Morgunblaðið - 16.02.1996, Page 1
Félagslegar
íbúðir
UMRÆÐAN um félagslega
íbúðakerfið að undanförnu
hefur einkum snúizt um galla
þess, segir Grétar J. Guð-
mundsson í þætti sínum
Markaðurinn. Minna hefur
farið fyrir kostum þess. / 2 ►
Að líma leir
eða postulín
ÞAÐ er vandasamt að líma
saman muni úr leir eða postu-
líni, sem brotnað hafa, segir
Bjarni Ólafsson í þætti sínum
Smiðjan. Það þarf að hreinsa
brotin vel og það er ekki sama,
hvaða lím er notað. / 6 ►
Nýjar íbúðir
við
Garðatorg
N
IIJ ERU að koma á
markað 26 íbúðir, sem
Álftárós er að byggja í
fjölbýlishúsi við Garðatorg í
Garðabæ. íbúðirnar eru hluti
af nýbyggingum Áiftáróss á
þessum stað, en þær verða alls
um 10.000 ferm. Þar af verða
um 6.000 ferm. skrifstofu- og
verzlunarhúsnæði, en einnig
verður þar 1.200 ferm. yfír-
byggt torg auk íbúðanna.
íbúðirnar verða á 2., 3. og
4. hæð með góðu útsýni og eru
ýmist 3ja, 4ra eða 5 herb., á
bilinu 100-140 ferm. í lqallara
verður bflageymsla. íbúðirnar
eru þegar fokheldar, en vinna
við hitalagnirog einangrun
stendur yfír. íbúðirnar verða
afhentar í ágúst á þessu ári.
Frágangur á íbúðunum
verður vandaður. Þannig
verða þær einangraðar að
utari og jafnframt klæddar
með svonefndum fmúr.
í viðtali við Bergsvein
Ólafsson, fjármálastjóra
Álftáróss og Jón Guðmunds-
son, fasteignasala í Fasteigna-
markaðnum, þar sem íbúðirn-
ar eru til sölu, er fjallað um
þessar íbúðir.
— Þessar íbúðir henta
öllum, sem vilja ekki hafa of
mikið fyrir lóð eða dýru
viðhaldi, segir Bergsveinn.
Fólki virðist einnig líka stað-
setningin vel.
— Þessar íbúðir eru kær-
komið tækifæri fyrir marga,
sem vilja festa sér góða fram-
tíðareign í Garðabæ, segir Jón
Guðmundsson. / 16 ►
Eigið húsnæði al-
gengast hér á landi
EIGNARHALDI á íbúðarhúsnæði
er mjög mismunandi háttað eftir
löndum, eins og fram kemur á
teikningunni hér við hliðina, en hún
sýnir þróun eignarformsins á
Norðurlöndum og þremur öðrum
löndum á tímabilinu 1960-1990.
Eigið húsnæði er greinilega
langmest hér á landi, en á hinum
Norðurlöndunum er það algengast í
Finnlandi, síðan í Noregi og þar á
eftir í Danmörku en minnst í Svíþj óð.
Á Norðurlöndunum er félagslegt
húsnæði algengast í Svíþjóð, en
hvergi á Norðurlöndum hefur hús-
næðisstefnan mótazt jafn mikið af
félagslegum sjónarmiðum og þar í
landi. Á síðustu árum hafa þó verið
hafnar umfangsmiklar breytingar á
húsnæðiskerfinu í Svíþjóð í átt til
markaðshyggju og sjálfseignar.
Félagslegt húsnæði var lengi
einna mest í Bretlandi. Á síðustu
árum hefur þó orðið mikil stefnu-
breyting í Bretlandi varðandi
eignarformið og gert ráð fyrir, að
byggingu félagslegs húsnæðis verði
hætt að mestu. Sjálfseignarformið
fer því vaxandi í Bretlandi á ný.
í Danmörku eru nær 20% af öllu
íbúðarhúsnæði félagslegar leigu-
íbúðir og þar er líka meira af öðru
leiguhúsnæði á frjálsa markaðnum
en annars staðar á Norðurlöndum.
Hér á landi er talið, að útleigt hús-
næði í eigu einkaaðila sé i kringum
10% af öllu íbúðarhúsnæði.
Eftir sameiningu Þýzkalands
minnkaði hlutfall sjálfseignaríbúða
þar í landi, þar sem allt íbúðarhús-
næði í austurhlutanum var í eigu hins
opinbera, á meðan kommúnista-
stjórnin var við lýði. Eftir að hún féll,
er sjálfseignarformið orðið mun
algengara í austurhlutanum.
Bygging félagslegs húsnæðis
hefur aukizt mjög hér á landi á síð-
ustu árum, á sama tíma og smíði á
nýjum sjálfseignaríbúðum hefur
dregizt saman. Þar er þó aðallega um
félagslegar eignaríbúðir (verka-
mannabústaði) og kaupleiguíbúðir
að ræða.
Félagslegt leiguhúsnæði hefur
einnig verið að aukast hér á allra
síðustu árum.
Hlutfall íbúa í eigin húsnæði
í nokkrum löndum 1960-1990
85%
80
75
70
65
60
55
50
45
40
35
83% ISLAND
68% Bretland
67% Finnland
64% Bandaríkin
59% Noregur
51% Danmörk
42% Svíþjóö
38% V-Þýskaland
30 -i—
1960
1980
1990
Heimild:
Skandia býður þér sveigjanleg
lánskjör efþú þarft að skuld-
breyta eða stœkka við þig
Kostir Fasteignalána Skandia
• Lánstími allt að 25 ár.
• Hagstæð vaxtakjör.
• Minni greiðslubyrði.
• Stuttur svartími á umsókn.
Fyrir hverja eru Fasteignaián Skandia?
Fásteignalán Skandia eru íyrir alla á stór-
Reykjavikursvæðinu sem eru að kaupa
sér fasteign og:
k * Vilja kaupa stórar eignir en fá ekki
IBi» nægilega hátt lán í húsbréfakerfmu.
|& -j-, < Þá sem vilja breyta óhagstæðum
HL eldri eða styttri lánum.
• Þá sem eiga lítiö veðsettar,
cn vilja lán til annana
Dœmi um ntánaóarlegar
afborganir afl.000. OOO kr.
Fasteignaláni Skandia*
\txtir<%) 10 ár 15 ár
7.0 11.600 9.000
7,5 11.900 9.300
8,0 12.100 9.500
Miðað er viðjafngreiðslulán.
* Auk verðbóta
Sendu inn umsókn eðafádu
nánari upplýsingur itjá
ráðgjöfum Skandia.
Skandia
CANDIA HF. . LAUGAVEGI 170
56 1 B 700. FAX 55 26 177