Morgunblaðið - 06.02.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
i
i
h
Vinnings-
upphœð
Fjöldi
vinninga
Vinningar
Samtals:
■ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRUAR
BLAD
1996
Góð vísbending
JÓN Arnar Magnússon, .tugþrautarmaður úr
Tindastóli, bætti eigið íslandsmet í sjöþraut á
Opna sænska meistaramótinu sem fram fór í
Gautaborg í Svíþjóð um helgina. Hann sigraði í
mótinu og hlaut 6.110 stig, en gamla metið var
5.620 stig sem hann setti í Berlín í febrúar 1993.
Hann hjó nærri Norðurlandameti Svíans Henriks
Dagárds, sem er 6.142 stig og var sett á HM
innanhúss í Barcelona í fyrra. Þess má geta að
árangur Jóns Arnars hefði dugað í fjórða sæti á
heimsmeistaramótinu innanhúss í fyrra. Hann
ætti því að eiga góða möguleika á að komast á
verðlaunapall á BM innanhúss sem fram fer í
Stokkhólmi í mars.
Jón Arnar hafði forystu í þrautinni frá fyrstu
grein og sigraði með nokkrum yfirburðum. Christ-
er Holger frá Svíþjóð var annar með 5.590 stig
og landi hans, Robert Wárff, þriðji með 5.567
stig. Ólafur Guðmundsson, HSK, tók einnig þátt
- Miðað við þennan árangur ættir þú þá ekki
að eiga möguleika á verðlaunasæti á EM?
„Það er of snemmt að hugsa um það núna.
Tíminn einn verður að leiða það í ljós. Það er enn
mánuður í Evrópumótið og það getur margt kom-
ið upp á þeim tíma. Ég ætla því ekki að vera
með neinar yfirlýsingar á þessari stundu,“ sagði
íþróttamaður ársins. Hann sigraði í fjórum af sjö
greinum í Gautaborg; 60 metra hlaupi, lang-
stökki, kúluvarpi og 60 metra grindahlaupi.
Árangur Jóns Arnars í einstökum greinum:
60 metra hlaup - 6,85 sek., langstökk - 7,36 metrar,
kúluvarp - 15,70 m, hástökk - 2,02 m, 60 m grinda-
hlaup - 7,99 sek., stangarstökk - 4,72 m, 1.000 m hlaup
- 2.45,78 mín. = 6.110 stig.
Árangur Ólafs Guðmundsonar:
60 m hlaup - 7,27 sek., langst. - 6,39 m, kúluvarp -
14,00 m, hástökk - 1,93 m, 60 m grind - 8,48 sek.,
stangarst. - 4,02 m, 1.000 m hlaup - 2.47,89 mín. =
5.206.
GlæsilegurárangurJóns
Arnars Magnússonar
í sjöþrautinni og hafnaði í fimmta sæti með 5.206
stig, en hann átti áður best 5.074 stig.
„Ég er þokkalega ánægður með þetta og árang-
urinn gefur góða vísbendingu um að ég er á réttri
leið og það má segja að þetta íofi góðu um fram-
haldið. Þetta er betri árangur en ég bjóst við
fyrirfram. Ég vissi reyndar ekki alveg hvar ég
stóð í sjöþrautinni því það eru tvö ár síðan ég
keppti í henni síðast," sagði Jón.
Hann sagðist ánægðastur með 1.000 metra
hlaupið og það gæfi sér vonir um betri árangur í
1.500 metrunum sem hefur verið hans lakasta grein
í tugþrautinni. „Ég er einnig ánægður með 60
metra grindahlaupið því þar jafnaði ég íslandsmet-
ið frá fyrri helgi og eins bætti ég mig í kúluvarpinu."
Vinnings-
upphæö
Fjöldi
vinninga
Vinningar
5 af 6
► bónus
3 af 6
+ bónus
Landsliðinu
boðið til
Rúmeníu,
Júgóslavíu
og Sviss
ÍSLENSKA landsliðinu í hand-
knattleik var boðið að taka þátt í
tveimur mótum eftir að Lottó-
keppninni lauk í Bergen í Noregi
í fyrradag. Rúmenar hyggjast
halda mót, sennilega í Búkarest,
2. til 5. maí og er öruggt að heima-
menn og Júgóslavar verða með.
Svíar og íslendingar hafa ekki
svarað en afsvar barst frá Frökk-
um og Þjóðverjum.
Júgóslavar vilja endurvekja
gömlu Júgóslavíukeppnina og
hafa ákveðið að halda mót, senni-
lega í Belgrad, 14. til 19. maí.
Þeir ætla sjálfir að vera með tvö
lið og Rúmenar og Danir hafa
tekið boði um þátttöku en beðið
Verlu viðbúfn(n) vlnningl
er eftir svari frá íslendingum,
Norðmönnum og Svíum.
Svisslendingar buðu íslenska
landsliðinu í tvo æfingaleiki i Sviss
og nefndu þijár dagsetningar.
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálf-
ari, sagði við Morgunblaðið að
leikir ytra í lok júní kæmu sterk-
lega til greina en landsliðið verður
við æfingar í júní.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ungir Islandsmeistarar
VIGDÍS Ásgeirsdóttir, sem er 18 ára og Tryggvi Nielsen, 19 ára, urðu íslandsmeistarar í einliðaleik í fullorðins-
flokki í fyrsta skipti um helgina. Vigdís kom í veg fyrir að Elsa Nielsen yrði meistari sjötta árið í röð með því að
sigra hana i úrslitaleik og Tryggvi hafði betur í úrslitaviðureign við Þorstein Pál Hængsson.
I. vinnlngur w áBtlpíur M mtlljðWr Wj
KRISTJAN ARASON ÞJALFAR WALLAU MASSENHEIM / B8
FRJALSIÞROTTIR
BONUSTOLUR
BADMINTON
HANDBOLTI
UPPLYSINGAR
Uppí. um vimungstckirfast einnig \ sirjtsvara
56S-t511 Gr.\'cu nunrwr. SOO-6511 09 1
textavarpi á siðum 45'. ^53 cg 45-9.
Níu skiptu med ser bonus
vinnirtgnum t Lotto 5 3S a
laugardaginn.