Morgunblaðið - 25.01.1996, Page 1

Morgunblaðið - 25.01.1996, Page 1
LISTHLAUP A SKAUTUM / EM Tveir meiddust í Laugardals- höllinni I TVEIR handknatlleiksmenn meiddust í leik í Laug- ardalshöllinni í gær er KR tók á móti Val í 1. deild karla. Ingi Rafn Jónsson, leikmaður Vals, meiddist á hægri hendi er rúmar 12 mínútur voru íiðnar af leiknum og á fyrstu mínútu siðari hálfleiks meiddist Einar Baldvin Árnason, fyrirliði KR-inga, og var hann fluttur með sjúkrabQ á sjúkrahús. Árni Árnason, sjúkraþjálfari Valsmanna, sagði eftir leikinn að Einar hefði fengið hné Örvars Rudolfssonar markvarðar Vals, í nefið og fengið við það talsverðan hnikk á hálsinn. „Það var örugg- ara að hreyfa hann sem minnst og þess vegna vild- um við flytja hann með sjúkrabfl,“ sagði Árni eftir leikinn og bætti því við að hann vonaði að meiðsl- in væru ekki alvarleg. Varðandi meiðsli Inga Rafns sagði Ámi að hann hefði fengið högg á handarbak- ið og hefði ferið beint í myndatöku. „Mér sýndist einna heist eins og hann væri brotinn,“ sagði Árni. Því má svo bæta við að Jón Kristjánsson, þjálf- ari og leikmaður Vals, lék ekki með frekar en í síðasta leik Vals. Hann meiddist í bikarleiknum gegn KA á Akureyri fyrir nokkru og sagði að læknar teldu að hann væri með brotið rifbein. „Það er ekkert hægt að gera en bíða eftir því að það lagist,“ sagði Jón við Morgunblaðið í gærkvöldi. Valdimar ekki til Noregs VALDIMAR Grímsson, horaamaðurinn sterki í handknattleik — þjálfari og leikmaður Selfoss, mun ekki leika með landsUðinu í Lotto-bikarkeppninni f handknattleik, sem hefst í Noregi 1. febrúar. „Ég á ekki heimangengt, þar sem ég hef mikið að gera i nýju starfi, sem ég tók við um áramót,“ sagði Valdimar, sem er orðinn yfirmaður Kaupáss, sem rekur 11-11 búðiraar á höfuðborgarsvæðinu, fimm talsins. Jóhann G. Jóhannsson, lærisveinn Valdimars hjá KA, tekur sæti Valdimars f landsliðshópnum. Hann hefur ekki leikið áður með landsUðinu, er nýliði eins og félagi hans hjá KA i hinu horninu, Björg- vin Björgvinsson. 490 milljónir til íjDróttafélaga FRAMLÖG til frjálsrar félaga- og íþróttastarfsemi eru áætluð 490 mil þ'ónir á árinu samkvæmt skýrslu borgarstjóra með fjárhagsáætlun Reykjavíkur- borgar árið 1996. Til framkvæmda á vegum íþrótta- félaganna er reiknað með styrkjum að fjárhæð 212,8 miiyónir vegna samningsbundinna verkefna félaganna við byggingu íþróttamannvirkja. Af framlögum til fijálsra félaga renna 242,3 mifljónir til fþróttabandalags Reykjavfkur. Þar vega þynspt húsaleigu- og æfingastyrkir félaganna eða 223 mihjónir. Um 110 mifljónir af þeirri upp- hæð skila sér aftur sem tekjur íþróttamannvirkja borgarinnar. Um 113 mil^jónir fara til íþróttafélaga f formi styrkja vegna æfinga- og húsaleigu í sam- ráði við Íþróttabandalag Reykjavfltur. í skýrslu borgarstjóra kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir kostnaði af nýjum samningum um stórframkvæmdir á vegum félaganna. Borgarsjóð- ur sé þegar skuldbundinn til að greiða um 324 miiyónir á næstu árum vegna samninga sem þegar hafi verið gerðir við fjölmörg íþróttaf élög. Dmítríev sigraði með nýj- um dans- félaga ARTUR Dmítríev, ólympíu- og heimsmeistari í parakeppni í listhlaupi á skautum, bætti Evrópmeistaratitli í safnið með nýjum dansfélaga, Oksana Kazakovu, á EM í Sofíu í Búlg- aríu í gær. Þessi tvítuga stúlka gaf Nataliu Mishkutienok, fyrrum dansfélaga Dmítríevs, ekkert eftir þó svo að þau hafi aðeins æft saman í sex mánuði fyrir mótið. Þýska parið, Mandy Wotzel og Ingo Steuer, hlaut silfur- verðlaunin og Sarah Abitbol og Stephane Bernadis frá Frakklandi hrepptu bronsið og var þetta í fyrsta sinn sem franskt par kemst á verðlauna- pall á EM síðan 1932. Víatsjeslav Zagorodniuk frá Ukraínu er með forystu í list- hlaupi karla eftir skylduæfing- arnar í gær. Rússinn Ilya Kulík er annar og Steven Cousins frá Bretlandi þriðji. Á myndinn hér til hliðar eru Evrópumeistararnir í para- keppninni, Oksana Kazakova og Artur Dmítríev. Þau þóttu sýna mikið öryggi í æfingum sínum í gær. ■ Úrlsit / D4 Þjálfararfyrstu deildar liðanna vilja aðvaliðverði úrtíu liðumfyrirJapansferðina llla komið ef það er ekki hægt ÞJÁLFARAR fyrstu deildar Iið- anna í handknattleik ætla að senda stjórn og landsliðsnefnd Hand- knattleikssambandsins bréf þar sem þvi er mótmælt að gera tutt- ugu daga hlé frá undanúrslitaleikj- unum þar til úrslitarimman hefst. Hugmynd þar um hefur komið upp vegna boðs til landsliðsins um að taka þátt í móti í Japan í apríl, á sama tíma og úrslitaleikirnir eiga að fara fram. Gunnar Gunnarsson, þjálfari Hauka, hefur séð um að hafa sam- band við þjálfara liðanna og hann sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann væri búinn að ná í alla þjálfarana nema tvo. „Mönnum finnst ekki hægt að gera tuttugu daga hlé fyrir úrslitaleikina. Fyrir tveimur árum var gert tíu daga hlé fyrir úrslitaleikina og fannst mönnum það of mikið.“ Gunnar benti einnig á annan ókost við að bíða með úrslitaleikina þar til landsliðið kæmi heim frá Japan. „Ef landsliðsþjálfarinn velur sex leikmenn úr öðru liðinu sem leikur til úrslita en engan úr hinu þá kemur það mjög ójafnt við und- irbúning liðanna fyrir úrslitaleik- ina.“ Gunnar sagði að hann skildi vel afstöðu forráðamanna landsliðsins og landsliðsþjálfarans sem nú væri reyndar kominn hinum megin við borðið. „Þetta er gott boð og HSÍ á auðvitað að taka því, en við telj- um að það sé til nóg af leikmönnum í þeim tíu fyrstu deildar liðum sem ekki komast í úrslitin. Það er illa komið fyrir handknattleiknum ef ekki er hægt að mynda boðlegt landslið úr tíu fyrstu deildar lið- um,“ sagði Gunnar. TEIMIMIS: AGASSIENDURHEIIVITIEFSTA SÆTIÐ Á HEIMSLISTANUM / D8

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.