Morgunblaðið - 20.01.1996, Page 1
' 1 XA-Jai-KS’-
NDSMAIMNA
1996
■ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR
BLAD
Svissneskur
dagur í
Veysonnaz
ÞAÐ var svissneskur dagur í
bruni heimsbikarsins í Vey-
sonnaz í Sviss í gær því heima-
menn röðuðu sér í fjögur efstu
sætin í karlaflokki og hefur
það ekki gerst síðan 1987.
Bruno Kernen sigraði og var
þetta fyrsti sigur hans í heims-
bikarnum.
Kernen átti frábæra ferð niður
De l’Ours brunbrautina í
Veysonnaz sem er 3.500 metrar
að lengd. Hann var þó aðeins ein-
um hundraðasta hluta úr sekúndu
á undan landa sínum William
Besse. Daniel Mahrer varð þriðji
og Xavier Gigandet fijórði - allir
frá Sviss. Þetta er í fyrsta sinn
síðan í Mount Allend í Kanada
1987 sem Svisslendingar eru í fjór-
um efstu sætunum í bruni heims-
bikarsins.
Frakkinn Luc Alphand, sem
sigraði í tveimur fyrstu brunmót-
um vetrarins og er efstur í stiga-
keppninni í bruni, varð aðeins í 23.
sæti í gær. Gúnther Mader frá
Austurríki, sem sigraði í bruninu
í Kitzbuhel um síðustu helgi, var
enn aftar, eða í 25. sæti.
Norðmaðurinn Lasse Kjus, sem
meiddist á æfingu í Kitzbúhel fyrr
í þessum mánuði og verður ekki
með fyrr en á HM á Spáni í næsta
mánuði, er enn efstur í stigakeppn-
inni með 956 stig.
Á myndinni til hliðar fagna
Daniel Mahrer til vinstri og Bruno
Kemen árangrinum í Veysonnaz.
Kemen varð í fyrsta sæti og Ma-
hrer fékk þriðja besta tímann.
■ Annar sigur Street/D2
:v.ífP?
Reuter
KNATTSPYRNA
UEFA fær sex vikna frest
Evrópusambandið tilkynnti Knatt-
spyrnusambandi Evrópu, UEFA, í
gær að það yrði að laga reglur um félaga-
skipti og fjölda erlendra leikmanna frá
löndum innan Evrópska efnahagssvæðis-
ins í liði að úrskurði Evrópudómstólsins
i liðnum mánuði og hefði til þess sex
vikur en ætti annars yfir höfði sér sekt.
Evrópusambandið hefur ítrekað árétt-
að að óheimilt væri að krefjast félaga-
skiptagjalds fyrir ósamningsbundinn
leikmann sem skipti um félag innan
Evrópska efnahagssvæðisins og eins
mætti ekki takmarka fjölda erlendra leik-
manna frá löndum innan sama svæðis í
liði. Þetta var niðurstaða Evrópudóm-
stólsins í svonefndu Bosman-máli, sem
úrskurðað var í um miðjan desember sl.,
og er lögð áhersla á að henni sé alls
staðar fylgt eftir.
Nefnd sem hefur með málið að gera
sagði í bréfi til UEFA að ef ekki yrði
farið eftir ríkjandi reglum yrði höfðað
mál gegn því og Alþjóða knattspyrnu-
sambandinu, FIFA, eftir sex vikur. í
yfirlýsingu nefndarinnar í gær um mál-
ið kom fram að bréfið hefði verið sent
til að undirstrika lagalegan rétt leik-
manna, félaga og knattspyrnusam-
banda.
Ársmiðar endur-
greiddir ef liðið fer
ekki upp í 1. deild
MALLORC A ætlar að endurgreiða ársmiða vinni
liðið sér ekki sæti í 1. deild spænsku knattspyrn-
unnar í vor. Um er að ræða miða sem verða
keyptir fyrir leik morgundagsins og kosta frá
um 6.500 kr. til um 13.000 kr. en andvirðið verð-
ur látið ganga upp í ársmiða næsta tímabil nái
liðið ekki markmiði sínu í vetur. Mallorca er sem
stendur sjö stigum frá sæti sem gefur rétt til
að leika í 1. deild næsta tímabii.
Davor Suker farinn
til Real Madrid
KRÓATINN Davor Suker er genginn til liðs við
Real Madrid frá Sevilla. Real borgaði 390 milij.
ísl. kr. fyrir Suker og þar að auki fær Sevilla
fimm leikmenn frá Real Madrid. Einn þeirra
hefur leikið með liðinu — Serbinn Dejan Petkovic
— sem kom til Real fyrir mánuði. Suker er einn
af bestu sóknarleikmönnum heims og mun hann
taka stöðu Chilemannsins Ivan Zamorano, sem
hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn
við Real þegar hann rennur út í júní.
Sameiginleg um-
sókn um HM 2002?
TALSMENN Knattspyrnusambands Suður-
Kóreu sögðu í gær að þeir styddu hugmyndir
Norður-Kóreu um sameiginiega umsókn þjóð-
annna varðandi mótshald Heimsmeistarakeppn-
innar í knattspyrnu 2002. Ákvörðun um móts-
stað verður tekin 1. júní og stendur slagurinn
á milli Japans og Suður-Kóreu. „Við höfum allt-
af sagt að ef hluti keppninnar færi fram í Norð-
ur-Kóreu gæti það orðið mikilvægur þáttur í
sameiningu Kóreu og liður í heimsfriði,“ sagði
framkvæmdasfjóri undirbúningsnefndar Suður-
Kóreu.
Norður-Kórea hefur sent FIFA simbréf tvisv-
ar í þessum mánuði þar sem kom fram vilji til
að vera með í mótshaldinu. FIFA sagði Norður-
Kóreumönnum að ræða málið beint við fyrr-
nefnda undirbúningsnefnd og bíða Suður-Kóreu-
menn eftir næsta skrefi nágrannanna.
Sigurjón í 17. sæti
SIGURJÓN Arnarsson, kylFmgur úr GR, keppti
á tveimur mótum í.Orlando í vikimni. Mótin eru
bæði I Tommy Armor mótaröð atvinnumanna.
Fyrra mótið fór fram á Bay Tree National golf-
véllinum og liafnaði Siguijón þar í 17. sæti af
75 þátttakendum. Hann lék á 74 höggum, en
par vallarins er 72 og erfiðleikastuðull 75.
Sfðara mótið fór fram á Mission Inn golfvellin-
um í Orlando. Þar lék Sigurjón á 70 og 76 högg-
um, eða samtals 146 höggum og hafnaði í 48.
sæti af 170 keppendum. Par vallarins er 72 og
erfiðleikastuðuU (SSS) 73.
Haukar sýknaðir af
kröfu KR-inga
ÍÞRÓTTADÓMSTÓLL ÍBH sýknaði körfuknatt-
leiksdeUd Hauka af kröfu körfuknattleiksdeUd-
ar KR sem fór fram áþað að leikur KR og
Hauka í úrvalsdeildinni sem fór fram 15. októ-
ber sl. yrði dæmdur Haukum tapaður þar sem
leikmaður Hauka, sem var í leikbanni, sat á
varamannabekk Hauka í umræddum leik og „tók
virkan þátt f leiknum“. Dómstóllinn komst að
þeirri niðurstöðu að það geti ekki talist þátttaka
í leik að silja á bekk með varamönnum frekar
en annars staðar á leikstað.
ísland leikur um
5.-8. sætið á EM
ÍSLENSKA landsliðið f badminton, skipað leik-
mönnum 18 ára og yngri, tapaði fyrir Belgum
2:3 í síðasta leik sfnum f riðlakeppni Evrópu-
móts B-þjóða í Portúgal f gær og leikur því um
5.-8. sætið í mótinu. Þar með er draumurinn
um að komast í keppni A-þjóða úr sögunni.
HANDKNATTLEIKUR: AFTURELDING í BORGAKEPPNIEVRÓPU / D4