Morgunblaðið - 28.01.1996, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1996 B 29
tlAOAUGL YSINGAR
UTBOÐ
F.h. Vatnsveitu Reykjavíkur, er óskað eft-
ir tilboðum í 0200 til 0600, heildarm. 6650
m af „ductile iron“ pípum ásamt „fitt-
ings.“ Útboðsgögn verða afhent á skrif-
stofu vorri.
Opnun tilboða: miðvikud. 21. feb. nk. kl.
11.00 á sama stað.
wr/08/6
F.h. Húsnæðisnefnd Reykjavíkur, er ósk-
að eftir tilboðum í eftirtalda efnis- og verk-
þætti í íbúðir í Borgarhverfi:
1. Svala- og stigahandrið (jámsm.) í86 íb.
Burðarvirki fyrir svalir (járnsm.) í 86 íb.
Svalaeiningar (úr steinsteypu) í 86 íb.
Opnun tilboða: þriðjud. 13. feb. nk. kl.
11.00.
2. Raflagnir í 26 íbúðir.
Timburstigar í 16 íbúðir.
Opnun tilboða: sama dag kl. 14.00.
3. Eldavélar í 112 íbúðir.
Opnun tilboða: sama dag kl. 15.00.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá
og með þriðjud. 30. jan nk. gegn kr.
10.000,- skilatr. fyrir hvern verkþátt.
Tilboðin verða opnuð á sama stað.
hnr 09/6
Innkaupastofnun
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sítni 552 58 00 - Fax 562 26 16
Tilboð
Bifreiðaútboð á tjónabifreiðum er alla mánu-
daga frá kl. 9-18. Ljósmyndir af bifreiðunum
liggja frammi hjá umboðsmönnum SJÓVÁ-
ALMENNRA víða um land.
Upplýsingar í símsvara 567-1285.
Tiónaslioðunaislöðin
• * Draghálsi 14-16 110 Reykjavik ■ Simi 5671120 ■ Fax 567 2620
ÞJONUSTA
Húsbyggjendur
Getum bætt við okkur verkum.
Hafið samband við Friðjón og Viðar ehf.,
byggingaverktaka, í símum 565 3845,
853 4335 og 854 2968.
T
Auglýsing um styrki og
lán til þýðinga á erlendum
bókmenntum
Samkvæmt lögum nr. 35/1981, reglugerð
nr. 638/1982 og breytingu nr. 102/1992 um
þýðingarsjóð, er hlutverk sjóðsins að lána
útgefendum eða styrkja þá til útgáfu vand-
aðra erlendra bókmennta á íslensku máli.
Greiðslu skulu útgefendur nota til þýðingar-
launa.
Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera
þessi:
1. Verkið sé þýtt úr frummáli, ef þess er
kostur.
2. Upplag sé að jafnaði eigi minna en 1.000
eintök.
3. Gerð og frágangur verka fullnægi almenn-
um gæðakröfum.
4. Eðlileg dreifing sé tryggð.
5. Útgáfudagur sé ákveðinn.
Fjárveiting til þýðingarsjóðs í fjárlögum 1996
nemur 7,4 milljónum króna.
Eyðublöð fyrir umsóknir um framlag úr sjóðn-
um fást í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík og skulu um-
sóknir hafa borist ráðuneytinu fyrir 1. mars nk.
AUS
ALÞJÓÐLEG UNGMENNASKIPTI
Langar þig
til Indlands eða Ítalíu,
Kóreu eða Kólumbíu?
„Ég myndi láta fólk sem er yngra en 25 ára
fá hundraðþúsund kall og skylda það til að
fara úr landi í að minnsta kosti ár“ (Hörður
Torfason í blaðaviðtali nýlega).
Við getum hvorki gefið þér hundraðþúsund
kall né skyldað þig til að fara neitt. En ef
þig langartil að prófa eitthvað nýtt og spenn-
andi, getum við kannski aðstoðað. Eina skil-
yrðið er að þú sért eldri en 18 og hafir áhuga.
Alþjóðleg ungmennaskipti, sími 561-4617.
570695
Samstarf Evrópu-
þjóða í málefnum
W D fatlaðra HELIOSII
Fræðsludagur 7. febrúar 1996
Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38
kl. 9.30-16.15
Dagskrá:
Kl. 9.30 Setning.
Páll Pétursson, félagsmálaráð-
herra.
Kl. 9.45 Stefna Evrópusambandsins í
málefnum fatlaðra, starfsáætlun
og uppbygging Helios II.
Bernhard Wehrens, fram-
kvæmdastjóri í málefnum fatlaðra
Helios II.
Kl. 10.30 Kaffihlé.
Kl. 10.45 Markmið og samvinna Helios II
við Samtök fatlaðra í Evrópu og
önnur samtök. Kynningar- og
upplýsingastarf.
Philippe Lamoral, framkvæmda-
stjóri sérfræðiskrifstofu Helios II.
Kl. 11.30:
Þáttaka íslendinga í
HELIOSII
Handynet upplýsingakerfið varð-
andi hjálpartæki fyrir fatlaða.
Björk Pálsdóttir, forstöðumaður
Hjálpartækjamiðstöðvar, Trygg-
ingastofnunar ríkisins.
Kl. 12.00 Hádegishlé.
Kl. 13.30 Hiutverk ráðgjafarnefndar sam-
taka fatlaðra og skipulag sam-
skipta og miðlunar þekkingar
innan aðildarrfkja Helios II.
Helgi Hróðmarsson, starfsmaður
samvinnunefndar Þroskahjálpar
og Öryrkjabandalagsins.
Kl. 13.50 Blöndun fatlaðra íalmenna skóla.
Kolbrún Gunnarsdóttir, deildar-
stjóri í menntamálaráðuneytinu.
Kl. 14.15 Atvinnumál og starfshæfing.
Guðrún Hannesdóttir, forstöðu-
maður Starfsþjálfunar fatlaðra.
Kl. 14.30 Félagsleg aðlögun - íþróttir.
Anna Karólína Vilhjálmsdóttir,
framkvæmdastjóri íþrótta- og út-
breiðslusviðs íþróttasambands
fatlaðra.
Kl. 15.00 Kaffihlé.
Kl. 15.30 Væntingar Hagsmunasamtaka fatl-
aðra á íslandi til Helios II.
Ólöf Ríkarðsdóttir, formaður Ör-
yrkjabandalags íslands og Guð-
mundur Ragnarsson, formaður
Landssamtakanna Þroskahjálpar.
Kl. 16.00 Fyrirspurnir og umræður.
Kl. 16.15 Fundarslit.
Fundarstjóri: Margrét Margeirsdóttir, deild-
arstjóri í Félagsmálaráðuneytinu.
Túlkað á íslensku - Táknmálstúlkun fyrir
heyrnarskerta.
Þátttaka tilkynnist til félagsmálaráðuneyt-
isins í síma 560 9100 fyrir 3. febrúar nk.
Styrkurtil Noregsfarar
Stjórn sjóðsins Þjóðhátíðargjöf Norðmanna
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðn-
um vegna Noregsferða á árinu 1996.
Samkvæmt skipulagsskrá fyrir sjóðinn er til-
gangur hans „ að auðvelda íslendingum að
ferðast til Noregs. í þessu skyni skal veita
viðurkenndum félögum, samtökum og skipu-
lögðum hópum ferðastyrki til Noregs í því
skyni að efla samskipti þjóðanna t.d. með
þátttöku í mótum, ráðstefnum eða kynnis-
ferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli,
þ.e.a.s. ekki eru veittir styrkir til þátttöku í
samnorrænum mótum, sem haldin eru til
skiptis á Norðurlöndum. Ekki skal úthlutað
ferðastyrkjum til einstaklinga eða þeirra sem
eru styrkhæfir af öðrum aðilum".
í skipulagsskránni segir einnig að áhersla
skuli lögð á að veita styrki sem renna til
beins ferðakostnaðar en umsækjendur beri
sjálfir dvalarkostnað í Noregi.
Hér með er auglýst eftir umsóknum frá þeim
aðilum sem uppfylla framangreind skilyrði.
í umsókn skal getið um hvenær ferð verður
farin, fjölda þátttakenda og tilgang fararinn-
ar. Auk þess skal tilgreina þá fjárhæð sem
farið er fram á.
Umsóknum óskast beint til stjórnar sjóðsins
og sendar forsætisráðuneytinu, Stjórnar-
ráðshúsinu við Læjartorg, 150 Reykjavík, fyr-
ir 28. febrúar 1996.
I forsætisráðuneytinu, 26. janúar 1996.
Spánn - leiga
Til leigu í lengri eða skemmri tíma nýtt par-
hús með öllum húsbúnaði og einkalóð. Sól-
svalir á þaki. Skammt á yndislega ströndina.
Stutt í alla þjónustu.
Upplýsingar í síma 567 2827 og hjá Masa
umboðinu á íslandi, sími 554 4365.
Tilkynning til þeirra, sem
eiga að skila skattafram-
tali til Bandaríkjanna
Fulltrúi frá bandarísku skattayfirvöldunum
(Internal Revenue Service), Kevin Coulter,
verður til viðtals í Sendiráði Bandaríkjanna,
Laufásvegi 21, 5. og 6. febrúar 1996.
Fulltrúinn mun veita svör við spurningum
varðandi bandarísku skattalöggjöfina. Ef ósk-
að er viðtals, þá vinsamlega pantið tíma í
síma 562 9100.
Notice to U.S. citizens
and resident aliens
To provide assistance in matters relating to
U.S. Federal tax laws, the U.S. Internal
Revenue Service will send to Reykjavík Mr.
Kevin Coulter, Taxpayer Assistance Special-
ist. Mr. Coulter will be available to answer
questions regarding U.S. Federal Income
Taxes on 5th and 6th of February 1996 at
the American Embassy, Laufásvegur 21,
Reykjavík. Please call 562 9100 to make an
appointment for assistance.
ÓSKAST KEYPT
Píanó - flygill
Óskum eftir góðu píanói eða flygli.
Upplýsingar hjá Ingibjörgu í síma 487 8171
og heimasíma 487 8142.