Morgunblaðið - 07.02.1996, Page 39

Morgunblaðið - 07.02.1996, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996 39 ÍDAG BRIDS Um.sjón Uuðmuiióur l’áll Arnarsun „Þú ert betri en enginn, makker. Minni spámenn hefðu látið mig leggjast til svefns með geim á hætt- unni á samviskunni.11 Þakk- læti vesturs var ósvikið. Hann hafði valið slæmt út- spil, sem hefði dugað sagn- hafa til vinnings á móti flestum varnarspilurum. Suður gefur; allir á hættu. Norður ♦ D72 V DG973 ♦ D95 ♦ K6 Vestur Austur ♦ K9643 ♦ 105 ▼ 52 1 * 4 ♦ Á1083 111111 ♦ K762 ♦ 102 ♦ ÁG9853 Suður ♦ ÁG8 V ÁK1086 ♦ G4 ♦ D74 Vestur Norður Austur Suður - 1 hjarta Pass 1 hjörtu Pass Pass Pass Útspil: Spaðaþristur. Suður drap tíu austurs með spaðagosanum heima og tók tvisvar tromp. Spil- aði svo tígli úr borði. Áætl- un sagnhafa var einföld. Hann ætlaði að reyna að byggja upp slag á tígul til að sjá fyrir einum spaða heima. Þessi ráðagerð heppnast ef austur lætur lítinn tígul. Vestur verður að taka tígul- gosann með kóng og gerir best í því að spila lauftíu. En sagnhafi hefur öll völd. Ef austur tekur strax á laufásinn, fríast tveir slagir á lauf og þá má henda spaða úr borði niður í lauf- drottningu. Suður fær því slaginn á laufdrottningu og spilar tígli á níuna. Sama niðurstaða. En austur fann einu vörnina og uppskar þakk- læti og aðdáun félaga síns. Hann stakk upp tígulkóng og spilaði spaða. Vörnin var þá skrefi á undan á sagn- hafa. Pennavinir SEX ára sænskur piltur sem á heima skammt frá Helsingjaborg, hefur mik- inn áhuga á frímerkjum: Linus Bárströni, Vastlyckegatíin 11, 260 35 Ödákra, Sweden. LEIÐRÉTT Niðurfelling gjalda RANGAR tölur birtust í sérblaði Morgunblaðsins um fjármál fjölskyldunn- ar síðastliðinn sunnudag í korti lækkun fasteigna- skatts hjá elli- og örorku- lífeyrisþegum í Reykjavík fyrir árið 1996. Réttar viðmiðunartölur eru eftir- farandi: ■ 100% lækkun fá ein- staklingar með tekjur allt að 640 þús. kr. og hjón með tekjur allt að 900 þús. kr. 80% lækkun fá ein- staklingar með tekjur frá 640-710 þús. kr. og hjón nteð tekjur frá 900-985 þús. kr. 50% lækkun fá ein- staklingar með tekjur frá 710-800 þús. kr. og hjón með tekjur á bilinu 985- 1.120 þúsund krónur á ári. Arnað Ljósm. Nýmynd, Keflavík BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 9. desember sl. í Grindavíkurkirkju af sr: Jónu Kristínu Þorvaldsdótt- ur Marta Ríkey Hjörleifs- dóttir og Bragi Jónsson. Heimili þeirra er á Ásvöll- um 10B, Grindavík. Ljósm. Nýmynd, Keflavík BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 4. nóvember sl. í Útskálakirkju af sr. Kristni Ágústi Friðfinnssyni Signý Hermannsdóttir og Guð- jón Hjörtur Arngrímsson. Heimili þeirra er á Skaga- braut 25, Garði. heilla Ljósm. Nýmynd, Keflavík BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 30. desember sl. í Lágafellskirkju af sr. Jóni Þorsteinssyni Anna Dóra Steingrímsdóttir og Magnús Ingvarsson. Heimili þeirra er í 0vre Torglate 9, 3050 Mjon- dalen, Noregi. Ljósm. Nýmynd, Keflavík BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 26. desember sl. í Keflavíkurkirkju af sr. Ólafi Oddi Jónssyni Jónína Birgisdóttir og Skarphéð- inn Njálsson. Heimili þeirra er á Faxabraut 17,' Keflavík. COSPER ER ÞETTA rindillinn sem þú þorir ekki að biðja um launahækkun! HÖGNIHREKKVÍSI "PIZZA" STJORNUSPA VATNSBERI Afmælisbarn dagsins: Þú hefuráhuga á mannúðar- málum og umbótum í samfélaginu. Hrútur (21. mars - 19. apríl) Það eru gerðar miklar kröfur til þín í vinnunni, og þú þarft að leggja þig fram, því ráða- menn fylgjast með gerðum þfnum. Naut (20. apríl - 20. maí) Ef þér mislíkar eitthvað í fari ástvinar, ættuð þið að ræða malið í einlægni til að finna lausn áður en upp úr sýður. Tvíburar (21. maí-- 20. júní) 5» Ágengni vinar getur komið þér í vont skap, en þú ættir ekki að láta það bitna á fjöl- skyldunni. Reyndu að slaka á í kvöld. Krabbi (21. júní - 22. júlí) H86 Ágreiningur kemur upp í vinnunni, sem þú ættir ekki að skipta þér af í bili. Seinna getur þú tekið að þér að miðla málum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Gættu þess að lesa vel smáa letrið áður en þú undirritar samning. Þótt allir séu á einu máli, getur ágreiningur kom- ið upp síðar. Meyja (23. ágúst - 22. september) Þér berst freistandi tilboð um starf, sem að hluta má vinna heima. Ræddu málið við fjölskylduna, og hlustaðu á góð ráð vinar. Vog (23. sept. - 22. október) Ferðalangar þurfa að sýna aðgát í fjármálum. Sumir gætu lent í því að týna veski eða að eyða of miklu í inn- kaupin. Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) 9(|0 Þú ert að styrkja stöðu þína í vinnunni, og starfsfélagi kemur þér ánægjulega á óvart í kvöld. Sinntu skyldu- störfunum heima. Bogmaóur (22. nóv. - 21. desember) Hugmyndir þínar varðandi vinnuna eru góðar, en nú er ekki rátti tíminn til að koma þeim í framkvæmd. Vinur gefur góð réð. Steingeit (22. des. -19. janúar) Þér hefur gengið vel að koma fjármálunum í rétt horf, og hefur nú peninga aflögu. I stað þess að eyða, ættir þú að fjárfesta. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Það er ólíkt þér að vera með ástæðulausa afbrýðisemi í garð ástvinar, og þú ættir að hugsa málið. Þú réttir vini hjálparthönd. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Stirðlyndur starfsfélagi gerir þér lífið leitt, en þú ættir ekki að hafa nein samskipti við hann. Þetta kemur hon um í koll. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Hvað mundir þú hafa í matinn eftir að hafa unnið rúmlega 40 milljóni í Víkingalottóinu? V I K I W G A TTff Til mikils að vinna! Alla miðvikudaga fyrirkL 17.00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.