Morgunblaðið - 31.01.1996, Page 1
PRENTSMÍÐJA MORGUNBLAÐSINS
MIÐVIKUDAGUR 31. JANUAR 1996
BLAD
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
riTT riA AAA Fréttir Markaðir
SH semur um 20.0001 Framleiðir Kína kaupir
tonn af loðnu til Japan
Einn stærsti samningiir
um sölu á frystri loðnu
GENGIÐ hefur verið frá
einhveijum stærsta sölu-
samningi á frystri loðnu
í sögu Sölumiðstöðvar
^ ... ^ . hraðfrystihúsanna.
i sogu Solumiðstoövarinnar Samningaviðræðum við
japanska kaupendur lauk
nýlega og hafa þeir skuldbundið sig til þess að kaupa allt að 20 þúsund tonn
af loðnu á komandi vertíð. SH er stærsti útflytjandi á loðnu frá íslandi og
er stærsti söluseljandinn á loðnu í Japan.
Loðnuverð er nú um 6 til 17% hærra
í japönskum yenum, en í samningum
SH í fyrra. I meginatriðum er um fjóra
stærðarflokka að ræða og mun verðið
fara stighækkandi eftir stærð loðnunn-
ar. Að meðaltali er um 12 prósenta
hækkun að ræða miðað við sömu
stærðarskiptingu og í fyrra. Gengi jap-
anska yensins hefur lækkað um 9%
milli ára miðað við ísl. krónuna þannig
að raunhækkun í ísl. krónum er að
meðaltali 3%.
„Japanskir neytendur hafa í gegnum
tíðina kostið að hafa loðnuna sem
stærsta," segir Halldór G. Eyjólfsson,
markaðsstjóri hjá SH í Reykjavík, en
Tækni
3 Upplýsingakerfið
Hafdís sett upp-
hjá Bakka hf.
Aflabrögð
4 Aflayfirlit og
staðsetning
fiskiskipanna
Markaösmál
6 Bjartar horfur á
markaði fyrir
niðurlagðan fisk
hann sá um samningagerðina ásamt
Jóni Magnúsi Kristjánssyni, fram-
kvæmdastjóra. „íslenska loðnan er smá
og því hafa þeir aðallega keypt loðnu
frá Kanada og Noregi. Nokkur sam-
dráttur hefur orðið í neyslu á þessari
loðnu á síðustu árum.
íslenska smáloðnan
að festa sig í sessi
í samningunum 1995 var sú stefna
mótuð af hálfu SH að byggja upp
markað fyrir íslensku smáloðnuna.
Þessi stefna er nú að skila sér. ís-
lenska loðnan virðist vera að festa sig
í sessi og útlit er fyrir að neysla á loðnu
sé að aukast í fyrsta skipti í langan
tima. Mikilvægt er í því sambandi að
nú er hægt að selja þangað mun smærri
ioðnu en áður, og mun það væntanlega
koma framleiðendum vel á komandi
árum. Japanskir loðnukaupendur hafa
verið að breyta sinni framleiðslu og
selja nú loðnuna í nýjum neytendaum-
búðum og eru þær margar hverjar sér-
merktar Islandi."
Halldór segir að loðnan sé í mikilli
samkeppni við aðrar tegundir sjávaraf-
urða. Stórmarkaðir hafi orðið mikil
áhrif á hvaða tegundir séu seldar og
hleypi einungis hluta af þeim tegundum
að sem í boði séu. í ljósi þessa sé það
mjög jákvætt hvernig til hafi tekist
með markaðssetningu íslensku loðn-
unnar.
„Horfur í veiðum á loðnu er nokkuð
góðar og jafnvel er búist við því að
frysting fyrir Asíumarkað geti hafist
um helgina," segir hann. „Á síðasta
ári hafa nýir loðnuframleiðendur geng-
ið til liðs við SH og auk þess hafa stór-
ir framleiðendur aukið afkastagetu
sína mikið.“
DYTTAÐ AÐ BÁTNUM
Morgutiblaðið/Krístinn
fiskrétti
í Bremerhaven
• UM ÁRAMÓTIN festi
Samúel Hreinsson kaup á
fiskréttavinnslunni Fimex í
Bremerhaven, sem sérhæf-
ir sig í þjónustu við veit-
ingahús. Samúel rekur
einnig Isey sem er umboðs-
og fisksölufyrirtæki í
Bremerhaven. Að hans
sögn verður lögð áhersla á
að fá fisk frá íslandi og
víðar að í fiskréttavinnsl-
una. Fyrirtækið hefur í ára-
tugi lagt áherslu á að búa
til túnfisk-, sverðfisk- og
laxsteikur fyrir veitinga-
hús. Einnig hefur það selt
karfa, ufsa, steinbítssteik-
ur, rækju og humar./2
Norðmenn fá
ný varðskip
• NORSKA strandgæslan
tekur í notkun tvö ný skip
á þessu ári, Álesund og
Tromsö, en hvað það fyrr-
nefnda varðar er um að
ræða kaupleigusamning við
útgerðarfyrirtækið Remoy
Shipping í Heroy á Sunn-
mæri, sem lét smíða það.
Er samningurinn til 10 ára
en eftir fimm ár getur
strandgæslan keypt skip-
ið./2
Metárhjá
Óslandi á Höfn
• Árið sem leið var metár
í bræddu hráefni hjá fiski-
mjölsverksmiðjunni Ós-
landi á Höfn í Hornafirði
og var nálægt 50.000 tonn-
um, en hefur mest verið
áður 33.000 tonn 1988. Um
11.000 tonn voru brædd af
smugusíld síðastliðið sum-
ar, sem var kærkomin bú-
bót á dauðum tíma eins og
fyrri part suinars. Afkasta-
geta verksmiðjunnar hefur
verið tvöfölduð eftir gagn-
gerar endurbætur./8
Tífalda
vöxtinn
• SKOSKIR vísindamenn
liafa sprautað 10.000 laxa-
hrogn með erfðaefni úr
annarri fisktegund og búast
þeir við, að við það muni
vöxtur laxins aukast, jafn-
vel tífaldast. Ilafa Norð-
menn miklar áhyggjur af
þessum tilraunum og óttast,
að takist þær vel, muni það
verða til að eyðileggja lax-
eldið í núverandi mynd./8
meira af fiski
• INNFLUTNINGUR á
sjávarafurðum til Kína fer
stöðugt vaxandi, en vöxtur-
inn hefur orðið i tveimur
mjög stórum stökkum. Inn-
flutningur um þessar
mundir nemur um hálfri
milljón tonna, en 1988
fluttu Kínverjar nánast
ekkert inn. Markaðurinn er
hins vegar stór, enda telur
þjóðin um 1,2 milljarða
manna. Það hins vegar
tvennt, sem vinnur á móti
innflutningi; almenn fátækt
og sívaxandi fiskafli og
fiskeldi Kínveija sjálfra.
fot Kína - ____
500 innflutningur
450 sjávarafurða
400
350
300
250
200
150
100
50
0,85'86 '87 'M'89 '90 '91 '92'93
Utflutningur
eykst einnig
Kína -
soo útflutningur
sjávarafurða
'85'86 '87'88'89 '90'91 '92'93
• UTFLUTNINGUR
sjávarafurða frá Kína hef-
ur einnig vaxið jafnt og
þétt og er nú um hálfa
milljón tonna, svipað magn
og þeir flytja inn. 1988
fluttu Kínverjar út um
300.000 tonn. Rækjueldi
hefur að miklu leyti staðið
undir þessari aukningu út-
flutnings, en sjúkdómar og
megnun rústuðu rækjueld-
ið fyrir fáum misserum, en
þá ólu Kínverjar meira af
rækju en nokkur önnur
þjóð./6