Morgunblaðið - 10.02.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.02.1996, Blaðsíða 1
 I KNATTSPYRNA HANDKNATTLEIKUR: ALLT UM BIKARÚRSLITALEIKINA í HÖLLINNI / D2,D3 Eydís setti met í 100 m flugsundi EYDÍS Konráðsdóttir setti í gærkvöldi íslands- met í 100 metra baksundi á móti í Sindelfingen í Þýskalandi. Eydís synti á 1.03,76 en hún átti gamla metið sjálf, 1.03,87. Eydís náði þessum tíma á fyrsta spretti í 400 metra fjórsundi enda var hún að reyna við Ólympíulágmarkið og fær annað tækifæri í dag til að ná því og síðan á sunnudag takist það ekki í dag. Lágmarkið 1.03,15. Sigursteinn tæk- laði línuvörðinn SIGURSTEINN Gíslason tæklaði annan línuvörðinn strax á 14. mínútu með þeim afleiðingum að stöðva þurfti leikinn. Sigursteinn kom á fleygiferð út að hornfánanum þar sem hann náði að spyrnaknettinum út af en sólinn lenti síðan í línuverðinum. Læknir rúss- neska liðsins kom honum til hjálpar. Möltumenn til íslands KSÍ hefur boðið Knatt- spyrnusambandi Möltu að koma til íslands í sumar og hafa Möltumenn þegið boð- ið. Möltumenn koma hingað til lands með A-lið sitt og 21 árs landslið og verða leik- irnir 14. ágúst. McCarthy græddi lítið MICK McCarthy, þjálfari íra, græddi lítið á að koma til Möltu því hann sá aðeins afspyrnu lélegan leik ís- lands gegn Slóveniu og fór síðan til síns heima. Hann var því ekki meðal áhorf- enda í gær er íslenska liði lék mun betur en á miðviku- daginn. Helgi fékk nýliðamerkið HELGI Kolviðsson, sem leik- ur með Pfuliendorf í Þýska- landi, lék sinn fyrsta lands- leik í gær, en hann kom inn á sem varamaður fyrir Ólaf Þórðarson á 63. mínútu. Halldór B. Jónsson, varafor- maður KSÍ og aðalfarar- sljóri, afhenti honum nýliða- merki KSÍ við kvöldverðar- borðið eftir leikinn og landsliðsmenn buðu hann velkominn í hópinn með lófaklappi. Guðmundur dæmdi GUÐMUNDUR Stefán Maríasson dæmdi sinn fyrsta A-landsleik í gær- kvöldi er hann sá um dóm- gæsluna á leik Möltu og Slóvena. Guðmundur skilaði hlutverki sínu nyög vel. 1996 LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR BLAD Mun betra gegn Rússum Barátta íslenska liðsins í lagi en það dugði samt ekki. Rússar gerðu tvö mörk á tveim- ur mínútum í upphafi síðari hálfleiks LOGI Ólafsson var ánægður með sína menn eftir leikinn gegn Rússum, þrátt fyrir tap 0:3. Það var allt annað að sjá til íslenska liðsins - það var óþekkjanlegt frá leiknum gegn Slóveníu á miðvikudaginn. Mörkin þrjú sem Rússar skoruðu voru frá „ódýra markaðnum11. ÆT Islendingar mættu ákveðnir tii leiks, ákveðnir að gefa ekki tommu eftir. Eftir aðeins 9 mínútur varð einn Rússinn að Sigmundur Ó. fara af leikvelli eftir Steinarsson samstuð og kom þá skrifar frá Andrei Kanchelskis, Möl,u leikmaður hjá Ever- ton, inn á. Hann hafði ekki verið inni á vellinum nema í 2,45 mínútur þegar hann var búinn að skora með föstu skoti utan vítateigs, eftir horn- spyrnu og Birkir Kristinsson, mark- vörður, hafði slegið knöttinn frá. Fljótlega eftir það fékk Amór Guðjohnsen gullið tækifæri til að skora, sem ekki nýttist. Knötturinn barst frá Eyjólfí Sverrissyni inn í víta- teig, þar sem Amór var á auðum sjó - skallaði að marki, en Dmitri Khar- ine varði. Upp úr þessu átti Mostovoi, sem leikur með Strassburg í Frakk- landi, tvær aukaspymur - knötturinn hafnaði í bæði skiptin á þverslánni. Rússar gerðu út um leikinn á tveggja mínútna kafla í byijun seinni hálfleiks, á 62. og 64. mínútu. Bæði mörkin skoraði Valeri Karpine, sem leikur með Real Sociedad á Spáni. Fyrst skoraði hann af stuttu færi, er hann skaust fram hjá Sigursteini Gíslasyni. Þarna sofnaði íslenska vörnin á verðinum og síðara markið skoraði Karpine með skoti af 20 metra færi, eftir að Rússar náðu að sækja hratt eftir misheppnaða send- ingu íslendinga í sókn. Undir lok leiksins fékk Eyjólfur Sverrisson góð tækifæri til að skora - fyrst sneri hann baki í mark Rússa, tók knöttinn niður á brjóstið, sneri sér snöggt við og skaut - en Khar- ine, markvörður Chelsea, varði. Síð- an varði Kharine skalla frá Eyjólfi af stuttu færi, eftir fyrirgjöf frá Guðmundi Benediktssyni. íslenska liðið lék meiri varnarleik en gegn Slóveníu, enda ekki annað hægt gegn sterku liði Rússlands, sem presSaði oft grimmt að marki íslendinga án þess að skapa sér veruleg marktækifæri. Rússar reyndu mikið að leika með knöttinn inn að markteig til að skora. Nokkuð sem ekki mun duga þeim í Evrópu- keppni landsliða í Englandi í sumar. Allir leikmenn íslands stóðu sig vel, en við ofurefli var að etja. Bjami EYJÓLFUR Sverrlsson áttl ágætan lelk í gær elns og reyndar alllr í landsllölnu, en þaö dugöi skammt gegn Rússum. Sýnd veiði en ekki gefin MALTA og Slóvenia gerðu markalaust jafntefli í síðari leík gærdagsins. Saso Udovic, sá er gerði fimm mörk gegn íslendingum á miðvikudag- inn, lék ekki með Slóveníu. Logi Ólafsson og Kristinn Björnsson, aðstoðarmaður hans, sáu leikinn og sögðu að Möltumenn væru sýnd veiði en ekki gefin. Logi sagði þá með tvo hættulega miðheija, tvo mjög góða leikmenn á miðjunni óg útsjónarsaman aftasta varnarmann, en liðið leikur 5-3-2 leikaðferð. Allt of ódýr mörk Það var allt annað að sjá til liðs- ins gegn Rússum en Slóvenum. Leikmennirnir gáfu allt sem þeir áttu og áttu svo sannarlega skilið betri úrslit, við fengum þijú of ódýr mörk á okkur, en náðum ekki að nýta fjögur góð tækifæri sjálfír," sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálfari. Logi sagði að það hefði verið allt annað tempó á leik liðsins - strák- arnir léku vel undir pressu gegn geysilega sterku rússnesku liði. Því miður fengum við mark of fljótt á okkur - Kanchelskis hafði heppnina með sér, þegar hann skoraði mark eftir aðeins 12 mínútur - knötturinn sigldi fram hjá mörgum leikmönn- um. Tvö seinni mörkin voru einnig ódýr. „Strákarnir náðu að bæta fyrir það sem gerðist í leiknum gegn Sló- veníu og það er ég mjög ánægður með. Nú stefnum við á sigur gegn Möltu í síðasta leik okkar,“ sagði Logi. SigurðurJónsson „Við getum verið sáttir við þennan leik, gegn einu besta liði Evrópu sem er skipað leikmönnum sem eru í góðri leikæfingu, en við höfum aftur á móti ekki leikið í fímm mánuði. Það var erfitt að ráða við fyrsta markið, en ég- kenni þreytu og ein- beitingarleysi um tvö seinni mörkin. Við vorum orðnir nokkuð þungir í seinni hálfleik.“ Eyjólfur Sverrisson „Kharine veðjaði á réttan hest, kastaði sér niður þegar ég skallaði og náði að verja. Ég náði ekki nægi- lega föstum skalla - hefði átt að skora. Heppnin var heldur ekki með mér rétt áður - þegar ég átti skot á markið, en knötturinn fór beint á Kharine." ' Þorsteinn Guöjónsson „Það var miklu meiri yfirvegun í leik okkar nú og við náðum að vinna vel saman. Því miður fengum við tvö mjög ódýr mörk á okkur á stuttum kafla í seinni hálfleik, sem gerði út um leikinn." Amór Guðjohnsen „Ég hélt að það væri maður fyrir aftan mig, ef ég hefði vitað það hefði ég ekki skallað að marki held- ur tekið knöttinn niður - markið var opið. Strákarnir áttu að kalla á mig - og segja mér að ég væri einn.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.