Morgunblaðið - 06.02.1996, Page 45
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1996 45
i
i
í
1
I
<
4
j
i
:
:
<
<
<
<
<
<
<
<
MORGUNBLAÐIÐ____________________________________________
BRÉF TIL BLAÐSINS
Skammvinn
alsæla
Frá Svanhildi Haraldsdóttur:
ÉG VARÐ alsæl þegar ég heyrði
að það ætti að hækka barnabæt-
urnar og hugsaði með mér að það
yrði frábært að fá þó ekki væri
nema 2.000 krónur á mánuði, al-
sæl fyrir hvern auka 500 kali.
En! sælan varð skammvinn,
þegar yfirlit frá Tryggingastofnun
kom, sá ég að það var búið að
lækka mæðralaunin sem samsvar-
ar hækkun barnabótaaukans.
Hvern er verið að reyna að
blekkja? Halda viðkomandi ráða-
menn þjóðarinnar virkilega að fólk
sjái ekki og finni muninn á því,
hvort um sé að ræða tilfærslu
talna eða beina hækkun? Ég er
þó ánægð að í þetta skipti er ekki
um skerðingu að ræða, en get
samt ekki gert að því að hafa þá
tilfinningu að verið sé að blekkja
mig og fleiri því ég hef bara heyrt
talað um hækkun barnabótaauka,
en ekkert heyrt um lækkun
mæðralauna.
Ég, sem er einstæð tveggja
barna móðir, fæ enga hækkun éins
og talað er um, það er bara verið
að taka úr öðrum vasanum og
setja í hinn.
Úr því að ég'er byijuð að skrifa
um þessa tilfærslu tekjuliða hjá
einstæðu foreldri, þá langar mig
til að láta fylgja að árið 1993,
þegar meðlagið hækkaði úr krón-
Frá Sveini Þorsteinssyni:
ÆTLUM við íslendingar aldrei að
læra af reynslunni? Við offjárfest-
um í allskonar fyrirtækjum og án
þess að kanna fyrst hvort viðkom-
andi rekstur yfirleitt getur gengið
með hagnaði. Við munum öll eftir
öllum frauðplastverksmiðjunum,
öllum húseiningaverksmiðjunum,
öllum minkabúunum, öllum
refabúunum og núna síðast öllum
laxeldisstöðvurium. Hvað skyldu
öll þessi fjárfestinga- og sukkæv-
intýri hafa kostað íslenska skatt-
borgara?
Og enn er sama sagan að endur-
taka sig, nú þjóta upp eins og
gorkúlur um land allt, loðnu-
og/eða síldarbræðslur. Allir ætla
um 7.425 og upp í kr. 10.300 þá
gerðist það að á sama tíma lækk-
uðu mæðralaunin úr kr. 12.191
(m. tveimur börnum) niður í kr.
5.000, þannig að fólk í sambúð
og giftir, sem eiga börn úr fyrri
sambúðum fengu hækkun upp á
kr. 2.875, á meðan greiðslur lækk-
uðu til einstæðra foreldra um kr.
1.441. Allir forræðislausir foreldr-
ar þurftu því að hækka sínar
greiðslur án þess að tillit sé tekið
til tekna þeirra. í janúar 1996
lækkuðu mæðralaun úr 5.240 nið-
ur í kr. 3.144.
Seinni hluta ársins 1995 var
gerð könnun á kjörum fólks hér-
lendis. Niðurstaða þéirrar könnun-
ar var sú að með þeim verst settu
í þjóðfélaginu voru ómenntaðar
einstæðar mæður eins og ég er.
Svo er verið að veitast að öryrkium
og öldruðum og einhvern veginn
finnst mér að þeir sem hafUægstu
launin, sem eru miklu fleiri en ég
hef talið upp, séu endalaust að
láta misbjóða sér. Persónulega
finnst mér að enginn eigi að hafa
lægri ráðstöfunartekjur en
100.000 krónur á mánuði fyrir
100% starf. Ég hef aldrei fengið
fullnægjandi skýringar á því,
hvers vegna íslendingar, ein af
ríkustu þjóðum heims, þurfi að búa
við miklu lakari kjör allrar alþýðu
en sambærilegar þjóðir. Ég skil
ekki hvers vegna sumir eru með
að verða ríkir á því að reka bræðsl-
ur og hart verður barist um hrá-
efnið og eflaust njóta sjómenn
ávaxtanna að einhveiju leyti og
svo útgerðarmenn í hækkuðu verði
á aflanum.
Engum dettur í hug að kaupa
flutningaskip til að flytja hráefnið
af veiðislóðinni og miðla á milli
þeirra verksmiðja sem fyrir eru
og nóg er af svo ekki sé meira
sagt, þau skip gætu svo flutt af-
urðir á markað erlendis, t.d. lýsi.
Það á kannski að reisa nokkrar
Skagastrandar-verksmiðjur, en
sem kunnugt er kom aldrei síldar-
sporður í þá verksmiðju. Það ætti
líka kannski að hækka laun þeirra
sem ábyrgðina bera í bönkunum
um svo sem eitt, tvö hundruð þús-
50-65 þús. krónur í mánaðarlaun
á meðan aðrir hafa allt upp í
500.000 - 800.000 krónur.
Eru ekki öll störf mikilvæg?
Hvað réttlætir þennan mikla mun
á launum? Þetta snertir ekki að-
eins okkur launþegana, heldur líka
börnin okkar. Hvers vegna gengur
ekki jafnt yfir íslensk börn? Hvers
vegna þurfa þau að gjalda rang-
látrar launastefnu? Mér finnst
sjálfsagt að börnin okkar geti ver-
ið t.d. í tónlistarskóla og æft eins
og í einni íþróttagrein, auk þess
að vera sómasamlega klædd.
Hver metur störfín til mikilvæg-
is þeirra og þar með starfslaun í
hveiju tilviki? Hvers vegna á að
telja störf t.d. forstjóra, banka-
stjóra og ráðherra svo miklu mikil-
vægari en erfiðisstörf? Er ekki
talsvert mikilvægt að annast aldr-
aða og sjúka, gæta barna, sópa
götur, vinna í fiski o.s.frv.? Hver
dæmir um slíkt? Er ekki kominn
tími til þess að stokka upp allt
launakerfið frá rótum?
Mér fínnst ekkert réttlæti í því
að sumt menntað fólk fái mörgum
sinnum hærri laun en þeir ómennt-
uðu. Þeir sem hafa aðstöðu til að
mennta sig velja sér það svið sem
þeir hafa áhuga á og geta hugsað
sér að vinna við, það kalla ég for-
réttindi. Þeir ómenntuðu reyna að
finna sér störf við hæfi en hafa
minna val. Ég get ekki stillt mig
um að spyija: Eru ekki öll störf
jafnmikilvæg?
Við skulum setja okkur í spor
yngstu kynslóðarinnar, barnanna.
Viljum við að þau búi í framtíð-
inni við misrétti eða jafnræði?
SVANHILDUR HARALDSDÓTTIR,
Smárahlíð 12A, Akureyri.
und á mánuði svo ábyrgðin sligi
þá ekki alveg.
Er að undra þó keraldið leki
þegar svo er haldið á spilunum,
þarf nokkur að vera hissa á enda-
lausum halla á fjárlögum. Eitt
svaðalegasta dæmið um óráðsíuna
í launamálum ríkisstarfsmanna er
nýleg umfjöllun um laun starfs-
manna utanríkisþjónustunnar.
Ekki yrði ég hissa þó að hin al-
menni verkamaður stormaði vopn-
aður á Austurvöll og krefðist leið-
réttinga á hinu hróplega misræmi
í launamálum. Það er ekki réttlæt-
anlegt að sá sem vinnur hörð-
ustum höndum (þ.e.a.s. verkafólk
og sjómenn) skuli í sumum tilfell-
um vera með allt að tuttugu sinn-
um lægri laun en til dæmis banka-
stjóri sem að ber svo enga ábyrgð
þegar til uppgjörs kemur, eða hef-
ur einhver bankastjóri verið rek-
inn, þó að útlánatöp bankanna
hafi numið milljörðum króna?
SVEINN ÞORSTEINSSON,
Hvanneyrarbraut 60, Siglufirði.
Tekur vitleysan
aldrei enda?
Forsetakosningar,
símaskráin, organisti
og prestur
Frá Sigrúnu Einarsdóttur:
MIG langar til að byija á að taka
undir með Birni Matthíassyni hag-
fræðingi. 24. janúar sl. birtist eftir
hann grein í Morgunblaðinu um
nauðsyn þess að breyta lögum um
kjör í forsetaembætti. Ég hef engu
við grein hans að bæta, ég er fylli-
lega sammála honum og bið aðra sem
eru sama sinnis að láta í sér heyra.
Björn, ég skora á þig að fylgja þessu
eftir, það er nauðsynlegt að reka á
eftir þessum sauðum á Alþingi. Al-
þingi, ég skora á ykkur að taka þetta
fyrir áður en það verður um seinan.
Þá er það símaskráin, umtöluð og
umdeild. Uppsetning hennar er ger-
samlega óviðunandi. Bláa bókin er
sögð geyma símanúmer einstakl-
inga, númer ýmissa, ekki allra, aðila
í heilbrigðisþjónustunni og skóla-
kerfinu. Auk þess sem hún geymir
nokkur, en ekki öll, númer fyrir-
tækja sem rekin eru í heimahúsum.
Gula bókin á að geyma öll önnur
númer. Tökum dæmi. Símanúmer
sex sjúkraþjálfunarstöðva eru í bláu
bókinni, en ekki í þeirri gulu. Síma-
númer 14 annarra sjúkraþjálfunar-
stöðva eru í gulu bókinni og nöfn
þeirra og heimilisföng í þeirri bláu.
í stað sjö stafa símanúmera þessara
fyrirtækja í bláu bókinni stendur:
Sjá atv.skrá. Alls eru þetta 12 stafa-
bil. Er of mikið mál að setja síma-
númer þarna? Svona vinnubrögð eru
óskiljanleg, og óþolandi. í hvert sinn
sem maður þarf að finna símanúmer
fyrirtækis þarf að leita í báðum bók-
unum. Ef þið hjá Póst og síma viljið
endilega tvískipta símaskrá, hafið
þá númer allra stofnana og fyrir-
tækja í gulu bókinni. Verið ekki að
flækja þetta að óþörfu. Ef ég per-
sónulega fengi að ráða, sem ég tel
litlar líkur á, myndi ég hafa bara
eina símaskrá.
Að síðustu langar mig til að bera
upp spurningu. Sá sem svarað getur
henni, vinsamlegast svari. Hvernig
stendur á því að Jón Stefánsson, sem
er bundinn samningi við Langholts-
kirkju getur gengið úr vinnu án þess
að það teljist brot á samningi? Og
enginn segir neitt. Svo um leið og
ráðinn er afleysingamaður í hans
stað þá klagar hann séra Flóka í
verkalýðsfélagið sitt fyrir brot á
samningi. Er Jón einhver heilagur
maður? Afsakið fáfræði mína, en ég
hélt að það væri einungis í löglegum
verkföllum sem bannað væri að ráða
annað fólk í stað þeirra sem í verk-
falli eru. Ert þú í verkfalli, Jón? Mér
finnst þú nú heldur barnalegur að -
ijúka út í fýlu af því að hlutirnir eru
ekki eins og þú vilt hafa þá. Og
lætur það bitna á öllum söfnuðinum.
Reynið nú að haga ykkur eins og
fullorðnir menn, báðir, tveir og gerið
málamiðlun. Þið eruð fullorðnir
menn, er það ekki?
SIGRÚN EINARSDÓTTIR,
Gullengi 1, Reykjavík.
verð frá kr. 2.990,-
Hvítir og svartir - stærðir 28-45 - á meðan birgðir endast
__ Reiðhiólaverslunin _
SKEIFUNN111,
fwffwfw^ SÍMI 588-9890
I
<
I
<
I
<
Félag Löggiltra Biirbiðasala
+ æÍ. tm mm.
Félag LÖggiltra Bifrlidasaia
Nissan Patrol diesel, '95, ek. 29
þús., dökkgrænn/drapp, 33" dekk,
álfelgur, intercooler, geislasp., þjó-
fav. Verð 3.980.000. Ath. skipti.
Subaru Legacy 2.0 GL ár. '96, ék.
5 þús. km., dökkblár, álfelgur,
skíöab., geislasp., vetrar- og
sumardekk, nýr bíll.
Opel Astra 1,6 GLi árg. '95, ek. 16
þús. km., dökkgrænn, sjálfsk., álfelg-
ur. Verð 1.420.000. Ath. skipti.
SP-BILALAN TIL ALLT AÐ 60 MANAÐA
Nissan Sunny St. 4WD árg. '93, ek.
67 þús. km., dökkgrár. Góður á
skíöin. Verð 1.190.000. Ath. skipti.
Renault 19 TXE árg. '90, ek. 73 þús. km„
4ra dyra, 5 g., hvítur, sumar- og vetrar
dekk, r/r, cent., ástandssk.
Verð 690.000. Vill skipta á dýrari bíl árg.
'93-'94 rneð allt aö kr. 500.000 (milli.
Toyota 4Runner árg. '91, ek. 75 þús.
km, vínrauður, sjálfsk., 33" dekk, sól-
lúa.Verð 2.190.000. Ath.skipti
Einnig árg. '90 ek.109 þús. km, 5 g.,
grár. Ath. skipti.
Toyota Corolla Gli arg. 93, ek. 42
þús. km.,,rauður, sjálfsk., r/r, cen.,
spoiler. Verð 1.210.000. Bein sala.
Kláradu dæmid
með SP-bilalá«ii
Med SP-bílalán inní myndinni kaupir
þú bíl sem hæfir greiðslugetu þinni
Sími 588-7200
IBJfjarmögnun hf
Isuzu Trooper LS árg. '91,
ek. 75 þús. km., dökkblár.
Verð 1.950.000. Ath.skipti.
VANTAR ALLAR GERÐIR BILA A STAÐINN OG A SKRA - FRIAR AUGLÝSINGAR - RÍFANDI SALA