Morgunblaðið - 02.02.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 02.02.1996, Síða 1
KORFUBOLTI HANDKNATTLEIKUR 1996 Getum sigrað Rúmena Islendingar eiga „heimaleik“ þegar þeir mæta Rúmenum í Lottó-keppninni í Haraldarhöll í Haugasundi í kvöld. Strákarnir æfðu í höllinni í Steinþór Stange í gærmorg- Guðbjartsson un en fóru þaðan skrifar akandi til höfuð- frá Stavanger borgarinnar, flugu til Stavanger og horfðu þar á leiki gærkvöldsins. Rúmenar léku illa gegn Júgóslövum í fyrsta leik, en Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari íslands, sagði við Morgunblaðið að ekki hefði verið um eðlilegan leik að ræða. Hins vegar væru Rúmenar að byggja upp nýtt lið eins og íslendingar en með nokkr- um lagfæringum ætti ísland að sigra í kvöld. „Rúmenar voru óvenju taugaó- styrkir gegn Júgóslövum en þeir eru að þróa nýtt lið og eru með marga unga leikmenn eins og við,“ sagði Þorbjöm. „Samt eru þarna nokkrir leikmenn sem við höfum leikið gegn og ég reikna með að þeir byiji á að leika 3-2-1 vörn eins og gegn Júgóslövum, þó sú leikaðferð hafi ekki gengið vel hjá þeim þá. Þeír eru að sb'pa þessa aðferð og það er mjög jákvætt fyrir okkur því við þurfum að æfa okkur gegn svona vöm.“ Strákarnir æfðu hlaupaleiðir á æfingunni í gærmorgun með fram- ansagt í huga en Þorbjörn sagði að þeir yrðu að vera viðbúnir öllu. „Við höldum áfram að þróa okkar leik en það er ljóst að hlaupaleiðirn- ar era öðruvísi gegn framliggjandi vörn. Við þurfum að hafa ákveðið mynstur eftir því hvernig vörn við leikum gegn.“ - Þorbjöm fór yfir það sem fór úrskeiðis gegn Norðmönnum og sagði að liðið yrði að bæta sig á ýmsum sviðum. „Við verðum að spila betri vörn, hafa meira skipu- lag á hlutunum og vinna betur saman. Eins og ég sagði fyrir leik- inn gegn Norðmönnum verðum við að einbeita okkur að því að spila agaðan sóknarleik, ekki hluta úr leiknum heldur allan leikinn. Gegn Norðmönnum vora sóknirnar oft of stuttar, íjórar til fimm sending- ar og svo skot. Við megum ekki spila leiknum svona upp í hendurn- ar á andstæðingnum og verðum ávallt að hafa þá gullnu reglu í huga að þegar við erum yfir verða andstæðingamir að ná boltanum til að minnka muninn. Með öðram orðum þurfum við enn meiri aga í sóknarleikinn." Strákarnir léku fyrri hálfleikinn gegn Norðmönnum mun betur en þann seinni og samsinnti Þorbjörn því að örar skiptingar eftir hlé ásamt brottvísunum hefðu komið róti á leikinn. Engu að síður sagði hann mikilvægt að reyna sem flesta en erfitt væri að segja fyrir- fram hvernig þau mál þróuðust. „Ef leikur þróast þannig að góðir vinningsmöguleikar eru fyrir hendi án þess að skipta um menn freistast maður til að halda óbreyttu liði en markmiðið hér er að reyna sem flesta. Lið íslands, Noregs og Rúmeníu eru öll svipuð að getu og i innbyrðisleikjum þeirra getur sigur fallið á hvorn veginn sem er. En með því að laga leik okkar örlítið er alveg á hreinu að við eigum að sigra Rúmena.“ Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari um leikinn í Lottó-keppninni í dag Landsmótið árið 2001 verðurá Egilsstöðum LANDSMÓT Ungmennafélags íslands (UMFÍ) árið 2001 verður haldið á Egilsstöðum i umsjón Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands (UIA). Stjóm Ungmennafélags íslands ákvað þetta á fundi sínum í Reykjavík um helgina. Landsmótið á Egilsstöðum verður það 23. í röðinni. Þrír sambandsaðilar UMFÍ sóttu um að halda mótið, Ungmennasamband Kjalarnes- þings, Ungmennafélagið Fjölnir í Grafarvogi, og Ungmenna og íþróttasamband Austurlands og samþykkti stjóm UMFÍ samhljóóa á fundinum að fela Austfirðingum mótshaldið. Stjóm Ungmenna- og íþróttasambands Aust- urlands tilgreindi Egilsstaði sem keppnisstað fyrir mótið í umsókn sinni og þar verður því keppt. Næsta Landsmót Ungmennafélaganna, það 22. í röðinni, verður haldið í Borgamesi árið 1997. Ákveðið var á síðasta sambandsþingi Ung- mennafélags íslands að 24. Landsmótið verði haldið árið 2004, og það 25. verði haldið árið 2007 en það ár verður Ungmennafélag íslands eitthundrað ára. S. Aðalsteinsson, Jökuldal Norðmenn lögðu Júgóslava NORÐMENN, sem sigruðu íslendinga með eins marks mun í fyrsta leik Lottó-keppninnar á miðvikudag, gerðu sér litið fyrir og sigruðu Júgóslava 24:23 í Stavanger í gærkvöldi. Júgó- slavar höfðu yfir í hálfleik, 11:9. Úrslitin voru óvænt því Júgóslavar burstuðu Rúmena í fyrsta leiknum, 25:17. Lokaminútan var æsispennandi. Júgóslavar jöfnuðu 23:23 þegar 10 sekúndur voru eftir. Norðmenn hófu sókn og skutu að marki, mark- vörður Júgóslava varði en boltinn fór aftur út á völlinn. Tveir leikmenn, einn úr hvoru liði, börðust um frákastið en þeirri rimmu lyktaði með því að dæmt var á Júgóslavann og tíminn stöðvaður ura leið. Þá voru tvær sekúndur eftir af leiknum. Það var nóg til þess að Stian Vatne skoraði sigurmarkið við mikinn fögnuð rúmlega 4.000 áhorfenda í iþróttahöllinni i Stavanger. Dómararnir, sem voru þeir sömu og dæmdu leik Aftureldingar og Drammen í Evrópukeppninni, léku stórt hlutverk á lokasekúndunum og má segja að þeir hafi fært heimamönnum sigurinn á silfurfati. Danir sigruðu síðan Rúmena í gær með 20 mörkum gegn 16. ísiendingar leika við Rúmena íkvöld. FÖSTUDACUR 2. FEBRÚAR BLAD Haukar halda sinu BIKARMEISTARAR Hauka héldu áfram sigur- göngu sinnl í úrvalsdeildinnl í körfuknattleik í gærkvöldi er þeir lögðu Skallagrím 86:69. Haukar eru nú efstlr í A-rlðll en Njarðvíking- ar elga möguleika á að komast upp að hllð þelrra með sigrl á KR I Njarðvfk í kvöld. C4 Um leikina Morgunblaðið/Árni Sæberg „Magic" og Jordan beint á Stöð 2? VALTÝR Björn Vahtýsson, yfir- maður iþróttadeildar Stöðvar 2, segir að verið sé að vinna í þvi lijá Stöð 2 að hægt verði að sýna beint frá leik Los Angeles Lakers og Chicago Bulls í NBA- deildinni sem fram fer í nótt. En þar mætast sijöraumar Ear- vin „Magic“ Johnson og Michael Jordan. „Við reynum allt sem við getum til að fá leikinn og ger- um okkur ágætar vonir um það. Þetta er stórleikur og það yrðl mikill fengur fyrir körfu- boltaáhugamenn að fá að sjá leikinn beint,“ sagði Valtýr. Leikurinn hefst kl. 3.30 i nótt. Dýr myndi Hafliði allur BREIÐABLIKSMÖNNUM fannst gjaldið fyrir að leika í gærkvöldi heldur mikið og sér- staklega fannst þeim svokallað heimaleikjagjald KKÍ hafa hækkað frá síðasta heimaleik. Þá greiddi Breiðablik 9.000 krónur en að þessu sinni 20.000 sem mun stafa af vanmati KKÍ á kostnaði við dómara. Annar dómarinn dæmir fyrir Njarðvík og honum greiddi Breiðablik 3.300 krónur vegna kostnaðar við að komast á leikinn. Hinn dómarinn dæmir fyrir Val og honum varð að greiða 13.500 krónur þar sem han býr víst á Reyðarfirði, en félagið þar heit- ir einnig Valur. Breiðablik varð því að greiða 36.800 krónur áður en leikurinn hófst í gær. Dýr myndi Hafiiði atiur. Caiyun bætti metið KÍN VERSKA stúlkan Sun Cafy- un bætti heimsmetið í stangar- stökki innanhúss tvívegis á móti í Þýskalandi á miðvikudag. Hún bætti fyrst eigið met frá þvi á sunnudag um einn sentí- metra er hún stökk 4,22 metra, en bætti það síðan aftur og stökk 4,27 metra. KÖRFUBOLTI: VIÐTAL VID KRISTIN ALBERTSSON KÖRFUKNATTLEIKSDÓMARA / C2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.