Morgunblaðið - 01.02.1996, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Tæp 90% heilsugæslu
lölrrio conoo nno o-foi^fin
lækna
Leitað verður allra leiða til að ná
sáttum, segir heilbrigðisráðherra
Morgunblaðið/Kristinn
FORYSTUMENN heilsugæslulækna kynntu uppsagnirnar á
fundi með blaðamönnum í gær. Þeir eru Katrín Fjeldsted, for-
maður Félags íslenskra heimilislækna, og Iæknarnir Lúðvík
Ólafsson og Eyjólfur Haraldsson.
127 heilsugæslulæknar sögðu í
gær upp störfum og taka uppsagn-
imar gildi 1. maí. Þetta eru tæp-
lega 90% heilsugæslulækna á
landinu. Katrín Fjeldsted, formað-
ur Félags íslenskra heimilislækna,
segir að stjórnvöld fylgi ekki í
reynd lögum um verkaskiptingu í
heilbrigðisþjónustu. Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðisráðherra
segir að leitað verði allra leiða til
að ná sáttum um verkaskipting-
una.
Katrín tók fram að óánægja
heilsugæslulækna beindist ekki að
núverandi heilbrigðisráðherra.
„Þessar uppsagnir eiga sér margra
ára aðdraganda. Við viljum að
stefna stjórnvalda í heilbrigðismál-
um sé skýr og það liggi fyrir
hvemig eigi að haga verkaskipt-
ingu innan heilbrigðiskerfisins.
Þessum uppsögnum er ætlað að
gefa stjómvöldum tóm til að lýsa
afstöðu sinni. Læknar segja upp
störfum til að undirstrika alvöru
málsins," sagði Katrín.
Katrín sagði að í nágrannalönd-
um okkar væri lögð megináhersla
á að byggja upp frumþjónustu við
sjúklinga, þ.e.a.s. heimilislækning-
ar. Þetta væri í samræmi við
stefnu Alþjóða heilbrigðisstofnun-
arinnar. Hér á landi ríkti hins veg-
ar stefnuleysi í heilbrigðismálum.
í lögum og reglugerðum væri gert
ráð fyrir að sjúklingur leitaði fyrst
til heilsugæslu- eða heimilislækn-
is, en í reynd væri þetta ekki virt.
Dagskrá Stöðvar 2
lengist í dag
Kostnaði
mætt með
hagræðingu
í DAG verður gerð breyting á frétta-
útsendingum Stöðvar 2 með þeim
hætti að fréttatími verður sendur út
á hádegi, klukkan 16 og 18, og
fréttaþátturinn 19.19 skiptirum nafn
og hefst fyrr en áður.
Kvöldfrétta- og þjóðmálaþátturinn
hefur fengið nafnið 19/20 og hefst
hann klukkan 19 öll kvöld með yfir-
liti frétta, þá tekur við ísland í dag,
íþróttaumijöllun og veðurfréttir he§-
ast skömmu fyrir klukkan 19.30, en
hálfátta hefst síðan aðalfréttatíminn
og stendur til klukkan átta. í ofaná-
lag verður bamaefni aukið og á
hverjum degi klukkan 14 verður sýnd
kvikmynd.
Helgi Björn Kristinsson á dag-
skrárdeild Stöðvar 2 segir markmið
þessara breytinga að heija útsend-
ingu fyrr til að hægt sé að setja það
efni sem lögð er sérstök áhersla á,
fyrr á dagskrá að loknum fréttatíma.
Hann segir ljóst að breytingin út-
heimti aukinn kostnað og þannig
hafi t.d. verið ráðinn maður í viðbót
við þá tvo sem fyrir voru til að sjá
um Island í dag og tæknilið og fleiri
þurfi að hefja störf fyrr, en tölur þar
að lútandi séu ekki handbærar. Á
móti komi hins vegar einhver hag-
ræðing.
Aðspurður um hvort hann reikni
með að hádegisfréttatími í sjónvarpi
hljóti góðar undirtektir, segir Helgi
að meðal annars sé miðað við heima-
vinnandi áhorfendur, þá sem liggja
sjúkralegu, aldraða og eins þar sem
vinna er stopul eins og víða á lands-
byggðinni.
Stöðugt fleiri sérfræðingar kæmu
til starfa hér á landi, en stöðum
heilsugæslulækna væri hins vegar
ekki fjölgað með sama hætti. Upp-.
bygging heilsugæsluþjónustunnar
á höfuðborgarsvæðinu væri alltof
hæg.
Hætta á hruni
í heilsugæslu
Lúðvík Ólafsson heilsugæslu-
læknir sagði vissa hættu á að
núverandi _ skipulag heilsugæslu
myndi hrynja ef svo héldþ fram
sem horfði. Endumýjun í greininni
væri mjög hæg og stöðugt færri
læknar færu í nám í heimilislækn-
ingum. Mjög mikilvægt væri að
styrkja heilsugæslustigið. Hann
sagði að heilsugæslulæknar væru
með margar hugmyndir um hvern-
ig það mætti gera, en þeir vildu
að stjórnvöld svöruðu því hvaða
stefnu þau vildu fylgja í þessu
máli.
Heilsugæslulæknar hafa haft
lausa kjarasamninga síðan í árs-
byijun 1995. Sigurbjöm Sveinsson
heilsugæslulæknir sagði að þessar
uppsagnir væra angi af kjaradeilu
heilsugæslulækna við ríkið.
Heilsugæsluiæknar vildu ekki
ganga tii samninga við ríkið fyrr
en það lægi ljóst fyrir hvaða starfs-
aðstæður þeir ættu að búa við í
framtíðinni og hvaða skipulag
ætti að ríkja í heilbrigðismálum.
Ingibjörg Pálmadóttir sagði
ljóst að stefna stjómvalda gerði
FULLYRT var á Alþingi í gær að
samkeppnisgrundvöllur skipa-
smíðastöðva hefði á undanförnum
árum verið skekktur með stuðn-
ingi hins opinbera við fyrirtæki á
landsbyggðinni.
í fyrirspumartíma spurði Ólafur
Örn Haraldsson þingmaður Fram-
sóknarflokks í Reykjavík Halldór
Blöndal samgönguráðherra um
þátttöku ríkisins í kaupum á eldri
upptökumannvirkjum til skipa-
smíða á síðustu árum, og hvort
fjárveiringar ríkisins til upptöku-
mannvirkja til skipasmíða og við-
gerða á síðustu 5 áram hefðu
skekkt eðlilega samkeppnisstöðu
fyrirtækja í skipaviðgerðum.
Halldór svaraði að leiða mætti
að því líkum, að styrkir til kaupa
á skipalyftu á Akranesi á síðasta
ári hefðu leitt til þess að sú lyfta
væri enn í notkun. Það væri hins
vegar eina dæmið á síðustu 4 árum
um þátttöku samgönguráðuneytis-
ins í slíkum kaupum.
Hægt að anna öllu
í Reykjavík
Ólafur Örn sagði meginmálið
vera, að ekki væri hægt að ætla
skipasmíðaiðnaðinu að búa við
skekkta samkeppnisstöðu, og það
hefði svo sannarlega verið gert,
þegar ekki væri horft til þess að
í Reykjavík væri full afkastageta
ráð fyrir að sjúklingar leituðu fyrst
til heilsugæslulækna, en það væri
vitað að á höfuðborgarsvæðinu
leituðu mjög margir beint til sér-
fræðinga. Hún sagði að af hálfu
heilbrigðisráðuneytisins yrði lögð
mikil áhersla á að ná sáttum um
Morgunblaðið/Ásdís
til að ráða við langstærstan hluta
þeirra skipaviðgerða sem fram
hefðu farið í landinu. Þær viðbæt-
ur sem hefðu verið gerðar á öðrum
stöðum hefði svo sannarlega mátt
gera í Reykjavík.
Ólafur Órn sagði að fyllstu arð-
semiskröfur væru gerðar til Stál-
smiðjunnar hf., stærstu stöðvar-
innar í Reykjavík, meðan aðrar
skipasmíðastöðvar þyrftu að
greiða mun lægri leigu og upp-
verkaskiptingu innan heilbrigði-
skerfisins. Læknafélag íslands
yrði að koma að málinu. Ingibjörg
sagðist vera sammála heilsu-
gæslulæknum um að uppbygging
heilsugæslunnar á höfuðborgar-
svæðinu væri of hæg.
fylla mun minni arðsemiskröfur
við fjárfestingar.
Ekki væri hægt að sætta sig
við að byggðamál væru leyst með
því að skekkja samkeppnisgrund-
völl skipasmíðastöðva í Reykjavík
og á landsbyggðinni. Ef styrkja
ætti byggðir ætti að gera það með
beinum hætti en grípa ekki inn í
atvinnuvegina.
Halldór Blöndal sagði að Slipp-
stöðin á Akureyri hefði lengi verið
öflugasta fyrirtæki landsins í
skipasmíðum og viðgerðum og
þetta væri í fyrsta skipti sem hann
heyrði amast við því að halda við
þeirri tækniþekkingu, og að
ástæðulaust sé að styrkja undir-
stöðu þessarar atvinnugreinar fyr-
ir norðan.
Halldór sagði að skipasmíðaiðn-
aðurinn hefði verið í öldudal en
nú hefði ný fjárfesting, til dæmis
í flotkví á Akureyri, skilað sínu.
Viðskipti væru að koma til lands-
ins sem hefðu verið óhugsandi án
flotkvíarinnar.
Fram kom hjá Finni Ingólfssyni
viðskiptaráðherra að nýlega hefði
verið gerð könnun á vegum Sam-
taka iðnaðarins á aðstæðum skipa-
smíðaiðnaðarins og þær hefðu
gerbreyst. Flestallar stöðvarnar
væru reknar með hagnaði og verk-
efnastaða þeirra allt önnur en fyr-
ir ári.
Ríkisstjórnm
12 millj.
til barna-
geðdeildar
RÍKISSTJ ÓRNIN ákvað á
fundi sínum á þriðjudag að
veija 12 milljónum króna til
barna- og unglingageðdeildar
Landspítalans í því skyni að
þar verði komið á fót upplýs-
ingamiðstöð fyrir aðstandend-
ur þeirra sem eiga við vímu-
efnavanda að stríða.
Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra segir að þörfin
fyrir einn stað, þar sem fólk
geti leitað sér upplýsinga um
þennan vanda, verði sífellt
brýnni, misnotkun fíkniefna
sé einn mesti heilbrigðisvandi
sem þjóðin glími við. Hún seg-
ir að þessi fjárveiting komi til
með að styrkja barna- og ungl-
ingageðdeildina en hún hafi
lengi haft áhuga á að efla
hana, enda sé ekki vanþörf á.
Fjárveitingin sé til reiðu nú
þegar og nú sé það stjórnenda
deildarinnar að ráða í þær
stöður sem þeir telji brýnastar.
Tillaga um
einkamerki
á bílum
HEIMILT verður að setja regl-
ur um sérstök skráningar-
merki á bíla, samkvæmt laga-
frumvarpi sem dómsmálaráð-
herra hefur lagt fram á Al-
þingi. Fyrir slíkt einkamerki
þyrfti að greiða 50 þúsund
krónur samkvæmt frumvarp-
inu.
Þar er gert ráð fyrir að eig-
endur bíla geti, gegn gjaldi,
valið sér samstæðu bókstafa
og/eða tölustafa á skráningar-
merkin í stað þeirra bókstafa
og tölustafa sem skráningar-
merkið myndi að öðrum kosti
bera. Hafa slík skráningar-
merki verið heimiluð í ýmsum
löndum, m.a. í Danmörku og
Svíþjóð.
Gjald fyrir einkamerkið á,
samkvæmt frumvarpinu, að
renna til Umferðarráðs og er
í greinargerð lagt til að því
verði varið til að efla umferð-
aröryggi í landinu.
Árni Johnsen þingmaður
Sjálfstæðisflokks lagði á síð-
asta ári fram þingsályktunar-
tillögu á Alþingi um að heim-
ila einkanúmer en tillagan var
ekki afgreidd.
Þjófur
í gæslu-
varðhald
EINN þriggja manna, sem
handteknir voru sl. mánudag
á Hávallagötu, hefur verið úr-
skurðaður i gæsluvarðhald til
21. febrúar nk. Hinum mönn-
unum var sleppt eftir yfir-
heyrslur.
Lögreglan í Reykjavík var
um eittleytið á mánudag kölluð
í Landsbankann í Austurstræti
þar sem var maður með fals-
aða ávísun. Farið var með
manninn í hús við Hávalla-
götu, þar sem hann hefur að-
setur. Þar voru þrír vinir hans
á tveimur bifreiðum. í annarri
bifreiðinni fannst mikið þýfi,
m.a. tvær ávísanir að upphæð
70 þúsund krónur og mikið
magn af tóbaki. Þetta var tal-
ið vera þýfi úr innbroti í versl-
unina Straumnes við Vestur-
berg aðfaranótt mánudags.
Einnig fannst mikið góss í
íbúðinni við Hávallagötu.
Þingmaður Framsóknarflokks í Reykjavík á þingi í gær
Samkeppnisstaða
skipaiðnaðar skekkt