Morgunblaðið - 09.02.1996, Síða 1
JB
FOSTUDAGUR 11. FEB
BLAÐ B
■ Sorpmál hafa gjörbreyst á 4 árum. Eru til fyrirmyndar á 160 þús-
und manna svæði. Fólk hætt að henda dagblöðum nema í sérgáma.
35% sorps endurunnin, jafnast á við árangur nágrannaþjóða. ■
Morgunblaðið/Ásdís
Skreytilist í málun
MARMARAÁFERÐ, viðará-
ferð, alls konar mynstur og
skreytingar í fjölbreyttum lit-
um og litasamsetningum virð-
ist vera að ryðja sér til rúms
í málun innanhúss. I vikunni
bauð Slippfélagið, í samvinnu
við sænskan málningarfram-
leiðanda, málurum og málara-
meisturum á tveggja daga
námskeið til að læra hand-
brögðin og meðferð þar til
gerðrar málningar. Kristján
Sigurðsson, sölustjóri, segir
að fyrir þremur áratugum
hafi málarar verið vel að sér
um slíka skreytilist, en sam-
fara minnkandi eftirspurn eft-
ir vinnu af þessu tagi hafi
þekkingin farið forgörðum.
„Áður fyrr var skreyti-
málning mun flóknari og erf-
iðari viðfangs en nú er. Sterk
lykt var af málningunni, sem
innihélt lífræn leysiefni, og
afar óhollt og óþægilegt að
vinna með hana. Fyrir nokkr-
um árum kom ný vatnsþynn-
anleg málning á markaðinn,
sem gerir vinnuna mun auð-
veldari og skemmtilegri. Eftir
aðsókninni á námskeiðið að
dæma virðast málarar hafa
mikinn áhuga á að bjóða við-
skiptavinum sinum upp á fjöl-
breytta þjónusu." ■
Árangur
í sorpmálum góður
á höfuðborgarsvæðinu
ENDURVINNSLA
er orðin 35% af öll-
um úrgangi sem til
fellur í Reykjavík og
nágrannasveitarfé-
lögum, þrátt fyrir
að sorp sé ekki
brennt til orku-
vinnslu.
Sveitarfélögin
sem eiga Sorpu telja
um 160 þúsund íbúa
sem hafa aðgang að
sjö gámastöðvum
víðsvegar um svæðið, auk aðgangs
að gámum undir dagblaðapappír.
726 tonn af dagblaðapappír söfn-
uðust frá 1. júní til 31. desember
1995 í söfnunargáma sveitarfélag-
anna og Reykjavíkurborgar.
Hreinsunardeild Reykj avíkurborgar
hefur einnig dreift litlum gámum á
fjölmarga staði í Breiðholti.
Rúm 20 kg af dagblaða-
pappír á íbúa
Alls bárust til Sorpu 2.485 tonn
af dagblöðum og tímaritum til end-
urvinnslu á síðasta ári, þannig að
svæðið í heild skilar rúmum 20 kg
af dagblaðapappír á íbúa til endur-
vinnslu, sem sýnir afar góð viðbrögð
við pappírssöfnuninni á síðasta ári.
Til Sorpu koma 880 tonn af spilli-
efnum frá heimilum og úr atvinnu-
lífinu. Frá hveiju heimili koma nú
fjögur og hálft kíló af spilliefnum,
en í Noregi er reiknað með um 1 ‘A-
2'A kílói á íbúa.
Hér á landi er
afgangur af máln-
ingu dijúgur hiuti
spilliefnanna.
„Þessi árangur .er
mjög góður og
svæðið stenst fylli-
lega samanburð við
góð svæði á Norður-
löndunum eins og
Óðirisvé í Dan-
mörku og önnur
svæði í Svíþjóð og
Noregi," segir Ög-
mundur Einarsson, framkvæmda-
stjóri Sorpu.
Sífellt meira af sorptegundum
er endurunnið
Sorpa hefur starfað í 4 ár en
fyrir stofnun hennar var öllu sorpi
nema áldósum, gosflöskum og
nokkru af brotajárni hent í einn
haug. Núna eru timbur, pappír,
drykkjarvöruumbúðir, hjólbarðar,
spilliefni eins og rafgeymar, garðúr-
gangur og brotamálmar endurunnin.
Ögmundur bendir á að íbúar höf-
uðborgarsvæðisins geri þetta sjálf-
viljugir því engar reglugerðir kveði
á um skyldur einstaklinga eða fyrir-
tækja í sorphirðumálum.
„Árangurinn sést ef til vill best
á því að íbúum á höfuðborgarsvæð-
inu fjölgaði um rúm 4% frá
1992-95, en úrgangur frá heimilum
jókst aðeins um rúm 3% á sama
timabili," segir Ögmundur að lok-
-H
S>HOI
14 mismunandi gerðir af eldhúsvöskum. Einfaldir,
tvöfaldir eða þrefaldir - með eða
án borðs.