Morgunblaðið - 06.02.1996, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1996 43
f-
1 Jarðfræðikort af
Heng’ilssvæðinu
NYLEGA voru gefín út tvö jarðfræði-
kort af Hengilsvæðinu, jarðhitakort
og berggrunnskort. Það eru Land-
| mælingar íslands í samvinnu við
j Hitaveitu Reykjavíkur og Orkustofn-
un sem standa að útgáfunni.
Jarðfræðikortlagning á Hengils-
svæðinu á sér langa sögu. Á sjöunda
áratugnum fékkst heildaryfirsýn á
jarðfræði þess þegar niðurstöður
rannsókna Kristján Sæmundssonar,
jarðfræðings á Orkustofnun, voru
birtar. Þráðurinn var tekinn upp aft-
ur á níunda áratugnum þegar Hita-
veita Reykjavíkur hóf lokaundirbún-
| ing undir virkjun Nesjavalla. Meðal'
margvíslegra rannsókna sem þá voru
gerðar var ný og yfirgripsmeiri jarð-
fræðikortalagning. Hún var unnin
af Kristjáni og samstarfsmönnum
hans á Orkustofnun.
Nesjavallasvæðið var kortlagt sér-
staklega og auk þess svæðin umhverf-
is Kolviðarhól og Ölkelduháls en Hita-
veitan á land og vinnslurétt jarðhita
á þessum svæðum. Svæðið fýrir ofan
Hveragerði var einnig kortlagt og
I allur jarðhiti þar. I framhaldi af þess-
ari vinnu ákváðu HR og OS að ljúka
kortalagningu alls Hengilssvæðisins
I og gefa kortin út í samstarfí við Land-
mælingar íslands.
Svæðið sem kortlagt var afmark-
ast af Mosfellsheiði í vestri og Kross-
fjöllum í suðri. Austuijaðarinn er við
Úlfljótsvatn og Ingólfsfjall en norð-
urmörkin eru dregin yfir Þingvalla-
vatn norðanvert. Um er að ræða tvær
gerðir korta, berggrunnskort og jarð-
hitakort. Berggrunnskortið rekur
myndunarsögu Hengilssvæðisins.
Þar koma fram eldvörp og sprungur
hinna ýmsu eldstöðvakerfa á svæð-
inu og bergmyndanir eru sundur-
greindar og settar í sögulega röð.
Jarðhitakortið setur hins vegar fram
upplýsingar um jarðhita á svæðinu,
hveri og laugar og útbreiðslu jarðhi-
taummyndunar. Einnig koma fram á
kortinu upplýsingar um lindir og
kalt grunnvatn og ölkeldur. Jarðhita-
kortið lýsir því í raun öllu vatnafari
Hengilsins.
Kortin eru unnin á tölvu Orku-
stofnunar og var notað landupplýs-
ingakerfið Arc/Info. Umsjón með
kortavinnslunni hafði Skúli Víkings-
son, jarðfræðingur á OS, og lauk
þeirri vinnu á síðasta ári. Jarðhita-
kortið var gefið út síðastliðið sumar
í mælikvarðanum 1:25.000 en berg-
grunnskortið kom úr prentun nú um
áramótin. Það kort er prentað í
mælikvarðanum 1:50.000. Prent-
smiðjan Oddi prentaði bæði kortin.
Kortin eru til almennrar sölu í korta-
verslun Landmælinga íslands,
Laugavegi 178.
Skattamál — nýlegir úrskurðir
i
i
stjórnvalda o g dómar
ÞANN 8. febrúar nk. kl. 16-19.30
verður haldin á vegum Endurmennt-
unarstofnunar kynning á nýjustu
úrskurðum yfirskattanefndar, ný-
legum álitsgerðum umboðsmanns
Alþingis á sviði skattamála og dóm-
ar sem fallið hafa á síðustu misser-
um. Leiðbeinandi verður Steinþór
Haraldsson, lögfræðingur ríkis-
skattstjóra. Nánari upplýsingar og
skráning eru hjá Endurmenntun-
arstofnun.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
SIGRÍÐUR Ingvadóttir afhenti söfnunarféð til styrktar misþroska
og ofvirkum börnum. Á myndinni eru f.v. Valgerður Baldursdótt-
ir, yfirlæknir barnageðdeildar Landspítalans og Matthías Krist-
ensen, formaður foreldrasamataka miþroska og ofvirkra barna.
Caritas styrkti mis-
þroska og ofvirk böm
SÍÐASTA aðventusöfnun Caritas
Islands var til styrktar misþroska
og ofvirkum börnum. Efnt var
til styrktartónleika í Kristkirkju
sl. nóvember þar sem lands-
þekktir listamenn koniu fram og
gáfu vinnu sína og var kirkjan
þéttskipuð. Caritas-sunnudagur-
inn var í byrjun desember og fór
söfnunin fram í öllum kaþólskum
kirkjum landsins. Söfnunin tókst
með miklum ágætum og alls söfn-
uðust 590.000 kr.
Við afhendinguna sagði Sig-
ríður Ingvarsdóttir, formaður
Caritas á íslandi: „Caritas þakk-
ar öllum þeim aðilum sem sýnt
hafa örlæti og skilning og ekki
síður listamönnum sem komu
fram á tónleikunum og lögðu til
vinnu og fyrirhöfn endurgjalds-
laust til þess að styrkja mis-
þroska og ofvirk börn. Fjármagn
til fræðslu og rannsókna er af
skornum skammti hérlendis. Það
er kostnaðarsamt að halda uppi
vörnum fyrir þessi börn með
fræðslu, hlú að fjölskyldum þessa
hóps barna og fyrirbyggja að
börnin lendi á blindgötum.
Eitt af meginverkefnum Carit-
as er að styðja við bakið á þeim
sem hafa farið góðra hluta á mis
í tilverunni. Það er því ósk Carit-
as á Islandi að söfnunarfénu
verði varið til að stuðla að
fræðslu og rannsóknum í þágu
ofvirkra barna.“
Fyrirlest-
ur um Leif
heppna
MIÐVIKUDAGINN 7. febrúar kl.
16.15 flytur Helgi Skúli Kjartans-
son dósent við Kennaraháskóla
íslands fyrirlestur á vegum Rann-
sóknarstofnunar Kennaraháskól-
ans. Fyrirlesturinn nefnist: Leifur
heppni — hvað þorum við að full-
yrða?
I frétt um fyrirlesturinn segir:
„Landkönnuðurinn Leifur Eiríks-
son er persóna sem með fullum
rétti er minnst fyrir þátt sinn í
næsta einstæðum landafundum.
En hver var Leifur (var hann t.d.
íslendingur?) og hver var þáttur
hans í landkönnun Vesturheims?
Um það er erfitt að vita með vissu
vegna þess hve heimildir eru tak-
markaðar og þjóðsagnakenndar,
enda hafa menn túlkað þær með
mjög ólíku móti. Þegar menn fjalla
um Leif, í sagnaritun, kennslu eða
t.d. í landkynningarskyni, er þeim
því nokkur vandi á höndum. í fyrir-
lestrinum verður lýst heimildum
um Leif og landkönnun hans og
leitast við að skýra hvað vitað er
um hann með nokkurri vissu, hvað
telja má líklegt, og hveiju hefur
verið haldið fram á vafasömum
grundvelli.“
Helgi Skúli Kjartansson sagn-
fræðingur er dósent við Kenn-
araháskóla íslands og kennir m.a.
íslenska miðaldarsögu. Hann hefur
unnið við mörg rannsóknar- og
útgáfuverkefni á sviði Islandssögu
og m.a. birt ritgerðir sem snerta
heimildargildi fornrita.
Fyrirlesturinn verður í stofu
M-301 í Kennaraháskóla íslands
og er öllum opinn.
I
I
1
I
I
í
f
í
1
Úr dagbók lögreglunnar
32 gistu fanga-
geymslurnar
UM HELGINA þurfti að vista 32
einstaklinga í fangageymslunum
vegna ýmissa mála, þ.a. 5 vegna
fíkniefnamála. Tiltölulega fátt
fólk var í miðborginni aðfaranæt-
ur laugardags og sunnudags.
Fyrra kvöldið voru tveir unglingar
færðir í athvarfið og sóttir þangað
af foreldrum sínum. Síðara kvöld-
ið sáust þar engir slíkir.
Lögreglumenn á vakt í mið-
borginni bentu á að talsvert hafi
borið á því að gestir vínveitinga-
staðanna hefðu fengið að ganga
óáreittir út af nokkrum staðanna
með glerílát, bæði glös og flösk-
ur, með áfengi í. Eftir að ílátin
höfðu verið tæmd utan dyra gerðu
sumir sér það að leik að kasta
þeim frá sér. Einhver lentu inn í
mannfjöldanum. Ekki þarf að fara
mörgum orðum um hve alvarlegar
afleiðingar slíkt getur haft í för
með sér. Lögreglan hefur nýlega
vakið athygli vínveitingaleyfis-
hafa á reglum um bann við að
bera áfengi út af stöðunum og
eru þeir enn sem fyrr hvattir til
að fylgja því banni eftir af festu.
Tilkynnt var um 15 innbrot og
12 þjófnaði. Brotist var t.d. inn í
bíla við Þangabakka, Jörfabakka,
Hvassaleiti, Vonarstræti, Frosta-
fold, Keilugranda, Hverfisgötu,
Dvergholt og við Dunhaga. Farið
var inn í leikskóla og veitingahús
í austurborginni. Þá var brotist inn
í íbúðir við Reykás og Skelja-
granda. Á síðarnefnda staðnum
höfðu verið skilin eftir áhöld til
fíkniefnaneyslu.
Lögreglan var fjörutíu sinnum
kvödd til vegna umferðaróhappa.
Slys á fólki varð í einu tilvikanna.
Það var á föstudag þegar árekstur
fjögurra bifreiða var á Miklubraut
við Stakkahlíð og flytja þurfti
ökumann og farþega á slysadeild
með lögreglubifreið. Þá eru 10
ökumenn, sem lögreglan hafði
afskipti af, grunaðir um ölvunar-
akstur. Þrír þeirra höfðu lent í
umferðaróhöppum áður en til
þeirra náðist, allir aðfaranótt
sunnudags.
Tilkynnt var um 5 líkamsmeið-
ingar, þijár á skemmtistöðum,
utan dyra í miðborginni og utan
dyra á Laugavegi þar sem aðili
var færður í fangageymslu eftir
að hafa veist þar að eldri manni
um miðjan dag á sunnudag.
Aðfaranótt laugardags var far-
ið að óttast um 5 ungmenni á
ferð á tveimur jeppum í Bláfjöll-
um. Þau festu annan jeppann og
hjólbarði fór af felgu á hinum.
Farið var á neyðarbíl slökkviliðs-
ins að sækja fólkið. Því varð ekki
meint af.
Um helgina sást til sendibif-
reiða á ferð nálægt miðborginni.
Af því tilefni er rétt að minna á
að ökumönnum þeirra sem og
öðrum, sem ekki hafa til þess leyfi,
er óheimilt að flytja farþega gegn
gjaldi. Lögreglan mun á næstunni
fylgjast með að ákvæði þetta
varðandi verði virt eins og kveðið
er á um.
Á föstudagskvöld og aðfaranótt
laugardags voru gönguhópar for-
eldra víða á ferð í hverfum borgar-
innar sem og í nágrannbæjunum.
Fjölmennastir voru hópar foreldra
í Breiðholti og í Hamrahverfi. Hið
ánægjulega var að lítið sem ekk-
ert bar á börnum og unglingum
utan dyra eftir að útivistartíma
þeirra lauk, enda þurfti lögreglan
ekki að hafa afskipti af fólki und-
ir þeim aldursmörkum um helg-
ina, utan þeirra tveggja sem fund-
ust í miðborginni. Þar reyndist
um aðkomuunglinga að ræða.
Um helgina fór loks að snjóa
á höfuðborgarsvæðinu. Af því til-
efni er rétt að minna á að í um-
ferðarlögunum segir að í þéttbýli
megi ekki í heimildarleysi aka,
stöðva eða leggja vélknúnu öku-
tæki utan vega á svæði sem ekki
er ætlað fyrir umferð vélknúinna
ökutækja. Þetta gildir þó ekki um
akstur vegna nauðsynlegrar
þjónustu, s.s. sjúkraflutninga. í
þéttbýli má heldur ekki aka vél-
sleðum á götum eða annars stað-
ar sem bannað er að aka vélknún-
um ökutækjum, s.s. á umferðar-
eyjum, göngustígum eða annars
staðar utan vegar. í sumum lög-
reglusamþykktum er þó gert ráð
fyrir að lögreglan geti í undan-
tekningartilvikum gefið leyfi til
aksturs vélsleða við sérstakar
aðstæður. Borgarstjórn hefur
bannað akstur slíkra tækji í Ell-
iðaárdal og á skíðasvæðunum í
Bláfjöllum. Þá er og eðlilegt að
vélsleðafólk annars staðar taki
jafnan tillit til gangandi fólks og
fólks á hestum.
Ungt fólk og sjálfboðavinna
í TENGSLUM við ráðstefnuna
„Ungt - fólk og sjálfboðavinna“
stendur yfir sýning fram til föstu-
dags 9. febrúar. Sýningin er til
húsa á Snorrabraut 27, opin dag-
lega frá kl. 14.
í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Sýningin var unnin út frá fjórum
spurningum: Hvað er sjálfboðaliði?
Hvað gerir sjálfboðaliði? Hvað fær
einstaklingur út úr sjálfboðavinnu?
og Hvað „græðir" samfélagið á
sjálfboðaliðum?
Ungt fólk víða að úr heiminum
vann að uppsetningu sýningarinnar.
Hún endurspeglar reynsluheim
þeirra sem mótast hefur af fullu
starfi sem sjálfboðaliði."
-------- .... <Q> -------
Áríðandi tilkynning
til viðskiptavina
Nýherji hf. og Rank Xerox hafa endumýjað
samstarfssamning sín á milli. Samkvæmt samningnum
annast Nýherji hf. viðhaldsþjónustu og sölu á
rekstrarvörum fyrir Xerox Ijósritunarvélar hér á landi
eins og verið hefur um árabil.
DiSTRIBUTOR AGREEMENT
This distributor agreement, dated as of 30/11 1995 between Rank Xerox A/S
("seller") and with business adress at Borupvang 5C, 2750 Ballerup, Denmark
and Nyherji Ltd. (“distributor") business adress at Skaftahlid 24, IS-105
Reykjavik, lceland.
Whereas: The parties hereto wish to enter into an agreement to cover the
distribution of all Xerox products in the Island of lceland to the following...
In witness whereof, the parties have executed this Agreement as of the oate
firct \A/rittPn ahnv/p
RANKXEROX RANK XEROX RANK XEROX RANK XEROX
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Nýherji hf. er eina
fyrirtækið hér á landi sem hefur á að skipa
sérmenntuðum tæknimönnum og fullkomnum
varahlutalager fyrir Xerox Ijósritunarvélar.
Þekktar vörur - bekkt biönusta
&
NYHEHJI SKAF1AHLÍ0 24.SÍMt7700■fÁX