Morgunblaðið - 18.02.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.02.1996, Qupperneq 1
GJALDEYRISTEKJUR af erlend- um ferðamönnum jukust um 1,8 milljarða króna milli áranna 1994 og 1995 samkvæmt upplýsingum Seðlabanka íslands eða' um 11% en á sama tíma fjölgaði gestum til landsins um 6%. Heildartekjur af erlendum ferðamönnum árið 1995 voru tæp- lega 18,7 milljarðar króna, en árið á undan rúmir 16,8 milljarðar. Tekjur af fargjöldum voru um 7,9 milljarðar króna árið 1995 eða um 10% hærri en árið 1994. Tekj- ur af þjónustu sem ferðamenn keyptu á meðan þeir dvöldu í land- inu jukust hins vegar um 12% milli áranna og voru tæpir 10,8 milljarðar í fyrra. Athyglisvert er fyrra ári. Einnig má benda á að yfir sumarmánuðina starfa margir erlendir aðilar að ferðaþjónustu hérlendis og virðisaukinn í þeirra i'ekstri kemur ekki fram sem gjaldeyristekjur hérlendis þó starf- semi þeirri auki auðvitað umsvif ferðaþjónustunnar. Það ánægjulegasta er auðvitað sú aukning sem næst í gjaldeyris- tekjum utan háannatímans, en meginmarkmið ferðaþjónustunnar er að ná aukningu þar. Þær aðgerð- ir sem unnið hefur verið að í þess- um tilgangi virðast vera að skila árangri og rétt er að benda á að hlutfallslega mesta aukning gjald- eyristekna á síðasta ári er í febrúar og nóvember.“ ■ FERÐAMENN ►Ferðamönnum fjölgaði á heimsvísu í fyrra, en vöxturinn var hægari en árin á undan skv. bráðabirgðatölum frá WTO, Alþjóðasamtökum ferða- manna. Skráð ferðalög voru um 567 milljónir og var aukning milli ára 3,8% samanborið við 6,4% aukningu milli áranna 1994 og 1993. TEKJUR ► Alþjóðlegar tekjur af ferða- mönnum voru 372 mil(jarðar dollara eða um 24 þúsund millj- arðar íslenskra króna á síðasta ári og jukust milli ára um 7.2%. VINSÆLDIR ► Frakkland er sem fyrr vinsæl- asti áfangastaður ferðamanna en þangað komu rúmlega 60 milljónir á síðasta ári. Til Spán- ar komu um 45 milijónir og Bandaríkin duttu því í þriðja sætið. Þangað komu 44,7 millj- ónir ferðamanna. VÖXTUR ► Mest aukning ferðamanna var í Miðausturlöndum í fyrra. Þangað komu um 11 milljónir ferðamanna eða 11,8% fleiri en árið áður og tekjur hækkuðu um 29,7% í 6,65 milljarða dollara eða 430 millj- arða íslenskra króna. að aukningin í gjaldeyristekjunum er eingöngu á 1. og 3. ársþriðj- ungi, þ.e.a.s. á tímabilinu frá jan- úar til apríl annars vegar og frá september til desember hins veg- ar. Engin breyting er hins vegar á háannatímanum frá maí til ág- úst. Magnús Oddsson, ferðamála- stjóri, segir afar ánægjulegt að sjá þessa tekjuaukningu þó hún Óbrevltar yfir háannatimann segi í raun ekkert um afkomu ferðaþjónustunnar, en megin- markmiðið sé auðvitað að bæta hana. „Það hlýtur að vekja athygli að aukningin yfir sumarmánuðina er engin,“ segir Magnús. „Skýring- arnar á því geta verið margar. í fyrsta lagi urðu gengissveiflur á árinu þannig að gengi algengustu gjaldmiðla var lægst yfír sumar- mánuðina. í öðru lagi fjölgaði far- þegum hlutfallslega meir utan háannatímans en innan hans. Þá gæti aukin samkeppni vegna auk- ins framboðs í flestum þáttum ferðaþjónustu á háannatímanum hafa leitt til verðlækkunar frá ÞAÐ er margt að sjá í Barcelona á Spáni meðal annars þessa stórfenglegu kirkju, Sagrada Familia. Fjölmargir Islendingar ætla að fljúga til Barcelona í sumar á vegum Flugleiða og ýmist dvelja í borginni sjálfri eða ferðast þaðan um landið á bílaleigubíl. íslendingar eru sólgnir í sólina Spánn er fyrirheitna landiá í sumar SPÁNN er greinilega fyrirheitna landið í sumar en samkvæmt upplýsingum frá ferðaskrifstofum í höfuðborginni er mikið bókað í sumarleyfisferðir þangað. Sumarhús í Danmörku og Hollandi njóta einnig mikilla vinsælda. Að sögn Helga Péturssonar, upplýsingafulltrúa Samvinnuferða-Landsýnar, eru ferðir til Benidorm og Mailorka mjög vinsælar í sumar og ■■■■■ mun meira hefur til dæmis verið bókað til Benidorm en í fyrra. Auk þess hafa sumarhús í Heijderbos í Hollandi verið töluvert vinsæl. Goði Sveinsson, sölu- og markaðsfull- trúi Úrvals-Útsýnar segir að vinsælustu staðirnir sem þar séu í boði séu Portúgal og Mallorka og að um 70-80% viðskiptavina kaupi tveggja vikna ferðir. Þá séu sumarhús í Duinrell í Hollandi að seljast upp en vonast sé til að samn- ingar takist um fleiri hús. Einnig sé Fort Myers í Flórida vinsælt en þangað var fyrst farið að bjóða ferðir síðastliðið haust. Að sögn Laufeyjar Jóhannsdóttur, fram- kvæmdastjóra yngstu ferðaskrifstofunnar sem haft var samband við, Plúsferða, er tvennt sem stendur upp úr á þeim bænum: Danmerkurferðir til Billund seljast afar vel og sömuleiðis ferðir til Mallorka á Spáni. Hjá Heimsferðum fengust þær upplýsingar að nýr áfangastaður ferðaskrifstofunnar, Costa del Sol á Spáni, hafi fengið mjög góðar viðtökur. „Nú þegar eru fjórar ferðir uppseldar og aðrar fjórar eru að seljast upp. Costa del Sol á eftir að verða vinsælasti áfangastaðurinn okkar í sumar,“ segir Andri Már Ingólfsson, framkvæmdastjóri Heims- ferða. Benidorm sé þó einnig vinsælt en þangað fóru um tvö þúsund farþegar á vegum Heimsferða á síðasta ári. Þá eigi hann einnig von á að Parísar- Costa del Sol vinsælt aftur eftir nokkurra órohlé ferðir Heimsferða sem famar verða í júli og ág- úst seljist upp en svo hafí verið þau fjögur ár sem ferðaskrifstofan hafi boðið ferðir þangað. Kolbrún Garðarsdóttir, sölumaður hjá Ferða- skrifstofu stúdenta, segir að sólarlandaferðir með Klúbbi 18-30 séu mjög vinsælar hjá ferðaskrifstof- unni en þar eru meðal annars í boði ferðir til grísku eyjanna sérstaklega miðaðar við þarfir ungs fólks á aldrinum 18 ára til þrítugs. Þá selji ferðaskrifstofan einnig töluvert af ferðum til ungs fólks sem vill ferðast á eigin vegum. Ferðalög um Ítalíu og Austur-Evrópu séu hvað vinsæl- ust og kaupi flestir sér svokölluð Inter- rail kort. Að sögn Helga Daníelssonar, hjá Ferðaskrif- stofu Reykjavíkur er ferðir til Benidorm vinsælar og töluvert hefur verið spurt um Kúbu en nú í sumar bíður ferðaskrifstofan ferðir þangað í fyrsta skipti. Margrét Hauksdóttir hjá upplýsingadeild Flug- leiða segir að áhugi fólks sé greinilega mestur á ferðum til Spánar og þá aðallega Barcelona. Einn- ig sé mikill áhugi á Flórida. „Það er greinilegt að það er mikill áhugi á að komast í só- lina,“ segir Margrét. Þá sé töluvert um að hópar fólks taki sig saman og fari í stórborg- arferðir. Sumar- hús í Þýska- landi og í Dan- mörku vekja auk þessa áhuga margra og er nokkuð farið að spyija um þau. ÁAÐ 4 GÆÐAFLOKKA GISTISTAÐI Á ÍSLANDI? - - GENGID YFIR GRÆNLAND VIÐ strönd Diskóflóa. Diskóeyja í baksýn til hægri. uvgtittlilafriD SUNNUDAGUR18. FEBRÚAR1996 BLAÐ C Danmörk Ódýrir bílaleigubílar fyrir íslendinga Vikugjald: Opel Corsa, dkr. 1.795 OpelAstra, dkr. 1.995 Opel Astra st., dkr. 2.195 Opel Vectra, dkr. 2.495 Tveggja vikna gjald: Opel Corsa, dkr. 2.995 Opel Astra, dkr. 3.590 Opel Astra st., dkr. 3.990 Opel Vectra, dkr. 4.390 Innif. ótakm. akstur og tryggingar. Fáið nánari verðtilboð. Internationa! Cat Rental ApS. Uppl. á íslandi sími 456-3745. Gjaldeyristekjur af ferða- mðnnum aukast um 11 % milli ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.