) lifa í vellystingum praktug-
lega í einu dýrasta íbúðarhverfí á
Jarðríki, Central Park East. Reka
listmunasölu á ríkulegu heimili sínu
og þegar myndin hefst eru þau með
vellauðugan gullnámueiganda frá
Suður-Afríku (Ian McKellen) í
heimsókn þegar ólánið dynur yfir.
Það birtist í persónu Pauls (Will
Smith), aðlaðandi blökkupilts, sem
segist stunda nám með börnum
þeirra víð Harvard háskólann. Paul
er meiddur og fær því að smjúga
framhjá öryggisvörðunum inní ríki-
dæmi Kiltridge-hjóna. Þegar hann
svo segist vera sonur Sidneys Poiti-
ers og býður þeim hlutverk í Cats,
næsta leikstjórnarverkefni karls
föður síns, er ísinn bræddur og
strákur fær inngöngu - um sinn.
Margflókin mynd sem kemur á
óvart fyrir óvenju fágað, allt að þvi
svalt yfirbragð undir handleiðslu
Ástralans Freds Schepisi, en mynd-
in er hans besta um langt skeið.
Eða allt frá því hann lauk við A
Cry in the Dark (88) og með ólíkind-
um að hann skuli vera leikstjóri
síðustu tveggja mynda sinna, I.Q
og Mr. Baseball.
Will Smith (Bad Boys) er upp-
rennandi stórstjarna (ef hann gætir
þess að fara ekki sömu leiðina og
Eddie Murphy) og skilar eftirminni-
lega vel ósvífnu, bráðskörpu ung-
menni, sem nýtir gáfur sínar á held-
ur vafasaman hátt. Stockard
Channing er stórkostleg í hlutverki
eiginkonunnar sem endurmetur líf
sitt og stöðu eftir kynnin við Paul
og -Donald Sutherland dregur frá-
bærlega upp mynd af snobbuðum
og sjálfumglöðum eiginmanninum.
Fjöldi góðra leikara kemur fram
í minni hlutverkunum, ekki síst
þeir sem leika böm hjónanna og
skólasystkini þeirra sem við sögu
koma. Þvílíkur hópur forhertra,
sjálfselskra uppskafninga sem allt
vilja fá en ekkert að gefa. Við hlið
þeirra er loddarinn Paul helgur
maður. Rúmsins vegna verð ég að
hætta, rétt byrjaður. Þessari mynd
verður ekki oftiælt. Ég mæli með
henni við alla, vandláta kvikmyn-
daunnendur, látið ekki málglatt
upphafíð fæla ykkur frá framhald-
inu.
LAMBI LEMUR
FRÁSÉR
SPENNUMYND
Á flótta (The Hunted) k k
Leikstjóri J.E. Lewton. Handrits-
höfundur John Davis. Aðalleik-
endur Christopher Lambert,
John Lone, Joan Chen. Banda-
rísk. Universal 1995. Tími 107
mín. Aldurstakmark 16 ára.
DÆMIGERÐ
Lambert-B-
mynd, frans-
maðurinn fær
ekki úr jafn góð-
um hlutverkum
að moða og þeg-
ar hann sló í
gegn í Hálend-
ingnum og vakti
eftirtekt í
Subway og
mynd Hughs Hudson um Greystoke
- Tarzan apabróður.
A flótta, sem hæfir betur imba-
kassanum en tjaldinu, er meðal
hasarmynd um auðjöfurinn Lamb-
ert og ástkonu hans (Chen) og ger-
ist í Japan. Vilja slagsmálahundar,
undir stjórn Lone, auðjöfurinn feig-
an og mega hann og’ samuraigarp-
urinn félagi hans, hafa sig alla við
að halda lífí í landi sólaruppkom-
unnar.
KJÁNAPRIK
FRÁ QUEENS
GAMANMYND
(The Jerky Boys) k
Leikstjóri James Melkonian.
Handritshöfundar Kamal Ahmed
og John G. Brennen. Aðalleik-
endur Kamal Ahmed, John G.
Brennan, Alan Arkin, Paul Bart-
el, William Hickey, Ozzy Osb-
ourne, Tom Jones. Bandarísk.
Touchstone 1995. Sam mynd-
bönd 1996. Lengd 78 mín. Öllum
leyfð
EINN af skellum
síðasta árs í bíó-
unum vestra,
fær tilhlýðilega
meðferð utan
Bandaríkjanna
og fer rakleitt á
myndbandið.
Höfundarnir,
Ahmed og
Brennen - sem
jafnframt fara
með aðalhlutverkin, urðu frægir á
einni nóttu vestra, fyrir símasprell.
Meira þurfti ekki til, Hollywood
opnaði faðminn og gat af sér enn
ein mistökin í gerð handónýtra
farsa um aula í baráttu við Mafíuna.
BÁLFÖR
JARÐAR
VÍSINDASKÁLDSKAPUR
Sólgos (Solar Crisis) k'/i
Leikstjóri Alan Smithee. Handrít
Joe Gannon og Crispan Bolt,
byggt á sögu Takushi Kawata.
Tónlist Maurice Jarre. Aðalleik-
endur Tim Matheson, Peter Bo-
yle, Charlton Heston, Jack Pal-
ance, Annabel Schofield. Jap-
önsk. Trimark 1992. Myndform
1995. Lengd 101 mín. Aldurstak-
mark 12 ára.
UNDIRSTAÐA
lífsins á jörðinni,
sólarljósið, er
tekið að haga sér
undarlega um
miðja næstu öld.
Vísindamenn
komast að því að
innan skamms
tíma muni verða
ógnarlegt sólgos
sem deyðir
a.m.k. helming jarðarbúa. Vísinda-
menn útí geimnum grípa til sinna
ráða og hyggjast koma í veg fýrir
hamfarirnar með öflugri spreng-
ingu. En á jörðu niðri takast menn
á um völdin.
Það boðar sjaldnast gott þegar
leikstjórar feðra ekki afkvæmi sín
heldur fela sig á bak við dulnefnið
góðkunna, „Alan Smithee". Þannig
er málum farið hér (hið rétta nafn
mun vera Richard Sarafian, sem
gert hefur nokkrar miðlungsmynd-
ir) og kemur engum á, óvart sem
séð hefur myndina að stjómandi
hennar kjósi að fara í felur.
Sólgos er japönsk mynd og kost-
aði stórfé á sínum tíma en var tæp-
ast hugað líf er menn litu árangur-
inn í heild. Enda fór það svo að
myndin hlaut mjög takmarkaða
dreifíngu í kvikmyndahúsum en
hefur nú loksins verið gefin út á
myndbandi. Efnið og framvindan
er tætingsleg, leikararnir flestir
miðlungsmenn sem eru að týnast í
myndum sem þessum, eða þá út-
bmnnar stjörnur. Verst allra er þó
Annabel Schofíeld, mikil fríðleiks-
stúlka með steinrunninn svip. Það .
eina sem stendur uppúr Sólgosi eru
sæmilegar brellur sem ættu að
gleðja í það minnsta hörðustu aðdá-
endur vísindaskáldskapar.
Debra Farentíno leikur Devon Adaír, sem flytur 200
börn á fjarlæga plánetu þeim til bjargar.
Skyggnsl inn í
framtíðina
20.00 ^-Myndaflokkur Myndaflokkurinn Jörð II, eða
■U Earth II, verður á dagskrá Sýnar á föstudagskvöldum.
Þættirnir hafa vakið mikla athygli erlendis og notið vin-
sælda þeirra sem hrífast af vísindaskáldskap og geim-
ferðaævintýrum. Þættirnir gerast í framtíðinni. Jarðarbú-
ar hafa verið þvingaðir til að búa í geimstöðvum. Þessir
lífshættir geta reynst skaðlegir og kona ein, Devon Ada-
ir, vill forða syni sínum og tvö hundruð öðmm börnum
frá þeim. í því skyni skipuleggur hún leiðangur til plá-
netu sem er í 22 ljósára fjarlægð. Plánetan er nákvæm
eftirlíking af jörðinni og hlýtur því nafnið Jörð II. En
leiðangurinn reynist hættulegur og ferðalangarnir eiga
viðburðarík ævintýri í vændum.
BÍÓIIM í BORGINNI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Ace Ventura — náttúran kallar
k k
Jim Carrey fettir sig og brettir í kapp
við apakettina í Afríku og má ekki
milli sjá hver er hvað. Fyrir þá sem
vilja horfa en ekki hlusta og hvað sem
öllu líður hefur Carrey aldrei vinsælli.
kPocahontas k'h
Ekki jafngóð fyrirrennurum sínum frá
Disney; Konungi Ijónanna og Alladin.
Engu að síður vel gerð stóriðnaðar-
framleiðsla fyrir fjölskylduna
Leigumorðingjar k'A
Stallone og Banderas takast á í ein-
hveiju vitlausasta einvígi kvikmynd-
anna. Segir nokkuð um stöðu Stall-
ones að myndin er þrátt fyrir allt með
því skárra sem hann hefur gert að
undanförnu.
BÍÓHÖLLIN
Ace Ventura — náttúran kallar
(sjá Bíóborglna)
Pocahontas (sjá Bíóborgina)
„Dangerous Minds" kk'A
Michelle Pfeiffer leikur nýjan kennara
í fátækraskóla sem vinnur baldna
nemendur á sitt band með ljóðabækur
að vopni. Gamalreynd hugmynd að
sönnu en skemmtileg mynd.
Algjör jólasveinn k tr
Ekta jólamynd fyrir alla fjölskylduna
leysir ráðgátuna um jólasveininn.
Gamanleikarinn Tim Allen er sem
sniðinn í hlutverkið.
HÁSKÓLABÍÓ
Ameríski forsetinn * k'A
Áferðarfalleg mynd sem gefur
skemmtilega innsýn í það allra heilag-
asta í augum Bandaríkjamanna, sálar-
líf forsetans og Hvíta húsið. Er lengst
af góð skemmtun en forsetinn breytist
úr manni í gamalkunnan demókrata-
engil eftir því sem á líður og hættir
að vera áhugaverður. Douglas og allar
umbúðimar traustar.
Prestur kkk'A
Gagnrýnin gæðamynd um raunir ungs
prests sem verður að standa frammi
fyrir illyfirstíganlegum vandamálum
sjálfs sin og sóknarbarnanna. Efnið
er grafalvarlegt en handritshöfundur,
leikstjóri og leikarar gæða það hlýju,
húmor og manneskjulegheitum.
Carrington -k-k-k
Vel skrifað og ieikið drama um marg-
flókið ástarsamband breskra lista-
manna. Hann hommi, hún gagnkyn-
hneigð. Stórleikarinn J.onathan Pryce
stelur senunni í besta hlutverki lífs
síns.
Gullauga kkk
Enn er Bond tekinn til við að skemmta
heimsbyggðinni með ævintýrum sín-
um. Nýja Bond-myndin bregst ekki
vonum um skemmtilega afþreyingu
og Brosnan á eftir að sóma sér vel í
hlutverkinu.
LAUGARÁSBÍÓ
Agnes kkk
Vandvirknisleg, vel leikin mynd, að
nafninu til um síðustu aftökuna á Is-
landi. Stílfært drama og fijálslega
farið með staðreyndir, raunsæið víkur
fyrir reyfaranum.
„Mortal Kombat" k'A
Tölvuleikjamynd sem byggist mjög á
„Enter the Dragon“. Vondur leikur
og sálarlaust hasarævintýri en brell-
urnar eru margar góðar.
Feigðarboð k
Einkar viðburðasnauð en kynferðis-
lega hlaðin sálfræðileg spennumynd
sem býður uppá óvænt en lítt greindar-
leg endalok.
REGNBOGINN
Borg hinna týndu barna k k
Útlitið skiptir meginmáli og skrautlegt
safn persóna en sagan er veik í nýj-
ustu mynd höfunda „Delicatessen".
Níu mánuðir kk
Lítt merkileg gamanmynd með Hugh
Grant í hlutverki uppateturs sem
hræðist mjög bameignir. Meira væmin
en fyndin.
Handan Rangoon kkk
Spennandi og vel gerð mynd Johns
Boormans um ástandið í Burma. Ung
bandarísk kona leiðist inn í átök lýð-
ræðissinna gegn herforingjastjórninni
árið 1988 þegar landið rambaði á
barmi borgarastyijaldar.
Krakkar kkk'A
Einstök, opinská mynd um vágestinn
eyðni, eiturlyf og afbrot meðal ungl-
inga á glapstigum í New York.
Frelsishetjan k k k'A
Gibson er garpslegur að vanda í hlut-
verki kunnustu frelsishetju Skota.
Sýnir það einnig (einkum í fjöldasen-
um) að hann er liðtækur leikstjóri.
SAGABÍÓ
Gullauga kkk
Njósnari hennar hátignar hefur snúið
aftur eftir sex ára hlé og er í fínu
forni. Klassísk Bond-mynd með öllum
helstu og bestu einkennum mynda-
flokksins.
Pocahontas (sjá Bíóborgina)
Benjamín dúfa kkk'A
Einstaklega vel heppnuð bíóútgáfa
sögunnar um Benjamín dúfu og fé-
laga. Strákamir ungu í riddarararegl-
unnni standa sig allir frábærlega og
myndin hin besta skemmtun fýrir alla
fjölskylduna.
Leigumorðingjar (Sjá Btóborgina)
STJÖRIMUBÍÓ
Vandræðagemlingarnir 0
Afleit, löng og leiðinleg endurkoma
hinna ítölsku Trinity-bræðra sem voru
dægurflugur fyrir margt löngu. Gam-
anvestri í fúlari kantinum.
Uppgjörið kk'A
Hollywood-útgáfa Farandsöngvarans
hefur litlu við að bæta öðra en frá-
bærri hljóðrás. Antonio Banderas er
ábúðarmikill sem skotglaði farand-
söngvarinn.
Benjamín dúfa kkk'A
Einstaklega vel heppnuð og skemmti-
leg kvikmyndaútgáfa sögunnar um
Benjamín dúfu og félaga. Strákamir
ungu í riddarareglunni era frábærir í
hlutverkum sínum og myndin er hin
besta skemmtun fyrir alla fjölskyld-
una.
Tár úr steini kkk'A
Tár úr steini byggist á þeim þætti í
ævisögu Jóns Leifs sem gerist á
Þýskalandsárum hans frá því fyrir
1930 og fram undir lok heimsstyijald-
arinnar síðari. Þegar best lætur upp-
hefst myndin Tár úr steini í hreinrækt-
aða kvikmyndalist. Mælikvarðanum í
íslenskri kvikmyndagerð hefur hér
með verið breytt, nýtt viðmið skapað.
Erlendur Sveinsson