Morgunblaðið - 07.02.1996, Side 1

Morgunblaðið - 07.02.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA <ir@iunblaíiií» C 1996 MIDVIKUDAGUR 7. FEBRUAR BLAD KORFUKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Kristinn Kjartan Stein- bach í kosn- ingaslag hjá IHF KJARTAN Steinbach tilkynnti á fundi handknatt- lcikssambanda Norðurlanda í Bergen um helgina að hann hefði ákveðið að gefa kost á sér sem formaður leikreglna- og dómaranefndar Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF. Viðkomandi formaður er einn af valdamestu mönnum IHF, er í handknattleiksráðinu og í fimm manna fram- kvæmdanefnd sam- bandsins. Fram- kvæmdanefndin sér um daglegan rekstur IHF en ráðið, sem saman- stendur af öiium fram- kvæmdanefndarm- önnum, fulltrúum álf- anna og formönnum þriggja helstu nefnda, alls 16 manns, mótar stefnuna. Svíinn Erik Elias hef- ur verið formaður leik- reglna- og dómara- nefndar IHF í 12 ár en var áður í átta ár í nefndinni. Hann er kom- inn á aldur en eftirmaður verður kosinn á þing- inu á Ólympíuleikunum í Atlanta í Bandaríkjunum í sumar. Rætt hefur verið um að Hollendingurinn Theo Kilhorn og Javis Grinbergas frá Litháen, sem eru í nefndinni, gefi kost á sér í formanns- embættið, sem er ólaunað. Eins hefur Norðmað- urinn Oivind Bolstad verið nefndur. „Þetta verður harður slagur og ég þarf að berjast við öfluga menn og fjársterk sambönd en það er mikilvægt fyrir íslenskan handknattleik að eiga fulltrúa á toppnum og því ákvað ég að gefa kost á mér,“ sagði Kjartan. Hann bætti við að mikil vinna væri framundan vegna framboðsins én því hefði þegar verið tekið vel og næsta skref væri að fylgja þeinj viðbrögðum eftir. Kjartan hefur verið kennari hjá IHF síðan 1988 og er eftirlitsmaður þjá Evrópusambandinu. Hann hefur starfað um árabil fyrir Handknattleikssam- band íslands og er nú m.a. varaformaður þess. Bjarki í úrvalslið Lottó-keppninnar BJARKI Sigurðsson var valinn í úrvalslið Lottó- keppninnar i handknattleik sem lauk í Bergen í Noregi um helgina. Seren Haagen Andreasen, Danmörku, var valinn í markið, Nikolaj Jacob- sen, Danmörku, í vinstra hornið, Kim G. Jacob- sen, Danmörku, skytta vinstra megin, Glenn Solberg, Noregi, leikstjórnandi, Morten Bjerre, Danmörku, skytta hægra megin og Alexander Dedu, Rúmeníu, linumaður. Að loknum hverjum leik var valinn maður leiksins og var Morten Bjerre sá eini sem einnig var valinn í úrvalslið keppninnar. Ólafur Stefáns- son var eini íslendingurinn sem valin var maður leiksins en sú útnefning kom í kjölfar sigurs íslands gegn Rúmeniu. Kjartan Stelnbach Miklir yfirburðir Keflvíkinga KNATTSPYRNA Olafur fer frá FH til KR BJÖRG Hafsteinsdóttir og stöll- ur hennar í Keflavíkurliðinu höfðu mjög mikla yfirburði er þær heimsóttu KR-inga í gær- kvöldi. Keflvíkingar hreinlega völtruðu yfir heimamenn með frábærum fyrri hálfleik þar sem skotnýting Iiðsins var 80%! Við slíkt ræður ekkert lið og því urðu KR-ingar að játa sig sigraða þrátt fyrir jafnari síðari hálfleik. Keflavík og Breiðablik eru efst og jöfn í 1. deild kvenna. ■ Keflavíkur.../C2 Olafur Kristjánsson, fyrirliði knattspyrnuliðs FH hin síðari ár, hefur ákveðið að yfirgefa herbúð- ir Hafnarfjarðarliðsins og flytja sig yfir tii KR fyrir næsta keppnistíma- bil. FH-ingar féllu niður í 2. deild sl. haust. Ólafur, sem hefur leikið með FH síðan hann var 14 ára gamall, er 27 ára og á að baki 149 leiki í 1. deildinni með FH og þrettán sinnum hefur hann klæðst landsliðspeysunni með A-liðinu. Hann hefur leikið bæði sem tengiliður og vinstri bak- vörður og er ætlað að fylla skarð Daða Dervic vinstra megin í vörn- inni hjá KR. „Það stefnir allt í að ég leiki með KR í sumar, en það á þó eftir að ganga endanlega frá því,“ sagði Ólafur í samtali við Morgunblaðið í gær. „Auðvitað er það fyrsta deiidin sem togar í mann og mér líst ágæt- lega á mannskapinn hjá KR og tel að það henti mér ágætlega að leika þar. Það var auðvitað erfitt að ákveða að fara frá FH eftir allan þennan tíma, en ég taldi kominn tíma til að prófa eitthvað nýtt og ég tók þessa ákvörðun sjálfur og þó svo hún hafi verið erfið verða menn að sætta sig við hana. Ég fer ekki frá FH í neinum leiðindum," sagði Ólafur. Hann sagði aldrei hafa kom- ið til greina fyrr en nú að skipta um lið. „Það hefur aldrei nokkur maður frá öðru félagi talað við mig um að skipta um félag, enda hafa menn sjálfsagt talið mig FH-ing alveg í gegn,“ sagði fyrirliðinn. KNATTSPYRNA: ASPRILLA TIL NEWCASTLE EFTIR ALLT SAMAN / C4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.