Morgunblaðið - 01.02.1996, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
t ..
__-
Morgunblaðið/Kristján
í GÆR var verið að landa rækju úr Pétri Jónssyni RE í Akureyrarhöfn. Á sama tíma lagðist olíu-
skipið Kyndill upp að hlið togarans og fyllti tanka hans af olíu.
Pétur Jónsson RE með fullfermi til Akureyrar
Mesti rækjuaflinn
eftir eina veiðiferð
TOGARINN Pétur Jónsson RE kom til Akureyrar í gærmorgun
með fullfermi af frosinni rækju, um 420-430 tonn, sem er sam-
kvæmt því sem Morgunblaðið kemst næst, mesti afli sem íslenskt
rækjuskip hefur komið með að landi úr einni veiðiferð. Aflaverð-
mæti skipsins er um 77-78 milljónir króna.
Pétur Jónsson RE hélt til veiða
Klemmdi
höndí
sorppressu
VINNUSLYS varð í sorpeyð-
ingarstöðinni í Keflavík í gær-
morgun. Starfsmaður stöðvar-
innar slasaðist á hendi þar sem
hann vann við tæki sem press-
ar sorp og flytur það inn í
brennsluofn. Að sögn lögregl-
unnar á Keflavíkurflugvelli
virðist sem vélin sé útbúin
sjálfvirkum nema sem skynjar
þegar hún vinnur ekki rétt.
Stöðvaðist vélin áður en meira
slys hlaust af. Logsjóða varð
stálbita úr tækinu til þess að
losa hönd mannsins. Hlíf hafði
verið á tækinu en hún hafði
verið fjarlægð fyrir mörgum
árum, að sögn lögreglu.
72% aukning
í bílasölu
milli ára
TÆPLEGA 200 fleiri fólksbfl-
ar seldust í janúar 1996 en á
sama tíma í fyrra. Söluaukn-
ingin er 71,9%. Alls seldist 471
bíll í mánuðinum en 274 bílar
í janúar 1995.
Mest seldist af Toyota-bíl-
um í janúar, alls 80 bflar, sem
er 17% markaðshlutdeild. í
öðru sæti kemur Volkswagen,
með 12,1% markaðshlutdeild,
Nissan er með 10,8%, Hyundai
8,9%, Ford 8%, Mitsubishi
7,2% og Suzuki 7%. Aðrir bílar
seldust minna.
aðfaranótt 2. janúar sl. og var við
veiðar fyrir norðan land. Pétur Stef-
ánsson, skipstjóri og útgerðarmað-
ur, sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að samsetning aflans væri léleg
og rækjan frekar smá.
iðnaðarrækja sem fer til vinnslu hjá
Sigurði Ágústssyni í Stykkishólmi,
en annar hluti aflans fer beint á
erlendan markað.
Rækjuveiðin hjá Pétri Jónssyni
RE gekk mjög vel á síðasta ári.
Heildaraflinn var um 2.300 tonn
og aflaverðmætið rúmur hálfur
milljarður króna. Skipstjórar eru
tveir, Pétur Stefánsson og Bjarni
Sveinsson og fara þeir annan hvern
túr með skipið.
Rækjan á óvenju miklu dýpi
Hjalteyrin EA einnig með
fullfermi
Hann sagði að rækjuflotinn hefði
allur verið við veiðar á svipuðum
slóðum og veiðin hefði verið mjög
góð framan af. Hins vegar hefði
rækjan farið niður á óvenju mikið
dýpi og því erfitt að ná henni.
Stærstur hluti afla Péturs Jónsson-
ar fékkst á 300-400 föðmum og
niður á 500 faðma dýpi.
Rúmlega helmingur aflans er
Um kvöldmatarleytið í gær kom
Hjalteyrin EA 310, togari Sam-
heija, til heimahafnar með fullfermi
af rækju, um 120 tonn. Togarinn
var á veiðum í hálfan mánuð og
er aflaverðmætið um 21-22 milljón-
ir króna. Brynjólfur Oddsson skip-
stjóri sagði að mikil veiði væri á
miðunum, en hins vegar stæði rækj-
an djúpt og væri nokkuð smá.
Samkomulag Ríkisspítala og Hjálpræðishers
Vistheimilinu
Bjargi ekki lokað
RIKISSPITALAR og Hjálpræðisher-
inn á íslandi hafa komist að sam-
komulagi um að leita lausnar á
rekstri vistheimilisins að Bjargi.
Tómas Helgason, yfirlæknir geð-
deildar Landspítalans, sagði að þetta
þýddi að Ríkisspítalamir myndu ekki
segja upp samningi um vistun á
Bjargi að sinni, en hann útilokaði
ekki að til þess gæti komið síðar.
Tómas sagði að í samkomulaginu
við Hjálpræðisherinn fælist að skoð-
að yrði sérstaklega hvort hægt
væri að hagræða í rekstri vistheim-
ilisins að Bjargi og ná niður kostn-
aði. Eins yrði skoðað hvort hægt
væri að fínna lausn á vanda heimil-
ismanna með þátttöku félagsmála-
ráðuneytisins, svæðisstjórna og
sveitarstjórna. Tómas sagði að aldr-
ei hefði staðið til að vísa vistmönn-
á Bjargi á götuna. Það yrði
um
ekki gert þótt breytingar yrðu hugs-
anlega gerðar á rekstrinum.
Bankar hækka inn-
láns- og útlánsvexti
BANKAR og sparisjóðir nema ís-
landsbanki hækka inn- og útláns-
vexti sína nú um mánaðamótin.
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbanka íslands,
segir að ástæðurnar séu hækkun á
markaðsvöxtum annars vegar og
heldur meiri verðbólga nú en gert
hafi verið ráð fyrir hins vegar.
Landsbanki íslands hækkar vexti
á óverðtryggðum útlánum um eitt
prósentustig og vexti á verðtryggð-
um útlánum um 0,20 prósentustig.
Vextir á innlánsreikningum hækka
um á bilinu 0,20 til 1,15 prósentu-
stig. Sparisjóðirnir hækka vexti á
óverðtryggðum lánum um 0,50-
0,70 prósentustig, en vextir á verð-
t^yggðum útlánum breytast ekki.
Vextir á innlánshlið hækka um
0,25-0^60 prósentustig. Búnaðar-
banki Islands hækkar óverðtryggða
útlánsvexti um 0,50 prósentustig
og verðtryggða vexti um 0,25 pró-
sentustig. . Vextir á innlánshlið
hækka um 0,10-0,50 prósentustig.
Brynjólfur Helgason, sagði að
orsökin fyrir hækkun á vöxtum
óverðtryggðra lána væri fyrst og
fremst hærra verðbólgustig nú en
síðustu mánuði. Verðtryggðu vext-
irnir hækkuðu hins vegar vegna
hækkunar á markaðsvöxtum hér á
landi undanfarið. Til dæmis væru
nú skiptikjör á spariskírteinum í
boði sem bæru 5,81% raunvexti.
Meðalverð lyfseðils
hækkar í 1400 kr.
DÆMI er um að ný lyfjareglugerð,
sem tekur gildi í dag, leiði til 38%
hækkunar á lyfjaverði til elli- og
örorkulífeyrisþega. Reglugerðin leið-
ir til þess að meðalverð lyfseðils
hækkar úr 1.200 krónum í 1.400
krónur.
Ingolf J. Petersen, apótekari í
Mosfellsapóteki, reiknaði út að
beiðni Morgunblaðsins verð þriggja
algengra lyfjategunda sem valdir
eru af handahófi. Magalyfið Asyran
í 60 stykkja umbúðum kostaði til
almennings fyrir hækkun 1.484
krónur, en í dag kostar það 1.592
krónur. Hækkun er 7,3%. Elli- og
örorkulífeyrisþegar hafa borgað
658 krónur, en borga nú 663 krón-
ur. Það er 0,8% hækkun.
Blóðþrýstingslyfið Tensol í 100
stykkja umbúðum kostaði í gær 589
krónur, en í dag 697 kónur. Hækk-
unin er 18,3%. Elli- og örorkulífeyr-
isþegar hafa borgað 203 krónur
fyrir þetta lyf, en borga nú 281
krónu. Hækkunin er 38,4%.
125 ml af Fugoral flösusjampói
kostuðu fyrir hækkun 1.006 krónur,
en kosta nú 1.165 krónur. Hækkun-
in er 15,8%. Verð til elli- og örorku-
lífeyrisþega fer úr 387 krónum í 485
krónur. Hækkunin er 25,3%.
Hluti ellilífeyrisþega/30
Deilan um einkarekinn grunnskóla í Mývatnssveit
Athugað verði hvort
bókun standist lög
FULLTRÚI minnihlutans í sveit-
arstjórn Skútústaðahrepps, Hjör-
leifur Sigurðarson, hefur lagt fyrir
félagsmálaráðuneytið fyrirspurn
um hvort síðasti hluti bókunar frá
fundi sveitarstjórnar á mánudags-
kvöld standist lög.
Skilyrði sett fyrir
styrkveitingu
í bókuninni segir að styrkveit-
ing til einkarekins skóla á Skútu-
stöðum sé háð því skilyrði að
rekstrarstjórn skólans og meiri-
hluti foreldra undirriti yfírlýsingu
um að ekki verði sótt um slíkan
styrk eftir þetta skólaár og að
umsókn um grunnskólaframlag
muni miðast við fjölda barna þeirra
foreldra sem undirrita slíka yfir-
lýsingu.
Fyrir liggur úrskurður félags-
málaráðuneytis um að Skútu-
staðahreppi sé heimilt að afla fjár
úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til
að fjármagna rekstrarstyrk til
einkaskólans.
Almannafé í skiptum
fyrir skoðanir
Foreldrar barna í suðurhluta
Mývatnssveitar reka einkaskólann
og sagði Eyþór Pétursson formað-
ur rekstrarstjórnar að menn biðu
nú eftir úrskurði frá félagsmála-
ráðuneyti áður en ákvörðun um
næstu skref í málinu yrði tekin.
Að mati suðursveitunga megi
túlka þessa bókun á þann veg að
verið sé að falbjóða almannafé í
skiptum fyrir skoðanir.
Meirihluti sveitarstjórnar í
Skútustaðahreppi Ieggst gegn því
að fleiri en einn grunnskóli sé rek-
inn í sveitinni og vill ekki stuðla
að því að svo verði. Nemendur séu
of fáir og aðstæður til skólaakst-
urs og kennslu slíkar að ekki sé
réttlætanlegt að skipta hópnum
upp í tvo skóla.
Bankaránið
Þrír menn
leystir
úr haldi
\
Gæsluvarðhaldsúrskurður yfír
þremur af fjórum mönnum, sem
hafa verið í haldi lögreglu í hálfan
mánuð vegna gruns um þátttöku í
tryggingasvikum, rann út í gær.
Um tíma beindist eipnig sá grunur
að mönnunum að þeir hefðu átt
aðild að bankaráni í Búnaðarbank-
anum á Vesturgötu. Mennirnir hafa
verið leystir úr haldi.
Tveir mannanna kærðu gæslu-
varðhaldsúrskurðinn til Hæstarétt-
ar sem staðfesti hann sl. mánudag-
Að sögn RLR þótti ekki efni til
þess að fara fram á framlengingu
gæsluvarðhalds. Fjórði maðurinn
er enn í gæsluvarðhaldi sem rennur
út næstkomandi föstudag.