Morgunblaðið - 01.02.1996, Síða 44
44 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996
MINIMINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Elsku pahbi er dáinn. Ég fer yfir
þessi orð í huga mínum aftur og
aftur, en get ekki trúað því að þau
séu staðreynd. Hann var hrifinn á
brott frá okkur öllum á svo hræði-
legan hátt og við sem eftir sitjum
gátum ekkert gert til þess að slá á
þennan hræðilega sjúkdóm sem
krabbamein er.
Þegar við fengum að vita í ágúst
sl. að þú ættir aðeins fáa mánuði
eftir ólifaða, þá trúði maður ekki
eigin eyrum. Þú brást svo rólega
við og sagðir við mömmu að þú
skyldir ekki láta bugast, heldur
sigrast á þessum sjúkdómi. Og þú
reyndir svo sannarlega. Allir dáðust
að hugrekki þínu og styrk, og þú
lifðir miklu lengur en allir voru
búnir að spá.
Við eigum eftir að hugga okkur
mikið við minningarnar í framtíð-
inni. Þú gafst okkur öllum svo mik-
ið með yndislegri hjartahlýju og
alltaf var stutt í brosið þitt, sem
svo margir minnast.
Það er svo margs að minnast,
elsku pabbi minn. En efst í huga
mínum er þó paradísin ykkar
mömmu - Flúðir. Þar hafið þið
eytt öllum sumrum sl. fímm eða sex
ár, fyrst í hinni víðfrægu Bogahlíð
en síðan keyptuð þið hjólhýsið sem
var nefnt Sollukot að þinni ósk.
Þama blómstruðuð þið nánast sam-
an, ásamt börnum og bamabömum.
Þið lögðuð svo mikið í að allt yrði
sem best, enda var alveg yndislegt
þarna hjá ykkur, alltaf. Þið gróður-
settuð tré og blóm og allt var svo
heimilislegt, enda höfðu allir sem
komu til ykkar orð á því hvað allt
væri æðislegt. Það vom alltaf allir
hjartanlega velkomnir til ykkar og
allir þekkja gestrisni ykkar. Þetta
em sem betur fer minningar sem
aldrei verða teknar frá okkur.
Þegar ég kynntist honum Óðni
mínum var honum tekið opnum
örmum á heimilinu. Þið mamma
létuð alltaf strax í ljós hvort ykkur
líkaði einhver vinur manns eða ekki.
Það lék enginn vafi á því að hann
var velkóminn alveg frá bytjun. Þið
áttuð margar stundir saman og ég
veit að Óðinn hefði viljað hafa þær
miklu fleiri eins og reyndar allir.
Þegar Óðinn bað þig um hönd mína,
í júní í fyrra, áttir þú ekki í vand-
ræðum með að segja já. Síðan
gafstu mig hálfa leið upp að altar-
inu þegar við Óðinn opinberuðum
trúlofun okkar á gamlárskvöld, og
það er gott að vita af því að þú ert
ánægður með mannsefni mitt.
Mikið ofboðslega þykir manni líf-
ið ósanngjarnt stundum. Svona
yndislega hamingjusöm hjón, eins
og mamma og pabbi voru búin að
vera í rúm 32 ár, eru skyndilega
slitin í sundur á svona hræðilegan
hátt. Þau sem áttu eftir að gera
svo margt. saman. En svona er víst
lífið og því fær því miður enginn
breytt.
Élsku pabbi, þú varst okkur svo
mikils virði og verður alltaf. Við
munum alltaf elska þig og minnast
þín á yndislegan hátt.
Við kveðjum þig með trega og
söknuði, en huggun okkar felst í
vellíðan þinni. Þú verður alltaf í
hjarta mínu.
Þín dóttir,
Erla Ýr.
Elsku afi minn.
Manstu þegar við vorum á Flúð-
um. Ég man svo vel eftir því þegar
þú varðst 50 ára og Kalli kom með
sjónvarpsmennina og þeir tóku við-
tal við þig. Og við vorum öll sam-
an, fjölskyldan, yfir helgina.
Manstu þegar mamma var úti í
Frakklandi. Þá hringdi ég nánast
fyrir hveija helgi og spurði hvort
þið amma ætluðuð á Flúðir og allt-
af sagðir þú: „Já, já, elskan mín,
þú mátt koma með.“
Ég man svo vel eftir öllum okkar
samverustundum og ég man sér-
staklega eftir þér, elsku afi, og
hvemig þú varst alltaf hlæjandi og
að gera grín. Ég man alltaf eftir
brosinu þínu og mun minnast þín
þannig. Eg sakna þín alltaf.
Ég beið þín lengi, lengi,
mín liljan frið.
Stilltu mína strengi
gegn stormum og hríð.
Ég beið þín undir björkunum í Bláskógahlíð.
(Davíð Stef.)
Sólveig.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
En upphiminn fegri en augað sér
mót öllum oss faðminn breiðir
(E. Ben.)
Mig langar í örfáum orðum að
minnast elskulegs mágs míns,
Kristjáns Boga Einarssonar. Kynni
okkar hófust árið 1948 þegar fjöl-
skylda hans flutti til Akureyrar og
ég fór að venja komur mínar á
heimili hans, þar sem ég fann konu-
efni mitt. Ég get ekki sagt að þessi
ljúfi drengur hafi verið hrifinn af
því að ég tæki systur hans frá hon-
um. En hann tók mig í sátt og við
urðum mestu mátar.
Árið 1958 fluttu foreldrar hans
og hann til Reykjavíkur þar sem
faðir hans lést árið 1960. Bjó hann
þá með móður sinni þar til hann
A TILBOÐI
10-30% afsláttur
ef pantað er
í febrúar.
15% afsláttur
af skrauti.
Granil
HELLUHRAUN 14
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2707
ALLT AO 3«
sjálfur stofnaði heimili með sinni
glæsilegu og góðu konu, Sólveigu
Haraldsdóttur. Þau hjón bjuggu um
tíma á Akureyri og voru þá mikil
samskipti á milli heimila okkar auk
ótaldra annarra gleðistunda.
Bogi var einstaklega geðgóður
og hrókur ails fagnaðar í góðra vina
hópi. Hann talaði fallegt mál, hafði
góða frásagnargáfu og mjög fallega
rithönd auk þess að vera góður
teiknari. Síðasta jólakortið frá þeim
hjónum er vatnslitamynd sem hann
gerði, orðinn fársjúkur, og er hún
frá Flúðum. Hún mun verða vel
varðveitt.
Ég mun ekki telja upp böm,
tengdabörn né barnabörn þar sem
ég veit að það munu aðrir gera.
En stolt voru þau hjón af hópnum
sínum, enda vart til samheldnari
fjölskylda. Það er alveg ómetanlegt
hve vel þau stóðu öll saman um að
hjúkra og styðja Boga í hans miklu
veikindum, þar sem hún Solla hans
fór fremst.
í gegnum síma reyndum við hjón-
in að fylgjast með baráttu hans við
hinn banvæna sjúkdóm. Aldrei
heyrðist æðruorð frá honum en með
sinni glaðværu ljúfu rödd sagðist
hann bara hafa það gott.
Samverustundir okkar hin síðari
ár voru alltof fáar en ég veit að
Sollu og Boga leið best þau voru í
sínum unaðsreit á Flúðum, þangað
sem þau fóru helst hverja helgi
yfir sumarið. Þar nutu þau þess að
fá börn, tengdabörn, barnaböm og
vini í heimsókn, en því miður auðn-
aðist okkur ekki að heimsækja þau
þangað.
Ég kveð Boga vin minn og mág
með söknuði og bið honum Guðs
blessunar í nýjum heimkynnum.
Elsku Solla og fjölskylda, við hér
norðan heiða sendum okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur og biðjum
þann sem öllu ræður um styrk ykk-
ur til handa.
Gísli J. Eyland.
Það er júlíkvöld á Flúðum í
Hrunamannahreppi. Sólin hangir í
sjóndeildarhringnum eins og hún
vilji ekki setjast, bara augnablik
enn. Roðin fjöll eru þannig ásýndum
að stolt manna hverfur fyrir hóg-
værð og auðmýkt sem fæstir vita
um í sjálfum sér. Lágvær söngur
með undirspili gítars nemur eyru
okkar. Ekki útilegumannaöskur
þar, heldur söngur fólks sem ber
virðingu fyrir náttúrunni, sjálfu sér
og samferðamönnunum. Undirrit-
aður rennur á hljóðið og til að gera
langa sögu stutta hófust þar kynni
okkar hjóna og Boga og Sólveigar.
„Þetta er mín yndisleg, móðir barn-
anna minna og mín sáluhjálp."
Ekki dónaleg kynning það.
Skemmst frá að segja þá urðum
við fjórmenningar fljótt óaðskiljan-
legir vinir, sem ósjálfrátt lifðum
eftir setningunni: Ef þú sérð eitt-
hvað fallegt, þá kallaðu í bróður
þinn.
Mörg voru þau kvöldin, sem við
sátum, ýmist hjá þeim í hjólhýsinu
eða heima á Grafarbakka, spjölluð-
um saman uns dagur rann, nutum
þess að sjá sólina koma upp að
nýju og virtum fyrir okkur lognið,
en Flúðir eru sá staður einn sem
ég þekki, þar sem lognið er næstum
áþreifanlegt. Alltaf eitthvað nýtt
að sjá og lofa á hveijum degi. Nýir
vinir komu í hópinn, bæði aðkomu-
menn og heimamenn.
Svona liðu árin. Alltaf bættist
eitthvað við í búskapnum hjá okk-
ur, eitthvað til að sýna hvert öðru
og samgleðjast. Og hver var alltaf
mættur ef eitthvað þurfti að gera?
Það var auðvitað Bogi. Niðri á flöt,
þar sem Sollukot stóð innan um
tré, runna og blóm, gat enginn
gert neitt án þess að hann væri
kallaður til hjálpar með öll sín tæki
og tól og sitt góða skap.
Það kom nefnilega ýmsu til leiðar
skapið hans Boga. Þessi létta lund,
sem samanstóð af gáska, góðlát-
legri stríðni og meðfæddri kímni-
gáfu, kom öllum í gott skap, er nær
stóðu. Það var svo sem ekki alltaf
að við Bogi þyrftum talmál til að
skilja hvor annan. Þar nægði
augnatillit, sem báðir skildu.
Sumarið 1993 kom ung stúlka í
heimsókn til foreldra sinna og í
farteskinu var lítill drengur með
ljósan koll. Þetta var dóttir þeirra
Boga og Sólveigar, Iris, og sonur
hennar, Kristján Alexander. Þessa
helgi dvaldi þá hjá okkur Valgerði
elsti sonur okkar, Ásgeir Þór. HÍut-
irnir gerast hratt hjá ungu fólki,
að maður minnist ekki á sé það
ástfangið. Þau eru nú trúlofuð,
hafa eignast dóttur og hafið bú-
skap.
Allir hlutir eiga sér skýringar
fyrr eða seinna. Sumarið 1995 var
einstaklega votviðrasamt. Það
rigndi og rigndi í sífellu. Bogi var
búinn að vera slæmur í baki um
sumarið og vorum við Valgerður
viss um að rigningunni væri um að
kenna. Við fengum þó eina góða
helgi og það var verslunarmanna-
helgin. Á mánudeginum eftir ákvað
Bogi að við svo búið skyldi ekki
standa og leitaði læknis. Eftirleik-
inn þekkjum við öll.
Æðruleysi er orð sem flestir
skilja en fæstir beita. Karlmennska
er líka oft misskilin fyrir karl-
rembu. En ekki hjá Boga. Slíkt
æðruleysi og þá karlmennsku sem
hann sýndi í veikindum §ínum á
venjulegur maður eins og ég erfitt
með að skilja. Annan eins baráttu-
vilja, kjark og bjartsýni til hinstu
stundar. Nýtt markmið á hverjum
degi. Nýtt markmið, en þó alltaf
hið sama: Að þrauka. Að kvarta
Morgunblaðið/Amór Ragnarsson
Sveit Ljósbrár Baldursdóttur varð að láta sér nægja silfurverðlaun-
in í parasveitakeppninni um sl. helgi þrátt fyrir sama stigaskor og
sigursveitin. Talið frá vinstri: Jón Baldursson, Ragnar Hermanns-
son, Anna Þóra Jónsdóttir, Stefán Jóliannsson og Ljósbrá.
Sigurleifur Guðjónsson - Eysteinn Einarsson 148
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 146
ÞórarinnArnason-BergurÞorvaldsson 111
B riðill, 10 pör.
RafnKristjánsson-TryggviGíslason 135
Ólöf Guðbrandsdóttir - Sæbjöm Jónasdóttir 122
Jóhann Lútersson - Gunnlaugur Sigurgeirsson 119
Meðalskor í báðum riðlum 108.
Sunnudaginn 28. janúar byrjaði
sveitakeppni deildarinnar og spilaðir
voru tveir 16 spila leikir.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Fimmtudaginn 24. janúar spiluðu
20 pör í tveim riðlum.
A riðill, 10 pör.
ekki, að geta og gera hiutina sjálf-
ur. Þetta er sú mynd sem ætíð mun
geymd í hugskoti okkar af Boga.
Síðasta markmið hans var að fá son
sinn Einar ásamt danskri unnustu
hans, Biöncu, heim til íslands nú
um jólin. Ekkert skyldi koma í veg
fyrir gleðileg jól fjölskyldunnar.
Litla stúlkan okkar Boga, dóttir
þeirra írisar og Ásgeirs, var skírð
Valgerður Ýr á annan jóladag.
Hann stóð sig eins og hetja. Og
hver átti von á öðru? Hann var þó
sannarlega að gera meira en hann
gat.
Þar kom að varnir brustu. Bogi
var fluttur á Borgarspítalann í
Reykjavík, þar sem hann lést eftir
stutta legu. Hann er tregaður af
yndislegri eiginkonu, syni, dætrum
og tilvonandi tengdabörnum, og
mikill er missir litla fólksins, barna-
barnanna. Við þau öll segi ég: Geti
öxl mín komið að gagni þá er hún
laus. Hún getur þó aldrei komið í
stað þeirrar axlar sem þau hafa
hjúfrað sig upp að til þessa.
Að lokum langar mig að þakka '
Kristjáni Boga Einarssyni, vini mín-
um, fyrir samveruna hér á jörð. Ég
er þess fullviss, að hann er þegar
farinn að gróðursetja skika handa
okkur í næstu tilveru. Ég flyt kveðj-
ur Hreppamanna í vinahópi þeirra
hjóna. Þeir biðja um guðsblessun
til ykkar allra sem sárt eigið hjarta
og hug.
Ásgeir Þormóðsson.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. ’
(V. Briem.)
Elsku Sólveig og fjölskylda, við
vottum ykkur okkar dýpstu samúð
því að við vitum að missir ykkar
er mikill og sár. Megi góður Guð
styrkja ykkur í sorg ykkar og veita
huggun. Elsku Erla og Óðinn, hug-
ur okkar er með ykkur.
Soffía og Valdimar.
• Fleirí minning-argreinar um
Kristj&n Boga Einarsson biða birt-
ingar ogmunu birtast í blaðinu
næstu daga.
Helstu júrslit urðu þessi.
Sv. Höllu Ólafsdóttur 39
Sv. Þórarins Ámasonar 32
Sv. Þórhildar Magnúsdóttur 32
Sv. Sigurleifs Guðjónssonar 32
Bridsfélagið Muninn,
Sandgerði
Lítið hefur heyrst frá fréttaritara
félagsins að undanförnu af óviðráðan-
legum orsökum, en nú verður úr því
bætt.
Tvímenningur, 3. janúar, 10 pör.
Einar Júlíusson - Svala Pálsdóttir 137
Gunnar Guðbjömsson - Valur Símonarson 129
Anna Karlsdóttir - Guðjón Óskarsson 121
Tvímenningur 10. janúar, 13 pör.
Þröstur Þorláksson - Pétur Á. Steinþórsson 136
Kristján Kristjánsson - Kjartan Sævarsson 133
Þorvaldur Finnsson - Sigurður Davíðsson 128
Tvímenningur 17. janúar, 12 pör.
Jóhann Benediktsson - Sigurður Albertsson 137
Karl G. Karlsson -GunnarGuðbjömsson 130
SiguijónJónsson-Dagurlngimundarson 125
Miðvikudaginn 17. janúar var síð-
asta spilakvöldið í samkomuhúsinu í
Sandgerði, þar sem við höfum byggt
okkur 400 fm húsnæði ásamt Bridsfé-
iagi Suðurnesja og Hestamannafélag-
inu Mánum að Mánagrund. Húsið var
vígt föstudaginn 26. janúar, og hvetj-
um við alla spilara til að fjölmenna á
spilakvöld félaganna.