Morgunblaðið - 06.02.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1996 35
í dag kveðjum við hjartkæra vin-
konu okkar hana Raggý, sem svo
skyndilega og óvænt er farin frá
okkur.
Vinskapur okkar hófst haustið
1955 er við settumst saman á skóla-
bekk í Miðbæjarskólanum og hefur
staðið óslitið til þessa dags.
Að skyldunámi loknu lágu leiðir
okkar í ýmsar áttir en vináttan
hélst þó söm og böndin voru treyst
þegar við stofnuðum saumaklúbb.
Á þeim tíma vorum við allar að
koma okkur upp eigin heimilum og
eignast börnin og fylgdumst við af
af áhuga með uppvexti og þroska
þeirra allra.
Raggý var gædd einstökum eðlis-
kostum. Hún var alltaf glöð og já-
kvæð og það sem hún tók sér fyrir
hendur á hverjum tíma átti huga
hennar allan og var gert af brenn-
andi áhuga og ánægju, hvort sem
um var að ræða nám eða starf. Hún
ljómaði af hreysti og vakti hvar-
vetna athygli fyrir glæsileika sinn
og háttvísi. Við dáðumst oft að
því, hve áhugasöm hún var um að
afla sér sífellt meiri menntunar
þrátt fyrir störf sín á stóru heimili.
Sem dæmi um dugnað hennar, tók
hún stúdentspróf frá Menntaskól-
anum við Hamrahlíð um leið og
eldri dóttir hennar, Inga Lára. Síðar
lauk hún sjúkraliðanámi og starfaði
á vökudeild Landspítalans jafn-
framt því sem hún stundaði nám í
Fósturskóla íslands á síðustu miss-
erum.
Við kveðjum Raggý með sorg í
hjarta og þökkum henni fyrir allt
sem hún var okkur og gaf okkur.
Nú nkir kyrrð í djúpum dal
þótt duni foss í gljúfrasal.
I hreiðrum fuglar hvíla rótt,
þeir hafa boðið góða nótt.
Nú saman leggja blómin blöð
er breiddu faðm mót sólu glöð.
I brekkum §alla hvíla hljótt,
þau hafa boðið góða nótt.
Nú hverfur sól við segulskaut
og signir geisli hæð og laut,
en aftanskinið hverfur hljótt,
það hefur boðið góða nótt.
(Magnús Gíslason.)
Við biðjum guð að varðveita fjöl-
skyldu hennar og sendum Hauki,
börnum, tengdabörnum og barna-
börnum innilegar samúðarkveðjur.
Ásta, Dóra, Margrét, Ólafía
Eva, Sveingerður og Unnur.
Ragnhildur var ein þeirra 36
nemenda sem hófu fjarnám við
Fósturskóla íslands í ágúst 1993.
Þama var saman kominn hópur sem
tilbúinn var að leggja mikið á sig
til að mennta sig. Ragnhildur var
sjúkraliði að mennt og vann með
náminu á Vökudeild Landspítalans.
Þar hlúði hún að þeim börnum sem
koma.í þennan heim of snemma.
Uppeldi og framtíð þessara og ann-
ara barna var henni hugleikin, því
lá leið hennar hingað til okkar.
Hún var um margt eftirminnileg-
ur nemandi. Verkefni þau sem hún
leysti af hendi á námsferlinum báru
vandvirkni, hlýju og metnaði henn-
ar glöggt vitni.
Framlag hennar í verknámi í leik-
skólum sýndi að mikils mátti vænta
af starfskröftum hennar þar.
Fpegnin um fráfall Ragnhildar kom
eins og reiðarslag. Hún lauk náms-
lotu hér í skólanum ásamt skóla-
systrum sínum föstudaginn 26. jan-
úar sl. og andaðist degi síðar. Það
er stórt skarð höggvið í hópinn með
ótímabæru fráfalli hennar. Minn-
ingin um Ragnhildi lifir og vottum
við eiginmanni, börnum og barna-
börnum hennar okkar dýpstu sam-
úð.
Sá einn er skáld, sem skilur það og fann,
að skaparinn á leikfóng eins og hann
og safnar þeim í gamalt gullaskrín
og gleður með þeím litlu bömin sín.
(Davíð Stef.)
Kennarar og annað starfsfólk
Fósturskóla íslands.
• Fleiri minningargreinar um
Ragnhildi Aronsdóttur bíða birt-
ingar ogmunu birtast í blaðinu
næstu daga.
HELGA SIGUR-
BJÖRNSDÓTTIR
+ Helga Sigur-
björnsdóttir
fæddist á Jörfa í
Haukadal í Dala-
sýslu 9. október
1907. Hún lést á
dvalar- og hjúkrun-
arheimilinu Selja-
hlíð 26. janúar sið-
astliðinn. Foreldr-
ar hennar voru
Lilja Kristín Árna-
dóttir frá Jörfa í
Haukadal og Sigur-
björn Guðmunds-
son bóndi í Kirkju-
skógi í Miðdölum,
síðar í Reykjavík. Helga var
elst systkina sinna en þau eru:
Ólöf Kristbjörg, f. 1910, d. 1946;
Jóhann, f. 1911, d. 1973; Hild-
ur, f. 1914, býr í Reykjavík;
Ólafía Sigurveig, f. 1916, býr í
Randaríkjunum; Svava, f. 1918,
d. 1987; Finnur, f. 1921, d. 1982,
og Pálmi Steinar, f. 1931, stýri-
maður, býr í Reykjavík.
Helga giftist árið 1933
Valdemar Ólafi
Kristjánssyni frá
Kárastöðum í Þing-
vallasveit, d. 1981.
Þau eignuðust tvo
syni. Þeir eru Krist-
ján Grétar, kvænt-
ur Olgu Ragnars-
dóttur, þau eiga
fjögur börn og átta
barnabörn, og Sig-
urbjörn, kvæntur
Ólafíu Hrönn Ólafs-
dóttur, þau eiga
þijú börn og þrjú
barnabörn. Helga
og Valdemar áttu
heima allan sinn búskap í
Reykjavík, lengst af á Hlíðar-
enda við Laufásveg, Valsheim-
ilinu, eða í 23 ár, þar af 15 ár
sem húsverðir hjá Val. Síðar á
Austurbrún 6, þar lést Valde-
mar 1981. Helga bjó í Seljahlíð
síðustu tíu árin.
Útför Helgu fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Á ÞESSARI kveðjustund sækja á
huga minn minningar um margar
þær samverustundir sem ég átti
með Helgu tengdamóður minni.
Ég kynntist Helgu fyrst er ég
kom á heimili hennar þá er ég hafði
nýlokið húsmæðraskólanámi. Minn-
ist ég þess að mér leið eins og ég
væri komin í framhaldsnám, slík
var kunnáttan og myndarskapurinn
á öllu sem hún tók sér fyrir hendur
á sínu heimili, hvort heldur var um
að ræða matargerð, saumaskap eða
bamauppeldi, allt fórst henni svo
vel úr hendi svo að uppbyggjandi
var fyrir verðandi húsmóður að
kynnast.
Helga var einlæg, kristin og þjóð-
rækin manneskja sem hafði gaman
af öllum fróðleik um vora þjóð og
menningu. Hún hafði gaman af
kveðskap og ættfræði og var vel
að sér í þeim málum, enda hafði
hún sérstaklega gott minni.
Mér mun alltaf verða hugleikin
sú ást, kærleikur og umhyggja sem
þau hjónin Helga og Valdemar
■sýndu börnum okkar Krisjáns og
þá manngæsku og manngildi sem
þau kenndu þeim að hafa í heiðri.
Helga var mikill gestgjafi, hún
tók ætíð vel á móti gestum og eng-
inn mátti fara svo að ekki hefði
hann þegið veitingar.
Ég þakka fyrir það að hafa notið
samfylgdar og vináttu þessarar
góðu konu og kveð hana með virð-
ingu og þökk fyrir allt sem hún var
mér og megi hún hvíla í friði.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, sem fengu að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig.) ■
Olga Ragnarsdóttir.
Það voru ávallt jafn innilegar
móttökurnar hjá Helgu og Valda
þegar við heimsóttum þau í Austur-
brún. Sem börn að aldri er okkur
minnisstætt þéttingsfast handa-
band Valda og dýrindis veitingar
sem Helga bar á borð að ógleymd-
um skókassa fullum af bílum sem
heillaði annað okkar sennilega mest
á þessum árum.
Helga hafði sérstakan stað í hug-
um okkar. Hún var föðursystir okk-
ar en vegna aldursmunar pabba og
hennar var hún í raun honum sem
önnur móðir. í vissum skilningi var
hún því bæði frænka okkar og
amma.
Þegar við komumst til vits og
ára kynntumst við Helgu betur og
varð okkur þá ljóst hversu einstök
hún var. Hún fæddist inn í bænda-
samfélag sem hafði tekið litlum
breytingum í þúsund ár. Okkur
systkinunum var hún óneitanlega
tengiliður við horfna tíma og gaf
okkur innsýn í líf og störf fólks á
öndverðri öldinni.
Á æskuárum hennar hafði hún
ekkert val um hvaða framtíð hún
óskaði sér. Sautján ára gömul var
hún send í vist til Reykjavíkur því
að ekki var unnt að hafa börnin
lengur í foreldrahúsum en nauðsyn-
legt var. Hún var aldrei spurð hvort
hún vildi fara, aðrir kostir voru
ekki í boði. Helga var stálminnug
og þó að formleg skólaganga henn-
ar tetdi sennilega álíka marga daga
og árin sem við flest göngum í skóla
þá var hún betur lesin heldur en
margur sem getur veifað fallegum
prófskírteinum. Nýja testamentið
var kennslubók hennar í lestri og
minnumst við ekki annars en að
hún væri alltaf með bók við hönd-
ina. Hún var ekki síður handlagin
eins og listilega unnir útsaumar
hennar bera ljóslega með sér.
Helga var einstaklega víðsýn og
munum við sérstaklega hversu vel
hún gat lýst fjarlægum stöðum eins
og hún væri nýkomin þaðan. Hún
var óþrjótandi viskubrunnur um
ættfræði og það var því ekki tilvilj-
un að til hennar var leitað þegar
spurningar í þeim efnum vöknuðu.
Frásagnarhæfileikar hennar voru
svo einstakir að einfalt var að lifa
sig inn í sögusviðið. Fyrstu minn-
ingar hennar sem barns í torfbæ
foreldra sinna í Villingadal sitja
fast í hugum okkar sem eigum erf-
itt með að skilja aðbúnað fólks í
slíkum húsakynnum. Þegar rústir
bæjarins í Villingadal eru skoðaðar
í dag finnst okkur ótrúlegt að fólk
hafi nokkurn tíma búið þar, hvað
þá á þessari öld.
Helga var af þeirri kynslóð sem
þekkti skort betur en gnægð og var
sátt við það sem hún hafði. Nægju-
^smi hennar var aðdáunarverð þrátt
fyrir það að lífið hafi oft verið henni
erfitt.
Við sem eftir stöndum söknum
Helgu sárt, við vorum lánsöm að
þekkja hana og biðjum Guð að
blessa minningu hennar.
Halla Bergþóra Pálmadóttir,
Björn Steinar Pálmason.
Hún amma Helga okkar er dáin.
Fréttin um andlát hennar barst
okkur til Lúxemborgar föstudaginn
26. janúar.
Þegar tíðindin voru sögð yngstu
kynslóðinni voru viðbrögðin á þessa
leið: „Hún amma Helga, hún amma
sem var alltaf með bílana og kök-
urnar?“ Það voru góðar minningar
sem komu strax upp í hugann hjá
litlu drengjunum hennar
langömmu. Þegar við heimsóttum
ömmu í Seljahlíðina var hún alltaf
fljót.til að bjóða öllum af smákök-
um,* nammi og gosi. Þá var alltaf
gaman að fylgjast með litlum pjökk-
um þegar farið var að snúast í
kringum kommóðuskúffuna, sem
innihélt bílasafnið góða. Síðan var
brunað um í hjólastólnum fram og
aftur um herbergið.
Amma Helga var ávallt jákvæð
og þakklát fyrir það sem henni
veittist. Mætti þessháttar nægju-
semi og lífsviðhorf vera okkur af
yngri kynslóðunum til eftirbreytni.
Það var gaman að spjalla við hana
um heima og geima og hún sýndi
litlu strákunum sínum sérstakan
áhuga og hafði unun af því að
hlusta á þá syngja fyrir sig eða
segja frá.
Fyrir okkur barnabörnin eru
minningarnar um ömmu Helgu enn-
þá ljóslifandi frá Austurbrúninni,
þar sem hún bjó til margra ára.
Þar annaðist hún Valdemar afa af
mikilli elju og ósérhlífni. Alltaf var
spennandi að koma í heimsókn og
sjá yfír borgina sem breiddi úr sér
fyrir neðan og þá sérstaklega útsýn-
ið sem skapaðist yfir Laugardals-
völlinn. Fótboltinn var líka eðlilegur
hluti af tilverunni hjá ömmu og afa
á Austurbrún. Gamla myndin frá
Valsheimilinu að Hlíðarenda var
kannski helsti minnisvarðinn fyrir
húsvarðartímabilið þeirra og oftar
en ekki gátum við gleymt okkur
við að horfa á myndina. Stundum
gat myndin lifnað við og orðið
ímynd fyrir það fjör og kapp sem
einkennir íþróttirnar. En einmitt að
baki slíkum glansmyndum voru
unnin mörg handtökin sem oftast
ber minna á. Þar lagði hún amma
Helga sín lóð á vogarskálarnar.
Við eigum öll eftir að sakna
hennar ömmu okkar, en trúum að
hún sé komin til afa og líði vel.
Blessuð sé minning hennar.
Benedikt, Guðrún,
Björn Andri og Atli Steinn.
4>
Við eigum margar yndislegar
minningar um hana ömmu í Austó,
eins og við systkinin kölluðum hana
alltaf. Það var alltaf svo notalegt
að koma í heimsókn á Austurbrún
til ömmu og afa því þar ríkti svo
mikil hlýja og ást. Amma setti allt-
af upp svuntu og galdraði fram
veisluborð með kökum og súkkulaði
að ógleymdum pönnukökunum, því
að enginn kunni að baka pönnukök-
ur eins og amma.
Það var ýmislegt gert sér til
dundurs hjá ömmu og afa, þau
kunnu ógrynni öll af sögum, vísum
og gátum. Amma og afi höfðu líka
gaman af að spila á spil og var þá
einna helst spilað maríus eða svarti-
pétur og gátum við spilað tímunum
saman.
Ófáar ferðirnar voru farnar með
ömmu niður í Laugardal en þangað
hafði amma svo gaman af að koma
á sumrin til að sitja í sólinni og
skoða blómin, því miður komst afi
ekki með okkur því hann var rúm-
fastur í 9 ár eða þangað til að hann
dó árið 1981. En afa var oft færður
lítill blómavöndur sem tíndur var í
holtinu á leiðinni heim.
Hún amma hugsaði alltaf svo vel
um hann afa og hjúkraði honum
af alúð og í þau fáu skipti sem hún
brá sér frá var hún alltaf með hug-
ann hjá honum.
Elsku amma, það er svo margs
að minnast og við hugsum með
þakklæti til allra þeirra góðu stunda
sem við áttum saman, sem aldrei
munu gleymast. Þið munið alltaf
eiga vissan stað í hjarta okkar eins
og við áttum í ykkar.
Nú eru afi og amma saman á
ný og við biðjum guð að geyma þau.
Hvenær sem kallið kemur
kaupir sig enginn frí
þar læt ég nótt sem nemur,
neitt skal ei kvíða þvi.
(Hallgr. Pét.)
Helga Gréta, Ragnar Marinó
og Ragnheiður Þórunn.
Elsku amma, okkur langar í
fáum orðum að þakka þér fyrir allt
sem þú hefur gert fyrir okkur í
gegnum tíðina. Það var alltaf jafn
gaman að koma til þín og afa á
Austurbrún 6 þar sem þið tókuð
alltaf jafn vel á móti okkur og eig-
um við góðar minningar þaðan.
Eftir að þú fluttist í Seljahlíð þar
sem þú varst mjög ánægð var gam-
an að koma og sjá alla þína fallegu
handavinnu. Við munum alltaf
geyma minninguna um þig í hjört-
um okkar.
Elsku amma, við vitum að þú ert
komin til afa þar sem þér líður vel.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,.
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem.)
Helga Hrönn og Margrét.
Þú, Guð, sem stýrir stjama her
og stjómar veöldinni,
í straumi lífsins stýr þú mér
með sterkri hendi þinni.
(V. Briem.)
Þessar línur valdi hún amma mér
úr sálmabók sem hún gaf mér í
jólagjöf. Þegar ég hugsa til baka
til þeirra stunda sem við amma
nutum saman, þá eiga þessi orð vel
við. Þær stundir kenndu mér margt
til að stýra betur í straumi lífsins.
Nú er hún amma dáin. Þegar sú
frétt barst mér yfir hafið átti ég
erfitt með að sætta mig við að ég
mundi aldrei sjá hana aftur. Það
var eitt af tilhlökkunarefnunum við
að koma heim til íslands að heim-
sækja ömmu. Ég veit að hún beið
eftir að sjá mig eftir langan aðskiln-’
að. Sorg mín hvarf fljótt þegar ég
hugsaði til þeirra stunda sem við
áttum saman, því ég veit hversu
lánsamur ég var að hafa átt svona
góða ömmu.
Ég varð eins og konungur í ríki
mínu þegar ég kom í heimsókn til
ömmu og afa. Hún amma drekraði
mig fram í fingurgóma, enda var
það mikið tilhlökkunarefni fyrir mig
að fá að sofa yfir helgi hjá ömmu
og afa. En með dekrinu kom líka
ótakmörkuð ást og umhyggja sem
fylgir mér til æviloka.
Amma var alltaf full af allskonar
visku. Hún sagði mér margar sögur
og las mér mörg ljóð. Fyrir konu
sem hafði aldrei komið út fyrir land-
steinana þá vissi hún heilmikið um
heiminn í kringum sig, þeirri visku
jós hún óspart yfir mig.
Hún var líka með eindæmum
dugleg kona. Hvað hún sá vel um
hann afa sem var rúmfastur síðustu
ár ævi sinnar. Amma með sinni
fyrirmynd kenndi mér margt. Ég
veit að ég er betri maður vegna
ömmu, það var ekki hægt annað
en að smitast af hennar endalausu
gæfu.
Stýr minni hönd að gjöra gott,
að gleði ég öðrum veiti,
svo breytni mín þess beri vott,
að bam þitt gott ég heiti.
(V. Briem)
Ég er afar þakklátur fyrir allar
þær stundir sem við amma áttum
saman. Ég á eftir að sakna hennar
mikið en ég veit að hún er nú í
faðmi afa.
Stýr mínu fari heilu heim
í höfn á friðarlandi,
þar mig í þinni gæslu geym,
ó, Guð minn allsvaldandi.
(V. Briem)
Valdemar Ólafur.
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffí-
hiaóborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í sima 5050 925
og 562 7575
FLUGLEIÐIR
HÉTEL LOFTLElDIR