Morgunblaðið - 07.02.1996, Blaðsíða 3
2 C MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
IÞROTTIR
KORFUKNATTLEIKUR
Reuter
OTIS Thorpe, leikmaður Pistons treður hér yfir New York
leikmanninn John Starks. Þetta dugði þó ekki til sigurs því
Starks og félagar f Knicks unnu.
Sigurkarfa
alveg í lokin
Frábær fyrri
hálfleikur dugði
gegn KR-ingum
KR - Keflavík 57:76
-Hagaskóli, 1. deild kvenna i körfu — 14.
umferð — þriðjud. 6. febrúar 1996.
Gangur leiksins: 2:0, 6:2, 10:4, 12:10,
14:21, 16:36, 27:45, 27:52, 44:64, 57:71,
57:76.
Stig KR: Helga Þorvaldsdóttir 17, Guðbjörg
Norðfjörð 16, Majeniea Rupe 8. Helga Árna-
dóttir 7, Kristín Jónsdóttir 5, María Guð-
mundsdóttir 2, Georgía Kristiansen 2.
Fráköst: 14 í sókn — 10 í vörn.
Stig Keflavíkur: Veroniea Cook 27, Björg
Hafsteinsdóttir 13. Anna María Sveinsdótt-
ir 12, Erla Þorsteinsdóttir 10, Margrét Stur-
laugsdóttir 8, Lóa Björg Gestsdóttir 2, Ingi-
björg Emilsdóttir 2, Kristín Þórarinsdóttir 2.
Fráköst: 7 í sókn — 26 í vörn.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Árni
Freyr Sigurlaugsson. Góðir.
Villur: KR 17 - Keflavík 20.
Fj. leikja U T Stig Stig
KEFLAVIK 14 12 2 1164: 739 24
BREIÐABLIK 13 12 1 1005: 716 24
UMFG 14 11 3 992: 768 22
KR 14 10 4 968: 779 20
UMFN 14 7 7 844: 824 14
IR 14 6 8 922: 935 12
TINDASTOLL 13 4 9 794: 935 8
VALUR 13 4 9 651: 836 8
IS 13 1 12 568: 962 2
IA 14 1 13 640: 1054 2
NBA-úrslit
Leikir aðfararnótt þriðjudags:
....103:92
97:91
....104:92
83:92
La Clippers - Golden State Íshokkí „124:128
NHL-deildin
Leikir aðfararnótt þriðjudags: 4:2
6:4
Knattspyrna Frakkland
1:1
Meistarakeppni Evrópu Madrid, Spáni: 1:1
Xavier Aguado (29.) - Patrick Kluivert (71.). England Bikarkeppnin, tjórða umferð:
■Öðrum leikjum var frestað vegna snjóa og einnig leikjum sem vera eiga í kvöld.
Skotfimi
Landsmót haldið í Digranesi 3. febrúar
Riffill - 60 skot liggjandi:
Carl J. Eiríksson, UMFA............585
Gylfi Ægisson, SFK.................575
Jónas Bjargmundsson, SFK...........567
Loftskammbyssa:
Hannes Tómasson, SFK...............565
Gylfi Ægisson, SFK.................564
Sigurbjörn Ásgeirsson, IFL.........550
Gylfi Ægisson, SFK..................564
Sigurbjörn Ásgeirsson, IFL..........550
Ekvöld
Handknattleikur
1. deild kvenna:
Fylkishús: Fylkir- Stjaman... ...kl. 20
Kaplakriki: FH-KR ...kl. 20
Vaisheimili: Valur-ÍBV ...kl. 20
Vikin: Víkingur - Fram ...kl. 20
Körfuknattleikur
1. deild kvenna:
Smárinn: Breiðablik - Valur.. ...kl. 20
Blak
Bikarkeppni kvenna:
Digranes: HK-Víkingur ...kl. 20
FELAGSLIF
Liverpool-klúbb-
urínn ferá Anfield
LIVERPOOLKLÚBBURINN á íslandi
hefur skipulagt ferð á leik Liverpool
og Chelsea á Anfield Road í Liverpool
16. mars. í sömu ferð verður farið á
leik Leeds og Everton. Flogið verður
til Glasgow að morgni 15. mars og
komið aftur heim að kvöldi 18. mars
í gegnum London. Frekari upplýs-
ingarog skráning í síma 565 6150
(Matthías) og 587 0115 (Jón Óli).
Partille Cup kynning
ÚRVAL-Útsýn verðru með ferðir á
Partille Cup handboltamótið í sumar.
Kynningarfundur verður í dag kl.
17.45 að Lágmúla 3.
Þorramót Gróttu
ÁRLEGT Þorramót Gróttu í „old
boys“ flokki í knattspyrnu verður hald-
ið helgina 24. og 25. febrúar. Keppt
verður í tveimur aldurfslokkum, 30
ára og eldri og 40 ára og eldri. Fimm
eru í hverju iiði og leikið í 2x7 mínút-
ur. Þátttaka tilkynnist fyrir 15. febr-
úar til Garðars Guðmundssonar s. 567
4526 eða 581 3500.
James Robinson tók þriggja stiga
skot og skoraði þegar einn tí-
undi úr sekúndu var eftir af leik
Toronto og Portland. Damon Stoud-
amire hafði jafnað fyrir Toronto,
87:87, með sniðskoti þegar 22 sek-
úndur voru til leiksloka en gestirnir
nýttu tímann. Rod Strickland óð
upp völlinn en gaf síðan út á Robin-
son. „Þetta er í annað sinn hjá mér
og það er dásamleg tilfinning,“
sagði Robinson, sem gerði sigur-
körfuna þegar Portland vann La-
kers, 109:108, í nóvember sem leið.
„í Los Angeles skoraði ég um leið
og bjallan glumdi en þetta var líka
spennandi."
Brendan Malone, þjálfari Tor-
onto, sagðist hafa átt von á þessu
en vörnin hefði brugðist'. „Við vild-
um ekki fá svona skot en slepptum
þeim lausum og töpuðum fyrir vik-
ið. Rod Strickland sýndi hvers
vegna hann er einn af þeim bestu
einn gegn einum.“ Strickland var
með 28 stig fyrir Portland og Cliff-
ord Robinson 25 en liðið hafði tap-
að 11 af síðustu 16 útileikjum.
Toronto náði níu stiga forystu
um miðjan fjórða leikhluta en síðan
jafnaðist leikurinn og liðin skiptust
á að vera yfir allt til loka. „Við
gáfumst aldrei upp og það var
gott,“ sagði P.J. Carlesimo, þjálfari
Portlands. „Lengi vel vorum við sex
eða átta stigum undir en í lokin
tókum við okkur á í vörninni og
tókst að stöðva þá. Rod var frábær
og ákvörðun hans í lokin var góð.“
Tracy Murray og Stoudamire
gerðu sín 16 stigin hvor fyrir Tor-
onto sem hefur tapaði fimm af síð-
ustu sex leikjum. „Það er orðin
venja hjá okkur að tapa jöfnum
leikjum og því verðum við að
breyta," sagði Stoudamire.
Patrick Ewing skoraði 25 stig og
braut 19.000 stiga múrinn í deild-
inni þegar New York vann Detroit,
97:91, fimmti sigur liðsins í sex leikj-
um. Hubert Davis var með 15 stig
og Derek Harper 14 stig. Allan
Houston gerði 24 stig fyrir Detroit
og Don Reid var með 13 stig en
þetta var áttunda tap liðsins í röð í
Madison Square Garden.
Miami vann Sacramento, 103:92.
Alonzo Mourning skoraði 25 stig
og tók 11 fráköst, Rex Chapman
var með 24 stig og Kevin Willis tók
14 fráköst fyrir heimamenn. Mitch
Richmond skoraði 18 stig fyrir
Kings en Olden Polynice 15 stig
auk þess sem hann tók sjö fráköst.
Minnesota vann Dallas 104:92.
Christian Laettner var stigahæstur
heimamanna með 23 stig, Tom
Gugliotta kom næstur með 22 stig,
Isaiah Rider var með 21 og Sam
Mitcheli 20 stig. Jason Kidd skor-
aði 22 stig fyrir Dallas og átti níu
stoðsendingar, Jim Jackson skoraði
21 stig og George McCloud 17 stig.
Utah gerði góða ferð til Vancouv-
er í Kanada og vann, 92:83. Karl
Maione skoraði 31 stig fyrirgestina
og Jeff Hornacek 18 stig. Byron
Scott gerði 19 stig fyrir Vancouver
og Anthony Avent 14 stig.
Golden State vann Los Angeles
Clippers, 128:124. Joe Smith var
með 25 stig og tók 16 fráköst fyrir
gestina, Latrell Sprewell skoraði
24 stig og Chris Gatling 20 stig.
Brian Williams og Loy Vaught
gerðu sín 22 stigin hvor fyrir Clipp-
ers sem hefur tapað sex leikjum í
röð og 10 af síðustu 11 leikjum.
Keflavíkurstúlkur skutust í efsta
sæti 1. deildar kvenna í gær-
kvöldi er þær rúlluðu yfir KR-inga,
mmmi sem eru í fjórða sæti
Skúli Unnar deildarinnar. Kefla-
Sveinsson vík sigraði 57:76 eft-
skrifar ir að hafa leitt mest
með 25 stigum í
upphafí síðari háifleiks. Af leik Kefl-
víkinga má ráða að stúlkurnar verða
illviðráðanlegar í úrslitakeppninni.
Þær urðu að lúta í lægra haldi fyr-
ir Breiðabliki í úrsltum í fyrra eftir
að hafa hampað íslandsmeistaratitl-
inum þijú ár í röð þar á undan og
eru greinilega á þeim buxunum að
krækja í titilinn á nýjan leik. Breiða-
blik er með jafn mörg stig og Kefla-
vík. og á leik til góða.
1 gærkvöldi voru það KR-ingar
sem byijuðu betur og komust í 10:4
eftir sex mínútna leik. Þá tók Sig-
urður, þjálfari Keflvíkinga, leikhlé,
las aðeins yfir áhugalitlum og vand-
ræðalegum stúlkum sínum og viti
menn. Næstu tíu mínúturnar gerðu
gestirnir 32 stig en KR aðeins sex!
Og hvílíkur leikur á þessum kafla
hjá nýkrýndum bikarmeisturum
Keflavíkur.
Hittnin var hreint ótrúleg. Af 11
skotum innan teigs hittu stúlkurnar
úr 8. Fimm af sex skotum utan teigs
fóru niður, fjögur af fimm þriggja
stiga skotum og öll sjö vítaskotin
rötuðu rétta leið. 30 skot og 24 nið-
ur; það gerir 80% skotnýtingu!
Til að koma í veg fyrir misskiln-
ing þá byijuðu Keflavíkurstúlkur
mjög illa og hver sóknin rann út í
sandinn án þess að þær næðu skoti
á körfuna, enda var vörn KR mjög
FIMLEIKAR
Rúnar
sigraði
með yfir-
burðum
RÚNAR Alexandersson, fim-
leikamaður úr Gerplu, sigraði
með yfirburðum í frjálsum æf-
ingum í karlaflokki á Þorramóti
Fimleiksambands íslands sem fór
fram í Laugardalshöll á sunnu-
daginn. Rúnar fékk 53.700 stig
en Omar Orn Olafsson, Gerplu,
varð annar með 49.050 stig og
Guðjón Guðmundsson, Armanni
hlaut þriðja sætið með 48.750
stig. Var þetta í fyrsta sinn sem
Guðjón tapar í móti fyrir íslend-
ingi, en Guðjón hefur undanfarin
ár verið besti fimleikamður
landsins.
Elín Gunnlaugsdóttir, Ar-
manni, bar sigurorð af keppi-
nautum sínum í stúlknaflokki
eftir hnífjafna keppni, Elín fékk
samtals 34.450 st.ig fyrir æfingar
sinar en önnur varð Nína Björg
Magnúsdóttir, Björk, með 34.350
stig.
„Mér gekk betur en ég bjóst
við og er að vonum glöð. Sérstak-
lega er ég ánægð með gólfæfing-
arnar, þar fékk fékk ég níu í
einkunn. Annars var heildin góð
og engar æfingar sem ég hefði
viljað taka upp hefði þess verið
kostur,“ sagði Elín í mótslok og
góð á þessum tíma. Eftir þennan
frábæra kafla Keflvíkinga var aldrei
spurning um hvorum megin sigurinn
lenti.
Síðari hálfleikur var leiðinlegur,
enda vissu bæði lið hvernig úrslitin
yrðu. Fyrsta skot Keflvíkinga eftir
hlé mistókst en síðan komu sjö stig
í röð áður en KR náði að svara eft-
ir rúmar fimm mínútur. Fyrsta
karfa Keflavíkur í síðari hálfleik
kom ekki fyrr en eftir tæpar fjórar
mínútur. Síðari hluta hálfleiksins
léku ungu stúlkurnar í Keflavíkur-
liðinu og héldu alveg í við KR-inga,
sem reyndar skiptu nokkuð ört inná
einnig. KR-ingar léku illa að þessu
sinni og þarf varla að fjölyrða um
það. Guðbjörg Norðfjörð átti þó
ágætan dag og það væri illa komið
fyrir KR ef hún væri ekki í liðinu.
Hún er mikill baráttujaxl sem aldrei
gefst upp og smitar út frá sér.
Helga Þorvaldsdóttir átti einnig
ágætan dag, en aðrar léku ekki vel.
Veronica Cook var frábær í liði
Keflvíkinga, sérstaklega í fyrri hálf-
leiknum þegar hún gerði 20 stig og
hitti ótrúlega vel auk þess sem hún
qr sterk í vörn. Björg Hafsteinsdótt-
ir og Anna María Sveinsdóttir voru
einnig sterkar og Erla Þorsteins-
dóttir átti ágæta spretti eins og
nafna hennar Reynisdóttir, sem
komst reyndar ekki á blað, náði
ekki að skora.
Margrét Sturlaugsdóttir kom
sterk inn í síðari hálfleiknum. Ann-
ars er Keflavíkurliði ekki árennilegt
þessa dagana því byijunarliðið er
mjög sterkt og á bekknum eru sterk-
ar stúlkur einnig.
var að vonum ánægð þar sem
þetta var í fyrsta skipti sem hún
sigrar í heildarkeppni á stórmóti.
„Ég er ánægður með daginn
hjá mér ef æfingarnar á boga-
hestinum eru undanskildar. Þær
gengu ekki sem skyldi að þessu
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996 C 3
KNATTSPYRNA
*
Logi Olafsson stjórnar íslenska landsliðinu ífyrsta sinn gegn Slóveníu
Strákamir tilbúnir að gera
það sem fyrir þá er lagt
Við komum til með að setja upp
okkar leik og undirbúa okkur
sem best fyrir átökin. Við vitum nán-
ast ekkert um landsl-
Sigmundur Ó. ið Slóveníu og ætlum
Steinarsson ekki að fara mála
skrifar frá skrattann á vegg með
Möltu andstæðingum okk-
ar. Strákarnir gera það sem fyrir þá
verður lagt,“ segir Logi Óiafsson, sem
stjórnar sínum fyrsta landsleik gegn
Slóveníu á Ta’Qali ■*- þjóðarleikvang-
um á Möltu í dag klukkan 16.30 á
staðartíma, 15.30 að íslenskum tíma.
Logi valdi byijunarlið sitt í gærkvöldi
og mun tilkynna strákunum það í dag.
Birkir Kristinsson verður í mark-
inu, hægri bakvörður verður Lárus
Orri Sigurðsson, miðverðir Ólafur
Adolfsson og Þorsteinn Guðjónsson
og vinstri bakvörður Sigursteinn
Gíslason. Á miðjunni leika Þórður
Guðjónsson, Sigurður Jónsson, Rúnar
Kristinsson og Haraldur Ingólfsson.
Fyrir framan verður Ólafur Þórðar-
son, en fremstur í flokki miðheijinn
ungi hjá Stuttgart, Helgi Sigurðsson.
„Allir leikmennirnir eru tilbúnir í
þennan fyrsta leik okkar og fara með
því hugarfari að leggja sig alla fram,
ná upp ákveðinni stemmningu. Það
er liðsheildin sem er á bak við liðið
og hér eru þeir menn sem koma til
með að standa við bak strákanna í
undankeppni heimsmeistaramótsins,
auk þeirra Eggerts Magnússonar,
Guðmundar Péturssonar og_ Gústafs
Björnssonar," sagði Logi Ólafsson.
Þeir sem hér eru með landsliðinu eru
Kristinn Björnsson aðstoðarþjálfari,
Siguijón Sigurðsson læknir, Gunnar
Sverrisson sjúkraþjálfari, Diðrik Ól-
afsson liðsstjóri og fararstjórarnir
Halldór B. Jónsson og Geir Þorsteins-
son.
Aðspurður sagði Logi að leikað-
ferðin í vörn yrði 4-5-1 en þegar
íslenska liðið yrði með boltann yrði
leikið 4-3-3. 18 af þeim 20 leik-
mönnum sem hér eru verða á leik-
sýslu og Logi má skipta fiinm leik-
mönnum inn á í leiknum. „Ég reikna
með að nota alla þá fimm menn sem
ég má skipta inn á, en það spilast
þó eftir því hvernig leikurinn geng-
ur,“ sagði hann í gær.
Vogts njósnar
Ajax fjarri
sínu besta
AJAX og Real Zaragoza
skildu með skiptan hlut 1:1 í
fyrri viðureigninni í Meist-
arakeppni Evrópu í gær-
kvöldi. Leikmenn Zaragoza
voru betri aðiiinn í leiknum
og Ajax liðið var aðeins
skugginn af því sem liðið var
í úrslitaleik Evrópukeppn-
innar I vor, enda vantaði
sterka leikmenn. Spánverj-
arnir fengu góð færi í fyrri
hálfleik en gekk illa að skora.
Xavier Aguado kom þeim
loks yfir á 29. mín. Hol-
lendingarnir náðu sér aðeins
á strik í síðari hálfleik. Það
var síðan Patrick Kluivert
sem tókst að brjóta sér leið
í gegnum rangstöðugildru
Zaragoza á 71. mín. og jafna.
Rússar eru með alla sína sterk-
ustu leikmenn á Möltu, þar
sem mótið hér er fyrsti liðurinn í
undirbúningi þeirra fyrir Evrópu-
keppni landsliða sem fer fram á
Englandi í sumar.
Oleg Romantsev, landsliðsþjálf-
ari Rússa, hefur kallað á tólf leik-
menn sem leika með liðum utan
Rússlands, þá eru þrettán leikmenn
í 30 manna landsliðshópi Rússa frá
meistaraliðinu Spartak í Moskvu.
Hingað til Möltu er kominn Berti
Vogts, landsliðsþjálfari Þjóðveija,
til að njósna um rússneska liðið,
sem leikur í riðli með Þjóðveijum í
úrslitakeppni Evrópumótsins í Eng-
landi í sumar en einnig Ieika í riðlin-
um lið Ítalíu og Tékklands.
Fjórir leikmenn Rússlands koma
frá Englandi. Það er markvörðurinn
Dimitri Karin sem leikur Chelsea,
Andrei Kanchelskis, Everton og
Sergei Juran og Vassili Koulkov,
sem leika með Millwall. Frá Ítalíu
koma Igor Shalimov, Udinese og
Igor Kolyvanov, Foggia, frá Þýska-
landi koma Vladimir Besthcast-
nykh, Werder Bremen, Sergei Kir-
iakov, Karlsruhe, frá Frakklandi
kemur Aiexandre Mostovo, Strass-
burg, frá Spáni Viktor Onopko,
hann spilar með Real Oviedo og
Dimitri Ratchenko frá Deportivo
La Coruna.
Rússnekska liðið er geysilega
sterkt því fyrir utan þessa leikmenn
eru 13 leikmenn frá Spartak
Moskvu, sem hefur staðið sig liða
best í meistaradeild Evrópu, vann
alla sína leiki í riðlakeppninni.
Rússar leggja greinilega mikið
upp úr mótinu hér á Möltu, sem
sést á því að þeir eru hér með 30
leikmenn; fjóra þjálfara, tvo lækna,
þijá sjúkranuddara, myndbands-
tökumann og þijá aðalfararstjóra,
þannig að Rússar eru með 43
manna hóp.
Möltuliðið er eingöngu skipað
leikmönnum sem leika hér á Möltu
og þá leika flestir leikmenn Slóven-
íu með liðum þar í landi, en þeir
eru með fjóra leikmenn sem leika
með liðum utan landsins — í Belg-
íu, Austurríki og Ítalíu.
BLAK
Morgunblaðið/Gunnlaugur
RÚNAR Alexandersson ■
æfingum í hringjum á Þorra-
mótinu í Laugardalshöll.
Hann hafði mikla yfirburði á
mótinu en kvaðst þó ekki
ánægður með frammlstöðu
sína á bogahestinum.
sinni,“ sagði Rúnar Alexanders-
son við Morgunhlaðið. „Á þessu
móti var ég í fyrsta skipti að
framkvæma æfingar á tvísiá með
mestu erfiðleikagráðu og þær
runnu vel í gegn en ég þarf að
„snyrta" þær betur.“
Ótrúlegalétt
hjá ÍS gegn HK
Stúdentar þurftu ekki mikið að
hafa fyrir 3:0-sigri á HK í
1. deild karla í blaki í Hagaskólan-
um á sunnudagskvöldið. Guðberg-
ur Egill Eyjólfsson uppspilari HK
var fjarri góðu gamni, veðurteppt-
ur úti á landi. Það var einungis í
fyrstu hrinunni að gestirnir náðu
að bíta eitthvað frá sér en hrinan
endaði 15:11. Framhaldið varð
auðvelt en önnur og þriðja hrina
enduðu 15:8 og 15:7. Lið HK er
nokkuð öruggt inn í úrslitakeppn-
ina en liðið siglir lygnan sjó á
meðan Stúdentar eiga eftir að
gulltryggja sig.
Lið Þróttar í Neskaupstað vann
lið KA tvöfalt um helgina. Á föstu-
dagskvöldið skelltu heimamenn
gestunum örugglega, 3:1, en á
laugardeginum þurfti fimm hrin-
ur. í oddahrinunni tóku heima-
menn sig saman í andlitinu og
skelltu gestunum úr KA 15:10.
Islandsmeistarar HK höfðu bet-
ur gegn Stúdínum í fimm hrinu
leik í íþróttahúsi Hagaskólans á
sunnudagskvöld. Leikurinn var
mjög jafn en Stúdínur unnu fyrstu
hrinuna, 15:12, en HK tvær þær
næstu, 17:15 og 15:10. Stúdínur
mættu einbeittar í fjórðu hrinuna
og tryggðu sér oddahrinu með því
að leggja HK-stúlkur 15:9. Odda-
hrinan var mjög jöfn og það var
ekki fyrr en í lokin að HK-liðið
náði að höggva á hnútinn og inn-
byrða sigurinn.
Hjá HK lék Anna Guðrún Ein-
arsdóttir ágætlega á köflum en
sem fyrr voru það kantskellarnir,
Elva Rut Helgadóttir og Elín Guð-
mundsdóttir, sem vógu þyngst í
sókninni hjá HK. í liði Stúdína var
Jóna Harpa Viggósdóttir góð, lék
vel í vörn og sókn en Sesselja
Jónsdóttir uppspilari Stúdína vann
mjög vel fyrir liðið í leiknum og
liðsheildin virkaði sannfærandi.
Meistararnir gegn KA
BIKARMEISTARAR HK drógust gegn KA á heimavelli í undanúr-
slitum bikarkeppni BLI í meistaraflokki karla. í hinum undanúr-
slitaleiknum leika Þróttur Reykjavík og Stjarnan.
í undanúrslitum í kvennaflokki leika ÍS-HK eða Víkingur, en
þau leika í kvöld. KA fær Þrótt Neskaupstað í heimsókn I hinum
undanúrslitaleiknum.
Guðmundur
Stefán dæmir
á Möltu
GUÐMUNDUR Stefán Maríasson, einn
af fjórum rnilliríkjadómurum fslands,
dæmir á mótinu á Möltu. Guðmundur
Stefán, sem hefur dæmt fjöimarga ungl-
ingalandsleiki á síðustu árum, dæmir sinn
fyrsta A-landsleik á föstudaginn — leik
Möltu og Slóveníu. Þá verður hann vara-
dómari á leik Möltu og Rússlands i dag.
Diðrik Ólafs-
son er liðsstjóri
DIÐRIK Ólafsson, fyrrum landsliðs-
markvörður úr Víkingi, er liðsstjóri
landsliðsins. Logi Ólafsson landsliðs-
þjálfari fékk Diðrik til liðs við sig en
hann var liðssljóri Loga hjá Vfldngi um
árið þegar Logi gerði Víkinga að Islands-
meisturum. Kristinn Björnsson, annar
fyrrum iandsliðsmaður og þjálfari
kvennalandsliðsins, er aðstoðarþjálfari
Loga í ferðinni.
Diðrik lék alls þrjá landsleiki, alla á
erlendri grund. Fyrst gegn Færeyingum
í Klakksvík 1973 í sigurleik, 4-0. Ðiðrik
fékk síðan meira að gera í markinu í
næstu landsleikjum sínum — gegn Hol-
lendingum í HM 1973, en báðir leikimir
vom leiknir í Hollandi og töpuðust 0-5
og 1-8.
Rúnartil
Flórída
RUNAR Kristinsson og Láras Orri Sig-
urðsson fara frá Möltu á morgun. Rúnar
fer til Bandaríkjanna, þar sem liðið sem
hann leikur með í Svíþjóð, Örgryte, er
þar í æfingabúðum. Aftur á móti leikur
Láms Orri með Stoke á Englandi á laug-
ardaginn.
Fimm léku á
Möltu 1992
FIMM leikmenn landsliðsins léku einnig
á Möltumótinu 1992, þegar leikið var
gegn Möitu, ólympíuliði Norðmanna, og
þýska liðinu Blau-Weiss Berlin. Það eru
þeir Birkir Kristinsson, Araar Grétars-
son, Rúnar Kristinsson, Haraldur Ing-
ólfsson og Arnór Guðjohnsen.
Slóvenar með
ungt lið
EKKI er mikið vitað um lið Slóvena nema
hvað að það er frekar ungt því þar í
landi er verið að byggja upp. Slóvenía
lék tvo leiki við Litháen í undankeppni
í undankeppni HM. í desember skruppu
slóvenar síðan til Mexíkó og gerðu sér
lítið fyrir og sigruðu heimamenn 2:1.
Sigurður verð-
ur fyrirliði
SIGURÐUR Jónsson frá Akranesi verður
fyrirliði í leiknum gegn Slóveníu í kvöld
í fjarveru Guðna Bergssonar. Sigurður
sagði að hann héldi til Svíþjóðar fljótlega
eftir að hann kæmi heim úr Möltuferð-
iimi. Hann sagðist fara heim og skíra
litla snáðann, en síðan færi hann til Sví-
þjóðar til að ganga frá sínum niálum.
Bjarki og Ólaf-
ur veikir
BJARKI Gunnlaugsson æfði ekkert með
liðinu í gærkvöidi, haun lá heima á hóteli
með hálsbólgu. Óiafur Þórðarson frá Akra-
nesi sagðist einnig finna fyrir einhverium