Morgunblaðið - 07.02.1996, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Fiskað
gegnum ís
FJÖLDI fólks hefur notað góða
veðrið að undanförnu til að __
dorga gegnum þykkan ís á Ól-
afsfjarðarvatni. Bora menn göt
á ísinn með þar til gerðum bor-
um og dorga sér til ánægju.
Beita menn ýmist rækju eða
maísbaunum en töluvert hefur
fiskast þar, bæði lax og silung-
ur. Þá hafa Ólafsfirðingar líka
gaman af að skauta á vatninu
og má á góðviðrisdögum sjá þar
bæði unga og aldna renna sér
um spegilsléttan ísinn á skaut-
unum sínum eða við að dorga.
Yatn
flæddi inn
í sex hús
LÖGREGLUNNI á Akureyri barst
tilkynning um að vatn hefði flætt
inn í sex hús í miðbænum og næsta
nágrenni á sunnudagskvöld. Gífur-
leg úrkoma var á þessum tíma en
á um þremur tímum mældist úr-
koman 9,7 mm. Vatn flæddi bæði
í kjallara og inn á fyrstu hæð og
urðu þar einhvetjar skemmdir.
Matthías Einarsson, varðstjóri
hjá lögreglunni, sagði að í tveimur
húsum á Eyrinni hefði hreinlega
flætt upp um svelgina en ofar í
bænum flæddi inn í hús þar sem
niðurföll voru stífluð. Bæjarstarfs-
menn brugðust skjótt við og voru
snöggir að opna niðurföllin.
Fimm árekstrar urðu í umferð-
inni á Akureyri um helgina og tveir
til viðbótar á mánudag. Fimm
menn gistu fangageymslur um
helgina, „fyrir hrein og klár leið-
indi,“ eins Matthías varðstjóri orð-
aði það.
--------------
Iðnaðarráð-
herra fund-
ar nyrðra
FINNUR Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, efnir til funda á
Norðurlandi eystra.
Þar verður ijallað um áform
ráðuneytanna á þessu ári, m.a.
Átak til atvinnusköpunar, ný
stuðningsverkefni og fleira. Þá
verða kynnt Evrópuverkefni á sviði
lítilla og meðalstórra fyrirtækja og
nýju riti um þau dreift.
Fundirnir verða haldnir í Hlíð-
bergi, Hótel KEA, annað kvöld,
fimmtudagskvöldið 8. febrúar kl.
12.00 og á Hótel Húsavík, föstu-
daginn 9. febrúar kl. 12.00.
Stjórnendur fyrirtækja og
áhugafólk um atvinnusköpun er
hvatt til að mæta á fundina.
Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon
Uppsteypu nýbygg-
ingar FSA lokið
LOKIÐ var við að steypa upp ný-
byggingu Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri í gærdag.
Kristján Baldursson eftirlits-
maður með framkvæmdunum
sagði að verkið gengi samkvæmt
áætlun og væri áætlað að bygging-
in yrði fullfrágengin í haust, eða
1. september næstkomandi,
Nýbyggingin er samtals 4.160
fermetrar að stærð, á íjórum hæð-
um auk kjallara.
Næsti áfangi verksins er inn-
rétting efstu hæðar byggingarinn-
ar þar sem verður barnadeild og
er stefnt að því að hún verði fullbú-
in til notkunar í ársbyijun 1998.
Þá er gert ráð fyrir að flytja fæð-
ingar- og kvensjúkdómadeild auk
bæklunardeildar yfir í nýbygging-
una síðar. *
Verktaki er SS-Byggir sem átti
lægsta tilboð í verkið 142,4 milljón-
ir króna.
Tónleikar til styrkt-
ar minningarsjóði
TÓNLEIKAR til styrktar minning-
arsjóði Þorgerðar S. Eiríksdóttur
verða haldnir í kvöld, miðvikudags-
kvöld, í safnaðarsal Glerárkirkju
og hefjast þeir kl. 20.00.
Nemendur og kennarar Tónlist-
arskólans á Akureyri efna árlega
til tónleika til ágóða fyrir sjóðinn,
en Þorgerður, sem fæddist árið
1954, lauk burtfararprófi frá skól-
anum 1971. Hún þótti efnilegur
píanóleikari og var nýkomin til
Lundúnarborgar þegar hún lést af
slysförum í febrúar 1972.
Aðstandendur hennar stofnuðu
minningarsjóð ásamt Tónlistarfé-
lagi Akureyrar, Tónlistarskólan-
um og kennurum við skólann og
er markmið hans að styrkja efni-
lega nemendur við skólann til
framhaldsnáms. Alls hafa rúm-
lega 40 nemendur notið styrkja
úr sjóðnum.
Á tónleikunum í kvöld koma
fram Michael J. Clarke, Nicole V.
Cariglia, Richard J. Simm, Guðrún
A. Kristinsdóttir og Helga Bryndís
Magnúsdóttir úr hópi kennara en
auk þess flytja lengra komnir nem-
endur skólans kammertónlist.
Aðgangur er ókeypis en tekið
er við framlögum í styrktarsjóðinn.
Fjárhagsáætlun Framkvæmdasjóðs Akureyrarbæjar samþykkt í bæjarstjórn
Oll seljanleg hlutabréf
verða seld á þessu ári
ÖLL seljanleg hlutabréf í eigu
Framkvæmdasjóðs Akureyrarbæjar
verða seld á þessu ári. Söluverð
þeirra liggur ekki fyrir en í fjár-
hagsáætlun sjóðsins, sem samþykkt
var á fundi bæjarstjórnar i gær-
kvöld, er miðað við skráð gengi nú
í byrjun febrúar, að því er varðar
hlutabréf sem skráð eru á Verð-
bréfaþingi íslands, en söluverð ann-
arra er áætlað. Stærsta hlutabréfa-
eign Akureyrarbæjar er í Útgerðar-
félagi Akureyringa, að nafnvirði
tæpar 410 milljónir króna. Fulltrúar
Alþýðubandalagsins lýstu harðri
andstöðu við sölu hlutabréfa í ÚA
í einu lagi á árinu.
Meirihluti bæjarstjórnar lagði
fram bókun um að áfram yrðu
hlutabréf bæjarins í atvinnufyrir-
tækjum seld á árinu en áætlað sölu-
verð væri um 1.450 milljónir króna.
Stærsta álitamál bæjarstjórnar
Miklar umræður urðu um málið
og sagði Sigríður Stefánsdóttir,
Alþýðubandalagi, bæjarstjórn fást
við stærsta álitamál sem hún hefði
staðið frammi fyrir lengi. Fram kom
nokkur gagnrýni hjá fulltrúum
minnihlutans á þær miklu breyting-
ar sem fjárhagsáætlun sjóðsins
hefði tekið frá því á fundi bæjar-
ráðs síðastliðinn fimmtudag, „stað-
an hefur breyst um einn milljarð
síðan þá,“ sagði Sigríður, en sam-
kvæmt bókun við samþykkt fjár-
hagsáætlunar bæjarsjóðs fyrir þetta
ár var gert ráð fyrir mun minni
eignasölu.
Jakob Björnsson bæjarstjóri
sagði að svara þyrfti mörgum
áleitnum spurningum áður en hluta-
bréf í ÚA yrðu seld. Hann sagði
það sína skoðun að bakhjarlar fyrir-
tækisins yrðu í heimabyggð þannig
að hagsmunir heimamanna yrðu
tryggðir. Markmið með sölu bréf-
anna sagði hann fyrst og fremst
að niðurgreiða skuldir fram-
kvæmda- og bæjarsjóða og nýta
svigrúm sem skapaðist til aukinna
framkvæmda og einnig til atvinnu-
þróunarverkefna.
Vanda þarf til verka
Jakob sagði að betra væri að
vanda vel til verka í þessu máli og
leitað yrði faglegrar ráðgjafar, en
lauslega hefði verið rætt við Lands-
bréf um hvernig að slíkri sölu yrði
staðið.
Þórarinn B. Jónsson, Sjálfstæðis-
flokki, kvaðst talsmaður þess að
selja hlutabréfin í ÚA, en í sínum
huga væri félagið ekki til sölu á
1.450 milljónir króna, innra virði
þess væri mun meira. Hann lýsti
þeirri skoðun sinni að hagstæðara
væri að selja einum aðila öll bréf
bæjarins á genginu 6 en að búta
það niður til margra og selja á geng-
inu 3,2 eins og það er nú.
Alþýðuflokkurinn hefur fram til
þessa staðið einna fastast á móti
því að bærinn seldi hlut sinn í ÚA
og sagðist Gísli Bragi Hjartarson,
fulltrúi flokksins í bæjarstjórn,
gjarnan vilja að bærinn ætti 20-25%
hlut í fyrirtækinu eitthvað áfram,
en hlutirnir hefðu breyst, tími bæj-
arútgerða væri liðinn.
Fá sem allra mest
verð fyrir bréfin
Sigurður J. Sigurðsson, Sjálf-
stæðisflokki, sagði flokkinn leynt
og ljóst hafa stefnt að því að losa
Akureyrarbæ út úr atvinnurekstri
og væri hann fylgjandi sölu á hluta-
bréfunum en 1.450 milljónir væri
ekki ásættanlegt verð fyrir öll selj-
anleg bréf í eigu Framkvæmda-
sjóðs. Markmiðið ætti að vera að
fá sem allra mest út úr.sölu bréf-
anna.
Eftir töluverðar umræður og
fundarhlé, þar sem menn báru sam-
an bækur sínar, var samþykkt að
selja öll seljanleg hlutabréf bæjarins
en miða ekki við ákveðnar fjárhæð-
ir heldur gengi þeirra bréfa sem
skráð er á verðbréfaþingi í febrúar-
byijun.
Morgunblaðið/Svavar B, Magnússon
KÚBUMAÐURINN snjalli Duranona vakti aðdáun krakkanna og
þeir voru margir sem fengu hjá honum eiginhandaráritanir.
KA-menn heimsóttu
krakkana í Ólafsfírði
KRAKKARNIR í Ólafsfirði
fengu góða gesti í heimsókn á
dögunum þegar nokkrir liðs-
menn fyrstu deildar liðs KA
mættu í íþróttahúsið á staðnum
og kynntu handboltaíþróttina.
Alfreð Gíslason þjáífari KA
sagði að lengi hefði staðið til
að heimsækja Ólafsfirðinga eða
frá því þeir vígðu nýtt íþrótta-
hús. Engin markviss handbolta-
þjálfun fer fram í Ólafsfirði en
áhuginn er greinilega mikill ef
marka má krakkaskarann sem
mætti, „það var ótrúlegur fjöldi
þarna saman kominn,“ sagði
Alfreð.
Sigurður Sigurðsson, bygg-
ingaverktaki á Akureyri, gam-
all Ólafsfirðingur og fyrrum
formaður handknattleiksdeild-
ar KA, færði íþróttafélaginu
handbolta að gjöf, þannig að
nú er aldrei að vita nema byijað
verða að æfa þessa íþrótta af
kappi.