Morgunblaðið - 01.02.1996, Síða 25

Morgunblaðið - 01.02.1996, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996 25 LISTIR „Stopp!“ í Seljaskóla UMFERÐARLEIKRITIÐ „Stopp!“ verður frumsýnt í dag, fimmtudag, í Seljaskóla í Reykjavík. Þetta er farandsýn- • ing fyrir 9-10 ára skólabðrn og tekur um 40 mínútur í flutningi. Það er Stoppleikhópurinn sem stendur að leiksýningunni í sam- vinnu við Skólaskrifstofu Reykjavíkur og Sjóvá/Almenn- ar. Stoppleikhópurinn var gtofn- aður í nóvember síðastliðinn en það eru leikaramir Eggert Kaaber, Gunnar Gunnsteinsson, Dofri Hermannsson, Katrín Þor- kelsdóttir og Hinrik Ólafsson sem mynda hópinn. Leikritið verður sýnt í flest- um grunnskólum Reykjavíkur (ekki þeim sem eru einungis með unglingadeildir). Ætlunin er síðan að fara með leiksýn- inguna um land allt og sýna í grunnskólum. Umferðarleikritið Stopp fjallar um kæruleysi í umferð- inni og það að slysin gera ekki boð á undan sér. Umferðarslys hefur orðið í nágrenni skólans og tengjast þau Sindri, Signý og Grjóni atburðinum. Tónlist samdi Valgeir Skag- fjörð, söngtextar eru eftir Jón Stefán Kristjánsson, leikmynd og búninga hannaði leikhópur- inn sjálfur en leikritið sjálft er byggt á hugmynd eftir Eggert Kaaber og Gunnar Gunnsteins- son, sem hópurinn þróaði síðan í endanlegt leikverk. 011 hlutverk eru leikin af þeim Dofra, Katrínu og Hin- riki. Gunnar Gunnsteinsson skrifaði handritið og leikstjóri er Eggert Kaaber. Ham- faralist NÁMSKEIÐ í öndun, dansi, hljóð- og myndlist verður haldið i Kvennó, Víkurbraut 21 í Grindavík, á laug- ardag og sunnudag frá kl. 14-19 báða dagana. Leiðbeinendur eru Tryggvi Hansen og Sigríður Vala. í kynningu segir: „Á námskeið- inu verður þátttakendum gefið tækifæri til þess að upplifa sinn persónulega mynd- og tilfinninga- heim, með hjálp dans, tónlistar, öndunar og málaralistar. Engrar kunnáttu er krafist eða fyrirfram reynslu. Áhugi á eigin velferð og löngun til að skilja sjálfan sig, drauma sína og innri vilja er næg ástæða. Námskeiðið tengir saman allar listgreinar og er tilvalið fyrir þá sem vilja vita hvar hæfileikarnir liggja." Sigríður Vala er með sex ára nám í Myndlista- og handíðaskóla ís- lands. Hún stundaði framhaldsnám í myndlist hjá Tamöru Malmeström í Svíþjóð. Hún hefur ennfremur unnið með ljósmyndun og kynnt sér listheilun og stundað táknfræði. Tryggvi Gunnar er menntaður í myndlist í Myndlista- og handíða- skóla íslands og í Konunglegu lista- akademíunni í Kaupmannahöfn. Hann hefur sótt menntun í mannúð- arsálarfræði frá „Institute of bio- synthesis í London“ og húmanísk fræði í Háskóla íslands. Hann hefur haldið íjölda námskeiða í myndlist, tölvugrafík, byggingarlist, seiðlist og heilun. ------»■ ♦ ♦--- Fúría frum- sýnir „ Jakob eða uppeldið*4 FÚRÍA leikfélag Kvennaskólans í Reykjavík frumsýnir föstudaginn 2. febrúar leikritið „Jakob eða upp- eldið“ eftir E. Ionesco. Leikstjóri er Jón St. Kristjánsson og verður sýnt í Möguleikhúsinu við Hlemm kl. 20. í kynningu segir: „Jakob eða uppeldið" er einþáttungur sem er leikinn tvisvar í tveimur ólíkum uppfærslum. Fyrir hlé er verkið leikið í svokölluðum „absúrd“-stíl en eftir hlé líkist það fremur hefð- bundnum farsa. Leikritið fjallar um ungan dreng, Jakob, og baráttu hans við vægast sagt skrýtna fjölskyldu sína og siði hennar. Leikarar sem taka þátt í sýning- uni eru ellefu talsins. Meðlimir Fúríu vilja helst lýsa leikverkinu sem „fáránleikaleik með engum boðskap". ...blabib - kjarni málsins! AUSTURLENSKUM MATVORUM í Kryddkofanum er úrval matvöru til austurlenskrar matargerðar, en vinsældir hennar aukast ár frá ári hér á landi sem annarsstaðar. Kryddkofinn hefur getið sér gott orð fyrir ótrúlega fjölbreytt úrval af allskyns framandi kryddi, sósum, núðlum, olíum, súpum, mataráhöldum og svo mætti lengi telja. Líttu inn - þú finnur áreiðanlega eitthvað hjá okkur til að bragðbæta matinn þinn! KRYDD W KOFIKK SOSUE kr. flaskan Hvenfisgötu 26,101 Reykjavík. Símí: 562 0012 u * 1 1 mL MM • 11 a-?, Iæslí f\ f ] ' \ f \ .... E| LJ ijj ui ■v|’"«> 1 •ÉtJ E.BACKMAN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.