Morgunblaðið - 01.02.1996, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
sjálf undir eins og tíðkast hefur í
minni kirkju, en fékk fijótlega oln-
bogaskot frá manni mínum sem
sagði: „Þarftu endilega- að syngja,
fóik er farið að horfa á þig.“ Mér
brá nokkuð en hélt mínu striki, ég
var ekki að syngja fyrir kirkjugesti
ég var að taka þátt í helgihaldi á
þann hátt, sem tíðkaðist í minni
kirkju.
Nú var komið að upplestri úr
Heilagri ritningu. Lesarinn var ung
kona en hljómburður kirkjunnar var
með þeim hætti að lestur hennar
varð sem niður fyrir eyrum mínum,
ég heyrði ekki orðaskil.
Svo hófst ræða prestsins. Hann
flutti hinn venjubundna inngang,
sem hæfði, á fæðingarhátíð frelsar-
ans og síðan kom að kjarna ræðu
hans, sem hann flutti í formi frá-
sagnar og var hún á þessa leið, að
því sem mér er unnt að endursegja
hana ég vona nær því orðrétt:
„Fyrir löngu síðan var lítill dreng-
ur á Englandi sem langaði þessi
ósköp til að líta konung sinn. Hann
reyndi allt hvað hann gat, en í hvert
skipti sem hann kom í nálægð hallar-
innar var hann hrakinn burtu af ein-
kennisklæddum þjónum konungs.
Drengurinn gafst ekki upp og reyndi
aftur og aftur en ekkert gekk, þjón-
arnir ráku hann jafnharðan á brott.
Að því kom þó eftir síendurteknar
tilraunir að drengurinn náði að kom-
ast inn í hallargarðinn, en þá komu
þjónar konungs og gerðu sig líklega
til að hrekja drenginn burtu eins og
áður. í því kom ungur og glæsilega
búinn maður að og sagði við þjón-
ana: „Látið mig um þetta!“ Hann tók
í hönd drengsins, leiddi hann inn í
höllina og þar sal úr sal, hvern öðrum
fegurri þar til þeir voru komnir í
þann innsta og fegursta, en þar sat
konungurinn."
Þessi saga, sagði presturinn að
væri oft notuð sem dæmi um það
að Kristur, þarna í líkingu prinsins,
leiddi okkur, mannanna börn til
Guðs, sem í sögunni var í líkingu
konungsins.
Þetta var enginn „stóri sannleik-
ur“ fyrir mér, þetta hafði ég sjálf
vitað og reynt allt frá blautu barns-
beini en kjarni sögu prestsins var
ekki að mínu mati þessi túlkun, sem
þó er sannarlega rétt, heldur fannst
mér Guð gefa mér svar sem ég skildi,
við þeim vanda, sem er að sundra
kirkju minni. í huga mínum brann
þessi spurning og ég vissi að þar var
svarið: „Hveijir voru þjónar kon-
ungsins?"
Höfundur er þýðandi.
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996 2 7
EINKAUMBOÐ A ISLANDI
MACROTEL Símakerfi
Þar sem góðir kostir sameinast
er öflugt símakerfi fyrir
lítil og meðalstórfyrirtæki, Möguleikará stækkun
eru fyrir hendi og kerfið getur stærst orðið fyrir 8
bæjarlínur og 16 símtæki, þar sem blanda má
saman venjulegum og sérbyggðum símtækjum.
Auðvelt er að tengja þráðlausa síma,
höfuðheyrnartól, módem, o.fl. við símakerfið.
í
lístel
MAISROJlðL 36® PÐfflS eru símtæki
fyrir 1 til 3 bæjarlínur. Hentug fyrir heimili og
lítil fyrirtæki. Raðamá símtækjum saman og fá
þannig marga eíginleika sem finna má í
símkerfum. Hámarks fjöldi símtækja er 8.
Uppsetning er einföld og þarfnast ekki
sérstakra símalagna.
Bandarískt hugvit og hönnun sem
sameinar hagstætt verö, stækkunar-
möguleika, aðlögunarhæfni
og auðvelda notkun.
Yfir 600 notendur á íslandi.
... a&tfþueðútfa* í éátux*Háía*H,f
r - Stórlœkkað verð
Pottaplöntj
Frjálst val!
Pottaplöntur
Allar pottaplöntur á útsölu
Bastvörur
Körfur - aðeins eitt verð !
afsláttur!
anar
Leirpottar
Lítið gallaðir Malasíupottar.
Stórlækkað verð!