Morgunblaðið - 15.02.1996, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA
LANDSMANNA
D
1996
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR
BLAÐ
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
Keflvíkingar
reka Burns
KEFLVÍKINGAR hafa sagt upp samningi sínum
við Lenear Burns og mun hann þvi ekki ieika
með liðinu í kvöld þegar það tekur á móti ÍR-ing-
um. Guðmundur Bjarni Kristinsson, formaður
körfuknattleiksdeildar Keflavíkur, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið i gærkvöldi að Burns hefði
þvi miður ekki staðið undir þeim væntingum sem
til hans hefðu verið gerðar. „Hann lék vel með
okkur í fyrra og því var ákveðið að fá hann
aftur, en í vetur hefur hann ekki verið eins
góður, nema í nokkrum leikjum, og því var
ákveðið að fá annan erlendan leikmann og er
þegar byrjað að vinna í því. Við vonumst tíl að
fá annan leikmann fyrir leikinn gegn Njarðvík
á fimmtudaginn eftir viku,“ sagði Guðmundur
Bjarni. Burns hefur leikið með Keflavik í nærri
tvo vetur og í fyrra var hann kjörinn besti er-
lendi leikmaðurinn.
Duranona
auglýsir eftir
vinnu á Spáni
JULIAN Duranona, Kúbumaðurinn frábæri sem
leikur handknattleik með K A á Akureyri I vet-
ur, auglýsir eftir vinnu í spænsku handknatt-
leikstímariti í byrjun janúar. Duranona — „sem
búsettur er á Akureyri á Islandi" eins og segir
í blaðinu — auglýsir þar eftir liði til að leika
með. Hann kveðst í auglýsingimni vera laus allra
mála á íslandi og er reiðubúinn að fara að leika
með spænsku iiði næsta vetur. Einnig hefur ver-
ið athugað með möguleika á að hann komist að
hjá liði í Frakklandi.
Eins og fram kom í viðtali Morgunblaðsins
við Duranona 28. janúar si. útilokar hann ekki
að leika annars staðar en á íslandi. Hann sé
atvinnumaður sem verði að huga að framtíð-
inni, og „ef einhvers staðar er eitthvert lið sem
getur borgað mikiu meira er ég tilbúinn að fara
þangað,“ sagði hann.
Jones sektaður
enn eina ferðina
HARÐJAXLINN Vinnie Jones, sem leikur með
Wimbledon, var í gær sektaður um 200 þúsund
krónur vegna ummæla í blaðagrein. Þar sagði
Jones að Ruud Gullit hefði platað dómarann í
leik liðanna með þeim afleiðingum að Jones var
rekinn af velli í 12. sinn á ferlinum. Þess má
geta að þetta er í fimmta sinn sem hann er sekt-
aður á síðustu þremur árum.
Duranona
sá besti
SKIÐI / HM I ALPAGREINUM
Rússnesk brunkona
slasaðist á æfingu
JULIAN Duranona, stór-
skytta KA-manna, átti frá-
bæran leik með KA sem sigr-
aði Stjörnuna, 27:26, í 1.
deiidinni i handknattleik i
gærkvöldi. Hann skoraði
rúmiega helming marka liðs-
ins, eða 15 talsins og þar af
sigurmarkið á lokasekúndun-
um. Eftir leikinn hafði hann
í nógu að snúast við að gefa
ungum aðdáendum sínum
eiginhandaráritun.
KA og Vaiur, sem sigraði
FH í gær, hafa mikla yfir-
burði í deildinni, eru bæði
með 30 stig, en KA á einn
leik tii góða á Val. Níu stig
eru í næsta lið sem er Haukar
og tíu stig í Stjörnuna sem er
í fjórða sæti.
■ Nánar/ D2
RÚSSNESKA skíðakonan Tatiana
Lebedeva slasaðist á æfíngu í
brunbrautinni í Sierra Nevada á Spáni
í gær og keppir því ekki meira á
heimsmeistaramótinu. Hún fótbrotn-
aði er hún keyrði á bandarískan
starfsmann Alþjóða skíðasambands-
ins, Harald Schönhaar, sem var í
miðri brautinni og hélt að æfíngunni
væri lokið.
„Schönhaar og annar starfsmaður
voru að laga brautina er Lebedeva
kom fljúgandi fram af hengju og beint
á Schönhaar," sagði Austurríkismað-
urinn Karl Schranz, fyrrum ólympíu-
meistara, sem varð vitni að slysinu.
Lebedeva, sem er 22 ára, og Schönha-
ar voru bæði flutt með þyrlu á sjúkra-
hús í nágrenni Granada. Lebedeva
brotnaði ofarlega á hægri fæti og
Schönhaar á vinstri fæti.
Schönhaar er fímmtugur og er
fæddur í Þýskalandi, en býr nú í
Park City í Utah í Bandaríkjunum.
Hann er fyrrum þjálfari bandaríska
landsliðsins í alpagreinum og er einn
þeirra sem skipa skíðadómstól móts-
ins.
Rússneski þjálfarinn, Leonid Ty-
agachev, var mjög reiður yfír atvik-
inu. „Það er ótrúlegt að svo margir
starfsmenn hafí verið í brautinni
meðan æfingin stóð yfír. Hvað voru
þeir að gera þar?,“ spurði Tyagachev.
„Við skulum þakka Guði að ekki varð
banaslys."
Alþjóða skíðasambandið, FIS,
sagðist ekki hafa neina skýringu á
því hvers vegna Schönhaar fór inn í
brautina. „Þetta var gáleysi af hálfu
starfsmanns okkar,“ sagði Gianfranco
Kasper, framkvæmdastjóri FÍS. „FIS
er ábyrgt fyrir þessu slysi, bæði fjár-
hagslega og lagalega séð. Þetta eru
mistök sem áttu ekki að geta átt sér
stað.“
Brunbrautin í Sierra Nevada er ein
sú hraðfamasta í heiminum. Sem
dæmi um það var meðalhraði ítölsku
stúlkunnar Kostner, sem náði besta
tímanum á æfíngunni í gær, 103,44
km á klst.
KIMATTSPYRNA: SIGURSÆLASTIÞJÁLFARINN í ENGLANDILÁTINN / D3