Morgunblaðið - 10.02.1996, Side 1
I
KNATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR: ALLT UM BIKARÚRSLITALEIKINA í HÖLLINNI / D2,D3
Eydís setti
met í 100 m
flugsundi
EYDÍS Konráðsdóttir setti í gærkvöldi íslands-
met í 100 metra baksundi á móti í Sindelfingen
í Þýskalandi. Eydís synti á 1.03,76 en hún átti
gamla metið sjálf, 1.03,87. Eydís náði þessum
tíma á fyrsta spretti í 400 metra fjórsundi enda
var hún að reyna við Ólympíulágmarkið og fær
annað tækifæri í dag til að ná því og síðan á
sunnudag takist það ekki í dag. Lágmarkið
1.03,15.
Sigursteinn tæk-
laði línuvörðinn
SIGURSTEINN Gíslason
tæklaði annan línuvörðinn
strax á 14. mínútu með
þeim afleiðingum að stöðva
þurfti leikinn. Sigursteinn
kom á fleygiferð út að
hornfánanum þar sem hann
náði að spyrnaknettinum
út af en sólinn lenti síðan í
línuverðinum. Læknir rúss-
neska liðsins kom honum til
hjálpar.
Möltumenn
til íslands
KSÍ hefur boðið Knatt-
spyrnusambandi Möltu að
koma til íslands í sumar og
hafa Möltumenn þegið boð-
ið. Möltumenn koma hingað
til lands með A-lið sitt og
21 árs landslið og verða leik-
irnir 14. ágúst.
McCarthy
græddi lítið
MICK McCarthy, þjálfari
íra, græddi lítið á að koma
til Möltu því hann sá aðeins
afspyrnu lélegan leik ís-
lands gegn Slóveniu og fór
síðan til síns heima. Hann
var því ekki meðal áhorf-
enda í gær er íslenska liði
lék mun betur en á miðviku-
daginn.
Helgi fékk
nýliðamerkið
HELGI Kolviðsson, sem leik-
ur með Pfuliendorf í Þýska-
landi, lék sinn fyrsta lands-
leik í gær, en hann kom inn
á sem varamaður fyrir Ólaf
Þórðarson á 63. mínútu.
Halldór B. Jónsson, varafor-
maður KSÍ og aðalfarar-
sljóri, afhenti honum nýliða-
merki KSÍ við kvöldverðar-
borðið eftir leikinn og
landsliðsmenn buðu hann
velkominn í hópinn með
lófaklappi.
Guðmundur
dæmdi
GUÐMUNDUR Stefán
Maríasson dæmdi sinn
fyrsta A-landsleik í gær-
kvöldi er hann sá um dóm-
gæsluna á leik Möltu og
Slóvena. Guðmundur skilaði
hlutverki sínu nyög vel.
1996
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR
BLAD
Mun betra gegn Rússum
Barátta íslenska liðsins í lagi en það dugði
samt ekki. Rússar gerðu tvö mörk á tveim-
ur mínútum í upphafi síðari hálfleiks
LOGI Ólafsson var ánægður
með sína menn eftir leikinn gegn
Rússum, þrátt fyrir tap 0:3. Það
var allt annað að sjá til íslenska
liðsins - það var óþekkjanlegt
frá leiknum gegn Slóveníu á
miðvikudaginn. Mörkin þrjú sem
Rússar skoruðu voru frá „ódýra
markaðnum11.
ÆT
Islendingar mættu ákveðnir tii
leiks, ákveðnir að gefa ekki
tommu eftir. Eftir aðeins 9 mínútur
varð einn Rússinn að
Sigmundur Ó. fara af leikvelli eftir
Steinarsson samstuð og kom þá
skrifar frá Andrei Kanchelskis,
Möl,u leikmaður hjá Ever-
ton, inn á. Hann hafði ekki verið
inni á vellinum nema í 2,45 mínútur
þegar hann var búinn að skora með
föstu skoti utan vítateigs, eftir horn-
spyrnu og Birkir Kristinsson, mark-
vörður, hafði slegið knöttinn frá.
Fljótlega eftir það fékk Amór
Guðjohnsen gullið tækifæri til að
skora, sem ekki nýttist. Knötturinn
barst frá Eyjólfí Sverrissyni inn í víta-
teig, þar sem Amór var á auðum sjó
- skallaði að marki, en Dmitri Khar-
ine varði. Upp úr þessu átti Mostovoi,
sem leikur með Strassburg í Frakk-
landi, tvær aukaspymur - knötturinn
hafnaði í bæði skiptin á þverslánni.
Rússar gerðu út um leikinn á
tveggja mínútna kafla í byijun seinni
hálfleiks, á 62. og 64. mínútu. Bæði
mörkin skoraði Valeri Karpine, sem
leikur með Real Sociedad á Spáni.
Fyrst skoraði hann af stuttu færi,
er hann skaust fram hjá Sigursteini
Gíslasyni. Þarna sofnaði íslenska
vörnin á verðinum og síðara markið
skoraði Karpine með skoti af 20
metra færi, eftir að Rússar náðu að
sækja hratt eftir misheppnaða send-
ingu íslendinga í sókn.
Undir lok leiksins fékk Eyjólfur
Sverrisson góð tækifæri til að skora
- fyrst sneri hann baki í mark Rússa,
tók knöttinn niður á brjóstið, sneri
sér snöggt við og skaut - en Khar-
ine, markvörður Chelsea, varði. Síð-
an varði Kharine skalla frá Eyjólfi
af stuttu færi, eftir fyrirgjöf frá
Guðmundi Benediktssyni.
íslenska liðið lék meiri varnarleik
en gegn Slóveníu, enda ekki annað
hægt gegn sterku liði Rússlands,
sem presSaði oft grimmt að marki
íslendinga án þess að skapa sér
veruleg marktækifæri. Rússar
reyndu mikið að leika með knöttinn
inn að markteig til að skora. Nokkuð
sem ekki mun duga þeim í Evrópu-
keppni landsliða í Englandi í sumar.
Allir leikmenn íslands stóðu sig
vel, en við ofurefli var að etja.
Bjami
EYJÓLFUR Sverrlsson áttl ágætan lelk í gær elns og reyndar
alllr í landsllölnu, en þaö dugöi skammt gegn Rússum.
Sýnd
veiði en
ekki gefin
MALTA og Slóvenia gerðu
markalaust jafntefli í síðari
leík gærdagsins. Saso Udovic,
sá er gerði fimm mörk gegn
íslendingum á miðvikudag-
inn, lék ekki með Slóveníu.
Logi Ólafsson og Kristinn
Björnsson, aðstoðarmaður
hans, sáu leikinn og sögðu að
Möltumenn væru sýnd veiði
en ekki gefin. Logi sagði þá
með tvo hættulega miðheija,
tvo mjög góða leikmenn á
miðjunni óg útsjónarsaman
aftasta varnarmann, en liðið
leikur 5-3-2 leikaðferð.
Allt of ódýr mörk
Það var allt annað að sjá til liðs-
ins gegn Rússum en Slóvenum.
Leikmennirnir gáfu allt sem þeir
áttu og áttu svo sannarlega skilið
betri úrslit, við fengum þijú of ódýr
mörk á okkur, en náðum ekki að
nýta fjögur góð tækifæri sjálfír,"
sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálfari.
Logi sagði að það hefði verið allt
annað tempó á leik liðsins - strák-
arnir léku vel undir pressu gegn
geysilega sterku rússnesku liði. Því
miður fengum við mark of fljótt á
okkur - Kanchelskis hafði heppnina
með sér, þegar hann skoraði mark
eftir aðeins 12 mínútur - knötturinn
sigldi fram hjá mörgum leikmönn-
um. Tvö seinni mörkin voru einnig
ódýr.
„Strákarnir náðu að bæta fyrir
það sem gerðist í leiknum gegn Sló-
veníu og það er ég mjög ánægður
með. Nú stefnum við á sigur gegn
Möltu í síðasta leik okkar,“ sagði
Logi.
SigurðurJónsson
„Við getum verið sáttir við þennan
leik, gegn einu besta liði Evrópu sem
er skipað leikmönnum sem eru í
góðri leikæfingu, en við höfum aftur
á móti ekki leikið í fímm mánuði.
Það var erfitt að ráða við fyrsta
markið, en ég- kenni þreytu og ein-
beitingarleysi um tvö seinni mörkin.
Við vorum orðnir nokkuð þungir í
seinni hálfleik.“
Eyjólfur Sverrisson
„Kharine veðjaði á réttan hest,
kastaði sér niður þegar ég skallaði
og náði að verja. Ég náði ekki nægi-
lega föstum skalla - hefði átt að
skora. Heppnin var heldur ekki með
mér rétt áður - þegar ég átti skot
á markið, en knötturinn fór beint á
Kharine."
' Þorsteinn Guöjónsson
„Það var miklu meiri yfirvegun í
leik okkar nú og við náðum að vinna
vel saman. Því miður fengum við tvö
mjög ódýr mörk á okkur á stuttum
kafla í seinni hálfleik, sem gerði út
um leikinn."
Amór Guðjohnsen
„Ég hélt að það væri maður fyrir
aftan mig, ef ég hefði vitað það
hefði ég ekki skallað að marki held-
ur tekið knöttinn niður - markið var
opið. Strákarnir áttu að kalla á mig
- og segja mér að ég væri einn.“