Morgunblaðið - 01.02.1996, Side 48

Morgunblaðið - 01.02.1996, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Smáfólk 50METIME5 I LIE AWAKE AT NIGHT, AND I UJONPER IF MW' LIFE WOULD 5E OIFFERENT IF I HAP IT TO PO OVER... THEN A VOICE C0ME5 TO ME OUT OF THE PARK THAT SAYS/’BOV, THERE'S AN ORIGINAL TH0U6HT í " Stundum ligg ég vakandi á næturnar og velti því Þá heyri ég rödd út úr myrkrinu sem segir: fyrir mér hvort líf mitt yrði öðruvísi ef ég yrði „Vá, þetta er frumleg hugsun!“ að lifa því upp á nýtt. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang:lauga@mbl.is Hvar er virðuleiki kirkjunnar? Frá Páli Péturssyni: VEGNA þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað um deilurnar í Lang- holtskirkju, ásamt því að vera sjálfur í sókninni, get ég ekki lengur setið á mér að hefja máls á þeim þætti sem á okkur sóknarbörnunum hlýtur að brenna, nefnilega rétti okkar. í fjölmiðlum hefur verið látið að því liggja að deila þessi sé í meginatr- iðum milli tveggja manna; sókn- arprestsins og organistans. Ekki hef- ur mér þótt fjölmiðlar sækja mikið í slíkar fréttir af sama kappi á öðrum vígstöðvum. En þar sem deilan er í Guðshúsi þykir slíkt meira spennandi og er það einmitt mergurinn máls- ins. En hvert er hlutverk hvers í þessari deilu? í minni bamæsku og allt fram að þessari uppákomu hef ég borið mikla virðingu fyrir stofnun þessari og þá einna helst þeim sem þar eru í for- svari, prestunum. Ég hef talið þeirra hlutverk æðra flestum hlutverkum mannanna og þótt gott til þess að hugsa að geta reitt mig á þá þjón- ustu ef á þyrfti að halda. En hvað sé ég svo og heyri? A einum mánuði hefur hluti prestastéttarinnar rasað í fjölmiðla og ritað þvílíkar ræður að maður verður orðlaus. Einn „Guðsmaðurinn" ritar í Morgunblað- ið að einum Jóni Stefánssyni sé of- aukið! Ja hérna. Sóknarpresturinn okkar, sr. Flóki Kristinsson, segir að sættir komi ekki til greina. Eg þakka fyrir að ekki kom til þess að við hjónin þyrftum að leita til hans með slíkt fyrir brjósti, haldandi það vera hlutverk prestsins að sætta fólk. Enda hefur það verið haft eftir hon- um að hann teldi slíkt ekki vera hlut- verk sitt, til þess væru félagsfræð- ingar! Það er ábyggilega rétt að fé- lagsfræðingar sjái um slíkt en í fá- fræði minni hefði ég samt rambað til prestsins og beðið um slíka þjón- ustu ef hennar hefði verið þörf og þá kannski fengið nafnspjald ein- hvers félagsfræðings til huggunar. Þetta allt og svo margt annað hefur komið fram í fjölmiðlum og þarf ekki að rekja hér. Hins verður þó áð minnast að það erum við hér í Langholtssókn sem berum allan skaðann af máli þessu. Nú fer «ókn- arpresturinn fram á að organistanum verði strax sagt upp störfum, sættir komi ekki til greina. Organistanum okkar, sem borið hefur hitann og þungann af uppbyggingu kirkjunnar sem við höfum getað verið svo stolt af. Organista, sem ásamt konu sinni, hefur fórnað öllu því til kirkjunnar sem við þekkjum hér í Langholts- sókn. Organista, sem fyrst og fremst hefur þjónað kirkjunni með Guðsorði í tónum og glæsilegum kirkjukór. Eftir sitjum við með sóknarprest sem getur þjónað okkur í kirkjuskipinu til kirkjuathafna eftir nýrri forskrift sem hann reynir að innræta okkur frá útlöndum og punktur og basta. Hvar er virðingin? Hvar er væntum- þykjan í garð prestsins okkar eða köllum við hann ékki lengur prestinn okkar? Hvernig hefur hluti presta- stéttarinnar komið fram í þessu máli? Sem ástsælir virðulegir Guðs- menn sem við getum reitt okkur á? Nei, það eru ekki þau orð sem mað- ur heyrir hér í sókninni þessa dag- ana. En hvað getum við gert. Við erum með æviráðinn sóknarprest sem vill reka organistann af því að hans manndómur nær ekki til sátta. Sem barn dvaldi ég oft löngum stundum hjá ömmu minni og afa sem þá var sóknarprestur. Síðan þá hef ég verið sá gæfumaður að hitta ein- göngu fyrir slíka sómamenn í því embætti og allflestir, sem komið hafa fram fyrir sjónir mínar í Qöl- miðlum, hefur mér fundist falla inn í þá ímynd mína sem menn virðuleik- ans, auðmýktarinnar og fyrirgefn- ingarinnar. Auðvitað eru allir menn breyskir eins og dæmin sanna í öðru fjaðrafoki í kringum kirkjuna fyrir ekki svo löngu og er það þeim leyfl- legt. Það er einmitt mergurinn máls- ins. Menn minnar ímyndar af presti eru þar sökum köllunar til trúarinnar á Jesúm Krist og leita huggunar og hjálpar í Honum. En hin síðari ár hafa komið nýir meðlimir inn í stétt þessa. Það eru menn sem velja prestsstarfið að atvinnu en ekki af köllun og virðist þeim það mest I mun að boða okkur nýja siði en ekki trúna á Jesúm Krist. Þessa menn getum við landsmenn þurft að sitja uppi með okkar daga sökum ævir- áðningar þeirra og getum þurft að horfa á eftir þeim fallegu fyrirmynd- um sem við enn eigum innan presta- stéttarinnar. Sitjum ekki aðgerðar- laus, gætum réttar okkar í þessari stofnun sem við fólkið I landinu rek- um og eigum. Að lokum þetta: Eitt boðorðanna segir að elska skaltu náungann eins og sjálfan þig. Hvað segir það okkur um prestinn? PÁLL PÉTURSSON, Eikjuvogi 9, Reykjavík. Eitursalana úr umferð Frá Sveini Indriðasyni: í UMRÆÐUNNI um fíkniefnafar- aldurinn, sem gengur yfir æsku landsins, er ástæða til að rifja upp hvernig brugðist var við öðrum þjóð- arvoða. Á kreppuárunum gekk berklaveik- in eins og eldur í sinu meðal lands- manna og lagði mikinn fjölda fólks að velli, einkum æskufólk. Til að stemma stigu við smitleiðum berklanna voru Berklavarnalög sett árið 1939. í þeim lögum segir svo: „Lögreglustjóri getur, að fenginni umsögn berklayfirlæknis, úrskurðað hinn berklaveika á sjúkrahús. Nú óhlýðnast sjúklingurinn úrskurðinum og er lögreglustjóra þá heimilt að annast flutning sjúklings þangað á kostnað hans.“ Þessar forvamir gegn berkiunum áttu mikinn þátt í að íslendingar urðu fyrstir þjóða til að útrýma berkl- um að bestu leyti. Eitursalarnir eru hættulegustu smitberar í þjóðfélaginu um þessar mundir og því þarf að taka þá úr umferð og afeitra landið. Þingmenn allra flokka þurfa að sameinast um slíka iöggjöf og það strax. Gegn þessum ólánsmönnum duga engin vettlingatök. SVEINNINDRIÐASON, Árskógum 8, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.