Morgunblaðið - 17.02.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 17.02.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA VIÐTAL VIÐ LOGA ÓLAFSSON LAIMDSUÐSÞJÁLFARA í KNATTSPYRNU / 02 1996 LAUGARDAGUR 17. FEBRUAR BLAD HANDKNATTLEIKUR Essen og Dormag- en vilja fá Patrek Fulltrúar Essen komnirtil fylgjast með leik KA og Selfoss Fulltrúar þýska handknattleiks- liðsins TUSEM Essen verða á Akureyri um helgina í þeim til- gangi að fylgjast með landsliðs- manninum Patreki Jóhannessyni í leik KA gegn Selfossi með það fyrir augum að fá hann til félags- ins fyrir næsta vetur. Fleiri þýsk lið hafa einnig sýnt áhuga á að semja við Patrek og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er hann númer eitt á óskalistanum hjá Bayer Dormagen. Essen hefur góða reynslu af íslendingum. Alfreð Gíslason, þjálfari og leikmaður KA, lék með liðinu um árabil og Jóhann Ingi Gunnarsson var þjálfari þess í tvö ár. Kristján Arason er þjálfari Dormagen til vors en þá fer hann til Wallau Massenheim og tekur Christian Fitzek, aðstoðarþjálfari, við liðinu. „Ég veit ósköp lítið um málið. Ég tala við mennina frá Essen á morgun [í dag] og þá skýrist þetta væntanlega eitthvað," sagði Pat- rekur í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það hefur lengi verið stefnan hjá mér að fara út og það eru fleiri lið inni í myndinni sem ekki er tímabært að greina frá strax. En ekki má gleyma því að það gengur mjög vel hjá okkur í KA um þessar mundir og ég veit að það er stefna KA að halda sama mannskap næsta keppnistímabil vegna Evrópukeppninnar — og ég held að það séu ekkert minni líkur á því að ég verði hér áfram en að ég fari út,“ sagði Patrekur. Þess má geta að þrír mjög þekktir leikmenn eru í herbúðum Essen-liðsins; markvörðurinn Stefan Hecker og homamaðurinn Jochen Fraatz — sem báðir léku með Alfreð og undir stjórn Jó- hanns Inga á sínum tíma — og hvít-rússneska örvhenta stór- skyttan Alexandr Tutskíjn. „ÞAD hefur íengl verlð stefnan hjá mér að fara út og það eru flelrl llð Inni f myndlnnl sem ekkl er tímabært að grelna frá strax,“ sagðl Patrekur. FRJALSIÞROTTIR / STANGARSTOKK Víkingur fær 25% af greiðsl- unni fyrir Helga KNATTSPYRNUDEILD Víkings fær 25% af greiðslunni sem samið var um að þýska knatt- spyrnufélagið Stuttgart greiddi fyrir landsliðs- manninn Helga Sigurðsson. Framarar fá 75% og allt leigugjaldið sem var lítið brot af heildarupp- hæðinni. Þetta var niðurstaða gerðardóms KSÍ og er húnendanleg en samninga- og félagaskipta- nefnd KSÍ komst að þeirri niðurstöðu í haustað Víkingum bæri 25% af félagaskipta- og leigugjald- inu. Helgi var í Víkingi en skipti yfir í Fram og lék með liðinu 1993 og 1994. Um haustið fór hann á leigusamningi til Stuttgarts og gerði samning við þýska félagið í júlí sem leið. Framarar töldu sig eiga rétt á öllu gjaldinu en Víkingar fóru fram á 25% af heildargreiðslunni. Kristinn leikur ekki framar fyrir Þór KRISTINN Friðriksson, körfuknattleiksmaður, leikur ekki fleiri leiki með Þór í úrvalsdeildinni. „Það var gert samkomulag milli stjórnar körfu- knattleiksdeildarínnar og Kristins, að við leystum hann undan samniugi og hann hætti að leika með liðinu," sagði Guðjón Andri Gylfason, formaður körfuknattleiksdeildar Þórs, í samtali við Morgun- blaðið. Formaðurinn vildi ekki tjá sig frekar um málið og sagði að ákveðið vandamál hafi komið upp. „Það var ákveðið að ræða þetta mál ekki frekar við fjölmiðla, enda hefur það ekkert upp á sig,“ sagði formaðurinn. „Draumalið" er- lendra leíkmanna gegn landsliðinu STJÖRNULEIKURINN í körfuknattleik verður í íþróttahúsinu Smáranum í Kópavogi á morgun og hefst kl. 16.00. í þessum leik mætir islenska landsliðið úrvalsliði erlendra leikmanna sem hér leika. í hálfleik keppa þriggja stiga skyttur lands- ins í þriggja stiga skotkeppni og bestu „troðarar“ sýna listir sinar í troðslukeppni. Jón Kr. Gislason, landsliðsþjálfari, hefur valið landsliðið og er það þannig sldpað: Falur Harðar- son, Guðjón Skúlason og Albert Oskarsson úr Keflavik, Teitur Orlygsson, Njarðvík, Guðmundur Bragason, Hjörtur Harðarson og Helgi Guðfinnsson úr Grindavik, Jón Arnar Ingvarsson, Pétur Ingvarsson og Sigfús Gizurarson úr Haukum, Herbert Arnarson úr IR og Hermann Hauksson, KR. Lið útlendinganna verður þannig skipað: Ronday Robinson, Njarðvík, Ronday Dobard, Grindavík, Willie Rhines, Hetti Egilsstöðum, Ronald Bayless, Val, Fred WiUiams, Þór, MUton Bell, ÍA, Torrey Jolin, Tinda- stóli, Jason WUliford, Haukum, Michael Thoele, Breiða- bliki, Chrístopher Ozment, KFI tsafirði og John Rhod- es, ÍR. Vala hélt upp á 18 ára afmælið með meti: 4.11 Vala Flosadóttir fijálsíþróttakona úr ÍR hélt upp á 18 ára afmæl- isdag sinn í gær með miklum glæsi- brag; sigraði með Hasse yfirburðum í stang- Sjögren arstökki á sænska skrífar frá meistaramótinu í Borlánge Borlánge og stór- bætti Norðurlandamet sitt með því að stökkva 4,11 metra. Hefði sá árangur gefíð henni fjórða sæti á heimslistanum í fyrra en þá var hún í 19. sæti með 3,81 metra. Vala vakti einna mesta athygii en þar sem hún keppir fyrir ísland fær hún ekki að halda meistaratigninni. Norðurlandamet sitt bætti hún úr 4,00 metrum og er afrekið í heims- klassa, með því allra besta sem náðst hefur í heiminum í vetur. Á hún heimsmet 17 ára og má gera ráð fyrir að árangur hennar sé einnig heimsmet í 18-19 ára flokki. Hvað veldur því að þú stekkur svo hátt í dag? „Ég skipti um stöng eftir að hafa farið yfír 3,90 og það hafði sitt að segja,“ sagði Vala við tíðindamann Morgunblaðsins. Stangarstökkið dróst mjög á lang- inn og það var ekki fyrr en á síðustu klukkustund keppninnar að Vala hóf keppni; hún stökk fyrst eftir að allir hinir keppendurnir voru fallnir úr. Næsta viðfangsefni Völu verður Evrópumeistaramótið innanhúss, sem fram fer í Globen-höllinni í Stokkhólmi eftir þrjár vikur. Þjálfari Völu, Stanislav Sczcyrba, hefur álit á Völu. „Styrkur hennar er hversu hugrökk hún er, ef eitt- hvað er finnst mér hún full æðru- laus. Hún er kjörgripur að þjálfa, er býsna kræf og gerir það sem fyrir hana er lagt,“ sagði þjálfarinn. Vala stefnir að keppni í sjöþraut á heimsmeistaramóti unglinga í Sydney í Ástralíu þar sem ekki verð- ur keppt í stangarstökki þar. „Skilaðu kveðju frá mér heim til Islands," sagði Vala og hvarf inn í herbergi lyfjaeftirlitsmanna. Allir sem setja met verða jú að gangast strax undir lyfjapróf. Til að gefa hugmynd um árangur Völu setti kínversk stúlka, Sun Caiy- un, heimsmet utanhúss í mars í fyrra, stökk 4,06 metra. Var það smám saman bætt af henni, Danielu Bartovu Tékklandi, Andreu Miiller Þýskalandi og Emmu George Ástralíu í 4,28 á árinu. Sú síðasttalda er í algjörum sérflokki í greininni og stökk nú í janúar síðastliðnum 4,41 metra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.