Morgunblaðið - 01.02.1996, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 01.02.1996, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996 43 | ------------------------------------ | þykkt og oft hefur lífið reynst erf- I itt en það var ekki að sjá á þér jafn glaðlyndur og hægur sem þú ailtaf varst. Það er erfitt að byrja þar sem af miklu er að taka. Það má byrja á öllum þeim útilegum sem við fórum, og var ég búin að skoða landið þvers og kruss mörgum sinn- um áður en ég náði tíu ára aldri. Bogahlíð er gott dæmi, en það var j eftir að stóra „sirkus“-tjaldið var ; keypt og hvar sem því var tjaldað í var það nefnt eftir þér, enda alltaf | mikil gleði í gangi og margt fólk í kringum ykkur mömmu hvar sem þið voruð. Þess má líka geta að mamma var oft spurð hver þessi Kristján væri sem hún ætti börnin með því allir þekktu þig undir nafn- inu Bogi. Ég minnist líka hve mikið við systkinin vildum hafa ykkur með i okkur á gleðistundum okkar og oft áttu vinir okkar systkinanna erfítt með að trúa því að pabbi og mamma | væru með í teitinu eða kæmu með okkur út á lífið. En sú undrun hvarf eftir að þau kynntust ykkur. Stutt var í grínið öllum stundum og jafn- vel í þeim erfiðu veikindum sem á endanum leiddu til dauða þíns var húmorinn skammt undan. Enda var erfitt að vera hnugginn og dapur með þig sér við hlið og held ég að sá styrkur sem við mamma og íjöl- skyldan búum yfir sé frá þér kom- | inn og hjálpi okkur yfir erfiðasta kaflann. Þegar þú fékkst þær fréttir í ágúst að þú værir með krabbamein og ekki útlit fyrir langt líf varstu ákveðinn í að láta það ekki bijóta þig niður og við það stóðstu. Rétt fyrir jól var ekki útlit fyrir að þú gætir verið með okkur heima yfir jólin, en þú hafðir sett þér það tak- mark að vera með okkur eftir að fjölskyldan væri öll saman komin á | ný. Eitthvað óskiljaniegt gerðist og þú fékkst þann kraft sem þurfti því tveimur dögum fyrir jól varstu kom- inn heim til að vera þar sem þú vildir vera og má segja að hugurinn og viijinn hafi haldið þér uppi. Elsku pabbi, jólin og áramótin eru dýrmæt minning í augum okkar allra, sjálf hátíðin, skírn yngsta barnabarns- ins, trúlofun yngstu dótturinnar og ! sú samstaða sem var með okkur öllum er eitthvað sem við búum öll j að í framtíðinni. Þá vil ég sérstak- ' lega þakka hjúkrunarkonum Karit- as fyrir alla þá ástúð og umönnun sem þær sýndu ekki bara þér held- ur okkur öllum. Því þegar svona áfall dynur yfir fjölskyldu þá er slík- ur stuðningur ómetanlegur. Þær hjúkrunarkonur sem komu inn á okkar heimili og veittu þér aðhlynn- ingu, sama á hvaða tíma sólar- hringsins var, voru allar sem ein j með þína velferð og okkar í huga I og er ógleymanlegt. Sú ást sem ríkt hefur á milli ykkar mömmu og virst sigra allt hefur lengi vakið lotningu meðal okkar systkinanna. Stundum var gert grín að því þegar vandamál steðjuðu að í samböndum okkar systkinanna að við værum að leita að þeirri fullkomnun sem fyrir okk- ■ ur hefði verið höfð. Elsku pabbi, fyrir allt sem þú ! varst mér og sá afi sem þú reynd- | ist dóttur minni sem nú saknar þín sárt, vil ég þakka þér af heilum hug. Þú sýndir slíkan dugnað og elju í veikindum þínum að við búum öll að því í framtíðinni og eigum eflaust eftir að meta lífið og gæðin öðruvísi héðan í frá. Tómleiki kem- ur til með að ríkja í hugum okkar á næstu misserum en ég veit, elsku I pabbi, að þú myndir ekkj vilja að við sætum í sorg og sút. Ég er líka viss um að þú verður með okkur I hvert sem við förum og hvað sem við gerum. Nú ertu horfinn yfir móðuna miklu og ég veit að þér líður betur, þar sem þú ert nú, laus við þær þjáningar sem þú hafðir. Vertu sæll, pabbi minn, og hvíl í friði. Söknuður situr í hjarta mér, kaldur, djúpur og sár. Þrautir liðnar, friður með þér, þerra burt mín tár. | Sólveig (Systa). SJÁ NÆSTUSÍÐU t FRIÐGEIR JÓNSSON, Ystafelli, sem lést í sjúkrahúsinu á Húsavík 29. janúar sl., verður jarðsett- ur frá Þóroddsstaðarkirkju laugardaginn 3. febrúar kl. 14.00. Klara Haraldsdóttir og systkini hins látna. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR STEFÁNSSON frá Bjólu, verður jarðsunginn frá Oddakirkju laugardaginn 3. febrúar kl. 14.00. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir okkar, ÁLFHEIÐUR MARGRÉT JÓHANNSDÓTTIR, Friðarstöðum, Hveragerði, verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 3. febrúar kl. 14.00. Jónina Sæmundsdóttir, Diðrik Sæmundsson. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN KRISTMUNDA JÓHANNSDÓTTIR, Vatnsnesvegi 20, Keflavik, verður jarðsungin frá Ytri Njarðvíkurkirkju föstudaginn 2. febrúar kl. 15.00. Ágúst Jóhannsson, Elvar Ágústsson, Steinunn Hákonardóttir, Hólmfríður Ármannsdóttir, Árni Ólafsson, Gylfi Örn Ármannsson, Ólafia Sigurbergsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, STEINUNN HERMANNSDÓTTIR, Asparfelli 4, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 21. janúar síðastliðinn. Utförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ágústa Gunnlaugsdóttir, Ómar G. Jónsson, Þór Gunnlaugsson, Steinunn Grfmsdóttir, Ásgerður Óskars Lauritsen, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, FRYOLF NILSSEN, Sæbóli, Eyrarbakka, verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 3. febrúar kl. 14.00. Eydís Vilhjálmsdóttir, Vilhjálmur Nilssen, Ruth Markussen, Gfsli Nilssen, Einar Nilssen, Beata Profic, Sigurður Nilssen, Finn Nilssen, Irena Kolodziej, Marfa Nilssen, Aldfs Nilssen, Haukur Jónsson og barnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, BÓEL JÓNHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Raufarfelli, A-Eyjafjöllum, verður jarðsungin frá Eyvindarhóla- kirkju laugardaginn 3. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað- ir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Ólafur Tryggvason, Þórunn Ólafsdóttir, Jón Sigurðsson, Tryggvi Kr. Ólafsson, Sigrún Heiðmundsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Ingi Ólafsson, Anna Kristín Birgisdóttir, Anna Björk Ólafsdóttir, Kristinn Stefánsson, Jón Pálmi Ólafsson, Rósa íris Ólafsdóttir, Róbert Már Jónsson, Katrín Jóna Ólafsdóttir, og barnabörn. t Við þökkum af heilum hug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför SVANLAUGAR SIGURÐARDÓTTUR húsmóður, Akranesi. Jóhanna Þorgeirsdóttir, Hjalti Jónasson, Jónfna S. Þorgeirsdóttir, Leifur ívarsson, Jósef H. Þorgeirsson, Þóra Björk Kristinsdóttir, Svana Þorgeirsdóttir, Gunnar Kárason. t Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, DAGMARAR STRAUMBERG KARLSDÓTTUR, áðurtil heimilis f Goðheimum 26, Reykjavík. Guðný Straumberg, Björn Þórhallsson, Níels Viðar Hjaltason, Lene Hjaltason, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okk- ur samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföð- ur og afa, STEFÁNS JÓNSSONAR fyrrv. bifreiðastjóra, Grænumörk 5, Selfossi. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÓLAFUR GEIR SIGURJÓNSSON frá Geirlandi, Þykkvabæ 7, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju á morgun, föstudaginn 2. febrúar, kl. 15.00. Þeir, sem vilja minnast hins látna, láti Krabbameinsfélagið njóta þess. Áróra Tryggvadóttir, Elliði N. Ólafsson, Auður M. Auðbergsdóttir, Sigrún G. Ólafsdóttir, Magnús Ólafsson, Laufey N. Stefánsdóttir, Sunna Ólafsdóttir, Björn Ingi Rafnsson, Kolbrún Ólafsdóttir, Marinó Guðmundsson, Ásgeir N. Ólafsson, Kolbrún Karlsdóttir, Sigurjón Ólafsson, Matthildur Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Sigrún Ólafsdóttir, Jenný D. Stefánsdóttir, Þórarinn Björnsson, Steinar Stefánsson, Guðrún Ólafsdóttir, Gunnar B. Guðmundsson, Helga Jónsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför móður minnar, tengdamóð- ur og ömmu, ÞÓRUNNAR SIGU RÐ ARDÓTTU R frá Melstað, Hásteinsvegi 47, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki Sjúkrahúss Vestmannaeyja fyrir hlýhug og einstaka umhyggju. Sigurður Þórir Jónsson. Elin Egilsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.