Morgunblaðið - 04.02.1996, Page 1

Morgunblaðið - 04.02.1996, Page 1
TÆKNILEGAR HINDRANIRAINNFL UTNINGIAMERISKRA BILA - NÝJUNGAR Á SÍÐASTA ÁRI - SKYNRÆNN HÖGGDEYFIR - CADILLAC SMÍÐAÐUR AF OPEL - SUZUKIBALENO MEÐ ALDRIFI Sölumenn bifreiðaumboðanna annast útvegun lánsins á 15 mínútum GHmirhf DÓTTURFYRIRTÆKI fSLANDSBANKA BRESKI bílaframleiðand- inn TVR er ekki meðal Afsláttur af öryggisbúnaði ÞINGMENNIRNIR Rannveig Guðmundsdóttir, Kristín Ástgeirs- dóttir, Bryndís Hlöðversdóttir, Svanfríður Jónasdóttir og Petrína Baldursdóttir hafa lagt fram þingsályktunartillögu um afslátt af vörugjaldi af læsivörðum heml- um í bfla. Rannveig kveðst vonast til þess að geta mælt fyrir tillög- unni á næstu dögum sem hún seg- ir að feli í sér mikla forvörn í umferðaröryggismálum. Rannveig hefur að undanförnu aflað sér upplýsinga frá bílaum- boðunum um það hve stór hluti innfluttra bfla sé með ABS-hemla- læsivöm og líknarbelgjum. Önnur þingsályktunartillaga, um afslátt af vörugjaldi af líknarbelgjum, var lögð fram á Alþingi fyrir jól af tveimur þingmönnum Framsókn- arflokksins. í greinargerð með tillögunni segir m.a. að í nágrannalöndum okkar hafi augu manna beinst að því að mikilvægur þáttur í spam- aði í heilbrigðiskerfínu sé fólginn í öryggistækjum í bifreiðum. Norska stórþingið hafi ákveðið að breyta bifreiðagjöldum vorið 1994 með tilliti til öryggisatriða og gefa afslátt af gjöldum örygg- isbúnaðar, svo sem loftpúða, læsi- varinna hemla og hárra hemla- ljósa. Þar er afslátturinn af læsi- vörðum hemlum um 3.400 norsk- ar kr. „Með öryggisbúnaði af þessu tagi má í mörgum tilfellum afstýra sársauka og áföllum sem verða í slysum. Fyrir utan líkamstjónið er með þessum búnaði hægt að af- stýra mörgum tjónum á bílum sem verða vegna akstursaðstæðna hér- lendis. Þarna er verið að tala um umtalsverðar fjárhæðir en þó ekki mikið fé sem ríkið yrði af vegna þess að tekjur hins opinbera af öryggisbúnaði eru hverfandi. Það er svo lítið um þennan öryggisbún- að í bifreiðum. Með því að gefa afslátt myndast hvati til þess að fólk kaupi bifreiðar með þessum öryggisbúnaði. Núna er þetta stað- albúnaður í dýrustu bifreiðunum sem stærsti hópur þjóðarinnar kaupir ekki. Þetta er stórt forvarn- armál sem snýr að heilbrigðisþjón- ustunni í landinu," sagði Rann- veig. ■ þeirra stærstu í heiminum. Nýlega setti fyrirtækið þó á markað athyglisverðan sportbíl, Cerbera. Bíllinn er að öllu leyti smíðaður af TVR, einnig V-8 vélin. Vélin er 4,2 lítra að rúm- taki, með einum yfirliggj- andi knastás og 16 ventla tækni. En margt er með öðrum hætti en í hefð- bundnum V-8 vélum enda skilar vélin í Cerbera 380 hestöflum. Bfllinn er smíðaður úr trefjaefnum og er því létt- ari en ella. Tvö lítil aftur- sæti eru i bílnum en hér er fyret og fremst sportbíll á ferðinni sem kostar um 3,7 milljónir ÍSK. TVR Cerbera minnir ei- lítið á Dodge Viper í ytra útliti en allur búnaður er smíðaður af TVR en ekki sóttur til alþjóðlegra birgja. Eftirtektarvert er að engir húnar eru á hurðunum. Undir hliðarspeglunum er hnappur. Sé þrýst á hann opnast hurðin. Mælaborðið er Iíka æði séretakt. Það er II stokk undir stýrinu. Mælar eru hvítir en á miðjum stokkinum eru tveir hnapp- ar, svartur og rauður. Sé þrýst á svarta hnappinn er vélin ræst en drepið er á henni með því að þrýsta á rauða hnappinn. Sé þrýst ; létt á svarta hnappinn er kveikt á rafkerfí bflsins. ■ Intermotora Kveikjuhlutir StiHinn bílahornið \CXfl WlillllllU varahlutaverslun Hafnarfiardar SKEIFUNN111 • SlMI:5889797 ReyKjavlkurvegl 50 • SlMI: 555 1019

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.