Morgunblaðið - 06.02.1996, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1996 19
ERLEIMT
Mannskæður jarðskjálfti í suðvesturhluta Kína
250 manns látin
000 slösuð
■t e* ,ÍS í 1
Reuter
ISRUÐNINGUR á ströndum Michigan-vatns við Chicago á sunnu-
dag en um morguninn var frostið 26 stig á celsius í borginni. Víða
á austurströndinni var einnig mikið frost og jafnfallinn snjór var
61 sentimetri sums staðar í Delaware, Maryland og Virginíu.
Miklir kuldar enn í Bandaríkjunum
Reynt að bjarga
ávaxtaupp-
skeru í Flórída
og 15
Peking. Reuter.
250 MANNS að minnsta kosti létu
lífið og 15 þúsund slösuðust, þar af
3.800 alvarlega, þegar mikill jarð-
skjálfti reið yfir fjallasvæði í Yunnan-
héraði í suðvesturhluta Kína á laug-
ardag og varð bærinn Lijiang verst
úti. Mörg hundruð þúsund manns
misstu heimili sín og íbúar svæðisins
eru enn skelfíngu lostnir vegna stöð-
ugra minni skjálfta, sem hafa siglt
í kjölfarið og valdið tjóni á mann-
virkjum, þótt fólk hafi sloppið. Alls
höfðu 312 eftirskjálftar mælst síð-
degis í gær.
Skjálftinn á laugardag mældist sjö
á Richter-kvarða og er talið að 186
þúsund heimili hafí hrunið. Það er
um 80% húsa á svæðinu. Heilu þorp-
in jöfnuðust við jörðu og haft var
eftir yfirvöldum að þeir, sem enn
ættu uppistandandi hús, væru of
hræddir til að fara inn í þau.
Mikið björgunarstarf
Yfirvöld í Yunnan-héraði unnu við
að koma hjálpargögnum, teppum,
tjöldum og lyíjum til þeirra, sem
misstu heimili sín. Mikil áhersla er
lögð á að grafa þá, sem fórust, og
dauðar skepnur til að afstýra smit-
hættu og koma í veg fyrir að sjúk-
dómar breiðist út.
Rauði krossinn í Kína skoraði á
Mariano Roque Alonso. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 22 menn biðu
bana þegar flutningavél hrapaði á
hús í bænum Mariano Roque Alonso
í Paraguay á sunnudag. Flest fórnar-
lambanna voru börn og unglingar
sem voru að leik bak við eitt húsanna.
Flugvélin var af gerðinni DC-8,
smíðuð árið 1965, og í eigu kólumb-
íska flugfélagsins Lineas Aereas del
Caribe. Vélin hrapaði mínútu eftir
flugtak og ekki er vitað um orsakir
slyssins. Sjónarvottur kvaðst hafa séð
einn hreyflanna springa áður en vélin
Talið er að
186.000 heimili
hafi hrunið
Flest fórnarlamb-
anna börn og
unglingar
hrapaði á Mariano Roque Alonso, um
17 km frá höfuðborginni, Asunción.
Óttast er að flugritanum, sem gæti
skýrt orsakir slyssins, hafi verið stolið.
Mörg fórnarlambanna voru börn
og unglingar sem léku blak á slys-
staðnum. Margir vinir og ættingjar
þjóðir heims að leggja sitt að mörkum
til að hjálpa fórnarlömbum skjálft-
ans. Yfirvöld í Hong Kong kváðust
mundu gefa 66 milljónir króna og
senda féð hjálparstofnunum. Einnig
barst aðstoð frá Taiwan, en björgun-
armenn sögðu að miklu meiri hjálpar
væri þörf.
„Þetta er versti skjálfti, sem við
höfum orðið fyrir,“ sagði hjálpar-
starfsmaður í gær.
„Þetta var skelfilegt," sagði emb-
ættismaður í Lijiang. „Jörðin heldur
áfram að skjálfa og skjálfa. Hvenær
hættir þetta?“
Kalt á jarðskjálftasvæði
Rúmlega tvö þúsund hermenn úr
Rauða hemum og lögregluþjónar
unnu við björgunarstarf í afskekkt-
um fjallaþorpum á svæðinu og var
óttast að jafnvel hefðu 300 manns
farist. Óvenju kalt var á jarðskjálfta-
svæðinu um helgina og náði frostið
12 stigum að næturlagi.
Þetta var mannskæðasti skjálfti í
Kína frá því að 939 manns létust í
jarðskjálfta, sem mældist 7,6 á
Richter, í Yunnan skammt frá landa-
mærum Burma árið 1988.
44 létust í jarðskjálfta, sem átti
upptök skammt frá Kunming, höf-
uðborg Yunnan, í október.
þeirra fylgdust með leiknum og urðu
vitni að slysinu.
Þriggja manna áhöfn og einn far-
þegi biðu einnig bana. Tveimur mönn-
um var bjargað úr rústunum. 22 lík
höfðu fundist í fyrrakvöld og talið var
að fleiri kynnu að fínnast á slysstaðn-
um. Fresta varð leitinni i fyrrinótt
meðan beðið var eftir stórum krana
sem björgunarsveitimar þurftu til að
lyfta hluta flugvélarinnar af einu
húsanna. í því var bar og talið er að
nokkrir menn hafí verið á honum.
Washington, Miami. Reuter.
KULDAKASTIÐ í Bandaríkjunum
breiddist út til suðlægra fylkja í
austur- og miðhluta landsins á
sunnudag og í gær en víða fór að
draga úr hörkunni og spáð var mun
mildara veðri er liði á vikuna.
Ávaxtabændur í Flórída voru þó
mjög uggandi í gær þar sem spáð
var allt að fjögurra gráðu frosti á
celsíus og gæti það varað nokkrar
kiukkustundir.
Ávextir á borð við appelsínur og
sítrónur þola ekki slíkt veðurfar en
helmingur uppskerunnar var enn á
trjánum er kuldakastið hófst. Hóf-
ust því bændur handa við bjarga
uppskerunni, sumir reyndu að úða
vatni yfir ávextina í von um að
klakahúð myndi veita einhverja
vernd.
Víða varð rafmagnslaust í Suður-
Karólínu og í Norður-Karólínu voru
vandræðin svo mikil að fylkisstjór-
inn, Jim Hunt, bað Bill Clinton for-
seta um að lýsa yfir neyðarástandi
þar. Hafin var neyðaraðstoð á 32
stöðum, oftast í kirkjum, bókasöfn-
um og á slökkviliðsstöðvum, á
svæðinu handa fólki sem ekki gat
hafst við heima hjá sér.
í miðvesturríkjunum fór frostið
niður fyrir 50 gráður á celsíus fyrir
helgina. Morgunblaðið ræddi í gær
við Kristin Garðarsson sem stundar
nám í St. Paul í Minnesota. Hann
sagði að 20 til 25 stiga frost væri
algengt á þessum slóðum yfir há-
veturinn, einkum í janúar og febr-
úar. „Hjá okkur fór þetta núna í
35 stig að næturlagi, rétt fyrir norð-
an fór það niður fyrir 40 stig. Yfir-
leitt er heldur hlýrra í borgunum
en sveitahéruðunum.
Það er mjög vel kynt hérna á
stúdentagarðinum þar sem við bú-
um en þetta er misjafnt eftir því
hvar á görðunum fólk er. Það er
sentimetra þykkt klakalag neðst á
gluggunum þó að þeir séu með tvö-
földu gleri, það dugar ekki til. Fólki
sem býr í gömlum húsum verður
ansi kalt. Hjá nágrönnum okkar fór
hitinn niður í 14 stig um hánóttina.
Það er sérstök tilfinning að fara
út, maður finnur það nærri því með
nefinu hvort frostið er komið undir
20 stig.
Bíllinn okkar hætti að fara í gang
þegar frostið varð 25 stig en ann-
ars er mikið um rafbúnað á bíla-
stæðum til að halda mótorunum
heitum. Menn eru vanir kulda hér
og kunna að fást við hann en þetta
er óvenju mikið og mörg slys hafa
orðið.“ Kristinn sagði að mikið
væri fjallað um veðrið í fjölmiðlum
og einkum væri fólk minnt á áhrif
vindkælingar.
Spáð 18 stiga hita í Tuscaloosa
Pétur Guðmundsson kúluvarpari
stundar æfingar í háskólabænum
Tuscaloosa í Alabama. „Frostið fór
niður í 19 stig á celsíus hér. Það
snjóaði einu sinni en þetta var aðal-
lega frostrigning, klakinn settist á
allt og hér varð neyðarástand. Hér
er enn allt lokað, flestar stofnanir
eins og bankar, barnaheimili og
veitingastaðir, háskólinn líka og
lögreglan lokaði öllum götum í
borginni um stund. Vésteinn Haf-
steinsson kringlukastari, sem var
hér í háskólanámi og vann við þjálf-
un í mörg ár, segist aldrei muna
eftir svona veðri hér.“
Pétur sagði að kynding væri léleg
í flestum húsum, alls staðar einfalt
gler og einangrun öll mjög lítil.
Fólk yrði að láta vatnið renna svo
að ekki frysi í leiðslum. Margir ótt-
uðust rafmagnsleysi og fólk hefði
byijað að hamstra í matvöruversl-
unum. „En það hefur verið sólbráð
núna síðustu dagana og búið að
opna helstu götur aftur. í vikulok
á að vera kominn 18 stiga hiti á
celsíus".
HRJÁÐIR íbúar i Yunnan-héraði í Kína halda á sér hita eftir að heimili þeirra
eyðilögðust í hörðum jarðskjálfta á laugardag.
Flugvél hrapar á hás í Paraguay
lílii
eiriri m
cisgqSystems
CISCO er mest seldi netbúnaður
í heiminum í dag.
CISCO fyrir Samnetið / ISDN,
Internetið og allar nettengingar.
Hátækni til framfara
Tæknival
Skeifunni 17 • Simi 568-1665 • Fax 568-0664