Morgunblaðið - 01.02.1996, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
100
ára
afmæli
ÚLFAR Karlsson
hélt upp á hundrað
ára afmæli sitt á
mánudag á elli-
heimilinu Grund
þar sem hann er
til heimilis. Mynd-
in var tekin á af-
mælisdaginn af
Úlfari og börnum
hans. Standandi
frá vinstri eru
Eva, Emelía, Mar-
grét, Ágústa og
Ásgeir og sitjandi
hjá föður sínum er
Karl.
Morgunblaðið/Kristinn
Helstu þjóðar- og kirkjuleiðtogar taki á
vandamálum sem steðja að heiminum
Glíman fari fram á
Þingvöllum um aldamótin
Morgu nbl aðið/Þorkel 1
DR. GERALD O. Barney, Steingrímur Hermannsson, seðla-
bankastjóri, og Jón Helgason, fyrrv. ráðherra.
ÞINGVELLIR þykja tilvalinn fund-
arstaður helstu þjóðar- og trúarleið-
toga heims um aldamótin 2000 þar
sem tekist yrði á við helstu vanda-
mál sem steðja að lífkerfi jarðar
eins og offjölgun, mengun og fyrir-
sjáanlegan skort á orkugjöfum, t.d.
olíu.
Þetta kom fram í máli doktors
Geralds 0. Barneys, forstjóra Mill-
enium Institute í Bandaríkjunum,
á fundi í Seðlabanka íslands sl.
þriðjudagskvöld. Fundurinn var
haldinn að frumkvæði Steingríms
Hermannssonar, seðlabankastjóra.
Barneys hefur ferðast til um 60
landa til að vinna að framgangi
þessa máls og segir að vel hafi
verið tekið í hugmyndir sínar.
Ráðstefna í september
í september næstkomandi verður
haldin ráðstefna á íslandi þar sem
skoðað verður hvernig best sé að
standa að undirbúningi slíks leið-
togafundar. Barneys segist búast
við að 40 til 50 manns sæki ráð-
stefnuna.
Á sjálfum leiðtogafundinum von-
ast hann eftir að um 200 þjóðar-
og kirkjuleiðtogar komi saman.
„Með hveijum þeirra yrði síðan
væntanlega í för fjöldi aðstoðar-
manna,“ segir hann. „Að mínu
mati þyrfti að takmarka fjöldann
við 10 til 15 þúsund til að spilla
ekki náttúrufegurðinni á Þingvöll-
um.“
Á þröskuldi nýrra tíma
Þegar Barney hóf að vinna fyrir
Jimmy Carter, þáverandi forseta
Bandaríkjanna, árið 1977, vaknaði
áhugi hans á því að nota aldamótin
til að beina athygli heimsins að
þeim vandamálum sem steðja að.
„Flestallir sem ég hef rætt við
taka vel í þá hugmynd að láta þetta
tækifæri ekki ónotað,“ segir hann.
Máli sínu til stuðnings vitnar hann
í kannanir þar sem fram kemur að
fólk lítur á aldamótin sem þröskuld
nýrra tíma. Það sé því tilvalið að
nota þessi tímamót til að vekja fólk
til umhugsunar. En í hvað stefnir,
að mati Barneys, ef ekkert verður
aðhafst?
Þarf að hægja á lífsgæða-
kapphlaupinu
„Ég vinn mikið í Bangladesh þar
sem fólk er á mörkum þess að eiga
í sig og á,“ segir hann. „Slíkt ástand
er ekki fjarri því sem gæti skapast
í þeim löndum sem nú búa við vel-
megun. Sum þjóðfélög munu geta
varist því til að byija með, en fólks-
flutningar, loftslagsbreytingar,
mengun og eiturlyf munu setja strik
í reikninginn.
Fátækar þjóðir geta náð sér nið-
ur á þeim ríkari á margan hátt.
Ein leiðin er að selja ungu fólki í
Bandaríkjunum eiturlyf. Þá skap-
ast stórt vandamál í Bandaríkjun-
um á meðan þjóðir Suður-Ameríku
græða á tá og fingri. Ef ekkert
verður aðhafst mun það bitna á
öllum.“
Barney segir að ekki sé orðið of
seint að grípa til aðgerða: „Að mínu
mati ráðum við yfir auðlindum og
tækni til að skapa börnum okkar
fýsilegan heim. Við þurfum þó
ákveðið hugrekki til að breyta Iifn-
aðarháttum okkar.
Á meðan fátækar þjóðir þurfa
að halda fólksfjölgun í skefjum
þurfa ríku þjóðirnar að hægja á lífs-
gæðakapphlaupinu. Þær þurfa að
spara orku, stuðla að endurnýtingu
og varðveita auðlindir. Þannig
draga þær úr sóun og skapa for-
dæmi fyrir fátækari þjóðir."
„Erfðaalgrím
o g hermd kólnun“
rædd á námskeiði
AÐGERÐARANN SÓKNAFÉ-
LAG íslands hefur sent frá sér
tilkynningu vegna námskeiðs
sem það stendur fyrir í dag, en
þar verður fjallað um „heuristic“
aðferðir við skipulagningu og
hönnun. Að sögn Snjólfs Ólafs-
sonar formanns ARFÍ er þarna
verið að ræða um notkun á
bijóstviti manna við fyrrgreinda
vinnu.
Fleiri hugtök gætu vafist fyr-
ir leikmönnum í fréttatilkynn-
ingu félagsins, er þar er meðal
ánnars talað um að á síðustu
árum hafi orðið „miklar framfar-
ir á sviði leitaraðferða (sem sum-
ir kalla „betrunaraðferðir"), sem
tryggja ekki bestu lausnir en
finna oftast mjög góðar lausnir
á stuttum tíma. Meðal þeirra eru
Erfðaalgrím og Hermd kólnun.
Styrkur þeirra kemur vel í ljós
þegar glímt er við mjög flókin
reiknilíkön, sem t.d. koma oft
fram við hönnun, þar sem geta
verið mörg staðbundin útgildi
(global optimization)“.
Staðbundin útgildi
Snjólfur segir að erfðaalgrím
sé bein þýðing úr enskri tungu,
en þarna er verið að lýsa tals-
vert flókinni stærðfræðiaðferð
sem felst í því að tölva líkir eft-
ir svipuðu ferli og finna má í
náttúrunni og býr t.a.m. til litn-
inga og næstu kynslóðir á eftir.
Einnig geti orðið stökkbreyting-
ar.
Hermd kólnun er samlíking
að sögn Snjólfs, tekin úr eðlis-
fræði. Þegar til dæmis loftteg-
undir eru heitar einkennast þær
af mikilli óreiðu en þegar þær
er kældar minnkar óreiðan, og
á hugtakið hermd kólnun við
þetta ferli.
Staðbundin útgildi er að sögn
Snjólfs heiti á lausn sem er betri
en allar aðrar líkar lausnir. Ef
henni er breytt lítillega versnar
hún.
Á námskeiði sem haldið var í
véla- og iðnverkfræðiskor HÍ var
fjallað um þessar aðferðir og
þeim beitt á hönnunarverkefni.
Á námskeiðinu 'verða þessi verk-
efni kynnt með stuttum erindum
og sýningum á tölvum. Þar á
meðal er fjallað um „bestun við
hönnun hitaveitukerfa“, „erfða-
algrím við verkröðun“, „vandi
farandsalans leystur með erfða-
algrími og hermdri kólnun“ og
loks „samanburður á erfðaal-
grími, hermdri kólnun og heil-
tölubestun við ákvörðun á bestu
slátrunarröð úr fiskeldiskvíum“.
Vandi farandsala
Aðspurður um þessi verkefni,
segir Snjólfur að „vandi farand-
salans“ sé að finna leið til að aka
sem minnst á mörgum ferðum
sínum í þeim tilgangi að heildar-
leiðin verði styst. Þarna sé verið
að finna stystu leið milli margra
staða með erfðaalgrími, sem áður
var ijallað um. Heiltölubestun er
nafn á stærðfræðilegri aðferð að
sögn Snjólfs, en ekki kveðst hann
treysta sér til að útskýra hana,
enda sé það erfitt.
Námskeiðið verður haldið í sal
við hlið kaffistofu Þjóðarbókhlöðu
í dag, 1. febrúar, klukkan 16.30.
Fréttatilkynning Aðgerða-
rannsóknafélags íslands
HÉR fer á eftir í heild frétta-
tilkynningin frá Aðgerða-
rannsóknafélagi íslands:
Á SÍÐUSTU árum hafa
orðið miklar framfarir á sviði
leitaraðferða (sem sumir
kalla „betrunaraðferðir")
sem tryggja ekki bestu lausn-
ir en finna oftast mjög góðar
lausnir á stuttum tíma. Meðal
þeirra eru Erfðaalgrím og
Hermd kólnun. Styrkur
þeirra kemur vel í ljós þegar
glímt er við mjög flókin
reiknilíkön, sem t.d. koma oft
fram við hönnun, þar sem
geta verið mjög staðbundin
útgildi (global optimization).
I námskeiðinu Hönnun og
bestum í Véla- og iðnaðar-
verkfræði var fjallað um
þessar aðferðir og þeim beitt
á hönnunarverkefni. Kynnt
verða nokkur nemendaverk-
efni á þessu sviði með stuttum
erindum og sýningum á tölv-
um: Bestun við hönnun hita-
veitukerfa (Ásbjörn Ólafs-
son); Erfðaalgrím við verk-
röðun (Heiðar Einarsson);
Vandi farandsalans leystur
með erfðaalgrími og hermdri
kólnun (Pétur Snæland) og
Samanburður á erfðaalgrími,
hermdri kólnun og heiltölub-
estun við ákvörðun á bestu
slátrunarröð úr fiskeldis-
kvíum (Hörður Kvaran, Páll
Jensson kynnir).
Þjóðarbókhlaðan, sal við
hlið kaffistofu, fimmtudaginn
1. febrúar kl. 16.30.
hefst í dag - Aðeíns 3 verð
Stendur aðeins eina viku
Skóverslun Kópavogs
Hamraborg 3,
sími 554 I 754