Morgunblaðið - 01.02.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 01.02.1996, Síða 1
88 SÍÐUR B/C/D 26. TBL. 84. ÁRG. FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Atvinnumálaáætlun þýsku stjórnarinnar Verkalýðsfé- lög mótmæla Bonn. Reuter. STJ ÓRNARANDST AÐAN í Þýskalandi og verkalýðsfélögin í landinu gagnrýndu í gær harðlega áætlun stjórnvalda, sem kynnt var í fyrradag, um aukna atvinnu og hagvöxt. Sögðu þau, að með henni væri verið að refsa launafólki og grafa undan velferðarkerfinu. Talsmenn þýsku bílaverksmiðj- anna sögðu hins vegar, að tækist ekki að draga úr kostnaði við fram- leiðsluna myndi starfsmönnum fækka um 100.000 fyrir aldamót. Þýska stjórnin birti áætlunina, sem er í 50 liðum, í fyrradag en áður hafði hún, verkalýðsfélögin og vinnuveitendur heitið að leita leiða til að draga úr kostnaði við velferðarríkið og minnka launa- kostnað og tengd gjöld til að bæta samkeppnisstöðuna og draga úr atvinnuleysi. Viðbrögð stjórnar- andstöðunnar og verkalýðsfélag- anna lofa hins vegar ekki góðu um framhaldið. Jafnaðarmenn á móti Rudolf Scharping, þingflokks- formaður jafnaðarmanna, sagði, að með áætluninni væri verið að eyðileggja velferðarkerfið og tals- menn helstu verkalýðssamband- anna sögðu, að stefnt væri að því að efla fyrirtækin á kostnað launa- manna. Hagfræðingar benda á, að snú- ist jafnaðarmenn gegn áætluninni, verði erfitt að framfylgja henni og því skipti mestu nú væntanlegir kjarasamningar. Þar eru þó blikur á lofti því að félög starfsmanna í byggingar- og efnaiðnaði ætla að krefjast allt að 6% launahækkunar þótt verðbólga sé nú undir 2%. Störfin úr landi Erika Emmerich, forseti sam- taka þýskra bílaframleiðenda, sagði í gær, að tækist ekki fljót- lega að skera niður gífurlegan launakostnað í Þýskalandi, myndu bílaframleiðendur og framleiðend- ur fyrir bílaiðnaðinn flytja fram- leiðsluna úr landi að hluta. Mætti búast við, að við það myndu tap- ast 100.000 störf. Krefjast afsagiiar Simitis Ankara, Aþenu. Reuter. GRÍSKA stjórnarandstaðan krafð- ist þess í gær að stjórn Costas Sim- itis forsætisráðherra segði af sér þar sem þjóðin hefði verið auðmýkt með málamiðlun í deilu Grikkja og Tyrkja um umdeilt eyðisker. Málamiðlun í deilunni, sem hleypti mikilli spennu í sambúð ríkj- anna, tókst fyrir milligöngu Banda- ríkjamanna. Féllust Grikkir á að draga niður fána á skerinu. Að því búnu var mikill liðsafli og fjöldi grískra og tyrkneskra skipa kvadd- ur á brott. Tansu Ciller forsætisráðherra Tyrklands lýsti sigri í deilunni þar sem Grikkir hefðu verið knúnir til að fjarlægja fánann af skerinu. Þykir hún hafa styrkt stöðu sína heima fyrir með lausn deilunnar og kann það að flýta fyrir myndun meirihlutastjórnar. Necmettin Erbakan, leiðtogi flokks múslima, stærsta stjórnmála- flokks Tyrklands, var þó engan veg- inn ánægður með niðurstöðuna og sakaði Ciller um undanlátssemi. ■ Grikkir fellafána/18. ------»' ♦ ♦------ Reuter Reuter Ringulreið í Colombo GÍFURLEG ringulreið varð í Colombo, höfuðborg Sri Lanka, i gær eftir að öflug sprengja hafði sprungið í miðborginni. Talið er að tamílskir aðskilnaðar- sinnar hafi verið að verki en 100 manns a.m.k. biðu bana og um 1.500 slösuðust. Eldur kviknaði í fjölda bygginga og stigu kol- svartir reykjarbólstrar upj) af borginni fram eftir degi. A myndinni ber lögregluþjónn særðan mann af slysstað. ■ Mikið manntjón/20. Noregur Nautakjöt frá Botswana Jóhannesarborg. Reuter. NORÐMENN hafa heimilað inn- flutning á nautakjöti frá Afríku- ríkjunum Botswana og Namibíu og verða engin sérstök takmörk á því hve mikill hann má verða. Ákvörðun um þennan innflutn- ing var tekin snemma í síðasta mánuði og Asbjern Mathisen þró- unarmálaráðherra sagði, að hann væri ekki bundinn neinum kvóta. Hins vegar yrði vel fylgst með því hvernig innflutningurinn þróaðist því að hann yrði í beinni sam- keppni við innlenda framleiðendur. Hætta á hungursneyð í Kabúl ÁSTANDIÐ í Kabúl, höfuðborg Afganistans, versnar dag frá degi en liðsmenn tveggja fjand- mannafylkinga ríkisstjómarinn- ar sitja um borgina og koma í veg fyrir matvælaflutninga til hennar. Ottast starfsmenn Sam- einuðu þjóðanna mikla hungurs- neyð verði engin breyting á en Alþjóða Rauði krossinn ætlar að reyna að koma vistumtil borgar- innar með flugvélum. í gær kom- ust þó nokkrir flutningabílar til borgarinnar og fengu til þess leyfi Taleban-hreyfingarinnar, sem berst gegn stjórninni. Þessir stjórnarhermenn vörðust umsát- ursliðinu fyrir framan rústir konungshallarinnar í Kabúl. Leynileg æfing í Noregi vegna ímyndaðs fiskistríðs Ósló. Morgunblaðið. Nágrannalandið „Opforia“ krefst fisk- veiðiréttinda og yfirráða yfir Jan Mayen SÍÐUSTU daga hafa farið fram leynilegar æfingar i Noregi þar sem meðal annars er skipulagt hvernig brugðist skuli við átökum um fisk- inn í Barentshafi, olíu og gas, við flugránum, hryðjuverkum og kjamorkuslysi. Ér aðeins um að ræða skipulagsæfingu en í henni taka þátt fulltrúar norska hersins, almannavarna, geislavarna ríkis- ins, allir fylkisstjórarnir og fulltrú- ar allra ráðuneyta. Æfingin, sem kallast „Totex“, hófst í síðustu viku og henni lýkur á morgun. Þar er meðal annars sett á svið sú staða, að samskiptin við eitt nágrannalandið, sem nefnt er „Opforia", hafi versnað mjög vegna deilna um réttinn til fisk- veiða og annarra auðlinda í Bar- entshafi. Nú í vikunni náði svo spennan eða æfingin hámarki þegar „Opfor- ia“ kom með beinar landakröfur á Noreg og krafðist yfirráða á Bjamarey og Jan Mayen. Áður hafði „Opforia" kært Norð- menn fyrir alþjóðadómstólnum í Haag og „opforísk" varðskip höfðu tekið norsk fiskiskip þótt þau væru á hafsvæði, sem Norðmenn telja sitt. Samtímis þessu á að verða kjarnorkuslys í einu nágrannaland- inu og valda miklum fólksflótta frá því til Noregs. Leynilegur æfingastaður Oskum norskra blaðamanna um að fá að koma til stöðvarinnar þar sem skipulagsæfingin fer fram hef- ur verið hafnað en talið er, að um sé að ræða neðanjarðarbyrgi í Buskerud. „Æfingarstaðurinn er leynileg- ur. Vegna öryggis ríkisins viljum við hvorki umljöllun um hann né ljósmyndir af honum. Hann hefur mikilvægu hlutverki að gegna komi upp neyðarástand," sagði Oyvind Ostang, upplýsingafulltrúi í norska forsætisráðuneytinu. Ostang sagði, að með „Totex“ væri reynt að setja á svið það, sem raunverulega gæti gerst, og síðan væru viðbrögðin við þessu hugsan- lega ástandi skipulögð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.