Morgunblaðið - 01.02.1996, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Tillaga í bæjarstjórn Hafnarfjarðar vegna stækkunar álversins í Straumsvík
Byggingaleyfi óstaðfest þar
til mengunarinál verða skýrð
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar
samþykkti með 11 atkvæðum á
fundi sínum á þriðjudag að vísa til
bæjarráðs tillögu tveggja bæjar-
fulltrúa Alþýðubandalagsins um að
byggingaleyfi vegna nýs kerskála
álversins í Straumsvík verði ekki
staðfest fyrr en íslenska álfélagið
hefur sýnt fram á hvernig það
hyggst koma í veg fyrir eða tak-
marka loft- og hljóðmengun frá
álverinu.
í tillögunni segir að upplýsingar
frá ÍSAL, meðal annars í bréfi frá
21. nóvember í fyrra, hafí gjör-
breytt þeim forsendum sem hafí
legið til grundvallar velvilja bæjar-
stjómar til stækkunar álversins.
Bæjarstjórnin hafí staðið í þeirri
trú að umhverfismati, sem farið
hafí fram vegna stækkunar verk-
smiðjunnar, væri treystandi, svo
og starfsleyfi sem gefíð hafi verið
út í framhaldi af því. Nú sé fullyrt
af hálfu ÍSAL að stækkun verk-
smiðjunnar hafí í för með sér 60%
aukningu á flúor í lofti og aukinn
hávaða og hafí þessar fullyrðingar
þegar valdið Hafnarfjarðarbæ
verulegum skaða.
Vegna þessa sjái bæjarstjórn sig
knúna til þess að tilkynna ÍSAL
að hún sjái sér ekki fært að stað-
festa útgáfu byggingarleyfis fyrr
en sýnt hafí verið fram á það með
óyggjandi hætti hvernig félagið
hyggst koma í veg fyrir eða tak-
marka loft- og hljóðmengun sem
það telji að muni skerða verulega
landnotkun aðalskipulags Hafnar-
fjarðarbæjar, sem staðfest hafi ver-
ið 1982.
Christian Roth, forstjóri ÍSAL,
segir að það sé aifarið í höndum
Hafnarfjarðarbæjar hvort þeir
haldi áfram með íbúðarbyggðina í
Hafnarfírði í átt til álversins. ÍSAL
hafí látið í ljósi skoðun sína, en það
sé ekki í valdi þess að hafa áhrif
á ákvarðanir í þessum efnum.
Þurfa byggingarleyfi
Hann sagði að auðvitað þurfi
álverið á byggingarleyfínu að halda
til þess að geta haldið áfram fram-
kvæmdum. Hann vonist til að
niðurstaða fáist í þetta mál og
byggingarleyfið fáist staðfest.
Roth sagði að loftmengun ætti
ekki að verða vandamál, enda
hefði verið gengið úr skugga um
að hún yrði hverfandi- Það gæti
hins vegar verið ástæða til þess
að hafa áhyggjur af hljóðmengun
vegna súrálslöndunar og hávaða
frá þurrhreinsistöðvum þegar
íbúðarbyggðin færðist nær. ÍSAL
hefði fengið íslenska sérfræðinga
til þess að rannsaka það mál til
hlítar og athuga hvaða leiðir væru
til úrbóta.
Aðspurður sagði Roth að ísland
væri svo stórt að það ætti ekki
þurfa að hafa skammar vegalengd-
ir á milli iðnaðarsvæða og íbúðar-
byggðar. Ef hann skildi skipulagið
rétt væri gert ráð fyrir að fjarlægð-
in væri 500 metrar og hann teldi
að til lengri tíma litið gætu svo
skammar vegalengdir milli iðnaðar-
svæða og íbúðarbyggðar skapað
vandamál. Fjarlægðin nú milli
verksmiðjunnar og íbúðarbyggðar-
innar væri tveir kílómetrar.
Tillaga um að hætt sé
þátttöku í Eurovision
Utvarpsráð
hafnar til-
lögu dag- |
skrárstjóra 1
ÚTVARPSRÁÐ hefur hafnað til-
lögu Sveinbjörns I. Baldvinssonar,
dagskrárstjóra innlendrar dag-
skrárdeildar Sjónvarps, um að nið-
urskurði rekstrarfjár til deildarinn-
ar verði að hluta til mætt með því
að senda ekki fulltrúa fyrir íslands k
hönd í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva í vor. Sveinbjörn
segir að gaman sé að vera með í }
keppninni þegar vel ári. Miðað við
í hvað stefni í fjármálum deildarinn-
ar sé hins vegar ekki hægt að líta
á keppnina sem forgangsverkefni.
Sveinbjörn sagði að deildin væri
í ákaflega erfiðri stöðu því gengið
væri frá fjárhagsáætlun í miðri
vetrardagskrá. „Ekki verður því
hægt að skera niður af henni nema |
mjög takmarkað, t.d. féllu Flauel
og Hvíta tjaldið niður um áramót.
Svigrúmið í sumar verður heldur |
ekki mikið enda fer yfirleitt minna
fyrir innlendri dagskrárgerð á þeim
tíma en á veturna. Afleiðingin er
sú að 7% niðurskurður á árinu
miðað við árið í fyrra bitnar nær
allur á þremur seinustu mánuðum
ársins. Mér finnst því ekki nema
eðlilegt að verkefnum sé forgangs-
raðað og af því að aðalverkefni
deildarinnar er innlend dagskrár-
gerð er næsta hæpið að eyða tæp- ?
um sex milljónum í 2 til 3 klukku-
tíma af evrópskum dægurlögum,"
segir hann og játti því að heppi-
legra væri fyrir dagskrárdeildir að
miða fjárhagsárið við vetrardag-
skrána en upphaf árs. „Eins og
ýmislegt annað hjá Ríkisútvarpinu
miðast fjárhagsáætlun ekki við
þarfir dagskrárdeilda," sagði hann
í því sambandi.
ítrekað hafnað
Hann sagði að útvarpsráð hefði
þrisvar fjallað um beiðni hans. „Eft-
ir að henni var upphaflega hafnað
fór ég á fund útvarpsstjóra og fékk
að sitja næsta fund útvarpsráðs til
að gera grein fyrir afstöðu minni.
Endanleg niðurstaða lá hins vegar
ekki fyrir fyrr en í dag,“ sagði hann.
Úvarpsráð gerir ráð fyrir lág- ■
marks kostnaði vegna Eurovison
keppninnar eða sex milljónum
króna. Forkeppni verður í fyrsta |
skipti haldin fyrir keppnina og er
gert ráð fyrir að hljóðbönd verði
send í hana. Aðalkeppnin fer fram
í Ósló um miðjan maí.
*> 1
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FJARLÆGÐIN frá þeirri byggð sem nýlega hefur risið vestanvert í Hvaleyrarholti til álversins er um tveir kílómetrar.
Nýr landbúnaðarsamningnr við Evrópusambandið undirritaður
Ný tækifæri í sölu kindakjöts í
Nefnd kanni
ástæður bú-
ferlaflutninga
ÞINGMENN Alþýðuflokks hafa
lagt fram þingsályktunartillögu á
Alþingi um að nefnd verði látin
kanna ástæður búferlaflutninga og
gera tillögur um hvernig treysta
megi byggð á íslandi.
Samvæmt tillögunni á nefndin
að gera úttekt á orsökum þess að
fólk flytji í jafnmiklum mæli og
verið hafí búferlum frá landsbyggð-
inni til höfuðborgarsvæðisins.
Nefnd eru nokkur atriði í því sam-
bandi, svo sem hvort áhersla á bók-
lega framhaldsmenntun í skólakerf-
inu kunni að hafa valdið búsetur-
öskun þar sem atvinnutækifæri fyr-
ir ungt fólk með slíka menntun séu
mun færri á landsbyggðinni en á
höfuðborgarsvæðinu.
Þá á nefndin að meta hvaða
árangur hafí orðið af aðgerðum
opinberra aðila til að styrkja byggð
á landsbyggðinni.
SAMNINGUR íslands og Evrópu-
sambandsins um tollfijálsan inn-
flutningskvóta íslendinga á land-
búnaðarafurðum býður upp á ný
tækifæri í sölu og markaðssetn-
ingu kindakjöts á Evrópumark-
aðnum, að sögn Jóhanns Guð-
mundssonar, landbúnaðarfulltrúa
í íslenzka sendiráðinu í Brussel.
íslendingar fluttu kindakjöt út
til Svíþjóðar og Finnlands áður en
ríkin gengu í Evrópusambandið.
Höfðu íslenzkir útflytjendur 650
tonna tollfijálsan innflutningsk-
vóta í Svíþjóð og 100 tonna kvóta
í Finnlandi. Þessi kvóti var ein-
göngu opinn 1. febrúar til 30. júní
og var því í raun aðeins um út-
flutning á frystu kjöti að ræða.
Eftir að ríkin tvö gengu í Evr-
ópusambandið hækkuðu hins vegar
tollar á ýmsum vörum, sem falla
ekki undir fríverzlunarákvæði
samningsins um Evrópska efna-
hagssvæðið, þar á meðal á kinda-
kjöti. Stóðu viðræður um það,
hvernig íslenzkum útflytjendum
yrðu bætt upp verri viðskiptakjör,
meirihluta síðasta árs. Nýi land-
búnaðarsamningurinn var endan-
lega frágenginn nú í mánuðinum.
Kvótinn meiri en
viðskiptareynslan
Evrópusambandið hefur að und-
anförnu gert samninga um toll-
kvóta við ýmis ríki vegna þess að
viðskiptakjör þeirra hafa versnað
við inngöngu EFTA-ríkja í sam-
bandið. Hefur þá yfirleitt miðað
við þriggja ára viðskiptareynslu
við ákvörðun kvóta. Þrátt fyrir að
útflutningur kindakjöts til Svíþjóð-
ar og Finnlands árin 1992-1994
hafi ekki verið nema 624 tonn á
ári að meðaltali og innflutningsk-
vótinn þannig ekki fullnýttur,
sættist Evrópusambandið á að láta
íslendinga hafa 750 tonna inn-
flutningskvóta.
Kjöt, sem flutt er út samkvæmt
kvótanum, er ekki bundið við Sví-
þjóðar- eða Finnlandsmarkað,
heldur má flytja það út til allra
ríkja Evrópusambandsins. Þá gild-
ir nýi kvótinn árið um kring. „Við-
skiptin geta nú farið fram á hvaða
tíma ársins sem er. Kjötið getur
verið í bitum, heilum eða hálfum
skrokkum, og hægt er að flytja
það út ferskt. Það er helzti ágóð-
inn af samningnum,“ segir Jó-
hann.
Eldri samningur við Danmörku
um tollfijálsan innflutningskvóta
upp á 600 tonn af frystu lamba-
kjöti er áfram í gildi. Heildartoll-
kvóti íslands fyrir kindakjöt á
Evrópumarkaðnum er því um
1.350 tonn. Auk kindakjötskvót-
ans fékk ísland tollfijálsan út-
flutningskvóta fyrir 100 lifandi
hross.
Tollasamningur um fisk
undirritaður [
Sambærilegur samningur um
sjávarafurðir, sem gengið var frá
á síðasta ári, var formlega undir-
ritaður í Brussel í gær. Hann kveð-
ur á um tollfijálsan innflutnings-
kvóta fyrir síld og fleiri físktegund-
ir, sem ekki eru tollfijálsar sam-
kvæmt EES. Gert er ráð fyrir að |
reglugerð um framkvæmd samn-
ingsins verði frágengin 12. febrúar
og íslenzkir útflytjendur geti þá I
byijað að nýta sér tollkvótann. \