Morgunblaðið - 02.02.1996, Blaðsíða 1
KORFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
1996
Getum sigrað Rúmena
Islendingar eiga „heimaleik“
þegar þeir mæta Rúmenum í
Lottó-keppninni í Haraldarhöll
í Haugasundi í kvöld. Strákarnir
æfðu í höllinni í
Steinþór Stange í gærmorg-
Guðbjartsson un en fóru þaðan
skrifar akandi til höfuð-
frá Stavanger borgarinnar, flugu
til Stavanger og horfðu þar á leiki
gærkvöldsins. Rúmenar léku illa
gegn Júgóslövum í fyrsta leik, en
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari
íslands, sagði við Morgunblaðið
að ekki hefði verið um eðlilegan
leik að ræða. Hins vegar væru
Rúmenar að byggja upp nýtt lið
eins og íslendingar en með nokkr-
um lagfæringum ætti ísland að
sigra í kvöld.
„Rúmenar voru óvenju taugaó-
styrkir gegn Júgóslövum en þeir
eru að þróa nýtt lið og eru með
marga unga leikmenn eins og við,“
sagði Þorbjöm. „Samt eru þarna
nokkrir leikmenn sem við höfum
leikið gegn og ég reikna með að
þeir byiji á að leika 3-2-1 vörn
eins og gegn Júgóslövum, þó sú
leikaðferð hafi ekki gengið vel hjá
þeim þá. Þeír eru að sb'pa þessa
aðferð og það er mjög jákvætt
fyrir okkur því við þurfum að æfa
okkur gegn svona vöm.“
Strákarnir æfðu hlaupaleiðir á
æfingunni í gærmorgun með fram-
ansagt í huga en Þorbjörn sagði
að þeir yrðu að vera viðbúnir öllu.
„Við höldum áfram að þróa okkar
leik en það er ljóst að hlaupaleiðirn-
ar era öðruvísi gegn framliggjandi
vörn. Við þurfum að hafa ákveðið
mynstur eftir því hvernig vörn við
leikum gegn.“ -
Þorbjöm fór yfir það sem fór
úrskeiðis gegn Norðmönnum og
sagði að liðið yrði að bæta sig á
ýmsum sviðum. „Við verðum að
spila betri vörn, hafa meira skipu-
lag á hlutunum og vinna betur
saman. Eins og ég sagði fyrir leik-
inn gegn Norðmönnum verðum við
að einbeita okkur að því að spila
agaðan sóknarleik, ekki hluta úr
leiknum heldur allan leikinn. Gegn
Norðmönnum vora sóknirnar oft
of stuttar, íjórar til fimm sending-
ar og svo skot. Við megum ekki
spila leiknum svona upp í hendurn-
ar á andstæðingnum og verðum
ávallt að hafa þá gullnu reglu í
huga að þegar við erum yfir verða
andstæðingamir að ná boltanum
til að minnka muninn. Með öðram
orðum þurfum við enn meiri aga
í sóknarleikinn."
Strákarnir léku fyrri hálfleikinn
gegn Norðmönnum mun betur en
þann seinni og samsinnti Þorbjörn
því að örar skiptingar eftir hlé
ásamt brottvísunum hefðu komið
róti á leikinn. Engu að síður sagði
hann mikilvægt að reyna sem
flesta en erfitt væri að segja fyrir-
fram hvernig þau mál þróuðust.
„Ef leikur þróast þannig að góðir
vinningsmöguleikar eru fyrir
hendi án þess að skipta um menn
freistast maður til að halda
óbreyttu liði en markmiðið hér er
að reyna sem flesta. Lið íslands,
Noregs og Rúmeníu eru öll svipuð
að getu og i innbyrðisleikjum
þeirra getur sigur fallið á hvorn
veginn sem er. En með því að laga
leik okkar örlítið er alveg á hreinu
að við eigum að sigra Rúmena.“
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari um leikinn í Lottó-keppninni í dag
Landsmótið árið
2001 verðurá
Egilsstöðum
LANDSMÓT Ungmennafélags íslands (UMFÍ)
árið 2001 verður haldið á Egilsstöðum i umsjón
Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands
(UIA). Stjóm Ungmennafélags íslands ákvað
þetta á fundi sínum í Reykjavík um helgina.
Landsmótið á Egilsstöðum verður það 23. í
röðinni. Þrír sambandsaðilar UMFÍ sóttu um að
halda mótið, Ungmennasamband Kjalarnes-
þings, Ungmennafélagið Fjölnir í Grafarvogi,
og Ungmenna og íþróttasamband Austurlands
og samþykkti stjóm UMFÍ samhljóóa á fundinum
að fela Austfirðingum mótshaldið.
Stjóm Ungmenna- og íþróttasambands Aust-
urlands tilgreindi Egilsstaði sem keppnisstað
fyrir mótið í umsókn sinni og þar verður því
keppt.
Næsta Landsmót Ungmennafélaganna, það
22. í röðinni, verður haldið í Borgamesi árið
1997. Ákveðið var á síðasta sambandsþingi Ung-
mennafélags íslands að 24. Landsmótið verði
haldið árið 2004, og það 25. verði haldið árið
2007 en það ár verður Ungmennafélag íslands
eitthundrað ára.
S. Aðalsteinsson, Jökuldal
Norðmenn
lögðu Júgóslava
NORÐMENN, sem sigruðu íslendinga með eins
marks mun í fyrsta leik Lottó-keppninnar á
miðvikudag, gerðu sér litið fyrir og sigruðu
Júgóslava 24:23 í Stavanger í gærkvöldi. Júgó-
slavar höfðu yfir í hálfleik, 11:9. Úrslitin voru
óvænt því Júgóslavar burstuðu Rúmena í fyrsta
leiknum, 25:17.
Lokaminútan var æsispennandi. Júgóslavar
jöfnuðu 23:23 þegar 10 sekúndur voru eftir.
Norðmenn hófu sókn og skutu að marki, mark-
vörður Júgóslava varði en boltinn fór aftur út
á völlinn. Tveir leikmenn, einn úr hvoru liði,
börðust um frákastið en þeirri rimmu lyktaði
með því að dæmt var á Júgóslavann og tíminn
stöðvaður ura leið. Þá voru tvær sekúndur eftir
af leiknum. Það var nóg til þess að Stian Vatne
skoraði sigurmarkið við mikinn fögnuð rúmlega
4.000 áhorfenda í iþróttahöllinni i Stavanger.
Dómararnir, sem voru þeir sömu og dæmdu leik
Aftureldingar og Drammen í Evrópukeppninni,
léku stórt hlutverk á lokasekúndunum og má
segja að þeir hafi fært heimamönnum sigurinn
á silfurfati.
Danir sigruðu síðan Rúmena í gær með 20
mörkum gegn 16. ísiendingar leika við Rúmena
íkvöld.
FÖSTUDACUR 2. FEBRÚAR
BLAD
Haukar halda sinu
BIKARMEISTARAR Hauka héldu áfram sigur-
göngu sinnl í úrvalsdeildinnl í körfuknattleik
í gærkvöldi er þeir lögðu Skallagrím 86:69.
Haukar eru nú efstlr í A-rlðll en Njarðvíking-
ar elga möguleika á að komast upp að hllð
þelrra með sigrl á KR I Njarðvfk í kvöld.
C4
Um leikina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Magic"
og Jordan
beint á
Stöð 2?
VALTÝR Björn Vahtýsson, yfir-
maður iþróttadeildar Stöðvar
2, segir að verið sé að vinna í
þvi lijá Stöð 2 að hægt verði að
sýna beint frá leik Los Angeles
Lakers og Chicago Bulls í NBA-
deildinni sem fram fer í nótt.
En þar mætast sijöraumar Ear-
vin „Magic“ Johnson og Michael
Jordan.
„Við reynum allt sem við
getum til að fá leikinn og ger-
um okkur ágætar vonir um
það. Þetta er stórleikur og það
yrðl mikill fengur fyrir körfu-
boltaáhugamenn að fá að sjá
leikinn beint,“ sagði Valtýr.
Leikurinn hefst kl. 3.30 i nótt.
Dýr myndi
Hafliði allur
BREIÐABLIKSMÖNNUM
fannst gjaldið fyrir að leika í
gærkvöldi heldur mikið og sér-
staklega fannst þeim svokallað
heimaleikjagjald KKÍ hafa
hækkað frá síðasta heimaleik.
Þá greiddi Breiðablik 9.000
krónur en að þessu sinni 20.000
sem mun stafa af vanmati KKÍ
á kostnaði við dómara. Annar
dómarinn dæmir fyrir Njarðvík
og honum greiddi Breiðablik
3.300 krónur vegna kostnaðar
við að komast á leikinn. Hinn
dómarinn dæmir fyrir Val og
honum varð að greiða 13.500
krónur þar sem han býr víst á
Reyðarfirði, en félagið þar heit-
ir einnig Valur. Breiðablik varð
því að greiða 36.800 krónur
áður en leikurinn hófst í gær.
Dýr myndi Hafiiði atiur.
Caiyun
bætti metið
KÍN VERSKA stúlkan Sun Cafy-
un bætti heimsmetið í stangar-
stökki innanhúss tvívegis á
móti í Þýskalandi á miðvikudag.
Hún bætti fyrst eigið met frá
þvi á sunnudag um einn sentí-
metra er hún stökk 4,22 metra,
en bætti það síðan aftur og
stökk 4,27 metra.
KÖRFUBOLTI: VIÐTAL VID KRISTIN ALBERTSSON KÖRFUKNATTLEIKSDÓMARA / C2