Morgunblaðið - 15.02.1996, Blaðsíða 1
FYRIRTÆKl
Öldurnar aö lægja
hjá Handsali/4
FJÁRJVIÁL
Af áhættumati og
útlánatöpum/6
í
TÖLVUR
átt til einfald-
leikans/10
JHsvgunMattfc
Verslunarráð
Aðalfundur Verslunarráðs ís-
lands verður haldinn í dag að
Hótel Sögu frá kl. 11:15-15. Sér-
efni fundarins verður tillaga
stjórnar um nýja stefnuskrá ráðs-
ins og varðar kjarni hennar
starfsumhverfi íslensks atvinnu-
og viðskiptalífs í alþjóðlegri sam-
keppni. Er þar m.a. að finna
áskorun til löggjafar- og fram-
kvæmdavaldsins um að auka
möguleika Islendinga í alþjóð-
legri samkeppni.
Olís
Olís áformar að hefja fram-
kvæmdir við nýja bensínstöð við
Sæbraut nú í mánuðinum. Bygg-
ing afgreiðsluhúss hefur þegar
verið boðin út og verið er að bjóða
út jarðvinnu og fullnaðarfrágang
lóðar að því er kemur fram í
Dropanum, fréttabréfi OIís.
Lánasýslan
Ekkert útboð var hjá Lánasýslu
ríkisins í gær. Utboðið sem vera
átti í gær verður haldið næstkom-
andi föstudag vegna breytinga
sem Lánasýslan hefur unnið að á
fyrirkomulagi útboðanna. M.a.
verður útboðsdögum og útboðið
haldið kl. 11 að morgni í stað
14:00.
SÖLUGENGI DOLLARS
GENGI NOKKURRA
GJALDMIÐLA
frá 4.janúar 1995 (sölugengi)
DOLLARI Kr r +1,73% breyting „0 1
frá áramótum
1995 1996
'j'f'm'a'm'j'j'á's'o'n'd 50 |
Dönsk KRÓNA Kr. I;
^11.712
-0,51 % breyting
frá áramótum 1 Q R 1
1995 1996 1
J F M A H J J A S O N D J F |
Japanskt YEN Kr
\ /
-0.53% brevting 0627 3T* 0,6243
frá áramótum 1995 1996
'j'f'm'a'm'j'j'a's'ö^íT' 5 J
Þýskt MARK
45,56
-0,53% breyting
frá áramótum
1995
j Vm'am'j'j'á's'o'n'dTf
Kr.
50
48
46
* 45,321
44
42
40
38
1996
+-36
Franskur FRANKI
-1,48% breyting
frá áramótum
Kr.
15
14
1995
'j'f'm'a'm'j1j'a's'o’n'd'j'f
13,155
13
12
1996
11
Örtölvutækni-Tölvukaup hf.
Kröfuhafar
samþykkja
nauðasamninga
NAUÐASAMNINGUM Örtölvu-
tækni-Tölvukaupa hf. lauk í gær
og samþykktu 85% kröfuhafa
samningana. Þessir kröfuhafar
eiga um 93% af heildarkröfum í
félagið en alls þurfti samþykki 80%
kröfuhafa, hvað varðaði heildar-
kröfur og fjölda kröfuhafa, til þess
að samningarnir næðu fram að
ganga. Samkvæmt nauðasamning-
unum er gert ráð fyrir því að 20%
heildarkrafna í fyrirtækið verði
greiddar. Fjórðungur þeirrar fjár-
hæðar verður greiddur 60 dögum
eftir samþykkt nauðasamninga, en
afgangurinn á þriggja ára tímabili,
frá og með 1. júní 1996.
Að sögn þeirra Ólafs Werners-
sonar, stjórnarformanns og Júlíus-
ar B. Kristinssonar, framkvæmda-
stjóra Örtölvutækni ehf. þýðir þetta
að framtíð fyrirtækisins sé nú
tryggð, en það skilyrði hafði verið
sett fyrir stofnun nýja fyrirtækisins
að nauðasamningar forvera þess
yrðu samþykktir.
Hagnaður af rekstri
Ortölvutækni ehf. í fyrra
Örtölvutækni ehf. var stofnað
þann 1. ágúst sl. og tók þá við
Digital umboðinu af Örtölvutækni-
Tölvukaupum hf., sem þá var kom-
ið í þrot. Örtölvutækni hf. mátti
þola mikið tap á árinu 1993 og
hafði rekstur þess verið þungur
allar götur síðan. Að sögn Ólafs
hefur rekstur nýja fyrirtækisins
gengið ágætlega eftir að tekist
hafði að leysa fortíðarvanda þess.
Velta fyrirtækisins á þeim 5 mán-
uðum sem fyrirtækið var í rekstri
á síðasta hafi verið um 150 milljón-
ir króna og rekstrarhagnaður hafi
numið 5 milljónum.
Þetta verði að teljast viðunandi
árangur, sérstaklega í ljósi þess að
fyrirtækið hafi starfað við mjög
erfiðar aðstæður í skugga nauða-
samninga Örtölvutækni-Tölvu-
kaupa hf. Nú sé verið að leita að
nýju húsnæði undir starfsemina
m.a. þar sem núverandi húsnæði
sé óhentugt að ýmsu leyti.
Júlíus segist vera mjög bjart-
sýnn á framhaldið. Mikil upp-
sveifla hafi verið í rekstri Digital
í heiminum, m.a. vegna velgengni
hinnar nýju Alpha tölvu fyrirtæk-
isins. Það hafi gjarnan sýnt sig
að rekstur umboðsaðila sveiflist
nokkuð í takt við sveiflur framleið-
andans og því vænti hann þess að
allar forsendur séu nú fyrir því
að rekstur fyrirtækisins geti geng-
ið vel. Hann bendir ennfremur á
að mikil uppsveifla hafi verið í
tölvugeiranum hér á landi að und-
anförnu og það styrki rekstrar-
grundvöllinn enn frekar.
Hann segir að viðskiptavinir fyr-
irtækisins hafi haldið tryggð við
fyrirtækið þrátt fyrir mikla erfið-
leika og svart útlit á köflum. Þá
hafi starfsmenn búið við nokkra
óvissu framan af sé komin í þau
meiri festa og m.a. hafi verið geng-
ið frá ráðningu nokkurra nýrra
starfsmanna á undanförnum dög-
um.