Morgunblaðið - 01.02.1996, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
fltargiMtlifafeifr
D
1996
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR
BLAD
Hamalainen
ætlar að keppa
fyrir Finnland
EDUARD Hamalainen frá Hvíta Rússlandi, einn
besti tugþrautarmaður heims, verður löglegur með
landsliði Finna á heimsmeistaramótinu í Aþenu á
næsta ári, að því er finnska ftjálsíþróttasambandið
tilkynnti í vikunni.
Hamalainen, sem vann til silfurverðlauna í tug-
þraut á HM í Stuttgart 1993 og i Gautaborg í fyrra,
verður með liði Hvíta Rússlands á Ólympíuleikunum
í Atlanta í sumar en finnska sambandið hefur gert
samning við fijálsíþróttasamband Hvíta Rússlands
þess efnis að þéssi 26 ára afreksmaður verði með
landsliði Finna eftir Ólympíuleikana. Þess má geta
að afi hans og amma eru fínnsk og Hamalainen býr
í Finnlandi.
KNATTSPYRNA
Helgi skoraði í fyrsta
leiknum með Stuttgart
Maður kemur...
HELGI Sigurðsson ásamt Giovane Elber, brasilíska framherj-
anum sem veiktlst í gær og Helgi leystl af hólmi. Óhætt er
að segja maður hafi komlð í manns stað gegn St. Gallen.
HELGI Sigurðsson lék í fyrsta
sinn með aðalliði VfB Stuttgart
í gærkvöldi, í æfingaleik gegn
St. Gallen frá Sviss í Þýska-
landi. Helgi þakkaði þjálfaran-
um traustið með því að skora
fyrsta mark leiksins í 5:0 sigri.
„Ég get ekki annað en verið
ánægður með leikinn. Það var
gaman að ná að skora og setja
þannig mark sitt á leikinn. Ég
bjóst alls ekki við að fá tæki-
færi strax, enda rétt að ná mér
eftir meiðsli. Þetta var því bæði
óvænt og ánægjulegt," sagði
Helgi við Morgunblaðið.
Helgi sagði að hann hefði átt að
spila með varaliði félagsins í
gærkvöldi. „Það var hringt í mig
aðeins klukkutíma fyrir leikinn gegn
St. Gallen og ég beðinn að koma
strax, því markakóngur þýsku deild-
arinnar, Brasilíumaðurinn Giovane
Elber, tilkynnti sig veikan á síðustu
stundu. Það var því ekki mikill tími
sem ég hafði til að hugsa um leik-
inn. Ég var settur í fremstu víglínu
við hliðina á Fredi Bobic. Og það
var gaman að sjá boltann liggja í
netinu eftir aðeins tíu mínútna leik.
Ég lagði upp þriðja markið og var
reyndar óheppinn að skora ekki ann-
að mark skömmu síðar, en mark-
vörður svissneska liðsins varði vel.
Ég lék allan leikinn og þjálfarinn
hældi mér á eftir og sagði að ef ég
héldi svona áfram færi ég að banka
verulega á dyrnar hjá aðalliðinu,“
sagði Helgi.
Fredi Bobic gerði tvö mörk liðsins
í leiknum og Búlgarinn Krassimir
Balakov, Frank Foda og Helgi sitt
markið hver. Helgi sagði að Stutt-
gart hafi yfirspilað svissneska liðið
mest allan leikinn. St. Gallen er.um
miðja deild í svissnesku 1. deildinni.
Helgi ristarbrotnaði í apríl í fyrra
og þurfti tvívegis að fara í upp-
skurð. Hann var frá æfingum í átta
mánuði vegna þessa og byijaði ekki
að æfa fyrr en um áramótin. Hann
sagðist hafa leikið þijá leiki með
varaliði félagsins síðustu tvær vik-
urnar og skorað í þeim þijú mörk.
„Ég er ekki alveg kominn í toppæf-
ingu, enda tekur það tíma eftir svo
langt stopp. Ég er óðum að koma
til. Ég náði alla vega að sýna getu
mína í leiknum í gær,“ sagði Helgi.
Valgeir
til Þórs
VALGEIR Baldursson, mið-
vallarspilari úr Stjörnunni,
sem lék með Raufoss í Nor-
egi sl. keppnistímabil, hefur
gengið til liðs við 2. deildar-
liðs Þórs á Akureyri í knatt-
spyrnu. Þórsarar hafa feng-
ið góðan liðsstyrk frá sl.
keppnistímabili; áður hafa
Davíð Garðarsson úr Val,
Serbinn Zoran Zikic, Þrótti
Neskaupstað, Bjarni Svein-
björnsson frá Dalvík og
markvörðurinn Atli M. Rún-
arsson, einnig frá Dalvík,
gengið til liðs við þá.
Þá æfir enski leikmaður-
inn Kevjn Eglon, sem er 17
ára, með Þór til reynslu.
Eglon, sem lék með Shutton
Comrades, utandeildarliði í
Norður -Englandi, lék æf-
ingaleik með Þór gegn Völs-
ungi á dögunum — kom inná
sem varamaður og skoraði
mark með fyrstu snertingu
sinni við knöttinn, í sigur-
leik Þórs 3:0.
HANDKNATTLEIKUR
Besti mark-
vörður
heims að
hætta
CECILLE Leganger, mark-
vörður kvennaliðs Norð-
manna í handknattleik, hef-
ur ákveðið að leggja skóna
á hilluna eftír þetta keppnis-
tímabil, aðeins tvítug að
aldri. Leganger, sem var
valin í heimsliðið eftir HM
í Austurríki í desember,
hefur átt við meiðsli að
striða, en mun byija að leika
á ný á næstu dögum. Ástæð-
an fyrir því að hún ákvað
að hætta, er að hún hefur
fengið sig fullsadda af hand-
knattleik og verður því ekki
með norska liðinu á OL í
Atlanta og heldur ekki hin
28 ára Cathrine Svendsen,
sem hættir einnig eftir
keppnistímabilið.
Mynd/Scan Foto
Tap gegn
Norð-
mönnum
ÍSLENSKA landsliðið í handknatt-
leik tapaði fyrsta leik sínum á
Lottó-bikarkeppninni í gærkvöldi.
Norðmenn sigruðu þá Islendinga
með eins marks mun, 25:24. íslend-
ingar byijuðu mun betur og komust
í 15:10 en í leikhléi var staðan 15:12.
Þeir höfðu forystu, 24:23, þegar
skammt var til leiksloka en heima-
menn gerðu tvö síðustu mörkin.
I hinum leik gærdagsins sýndu
Júgóslavar að þeir eiga frábært lið
um þessar mundir. Þeir tóku Rúm-
ena í kennslustund og sigruðu
25:17.
Á myndinni er Simen Muffetang-
en í dauðafæri við íslenska markið
í gærkvöldi, en tókst reyndar ekki
að skora. Róbert Sighvatsson, sem
horfir á eftir Norðmanninum, lék
vel í vöminni.
■ Klaufaskapur / D4
HANDKNATTLEIKUR: GROTTA SIGRAÐIVIKINGIVIKINNI / D5