Morgunblaðið - 07.02.1996, Page 1

Morgunblaðið - 07.02.1996, Page 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG PRENTSMIDJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996 BLAD • STRÁKARNIR á Litla Jóni, Róbert Gerorgsson og Sigurður Árnason, voru að landa línufiski í Sandgerði fyrir skömmu. Peir eru líklega með yngri trillukörl- um iandsins, en ekki er að sjá að Morgunblaðið/Birgir Þðrbjarnarson ungur aldur hái þeim. JÞeir voru með ágætis afla og eiga líklega eftir að draga margan fisk úr sjó. 12% verðlækkun á fiski á Fiskmarkaði Suðurnesia Erfiðleikar í vinnslu og mikið framboð valda mestu ERFIÐLEIKAR í vinnslu á bolfiski í landi og mikið framboð á fiski, einkum þorski í janúar, hafa valdið nokkurri verðlækkun á fiski á fiskmörkuðum. Verð á þorski á Fiskmarkaði Suðurnesja lækkaði um 13% miðað við sama mánuð í fyrra og verð á ýsu um 28%. Verð á ufsa hækkaði hins vegar um 7%. Aukning í magni milli þessara tveggja mánaða er mjög mikil, 77% í þorski, 88% f ýsu. Framboð af karfa rúm- lega tvöfaldaðist og þrefalt meira af ufsa fór nú um markaðinn. Alls jókst fram- boðið um 63% og verð lækkaði um 12%. Aflabrögð 4 .Aflayfirlit og staðsetning fiski- skipanna Togararnir 5 Afii og aflaverð- mæti togaranna á síðasta ári Markaðsmál 0 Fisco selur Karstadt fersk flök í loftskiptum umbúðum Ólafur Þór Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Suður- nesja, segir að erfiðleikar í landvinnslu endurspeglist í þessari verðlækkun, en framboð af fiski í heildina, ekki bara á fiskmörkuðunum, ráði einnig mikiu. Mun meiri þorskveiöf „Verð á fiski hefur venjulega verið mjög hátt á fiskmörkuðunum í janúar, en nú bregður svo við að það lækkar miðað við sama mánuð í fyrra. Verðið er þó svipað og það var síðustu mán- uði síðasta árs. Hvað einstakar teg- undir varðar, veiddist mun meira af þorski nú en í janúar í fyrra. Því er bæði meira framboð á mörkuðunum og þeir, sem vinna af eigin skipum, þurfa síður að sækja sér þorsk á mark- aðina. Verð á ýsu hefur verið að lækka á erlendum mörkuðum, einkum verð á ferskri ýsu, sem farið hefur með flugi til Bandaríkjanna, og það hefur sín áhrif. Verð á ufsaafurðum hefur hins veg- ar farið hækkandi undanfarin misseri og þrátt fyrir þrefalt meira framboð í janúar, hækkar verðið um 7% og hefur reyndar hækkað um 56% frá því í jan- úar 1994. Núna komu nærri 400 tonn af karfa inn á markaðinn á móti 160 tonnum í janúar í fyrra og því lækkar verðið á honum um 11 til 16%. Verð á nánast öllum ílatfiski hefur lækkað, enda eðlilegt þar sern verð á þessurn tegundum hækkaði gífurlega á síðustu misserum og þar er toppnum væntan- lega náð,“ segir Ólafur Þór Jóhanns- son. Selt fyrir 228 milljónlr í Janúar Samtals fóru 2.660 tonn um Fisk- markað Suðurnesja í janúar síðastliðn- um að verðmæti 228,2 milljónir króna. I fyrra fóru 1.628 tonn að verðmæti 158,4 milljónir um markaðinn og í jan- úar 1994 1.833 tonn að verðmæti 175,2 milljónir. Meðalverð nú var 85,79, 97,28 í fyrra og 95,55 1994. Fréttii; Markaðir Mikið selt í Ejrjum • REKSTUR Fiskmarkaðs Vestmannaeyja gekk mjög vel á síðasta ári og hagnað- ur ársins var um 11,2 millj- ónir, en heildartekjur fyrir- tækisins voru 74,3 milljónir. Á aðalfundi fiskmarkaðsins kom fram að árið 1995 var metár í sögu markaðarins. Á árinu voru seld 12.500 tonn, sem var aukning um 5.400 tonn frá árinu 1994 og var heildarsöluverðmæti ársins 1995 855,2 milljónir, sem var 377 milljónum meira en árið á undan./2 Fisksalan tvöfölduð • Afkoma Fiskmarkaðs Hornafjarðar batnaði til muna milli áranna 1994 og 1995. í seldu magni fór hann úr 3.287 tonnum í 6.067 sem er 84,5% en velt- an jókst heldur meira eða um 88,1%. Meðalverð í heild hækkaði og til muna sé litið til einstakra tegunda./3 60.000 tonna laxamegrun • SÚ ákvörðun Norðmanna að hætta eða minnka fóðr- un eldislaxins mun draga úr framleiðslunni á þessu ári um allt að 60.000 tonn eða sem nemur næstum allri framleiðslu skoskra laxeldisstöðva á síðasta ári. Norska sjávarútvegsráðu- neytið stefndi að því að draga úr framleiðslunni um 40.000 tonn en nú er talið, að samdrátturinn verið á bilinu 52-60.000 tonn./5 Tölvuforrit fyrir sérvinnslu • TÖLVUFORRIT til notk- unar í frystihúsum við svo- kallaða sérvinnslu hefur nú verið hannað af SH og fyrirtækinu Skyni í Reykja- vík. Það er komið í fyrstu útgáfu og hefur verið kynnt á verkstjórafundi SH, en næsta verkefni er að fara betur yfir það með þeim vinnslustjórum og að því loknu verður forritið af- hent öllum frystihúsum inn- an SH sem stunda flaka- vinnslu. Markmið sam- starfsins er að þróa tölvu- forrit til notkunar í frysti- húsum./8 Bretar kaupa minna af fiski • INNFLUTNINGUR Breta á ísuðum fiski heldur áfram að dragast saman. I lok ágúst 1994 höfðu þeir flutt inn rúmlega 49.000 tonn af ísuðum fiski, en aðeins 40.500tonn á sama tíma í fyrra. Útflutningur okkar á ísuðum fiski til Bretlands hefur á milli þessara tímabila dregizt verulega saman eða fallið úr 16.400 tonnum í 9.100. Á sama tíma auka Færeying- ar ferskfisksölu til Bretland um nærri 50% og voru komnir í 9.200 tonn. Þjóð- verjar auka sinn hlut einnig verulega, en írar eru stærstir með tæp 11.000 tonn og er það mest makríll. Innflutningur til Bretlands Ferskur fiskur janúar-ágúst1995 írland (io.9i6tonn) 27,0%, 22,7%\Færeyiarf9'202íj ísland (9.1121) f8,2% Danmörk (3.3371) "7,2% Þýskaland (2.9041) 12,3% Aðrir (4.9971) Samtals 40.468 tonn Hlutur Rússa í freðfiski stór Innflutningur til Bretlands Frosinn fiskur janúar-ágúst1995 RÚSSland (29.299 tonn) Noregur (25.3071) Island (16.4901) Færeyjar (7.528 tj Danmörk (5 .w t) Aðrir (30.2231) Samtals 113.988 tonn • SAMDRÁTTUR er einnig í innflutningi á frystum fiski til Bretlands. í lok ágúst 1994 höfðu þeir keypt 127.000 tonn en 114.000 í fyrra. Rússar eiga mestan hlut í þeim viðskiptum með 29.300 tonn. Næst koma Norðmenn með 25.300 og loks við Islendingar með 16.500 tonn. Hlutur okkar hefur farið minnkandi, Norðmenn eru á svipuðu róli inilli ára en Rússar auka hlut sinn verulega. 4-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.