Morgunblaðið - 07.02.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996 19
LISTIR
TÍKON Khrennikov var áratugum saman ritskoðari Kremlar-
bænda. Nýjasti ballett tónskáldsins er nú fluttur fyrir fullu
húsi innan Kremlarmúra.
Krullukoll-
ur andi
Ritskoð-
arinn
sýnir fyrir
fullu húsi
TÍKON Khrennikov er meistari
jafnvægislistarinnar. Hann leiddi
stéttarfélag sovéskra tónskálda í
fjörutíu ár og varð frægur fyrir
að standa rússnesku tónskáld-
unum Dimitri Sjostakovich og
Sergej Prokofjev fyrir þrifum.
Nú er Khrennikov kominn aftur
til Kremlar og hefur aldrei átt
meiri velgengni að fagna.
A meðan mörg af helstu andófs-
skáldum Rússa, þar á meðal Alex-
ander Solzhenitsyn, eiga erfitt
uppdráttar og eru jafnvel höfð
að háði og spotti maka hinir leiði
tömu fylgisveinar sovét-kommún-
ismans krókinn.
Þetta á óvíða betur við en í til-
felli Khrennikovs, sem nú er 82
ára. Nýr ballett hans um Napó-
leon Bonaparte er nú sýndur fyr-
ir fullu húsi í ráðstefnuhöll
Kremlar, sem tekur sex þúsund
manns í sæti, með styrkjum frá
bandarískum loftræstitækjafram-
leiðanda.
Khrennikov getur sem sé þakk-
að kapitalismanum, sem hann
varði ævi sinni í að fordæma, að
verk hans ná til eyrna almennings.
Hann iðrast hins vegar einskis
og er bjartsýnn um framtíðina.
Loks er ég frjáls
„Ég var kaffærður í pappírs-
vinnu og ræðum,“ sagði Khrenn-
ikov um starfið, sem Stalín valdi
hann til að vinna og hann gegndi
þar til Sovétríkin og stéttarfélag
tónskálda hrundu árið 1991. „Nú
ber ég aðeins ábyrgð á sjálfum
mér. Loks er ég algerlega frjáls.“
Ballettinn um Napóleon fjallar
um ævi eins helsta fjandmanns
Rússa. Kremlarballettinn flytur
hann í tónleikasal, sem reistur var
á valdatíma Khrustsjevs. A veggj-
um gefur enn að líta merki Sovét-
ríkjanna, hamar og sigð.
Obeit á djassi
Khrennikov lagði kapp á að
koma í veg fyrir að sovésk tónlist
„mengaðist" af djassi, „form-
alisma" og tóntegundarleysi
framúrstefnutónskálda og enn
hefur hann óbeit á djassi. Napó-
leon ber því vitni. Ballettinn er
saminn í anda Tsjaikovskíjs með
voldugu hljómfalli.
Khrennikov hefur samið mörg
hundruð verk, allt frá þjóðdöns-
um til kvikmyndatónlistar og óp-
era. Sennilegra er þó að hans
verði minnst fyrir ræðu, sem hann
flutti árið 1948. Þar veittist hann
að „formalisma" og verkum Sjos-
takovich, Prokofjefs og annarra
rússneskra tónskálda.
Þessi ræða þótt gefa tóninn fyr-
ir ritskoðun og kúgun, sem stóð
yfir í Sovétríkjunum næstu ára-
tugina. Khrennikov segir nú að
hann hafi ekki skrifað þessa ræðu.
Hún hafi verið fengin honum
nokkrum klukkustundum áður en
hann átti að stíga í ræðustól.
„Mér þætti gaman að sjá ein-
hvern fá skipun frá miðstjórninni
og neita,“ sagði Khrennikov. „Þú
varðst að lifa í þessu andrúms-
lofti til að skilja hvað var á seyði.“
Khrennikov kveðst hafa reynt
að hjálpa öðrum tónskáldum bak
við tjöldin.
Enginn gat sagt nei við Stalín
„Enginn gat sagt nei við Stal-
ín,“ sagði Khrennikov og dró fing-
ur eftir hálsi sér eins og hnífs-
blað. „Ég gerði hvað ég gat til
að hjálpa starfsbræðrum minum.
Samviska mín er hrein."
Ekki eru allir tónlistarmenn og
-gagnrýnendur sammála honum
um það. Galína Vishnevskaja,
óperusöngkona og eiginkona
sellóleikarans Mstislavs
Rostropvich, segir í ævisögu sinni
að Khrennikov hafi verið lævís
og snjall og grafið undan læri-
meisturum sínum, þar á meðal
Sjostakovich.
Rostropovich yfirgaf Sovétrík-
in 1974, en kemur nú reglulega
til baka til að koma fram. Khrenn-
ikov fer ekki á tónleika
Rostropovich, en segir þá eitt sinn
hafa verið vini. „Sumir segja jafn-
vel að ég hafi hjálpað honum af
komast af stað,“ sagði Khrenn-
ikov.
• Byggt á International Herald
Tribune.
KVIKMYNDIR
Kcgnboginn: Kvik-
m y n d a h á t í ð 2 0 t h
C c n t u r y F o x
WEE WILLIE WINKIE
★ ★>/2
Leikstjóri John Ford. Handritshöf-
undur Julien Josephson. Kvikmynda-
tökustjóri Arthur Miller. Tónlist Al-
fred Newman. Aðalleikendur Shirley
Temple, June Lang, Victor McLag-
len, C. Aubrey Smith, Michael Whal-
en, Cesar Romero. Bandarisk. 20th
Century Fox 1937. Svart/hvít
EITT stærsta og litríkasta kvik-
myndaver í Hollywood, 20th Cent-
ury Fox, bryddar uppá skemmti-
legri nýjung,: dustar rykið af nokkr-
um ellismellum. Myndum sem nutu
mikillar aðsóknar í langri sögu fyr-
irtækisins frekar en unnu til verð-
launa á kvikmyndahátíðum.
Það kemur síst á óvart að Shirley
Temple, ein vinsælasta stjarna kvik-
myndaversins fyrr og síðar, stingur
hér upp sínum fræga, krullaða kolli
og það í myndinni sem margir teja
hennar bestu. Wee Willie Winkie er
lauslega byggð á samnefndri sögu
hins ástsæla rithöfundar Rudiyard
Kipling og segir okkur af telpu-
hnátu sem flyst ásamt móður sinni
að rótum Himalayafjalla þar sem
afi hennar (C. Aubrey Smith) stjórn-
ar afskekktri deild Bengalhersveit-
arinnar frægu. Hún eignast hug og
hjörtu stríðsmannanna og uppreisn-
arforingjans (Cesar Romero), gerir
sér iítið fyrir og afstýrir blóðugum
átökum á milli Bretanna og upp-
reisnarmanna.
Mikil flóð hafa runnið til sjávar
á þeim hartnær sex áratugum sem
liðnir eru frá frumsýningu W. W. W.
og forvitnilegt að bera saman vinnu-
brögðin nú og þau sem hér blasa
við og hljóta að teljast fornaldarleg.
Myndin er öll tekin í Kaliforníu, það
var ekki verið að þeytast með tugi
manna yfir hálfan hnöttinn á þess-
um tíma, bakgarðurinn látinn
nægja. Sú ofurvirðing og stór-
stjörnusess sem Temple hefur notið
kemur vel í ljós. Það snýst allt um
þá stuttu sem sýnir umtalsverðan
stjörnusjarma og skyggir á meðleik-
arana sem fá minna að segja í fram-
vindu myndar sem telst 'nokkuð
barnaleg á tíunda áratugnum. Það
er enginn annar en John Ford sem
leikstýrir undir handleiðslu sjálfs
Darryls F. Zanuck og enn einn ris-
inn sem gerði garðinn frægan hjá
Fox, tónskáldið Alfred Newman
(sem m.a. samdi kynningarstef 20th
Century Fox, er hlýtur að teljast
það besta í heimi), sér um músikina
af alkunnri smekkvísi. Góðkunnur
og traustur Ford-leikari, Victor
McLaglen, kemur talsvert við sögu,
en þeir Ford voru einmitt nýbúnir
að ljúka við The Informer, .þegar
hér var komið sögu. Það er jafnan
gaman að C. Aubrey Smith, og svo
er einnig hér. Annar karlpeningur
er hinsvegar heldur slaklegur.
Skemmtileg innsýn í löngu horfna
veröld genginna stjarna, frásagnar-
máta og vinnubragða.
Sæbjörn Valdimarsson
FLÍSASKERAR
OG FLÍSASAGIR
- -
-3 \íí jq: itc 1U
IIÉ
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
Farartæki fyrir heimilislausa
LISTAMAÐURINN Krzysztof
Wodiczko er búsettur í New York
og hefur látið sig hlutskipti heim-
ilislausra varða. Eitt af verkum
hans er allrahanda farartæki fyrir
heimilislausa. A daginn má nota
farartækið til að safna í hinu og
þessu og að nóttu til er hægt að
leggjast þar til svefns. Wodiczko,
sem er frá Varsjá, segir farartæk-
ið „pólitískan verknað“, sem með
„verkfærum fagurfræðinnar“ fletti
ofan af miskunnarleysi þjóðfélags,
sem láti viðgangast að senda mörg
hundruð þúsund manns í félags-
lega útlegð. Ekki er hafin fjölda-
framleiðsla á farartækinu, en í list-
heiminum hefur því verið sýndur
áhugi. Nútímalistasöfn í Lyon og
Genf keyptu sitt hvort farartækið
fyrir um 3,4 milljónir króna stykk-
ið.
Mígrensamtökin 1 ffl r
yilja vekja athygll á breyttu símanúmeri 587-5055
Simatimi á mánudögum kl. 18-20.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
SMIÐJUVEGI 70, KÓP. • SÍMI 564 4711 • FAX 564 4725
Eigum fyrirliggjandi og útvegum með stuttum
fyrirvara ýmiskonar stoð- og hjálpartæki sem létta
störfin, auka öryggi og afköst.
Leitið uppiýsinga.