Morgunblaðið - 01.02.1996, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Skipulag
Hveravalla
FRAM hefur komið í fjölmiðlum
nýlega, að Ferðafélag íslands hafi
beint stjórnsýslukæru til um-
hverfisráðuneytis vegna aðal-
skipulags Hveravalla, sem ær hið
æðsta stjórnvald skipulags- og
byggingarmála í landi okkar.
Verði aðalskipulaginu hnekkt leið-
ir af eðli máls, að deiliskipulag,
sem á því var byggt, verður mark-
leysa. Er aðalkrafa félagsins sú,
að skipulag Svínavatnshrepps
verði ógilt eða því vikið til hliðar
hvað varðar Hveravallasvæðið, en
til vara er þess krafist, að ráðu-
neytið veiti félaginu svokallað
stöðuleyfi fyrir byggingar og aðra
aðstöðu félagsins til margra ára.
í kæruskjalinu er að sjálfsögðu
að meginstofni byggt á lögfræði-
legum rökum með ítarlegri grein-
argerð, m.a. um það, að lögmætra
aðferða hafi ekki verið gætt við
undirbúning að gerð skipulagsins
og því hafi verið brotið gegn
Forsvarsmenn Ferðafé-
lagsins, segir Páll Sig-
urðsson í síðari grein
sinni, hafa sýnt lang-
lundargeð og sáttfýsi.
grundvallarreglum íslensks stjórn-
sýsluréttar, en jafnframt er vísað
til raka, er varða sanngirni og sið-
ferði í mannlegum samskiptum.
Ein af viðbárum Ferðafélagsins
í kærunni varðar það, að Hvera-
vellir séu í raun réttri utan lög-
sagnarumdæmis Svínavatns-
hrepps. Því til nánari rökstuðnings
er m.a. vísað í ummæli í vandaðri
og merkri skýrslu umhverfisráð-
herra um skipulagsmál á hálend-
inu, sem lögð var fyrir Alþingi
veturinn 1990-91, um að hálend-
issvæði á borð við það, sem hér
um ræðir, séu væntanlega utan
lögsagnarumdæma hreppa, en það
var þáverandi ráðuneytisstjóri
þess ráðuneytis, sem var formaður
þeirrar nefndar, er samdi þá
skýrslu. Nýverið hefur Hæstirétt-
ur einnig staðfest, að Þórsmörk
sé utan sveitarfélaga og er þó mun
styttra til byggða þaðan en frá
Hveravöllum.
Þá skal þess einnig getið, að
20. nóvember sl. gekk dómur í
Héraðsdómi Reykjavíkur (í máli
nr. E-7638/1994), þar sem stað-
fest var á skýran og eftirminnileg-
an hátt, að þeir hreppar, sem
gerðu tilkall til beins eignarréttar
yfir Auðkúluheiði - og jafnframt
yfir Hveravöllum - eiga þar ekki
svo mikið sem eitt sandkorn hvað
þá gijóthnullung, en beitarréttur
þeirra er hins vegar óumdeildur.
Af þessu er ljóst, að Svínvetningar
geta a.m.k. ekki rökstutt nei-
kvæða afstöðu sína til starfsemi
Ferðafélags íslands á Hveravöllum
með því, að þar hafí verið byggt
í óþökk landeiganda! Bregði Svín-
vetningar á það ráð, ef deiliskipu-
lag nær staðfestingu, að úthluta
sjálfum sér byggingarreitum á
Hveravöllum, verður það a.m.k.
heldur ekki gert í skjóli eignarrétt-
ar þeirra.
Merkur fulitrúi Svínvetninga
hefur látið hafa eftir sér í fjölmiðl-
um, að Ferðafélagið hafí sjálft
haft uppi hugmyndir um stórfram-
kvæmdir á Hveravöllum, er hafí
verið í líkingu við skipulagstillögur
norðanmanna, sem nú eru orðnar
alþjóð kunnar. Hið sanna er: Eftir
að stjórnarmönnum Ferðafélags-
ins var orðið ljóst að aðalskipulag,
sem var félaginu mjög í óhag, var
orðið staðreynd, fóru þeir smám
saman - en þó hægt og bítandi -
að móta einhveijar hugmyndir um
það, hvernig rétt kynni að vera
að bregðast við aðsteðjandi vanda.
Umræða um það mun þó, mér vit-
anlega, ekki hafa hafíst fyrr en á
síðari hluta árs 1994 en síðar bár-
ust félaginu fyrstu drög að deili-
skipulagi Hveravallasvæðisins,
sem gerð höfðu verið að frum-
kvæði Svínvetninga. Þessum
frumdrögum mótmæltum við
formlega með ítarlegu bréfí í fe-
brúarmánuði 1995.
Að sjálfsögðu komu um það
leyti til lauslegrar umræðu nokkr-
ir kostir, sem athuga mætti varð-
andi framtíð ferðamannaaðstöðu
Ferðafélagsins á Hveravöllum í
ljósi aðalskipulagsins. Einn var sá
að pakka einfaldlega saman og
leggja starfsemina á Kjalarsvæð-
inu niður en annar var sá að flytja
a.m.k. stærra sæluhúsið á ein-
hvern annan stað á Kjalarsvæðinu
(án þess að menn kæmu þó auga
á neinn ákjósanlegan stað í því
sambandi). Jafnframt kom vissu-
lega m.a. til lauslegrar skoðunar
á stuttu tímabili að sætta sig ein-
faldlega við orðinn hlut en freista
þess að fá samþykkta byggingu
nýs sæluhúss Ferðafélagsins við
Hveravelli, sem kæmi í stað stærri
skálans sem nú er, væri eitthvað
stærri en hann og gæti með ein-
hveijum hætti fallið að þeim
frumtillögum um gestaskála á
nýjum stað og umhverfi- hans, sem
fram koma á aðalskipulaginu.
Byggingarnefnd félagsins hafði
þá frumkvæði að því, að ágætur
arkitekt gerði drög í þessa átt;
voru þau síðan kynnt í stjórninni
og lítillega rædd þar en komu aldr-
ei til afgreiðslu. Voru þau drög
þarmeð úr sögunni, enda skal þess
minnst, að Ferðafélagið hefur að
sjálfsögðu ekkert skipulagsvald á
Hveravöllum fremur en annars
staðar. Þessi hugmynd hefur aldr-
ei verið neitt launungarmál enda
var hún m.a. lauslega nefnd við
forsvarsmenn Svínavatnshrepps,
sem að vísu höfnuðu henni þegar
í stað. Vart þarf að taka fram,
að það sæluhús, sem þarna kom
lítillega til umræðu, var að stærð
og umfangi vitanlega ekkert í lík-
ingu við þá höll, sem Svínvetning-
ar hafa nú í hyggju að reisa sjálf-
ir fyrir Blöndubætur sínar. Kom
nú bráðlega í ljós, að flestir stjórn-
armenn gátu í reynd ekki sætt sig
við aðalskipulagið og síðan mótuð-
ust hugmyndir um að reyna að fá
því hnekkt, svo sem nú er komið
fram í kæru okkar, sem alger sam-
hugur er um meðal stjórn-
armanna.
Þá er einnig rétt að fram komi,
að þótt Svínvetningar hafi ein-
staka sinnum látið að því liggja í
fjölmiðlum, með mismunandi
óljósu orðalagi, að ekki þurfi að
vera loku fyrir það skotið að þeir
geti átt eitthvert samstarf við
Ferðafélagið á Hveravöllum, hafa
þeir ekki boðið til neinna slíkra
viðræðna og ekki hefur heldur
orðið vart almenns áhuga stjórnar-
manna Ferðafélagsins á samstarfí
við þá um ferðamannaþjónustu.
Hefur félagið reyndar, því miður,
ekki haft nógu góða reynslu af
samstarfi við aðra í þeim efnum
fyrr á tímum. Engu að síður eru
forsvarsmenn félagsins að sjálf-
sögu ætíð, sem fyrr og síðar, reiðu-
búnir til viðræðna við góða menn
um góðar hugmyndir og trúa á
mátt samvinnu manna á meðal.
í febrúarmánuði 1995 átti ég,
ásamt öðrum stjórnarmanni
Ferðafélagsins, viðræður við full-
trúa skipuleggjenda (á Blönduósi).
Lýstu báðir aðilar þar viðhorfum
sínum vinsamlega, en niðurstaða
varð tæpast á fundinum önnur en
sú, að viðmælendur okkar lýstu
því að þeir myndu halda óbreyttum
skipulagsáformum og vinna hratt
að gerð deiliskipulags, sem þeir
síðan stóðu við svo sem nú er
komið á daginn.
í ágústmánuði sl. fór stjórn
Ferðafélagsins þess vinsamlega á
leit við hreppsnefnd Svínavatns-
hrepps, að hún veitti félaginu
stöðuleyfi fyrir byggingar sínar á
Hveravöllum til allmargra ára, og
væri þá aðaiskipulagi hreppsins
hnikað lítillega til sem því næmi.
Þessu bréfí var aldrei svarað þrátt
fyrir margar ítrekanir, en hins
vegar er vitað að byggingarnefnd
hreppsins lagðist að sínu leyti
gegn erindinu. í nóvembermánuði
sl. fór stjórn félagsins þess síðan
á leit við umhverfísráðuneyti, að
það hefði frumkvæði að sáttaum-
leitunum milli aðilanna, sem ráðu-
neytið gerði vissulega án þess þó
að árangur bæri sökum viðbragða-
leysis Svínvetninga, sem heldur
brugðu á það ráð að auglýsa á
sama tíma deiliskipulag og um-
hverfísmat. Eftir þetta varð kæra
félagsins fyrst virk, en hún hafði
áður verð kynnt ráðuneytinu.
Forsvarsmenn Ferðafélagsins
hafa gengið varlega og hófsam-
lega fram í þessu máli og sýnt
langlundargeð og sáttfýsi. Kynn-
ing okkar málstaðar í fjölmiðlum
hefur, af okkar hálfu, verið mál-
efnaleg og hófsamleg og af hálfu
þeirra, sem að núverandi skipulagi
standa, hefur kynning málstaðar
þeirra einnig verið skapleg. Vænti
ég þess eindregið að svo megi jafn-
framt verða framvegis.
Höfundur er forseti Ferðafélags
íslands.
Gifstrefjaplötur til notkunar á veqqi, loft oq qólf
( 1 L: 1 P \ \ i * ELDTRAUSTAR * HLJÓDEINANGRANDI * MJÖG GOn SKRÚFUHALD * UMHVEFISVÆNAR PLÖTUR VIÐURKENNDAR AF BRUNAMÁLASTOFNUN RÍKISINS Þ. ÞORGRÍMSSON & C0 Ármúla 29 • Reykjavík • Sími 553 8640
m 'o'^°
Hjgí
iA
QEAf1
:t»oH
Útivistarfatnaður
íþróttagallar
Sundfatnaður
Leikfimifatnaður
jþróttaskór í úrvall
Mjög vandaðar
OUR fleecepeysur|
Aðtir 8,ööO
4.<000
Raci
adidas
I
mjikHmmm ;i
LAUGAVEGi 23 • SÍMI 551 5599 "|
Kynning í dag
á snyrtivörura frá
Princess Marcella Borghese
kl. 13-18.
Kaupauki íylgir
IIIMIBM
j (E/ (ö)/
Lj /o
afsláttur
af allri sérvöru
dagana 1.-5. febrúar.
Vorum að taka upp
nýja sendingu af
brjóstahölduruin.
Verð kr. 998
r Göngugötunni í Móddr
r Sími 587 0203 r