Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGN AFRÉTTIR • GRÓDUR OG GARDAR • HÝBÝUI • FRÉTTIR •
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Föstudagur 19.janúar 1996
Blað D
Margt má af
Dönum læra
VIÐMIÐANIR eru aðrar í
Danmörku en hér varðandi
íbúðarkaup. I þættinum Mark-
aðurinn fjallar Grétar J. Guð-
mundsson um þennan mun.
Fram kemur, að ekki er eins
auðvelt að steypa sér í skuldir
í Danmörku og hér. / 2 ►
Frárennslis-
lagnir
ÞRÓUNIN í lagnaleiðum og
fyrirkomulagi frárennsliskerfa
hefur nánast engin verið, segir
Sigurður Grétar Guðmundsson
í þættinum Lagnafréttir. Við
leggjum þessar lagnir í hús-
grunna á sama hátt og fyrir
hálfri öld. / 9 ►
Ú T T E K T
Uppsveifla
í Reykja-
nesbæ
VERÐ á fasteignum í
Reykjanesbæ hefur
styrkzt vegna upp-
sveiflu í atvinnulífnu og lætur
nærri, að það sé 75-80% af
verði fasteigna á höfuðborg-
arsvæðinu. I sumum hverfum
í Reykjanesbæ er þessi munur
aðeins 10%. Kemur þetta
fram í grein eftir Kristin
Benediktsson, fréttaritara
Morgunblaðsins, hér í blaðinu
í dag.
Byggingaverktakar hafa
tekið í notkun nýjar bygging-
araðferðir, sem stytta bygg-
ingartímann og draga þannig
verulega úr fjármagnskostn-
aði.
í Reykjanesbæ er nýlokið
gerð aðalskipulags, en álján
mánuðir eru nú liðnir frá
sameiningu Keflavíkur,
Njarðvíkur og Hafna í eitt
bæjarfélag. Ibúar þar eru nú
liðlega tíu þúsund.
Svonefnt Móahverfi verður
aðal skipulagssvæði Reykja-
nesbæjar á næstu árum, en
þar verða einkum raðhús og
einbýlishús, en í Innri Njarð-
vík eru fyrirhugaðar einbýlis-
og fjölbýlishúsalóðir. Jafn-
framt verður haldið áfram
þéttingu byggðar í elzta hluta
Keflavíkur.
I viðtali við forráðamenn
Reykjanesbæjar, Gerðahrepps
og Voga fjallar Kristinn
Benediktsson ennfremur um
aðra mannvirkjagerð þar og
framkvæmdir á vegum þess-
ara sveitarfélaga. / 18 ►
Minni húsbréfa-
útgáfa og lægri
fasteignaveðbréf
STARFSEMI Húsbréfadeildar
Húsnæðisstofnunar ríkisins var
jafnari milli mánaða á síðasta ári en
á árinu 1994, bæði hvað varðar um-
sóknir og afgreiðslur þeirra. Gefnir
voru út tveir húsbréfaflokkar á ár-
inu, 1. og 2. flokkur 1995 og dugðu
þeir út árið, þannig að ekki þurfti að
stöðva afgreiðslur umsókna, á með-
an beðið var eftir nýjum húsbréfa-
flokki.
Þessu var talsvert á annan veg
farið árið 1994. Þá varð húsbréfaút-
gáfan mun meiri en gert var ráð fyr-
ir með þeim afleiðingum, að ný hús-
bréf þraut og gefa varð út nýjan
húsbréfaflokk. Biðin eftir þessum
húsbréfum olli því, að mikil töf varð
á afgreiðslu húsbréfa í október en
síðan jókst hún aftur að sama skapi
í nóvember.
Á síðasta ári voru umsvif hús-
bréfadeildarinnar hvað mest í janú-
ar, en samþykkt skuldabréfaskipti
vegna byggingaraðila og nýbygg-
inga einstaklinga voru mest í þeim
mánuði. Skýringin er aðallega sú, að
þá gætti enn áhrifanna af þeirri töf,
sem varð á afgreiðslu húsbréfa
haustið á undan.
Töluverð fækkun varð á inn-
komnum umsóknum um skulda-
bréfaskipti á árinu 1995 samanbor-
ið við 1994 í öllum lánaflokkum og
bendir það til minni umsvifa á fast-
eignamarkaði. Einnig lækkaði með-
alupphæð fasteignaveðbréfa hjá
þeim, sem eru að kaupa notað hús-
næði um tæp 500.000 kr.
Þar er meginástæðan sú, að þeim
húsum og íbúðum fer stöðugt fjölg-
andi, sem fasteignaveðbréf hvfla
þegar á og nýir kaupendur yfirtaka.
Meðalupphæðir lána í öðrum lána-
flokkum voru aftur á móti mjög lík-
ar því, sem var á árinu 1994.
Heildarnafnverð útgefinna hús-
bréfa í öllum lánaflokkum var 12,2
milljarðar í fyrra og rúmum 2,5
milljörðum kr. lægra en á árinu 1994.
Samþykkt
Idabréfaskipti
1994-95
Fjö'di Endurbætur
50
1994 1995
1994 1995
Nýbyggingar
einstakiinga
1995
1994 1995
Fjöldi
600
500
Notað
húsnæði
400
0
1994
FJÁRFESTINGAFÉLAGIB SKANOIA HF. , LAUGAVEGI 170
105 REYKJAVlK. SÍMI 58 19 700, FAX 55 28 177
Skandia býður þér sveigjanleg
lánskjör ef þú þarft að skuld-
breyta eða stœkka við þig
Fyrír hverja eru Fasteignalán Skamtia?
fásteignalán Skandia eru fyrir alla á stór-
Reykjavíkursvæðinu sem em að kaupa
sér fasteign og:
Vilja kaupa stórar eignir en fá ekki
nægilega hátt lán í húsbréfakerfinu.
• Þá sem vilja breyta óhagstæðum
cldri eða styttri lánurn.
• Þá sem eiga lítið veðsettar,
auðseljanlegar eignir,
en vilja lán til annarra
fjárfestinga.
Kostir Fasteignalána Skandia
• Lánstími allt að 25 ár.
• Hagstæð vaxtakjör.
• Minni greiðslubyrði.
• Stuttui' svartími á umsókn.
Dæmi um mánaðarlegar
ajborganir aj'1.000.000 kr.
Fasteignaláni Skandia*
\fcxtir(%) 10 ár 15 ár 25 ár
7,0 11.600 9.000 7.100
7,5 11.900 9.300 7.400
8,0 12.100 9.500 7.700
Miðað cr við jafngreiðslulán. *Auk vcrðbóta
Sendu inn umsókn eða Jáðu
nánari upplýsingar hjá
ráðgjöfum Skandia.
Skandia