Morgunblaðið - 03.02.1996, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMAMMA
1996
■ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR
Heimsmeistari
i þolfimi a ls-^
landsmóti FSÍ
SPÆNSKA stúlkan Carmen Valderas kemur £ram
á íslandsmótinu í þolfimi sem haldið verður í Laugar-
dalshöll þann 3. mars næstkomandi. Carmen er
þrefaldur íslandsmeistari í þolfimi, vann kepni IAF
í Japan, FIG í París og ICAF í Bandaríkjunum 1995.
í lok keppninnar í Laugardalshöll mun Carmen
sýna æfingarnar sem færðu henni sigur á umrædd-
um mótum.
Þegar eru átta stúlkur skráðar til einstaklings-
keppninnar á íslandsmótinu en skráningarfrestur
rennur út 22. febrúar nk. Hátt í þtjátíu keppendur
verða í unglingaflokki, en unglingameistaramótið
fer fram sama dag, sunnudaginn 3. mars, kl. 15.30
en keppni fullorðinna um kvöldið.
HANDKNATTLEIKUR
Strákamir
stódu við
stóm orðin
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari
Erfiðir leikir
framundan
Islenska liðið átti ekki að tapa fyrir
Norðmönnum í fyrsta leik Lottó-
keppninnar í Hamar í fyrrakvöld, en
þeir lærðu af mistök-
Steinþór unum, sögðust ætla
Guðbjartsson að sigra Rúmena og
skrifar gerðu það í Hauga-
frá Haugasundi suncjj ; gærkvöldi.
Úrslitin urðu 24:23 við mikinn fögnuð
áhorfenda, einkum fjölmargra íslend-
inga, en staðan var 11:8 fyrir Rúm-
ena í hálfleik.
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálf-
ari, stillti upp sama byijunarliði og
gegn Norðmönnum, en byijunin var
afleit að þessu sinni. Strákarnir
gerðu aðeins þijú mörk í fyrstu níu
sóknum sínum og sóknamýting hálf-
leiksins var liðlega 33%, sem þykir
ekki gott hjá fullorðnum mönnum.
Sóknarleikurinn var afleitur í fyrri
hálfleik og fyrst og fremst voru það
sendingarnar sem rötuðu ekki rétta
leið. Hins vegar léku Rúmenar besta
hálfleik sinn til þessa.
Norsku dómararnir höfðu greini-
lega ekki áhyggjur af fiskveiðideilu
íslendinga og Norðmanna og verður
að segjast eins og er að þeir vom
hliðhollir íslendingum án þess þó að
dæma áberandi með þeim. Hins veg-
ar féllu vafaatriðin íslendingum í
skaut og Rúmenar voru ekki ánægð-
ir með tvær brottvísanir í byijun
seinni hálfleiks. íslendingar nýttu
sér liðsmuninn, jöfnuðu 13:13 þegar
um 25 mínútur voru til leiksloka og
náðu forystunni skömmu síðar. Eftir
það var leikurinn í járnum, strákarn-
ir náðu tveggja marka forystu en
Rúmenar jöfnuðu og komust yfir,
23:22, þegar fjórar og hálf mínúta
vom til leiksloka. Þá var einum
þeirra vikið af velli, Patrekur jafnaði
eftir gegnumbrot og Ólafur, sem var
kjörinn maður leiksins og var sér-
staklega verðlaunaður fyrir það,
gerði sigurmarkið á sama hátt. Rúm-
enar reyndu hvað þeir gátu til að
jafna en baráttan í vörn íslendinga
skilaði sínu.
Þetta var mjög köflóttur leikur
en strákarnir eiga hrós skilið fyrir
baráttuna og það að vera með 100%
sóknarnýtingu í fyrstu sjö sóknum
seinni hálfleiks. Hins vegar gerðu
þeir alltof mörg mistök, sem gengur
auðvitað ekki. Þá ber að geta þess
að Rúmenar em ekki með sterkt lið
í þessari keppni en þetta var besti
leikur þess í vikunni.
Ekki var allt með felldu fyrir leik,
þegar vaninn er að þjóðsöngvar
keppnisþjóða em leiknir. Fyrst hljóm-
aði sá íslenski og síðan var tilkynnt
í hátalarakerfínu að nú kæmi sá rúm-
enski. Ekkert gerðist, fyrr en aftur
var fljótlega tilkynnt að nú kæmi
rúmenski þjóðsöngurinn. Þegar enn
leið nokkur stund leiddist rúmensku
leikmönnunum þófið, hófu upp raust
sína og sungu þjóðsöng sinn, við
góðar undirtektir áhorfenda. Þetta
kom leikmönnum Rúmeníu greinilega
í gott skap því þeir byijuðu með
miklum látum í leiknum.
orbjörn Jensson landsliðsþjálf-
ari var ánægður með sigurinn
og ýmsa þætti í leik íslenska liðsins
en óánægður með fyrri hálfleik. „Ég
er ánægðastur með að við náðum
að snúa leiknum okkur í hag í seinni
hálfleik eftir ömurlegan fyrri hálf-
leik. Við spiluðum agaðra en áður,
spilið gekk betur, við náðum að
splundra vörn mótheijanna með
hraða og réttum ógnunum. Hins
vegar vorum við of ragir í fyrri
hálfleik og þá var eins og leikmenn-
irnir væru að vanda sig of mikið
við að gera það sem fyrir þá var
lagt. En í heildina var margt já-
kvætt við leikinn. Við höfðum í
fullu tré við mótheijana þegar við
klipptum einn út úr spilinu hjá
þeim. Það sló þá út af laginu en í
sjálfu sér var leikurinn ekki sér-
stakur.“
Sveiflurnar voru gríðarlega mikl-
ar í leiknum en Þorbjörn sagði að
liðsmenn hans hefðu vitað að þeir
gætu miklu betur en þeir sýndu í
fyrri hálfleik. „Það er mjög gott að
geta rifið sig upp úr því að spila
ömurlega í fyrri hálfleik og enda
sem sigurvegari."
íslendingar mæta Dönum í Voss
í dag en Danir komu á óvart í
gærkvöldi þegar þeir sigruðu Júgó-
slava. „Danir spiluðu ofboðslega
sterka vörn sem, með góðri mark-
vörslu, gaf þeim kost á mörgum
hraðaupphlaupum. Þetta ásamt
mjög sterkri og hreyfanlegri 6-0
vörn gerði gæfumuninn en auk
þessu eru Danir með mjög reynslu-
mikið lið. Við verðum að passa okk-
ur á að spila ekki upp í hendurnar
á þeim með því að skjóta of fljótt
því þá fáum við á okkur hraðaupp-
hlaup.“
Að margri mati eru Júgóslavar
með sterkasta liðið í keppninni en
þeir hafa ekki staðið undir vænting-
uni í tveimur síðustu leikjum. Is-
lendingar mæta þeim í Bergen á
morgun og sagði Þorbjörn að þeir
yrðu örugglega erfiðir eftir tvo tap-
leiki í röð, en þeir hvíla í dag. „Þeir
sýndu rosalega góðan leik gegn
Rúmenum -en ientu í basli gegn
Norðmönnum og töpuðu á eftir-
minnilegan hátt. Þeir sýndu sitt
rétta andlit í seinni hálfleik gegn
Dönum, þá var 3-2-1 vörn þeirra
mjög hreyfanleg. Við komum til
með að reyna að leysa upp í hornun-
um og tvístra vörninni ef þeir spila
3-2-1 en 6-0 vörn þeirra hefur ekki
gengið vel,“ sagði Þorbjörn.
Morgunblaðið/Kristján
Handbolti
gegn
eiturlyfjum
ÚRSLIT ALEIKIR í bikarkeppni
karla og kvenna í handknattleik
fara fram um næstu helgi, laug-
ardaginn 10. febrúar. Forráða-
menn handknattleikssambands
íslands og félaganna tveggja sem
leika til úrslita í karlaflokki, KA
og Víkings, hafa í hyggju að
leggja lið baráttunni gegn eitur-
lyfjanotkun og kalla verkefnið
Handbolti gegn eiturlyfjum.
Fundur var haldinn um málið í
gær, þó í tvennu lagi væri; á
skrifstofu Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna (SH) í Reykjavík
voru sunnanmenn en nyrðra, á
skrifstofu SH á Akureyri, voru
KA-menn, fulltrúi lögreglu og
bæjarins og var notast við full-
komið sjónvarpsfundakerfi SH.
Fyrirtækið hyggst einmitt
styrkja verkefnið ásamt Umferð-
arráði, sem er aðalstyrktaraðili
bikarkeppninnar í vetur.
Umræðuefni fundarins í gær
var handbolti gegn eiturlyfjum
og hvernig nota mætti umrædda
úrslitaleiki til að leggja barátt-
unni lið. Á myndinni eru, fjær
Julian Duranona og Alfreð Gísla-
son og nær sést í, frá vinstri,
KA-mennina Þorvald Þorvalds-
son og Stefán Gunnlaugsson,
Jakob Björnsson bæjarstjóra og
Ólaf Ásgeirsson, aðstoðaryfir-
lögregluþjón.
ísland - Rúmenía 24:23
Haugasund, Lottó-keppnin í handknattleik, föstudaginn 2. febrúar 1996i
Gangur leiksins: 2:0, 3:4, 5:4, 6:6, 7:8, 7:11, 8:11, 8:12, 9:13,13:13, 15:14,18:16,
20:18, 20:21, 21:21, 22:23, 24:23.
Mörk Isiands: Patrekur Jóhannesson 8/1, Óiafur Stefánsson 7, Bjarki Sigurðsson
4, Björgvin Björgvinsson 3, Sigurður Bjamason 1, Róbert Sighvatsson 1. Leo Örn
Þorleifsson, Dagur Sigurðsson, Jóhann Jóhannsson, Aron Kristjánsson.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 8 (þar af 3 tii mótheija). Bjarni Frostason
4 (þar af 2 til mótheija).
Utan vallar: 8 mín.
Mörk Rúmena: Dedu 5, Popovici 5, Pop 5/1, Iulian 5/1, Flarea 2, Paraianu 1.
Varin skot: Daniel Apostu 15/1 (þar af 8 til mótheija). Ianos Liviu 2.
Utan vallar: 10 mín.
Dómarar: Svein Olav Öie og Bjöm Högsnes frá Noregi.
Áhorfendur: 1.010.
Danmörk - Júgóslavía...........................................30:25
Staðan í keppninni er nú sem hér segir: Danmörk og Noregur eru með 4 stig, ís-
lendingar, Rúmenar og Júgóslavar 2 stig hver þjóð.
HANDKIMATTLEIKUR: ÍBV SIGRAÐIVÍKING í BOTNSLAGNUM / D4