Morgunblaðið - 06.02.1996, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Einar Falur
KARL Gauti Hjaltason, fulltrúi sýslumannsins á Selfossi, ræðir við hjónin Björgvin Ármannsson lengst til vinstri og Hrönn Bergþórs-
dóttur í eldhúsinu á Hvoli I í gærmorgun þegar hann kom þangað í fylgd lögreglumanna til að framfylgja hæstaréttardómi um að
, bera ábúendur jarðarinnar út.
Fjölskyldan á Hvoli
í Ölfusi borin út
BJÖRGVIN Ármannsson loðdýra-
bóndi, ábúandi á ríkisjörðinni Hvoli
I í Ölfusi, var í gærmorgun borinn
út af jörðinni ásamt fjölskyldu
sinni. Útburðurinn byggir á dómi
Hæstaréttar um að Björgvini beri
að víkja af jörðinni, en Hæstiréttur
staðfesti dóm Héraðsdóms í máli
sem jarðadeild ríkisins höfðaði
gegn Björgvini eftir að jörðin hafði
verið seld öðrum. Sambærilegt mál
kom upp varðandi jörðina Kvisti í
Ölfusi í desember siðastliðnum, en
Ragnar Böðvarsson, ábúandi þar,
yfirgaf jörðina án þess að til út-
burðar kæmi.
Um 40 sveitungar og fjölskyldu-
vinir voru viðstaddir og mótmæltu
aðgerðum yfirvalda þegar fulltrúi
sýslumannsins á Selfossi framfylgdi
útbur.ðarkröfunni, en ekki kom til
neinna átaka.
Eftir að Karl Gauti Hjaltason,
fulltrúi sýslumanns, hafði lesið
dómsúrskurð Hæstaréttar um að
Björgvin skyldi borinn út af jörðinni
fylgdu lögreglumenn hveijum og
einum viðstaddra út úr húsi en síð-
ast fór heimilisfólkið að Hvoli I.
Vildi kaupa eignirnar
Björgvin Ármannsson og fjöl-
skylda hófu loðdýrabúskap á Hvoli
I árið 1985. Eftir erfiðleikatímabil
í búgreininni sagði hann upp ábúð-
inni árið 1993 tii þess að eignir
hans yrðu keyptar í samræmi við
ákvæði ábúðarlaga, en þegar verð
á loðskinnum fór hækkandi á nýjan
leik óskaði hann eftir að fá að kaupa
aftur eignirnar.
„Ég vissi ekki annað en viðræður
um það væru í gangi milii lögfræð-
ings míns og lögfræðings landbún-
aðarráðuneytisins þegar jörðin var
boðin út á frjálsum markaði. Ég
bauð í og átti hæsta tilboð, en því
var hafnað og jörðin boðin út aftur.
Ég bauð aftur og átti hæsta tilboð
en því var aftur hafnað og næst-
hæsta tilboði tekið,“ sagði Björgvin
í samtali við Morgunblaðið.
Rukkaður um jarðarafgjald
Hann sagðist hafa verið rukkað-
ur um jarðarafgjald fyrir far-
dagaárið 1994-95 og síðan aftur
fyrir fardagaárið 1995-96 sem
hann hefði í bæði skiptin greitt.
Samkvæmt því hefði hann ábúð á
jörðinni til fardaga í byijun júní
næstkomandi.
„í barnaskap mínum hélt ég að
með þessu væri verið að endurnýja
ábúðina, en síðan ráku þeir mig út
eftir að sala á jörðinni hafði farið
fram. Ég sagðist ekki fara þar sem
ég væri búinn að greiða jarðaraf-
gjaldið. Þá fóru þeir í útburðarmál
við mig og dómari gaf sér í útburð-
armálinu að það hafi verið mistök
að rukka mig og að gjaldið hafi
verið endurgreitt, sem er hrein og
klár lygi og ekkert í dómsskjölum
um það.
Þetta er nú eiginlega ástæða þess
að ég læt málið ganga svona langt
að fara í útburð. Ég er með þessu
að vekja athygli á því hvað einstakl-
ingurinn má sín lítils gagnvart ríkis-
valdinu og að þýlyndir dómarar
gefa sér forsendur til að geta dæmt
herranum í vil,“ sagði Björgvin.
Fjölskyldan á Hvoli I hefur feng-
ið bráðabirgðahúsnæði í Hvera-
gerði, en húsaskjól fyrir refi sína
hefur Björgin fengið að Kirkjufetju-
hjáleigu í Olfusi til næstu áramóta.
Albert GK
forðaði
flutninga-
skipi frá
strandi
ÁHÖFN loðnuskipsins Alberts
GK-31 tókst að koma í veg fyr-
ir að 7.000 tonna japanskt flutn-
ingskip strándaði í Eskifírði í
illviðri í fyrrinótt. Suðaustan
8-10 vindstig voru á Eskifirði í
fyrrinótt og tókst skipstjóranum
ekki að snúa skipinu inni í höfn-
inni og rak það að landi.
Haft var samband við skipið
úr landi og óskaði skipstjórinn
þá eftir aðstoð. Albert GK-31 lá
við bryggju á Eskifirði.
„Hann réð ekkert við skipið
héma inni og var að þvælast
inni í höfninni fram og til baka.
Hann hefði endað uppi í fjöru
ef enginn hefði hjálpað honum,“
sagði Sævar Þórarinsson, skip-
stjóri á Albert, sem sigldi að
japanska skipinu, henti kastlínu
yfir og dró til sín taug frá skip-
inu. „Síðan drógum við hann
þannig að hann gæti keyrt út
úr firðinum," sagði Sævar.
Sævar sagði að vel hefði
gengið að draga skipið frá. „En
um leið og við vorum búnir að
ná honum upp í fór hann að
keyra út og gleymdi að við vær-
um með hann í togi.“ Sævar
sagðist hafa kallað á skipstjór-
ann og beðið hann að sleppa
tauginni en þá hefði honum á
móti verið sagt að sleppa sjálfur.
Skipin rákust saman
„Við gátum ekki sleppt nema
að skera á taugina." Albert hafði
legið utan á skipinu en þegar
skorið var á taugina „skröngluð-
umst við aftur eftir síðunni á
honum og undir hann 'að aftan
og skemmdum nótarennuna og
rekkverk og bakkann að fram-
an“, sagði Sævar.
Skipin lágu bæði úti á Eski-
firði þar til lægði en í gær var
unnið að viðgerðum á Albert á
Eskifirði. Sævar kvaðst búast
við að halda til veiða á ný í
gærkvöldi.
Hann sagði að menn sem
hann hefði rætt við á Eskifirði
myndu ekki til þess að japanska
skipið hefði komið þangað áður
en erindi þess var að sækja
frysta loðnu sem selja á á Jap-
ansmarkaði.
Aðspurður hvort krafist yrði
björgunarlauna vegna aðstoð-
arinnar, sagði Sævar að það
mál yrði athugað.
Andlát
GÍSLIÁGÚST
GUNNLAUGSSON
Dr. Gísli Ágúst Gunn-
laugsson sagnfræðing-
ur lést að heimili sínu
í Hafnarfirði á laugar-
dag eftir langvinn veik-
indi, 42 ára að aldri.
Gísli var fæddur í
Reykjavík 6. júní 1953,
sonur Sigrúnar Ingi-
bjargar Gísladóttur og
Gunnlaugs Rafns Þor-
finnsonar.
Gísli lauk stúdents-
prófi frá M.T. 1973,
B.A. Honours prófi í
sagnfræði og bók-
menntum frá East
Anglia háskólanum í
Norwich, Englandi 1976. Hann varð
cand. mag. í sagnfræði við Háskóla
íslands 1979 og varði doktorsrit-
gerð við Uppsalaháskóla 1988 um
þróun fjölskyldu- og heimilisgerða
á íslandi 1801-1930.
Gísli fékkst við
kennslu og fræðistörf
og var dósent við Há-
skóla íslands er hann
lést. Eftir Gísla liggur
fjöldi ritverka og rit-
gerða á sviði sagn-
fræði. Hann var þekkt-
ur og virtur meðal er-
lendra fræðimanna,
birti fjölda ritverka á
erlendum málum og var
afkastamikill fyrirlesari
á alþjóðlegum ráðstefn-
um. Gísli var um skeið
formaður Sagnfræð-
ingafélags íslands og
ritstjóri Sögu, tímarits Sögufélags-
ins.
Gísli var giftur Berglindi Ásgeir.s-
dóttur og eiga þau þijú börn, Ás-
geir, Sigrúnu Ingibjörgu og Sæunni.
Árekstur á einbreiðri brú í Víðidal í V-Húnavatnssýslu
Fjónr slösuðust og bílarnir
gj örey ðilögðust
Blönduósi. Morgunblaðið.
HARÐUR árekstur tveggja fólks-
bíla varð á brúnni yfir Melrakka-
dalsá í Vestur-Húnavatnssýslu kl.
18.30 á sunnudaginn. Tveir fólks-
bílar, Toyota og Subaru, skullu
saman við annan enda brúarinnar
yfir ána, sem oftast er nefnd Dalsá.
Tvennt var i hvorum bíl og slösuð-
ust allir. Samkvæmt upplýsingum
lækna á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
voru allir fjórir lagðir inn til að-
hlynningar. Þrír meiddust lítið, en
kona, sem slasaðist mest, var lögð
á gjörgæsludeild með áverka á
kvið og hálsi. Líðan hennar í gær
var sögð ágæt eftir atvikum.
Tvær akreinar liggja að brúnni,
en hún þrengist í eina. Lögreglan
á Blönduósi kallaði til þyrlu Land-
helgisgæslunnar, TF-LÍF, sem
flutti fólkið til Reykjavíkur.
Norðurlandsvegur var lokaður í
um tvo tíma og mynduðust langar
bílaraðir beggja vegna brúar. Að
sögn lögreglunnar í Húnavatns-
sýslu var mikil hálka þegar slysið
átti sér stað, en veður var bjart
og skyggni gott. Báðar bifreiðarn-
ar gjöreyðilögðust við áreksturinn.
Bæta þarf merkingar við
brýrnar
Þetta er í fimmta sinn á sex
vikum sem árekstur verður á
einbreiðum brúm í sýslunni og
hafa átta bifreiðar eyðilagst í þess-
um árekstrum, en meiðsli á fólki
ekki verið mikil. Fimm brýr eru
einbreiðar á milli Brúar í Hrúta-
firði og Blönduóss og sagði Kristó-
fer Sæmundsson, lögreglumaður á
Blönduósi, að ljóst væri að bæta
þyrfti merkingar við þessar brýr í
ljósi atburða að undanförnu.
Þorvaldur Böðvarsson,
rekstrarstjóri Vegagerðar ríkisins
á Blönduósi, sagði að nýlega hefðu
merkingar við brýrnar verið bætt-
ar og fyrir skömmu hefði enn ver-
ið bætt um betur. Vandséð væri
því hvernig koma mætti í veg fyr-
ii’ slys af þessu tagi, ef sú lausn
væri undanskilin að breikka
brýrnar. Góðir, steyptir vegir
lægju að brúnum og því mætti
e.t.v. rekja einhver slysanna til
hraðaksturs.