Morgunblaðið - 16.02.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.02.1996, Blaðsíða 1
Félagslegar íbúðir UMRÆÐAN um félagslega íbúðakerfið að undanförnu hefur einkum snúizt um galla þess, segir Grétar J. Guð- mundsson í þætti sínum Markaðurinn. Minna hefur farið fyrir kostum þess. / 2 ► Að líma leir eða postulín ÞAÐ er vandasamt að líma saman muni úr leir eða postu- líni, sem brotnað hafa, segir Bjarni Ólafsson í þætti sínum Smiðjan. Það þarf að hreinsa brotin vel og það er ekki sama, hvaða lím er notað. / 6 ► Nýjar íbúðir við Garðatorg N IIJ ERU að koma á markað 26 íbúðir, sem Álftárós er að byggja í fjölbýlishúsi við Garðatorg í Garðabæ. íbúðirnar eru hluti af nýbyggingum Áiftáróss á þessum stað, en þær verða alls um 10.000 ferm. Þar af verða um 6.000 ferm. skrifstofu- og verzlunarhúsnæði, en einnig verður þar 1.200 ferm. yfír- byggt torg auk íbúðanna. íbúðirnar verða á 2., 3. og 4. hæð með góðu útsýni og eru ýmist 3ja, 4ra eða 5 herb., á bilinu 100-140 ferm. í lqallara verður bflageymsla. íbúðirnar eru þegar fokheldar, en vinna við hitalagnirog einangrun stendur yfír. íbúðirnar verða afhentar í ágúst á þessu ári. Frágangur á íbúðunum verður vandaður. Þannig verða þær einangraðar að utari og jafnframt klæddar með svonefndum fmúr. í viðtali við Bergsvein Ólafsson, fjármálastjóra Álftáróss og Jón Guðmunds- son, fasteignasala í Fasteigna- markaðnum, þar sem íbúðirn- ar eru til sölu, er fjallað um þessar íbúðir. — Þessar íbúðir henta öllum, sem vilja ekki hafa of mikið fyrir lóð eða dýru viðhaldi, segir Bergsveinn. Fólki virðist einnig líka stað- setningin vel. — Þessar íbúðir eru kær- komið tækifæri fyrir marga, sem vilja festa sér góða fram- tíðareign í Garðabæ, segir Jón Guðmundsson. / 16 ► Eigið húsnæði al- gengast hér á landi EIGNARHALDI á íbúðarhúsnæði er mjög mismunandi háttað eftir löndum, eins og fram kemur á teikningunni hér við hliðina, en hún sýnir þróun eignarformsins á Norðurlöndum og þremur öðrum löndum á tímabilinu 1960-1990. Eigið húsnæði er greinilega langmest hér á landi, en á hinum Norðurlöndunum er það algengast í Finnlandi, síðan í Noregi og þar á eftir í Danmörku en minnst í Svíþj óð. Á Norðurlöndunum er félagslegt húsnæði algengast í Svíþjóð, en hvergi á Norðurlöndum hefur hús- næðisstefnan mótazt jafn mikið af félagslegum sjónarmiðum og þar í landi. Á síðustu árum hafa þó verið hafnar umfangsmiklar breytingar á húsnæðiskerfinu í Svíþjóð í átt til markaðshyggju og sjálfseignar. Félagslegt húsnæði var lengi einna mest í Bretlandi. Á síðustu árum hefur þó orðið mikil stefnu- breyting í Bretlandi varðandi eignarformið og gert ráð fyrir, að byggingu félagslegs húsnæðis verði hætt að mestu. Sjálfseignarformið fer því vaxandi í Bretlandi á ný. í Danmörku eru nær 20% af öllu íbúðarhúsnæði félagslegar leigu- íbúðir og þar er líka meira af öðru leiguhúsnæði á frjálsa markaðnum en annars staðar á Norðurlöndum. Hér á landi er talið, að útleigt hús- næði í eigu einkaaðila sé i kringum 10% af öllu íbúðarhúsnæði. Eftir sameiningu Þýzkalands minnkaði hlutfall sjálfseignaríbúða þar í landi, þar sem allt íbúðarhús- næði í austurhlutanum var í eigu hins opinbera, á meðan kommúnista- stjórnin var við lýði. Eftir að hún féll, er sjálfseignarformið orðið mun algengara í austurhlutanum. Bygging félagslegs húsnæðis hefur aukizt mjög hér á landi á síð- ustu árum, á sama tíma og smíði á nýjum sjálfseignaríbúðum hefur dregizt saman. Þar er þó aðallega um félagslegar eignaríbúðir (verka- mannabústaði) og kaupleiguíbúðir að ræða. Félagslegt leiguhúsnæði hefur einnig verið að aukast hér á allra síðustu árum. Hlutfall íbúa í eigin húsnæði í nokkrum löndum 1960-1990 85% 80 75 70 65 60 55 50 45 40 35 83% ISLAND 68% Bretland 67% Finnland 64% Bandaríkin 59% Noregur 51% Danmörk 42% Svíþjóö 38% V-Þýskaland 30 -i— 1960 1980 1990 Heimild: Skandia býður þér sveigjanleg lánskjör efþú þarft að skuld- breyta eða stœkka við þig Kostir Fasteignalána Skandia • Lánstími allt að 25 ár. • Hagstæð vaxtakjör. • Minni greiðslubyrði. • Stuttur svartími á umsókn. Fyrir hverja eru Fasteignaián Skandia? Fásteignalán Skandia eru íyrir alla á stór- Reykjavikursvæðinu sem eru að kaupa sér fasteign og: k * Vilja kaupa stórar eignir en fá ekki IBi» nægilega hátt lán í húsbréfakerfmu. |& -j-, < Þá sem vilja breyta óhagstæðum HL eldri eða styttri lánum. • Þá sem eiga lítiö veðsettar, cn vilja lán til annana Dœmi um ntánaóarlegar afborganir afl.000. OOO kr. Fasteignaláni Skandia* \txtir<%) 10 ár 15 ár 7.0 11.600 9.000 7,5 11.900 9.300 8,0 12.100 9.500 Miðað er viðjafngreiðslulán. * Auk verðbóta Sendu inn umsókn eðafádu nánari upplýsingur itjá ráðgjöfum Skandia. Skandia CANDIA HF. . LAUGAVEGI 170 56 1 B 700. FAX 55 26 177

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.