Morgunblaðið - 01.02.1996, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 01.02.1996, Qupperneq 20
FIMMTUDAGUR 1. FEBRUAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Mikið mannlión í sprengju í Colombo Colombo. Reuter. FIMMTÍU og fímm manns að minnsta kosti biðu bana og um 1.400 slösuðust er öflug bílsprengja sprakk við seðlabanka Sri Lanka í höfuðborginni Colombo í gær. Tals- maður hersins skellti skuldinni á skæruliðasveitir Tamíla sem beijast fyrir sjálfstæðu ríki á norðaustur- hluta eyjunnar. Lögreglan kvaðst hafa handtekið tvo Tamíla, sem grunaðir væru um aðild að tilræð- inu, er þeir reyndu að flýja á stol- inni skellinöðru úr miðborginni. Um var að ræða sjálfsmorðsárás og var sprengjunni, sem var gífur- lega öflug, komið fyrir á vörubíls- palli. Talsmenn hersins sögðu að um 200 kíló af sprengiefni hefði verið að ræða. Atvikið átti sér stað klukkan 10:45 að staðartíma í gær- morgun, 5:15 að íslenskum tíma í fyrrinótt. Þremur klukkustundum síðar var enn verið að flytja látna og særða í sjúkrahús borgarinnar. A.H.M. Fowzie, heilbrigðisráð- herra Sri Lanka, sagði að 55 hefðu látið lífið og hundrað manns væru í lífshættu. Útvarpsstöð í Colombo hélt því fram að 91 hefði látist. Mikill viðbúnaður var á öllum sjúkrahúsum í Colombo og ná- grenni vegna sprengitilræðisins. Læknum og hjúkrunarfólki, sem ekki voru við vinnu, var skipað að mæta til starfa. Ekki hafðist undan að veita særðum hjálp og löng bið var eftir meðhöndlun á skurðstof- UI'Ki SALA hjá H&M ■ Evrópu Minnst 40% afsláttur Hefst í dag m ROWELLS Kringlunni 7, SÍMI 588 4422 •• FYRIR ALLA I fFJOLSKYLDUNNN SLÖKKYILIÐSMENN berjast við elda í skrifstofubyggingum í miðborg Sri Lanka. ■Reuter um. Biðraðir eftir læknishjálp voru gífurlegar og gangar sjúkrahúsa enn fullir af særðu fólki í gærkvöldi. Ringulreið í miðborginni Miðborgin var krökk af fólki og varð því gífurleg ringulreið og ör- vinglan er sprengjan sprakk. Bygg- ingar innan 500 metra radíuss frá sprengistaðnum löskuðust. Sund- urtættir bílar, sumir logandi, lágu eins og hráviði um allt. Eldar loguðu fram eftir degi í byggingum í miðborginni. Óttast var að tala látinna ætti eftir að hækka því fjöldi manns var enn innlyksa í byggingu seðlabankans. Engin samtök höfðu lýst ábyrgð á hendur sér. Tamíltígrar, skæru- liðasveitir Tamíla, hafa staðið fyrir fjölda sprengjutilræða í borginni og víðar á Sri Lanka frá 1983, en þá hófu þeir vopnaða baráttu fyrir eig- in ríki. Síðast frömdu þeir tilræði í Colombó 15. nóvember sl. Hafi þeir verið að verki hafa þeir hefnt falls höfuðvígis þeirra, Jaffna, með af- drifaríkum hætti. Sarath Munasinghe hershöfðingi . og talsmaður herafla landsins var í engum vafa um hverjir tilræðis- MIKIL ringulreið varð í miðborg Colombo, höfuðborgar Sri Lanka, í kjölfar sprengjutilræðisins í gærmorgun. Hér forða menn sér á hlaupum og fremstur fer blóði drifinn skrifstofumaður. mennirnir væru og skellti skuldinni á Tamíla. „Það hljóta vera þeir, hveijum hefði dottið í hug að gera annað eins,“ spurði hann blaða- menn. Talsmenn skrifstofu aðskilnaðar- samtaka Tamíla í London sögðust hins vegar engar upplýsingar hafa um sprengjutilræðið. Leyniþjón- ustumenn fengu pata að því fyrir nokkrum vikum að sjálfsmorðssveit Tamíltígra undirbyggi árás á Colombo og höfðu varað her- og lögreglu við. Enn hrjáir ágreinginur breska íhaldsflokkinn Clarke andmælir Major London. Rcuter. JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, sem reynir nú að sam- eina fylkingar Ihaldsflokksins, varð fyrir áfalli í gær þegar Kenn- eth Clarke fjármálaráðherra and- mælti ummælum hans um hversu langt ætti að ganga í að minnka útgjöld ríkisins. Clarke sagði í viðtali við Financ- ial Times að ekki bæri að stefna að því að útgjöld ríkisins yrðu minni en 40% af þjóðartekjunum, en þau eru nú um 42%. Pjármálaráðherrann andmælti þannig forsætisráðherranum sem sagði á sunnudag: „Ég tel að við getum komist niður fyrir 40% og örugglega enn neðar síðar. Vissu- lega vildi ég ná 35% en ég spái því ekki að það takist.“ Gordon Brown, talsmaður Verkamannaflokksins í fjármál- um, var fljótur að saka forystu- menn Ihaldsflokksins um stefnu- leysi. „Þetta er mjög skaðlegur ágreiningur á efsta þrepi stjórn- kerfisins. Major og Clarke verða að útskýra strax hver stefna stjórnarinnar er.“ Clarke sagður einangraður Margir líta á Clarke sem leiðtoga vinstrivængs íhaldsflokksins og hann hefur þurft að vísa á bug orð- rómi um að hann sé að einangrast i I I I í I I f I I * I innan stjórnarinnar. Fjármálaráð- herrann gaf út yfirlýsingu í vikunni sem leið þar sem hann neitaði frétt um að hann kenndi Major um of miklar skattalækkanir fyrir þing- kosningarnar 1992 sem hefðu leitt til mikils fjárlagahalla. Clarke sagði í viðtalinu að stjórn- in ætti ekki að stefna að því að ríkisútjöldin yrðu minni en 40% af þjóðartekjunum. „Það kæmi mér mjög á óvart ef hægt væri að koma þróuðu vestrænu ríki mikið undir 40%. í þjóðfélagi eins og okkar er raunsætt að ætla að eftir því sem fólk verður auðugra vilji það eyða meira í mál eins og heilbrigðis- og menntamál.“ í t I t) f: » 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.